Toppbaráttan var að sjálfsögðu í aðalhlutverki við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir og Benedikt Bóas ræddu við Kristján Atla um fyrsta fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar og hann valdi úrvalsliðið, besta leikmanninn, besta stjórann og mestu vonbrigðin.
Oct 27, 2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Arnar Gunnlaugsson er tekinn við sem aðalþjálfari Víkings í Reykjavík en hann var gestur þáttarins. Hann ræðir þar sínar hugmyndir um fótbolta, hvað hann vill gera með Víkinga og hvert þjálfarinn Arnar sækir sinn innblástur. Elvar Geir og Benedikt Bóas spjölluðu við hann.
Oct 27, 2018
Fótboltadeildirnar í Evrópu fóru aftur á fulla ferð um helgina og þeir Elvar og Daníel skoðuðu allt það helsta. Eins og vanalega var enski boltinn í aðahlutverki. Meðal efnis: Lætin á Stamford Bridge, tíu í röð hjá Arsenal, frábær tölfræði Lamela, Shaqiri gerði gæfumun í heppnissigri Liverpool, hörmulegur varnarleikur hjá fokdýru Fulham, Gæði í Everton, stærsta áskorun Benítez, staðnaður Donnarumma, kæruleysi hjá Juve, erfitt ár Lopetegui, Meistaradeildin og færeyskur bjór.
Oct 22, 2018
Miðjan er að þessu sinni send út frá Laugardalsvelli. Jón Þór Hauksson var í dag kynntur sem nýr þjálfari kvennalandsliðsins en hann tekur við af Frey Alexanderssyni. Aðstoðarmaður Jóns verður Ian Jeffs, fyrrum leikmaður ÍBV og fyrrum þjálfari kvennaliðs ÍBV. Elvar Geir Magnússon fékk sér sæti með Jóni og Ian Jeffs eftir fréttamannafund í dag og við leyfum hlustendum að kynnast þeim tveimur betur í Miðju vikunnar.
Oct 22, 2018
Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, heimsótti útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977 og var rætt um helstu mál íslenska boltans, innan vallar sem utan. Þórir ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór en meðal umræðuefna var: Viðar Örn Kjartansson leggur skóna á hilluna, fjárhagsmál íslenskra félaga, leikmannastefna, óboðlegur Laugardalsvöllur, ÍTF, komandi ársþing, möguleg mótframboð sem Guðni Bergs gæti fengið og lenging á Íslandsmótinu. Í klippunni hér að ofan er einnig viðtal við Þóri Guðjónss...
Oct 20, 2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Jóhann Már Helgason, sérfræðingur um Chelsea, var á línunni eftir dramatískt 2-2 jafntefli Chelsea og Manchester United. Mikil læti sköpuðust í uppbótartíma leiksins. Í upptökunni er einnig umræða um furðulegan fréttamannafund Bayern München í gær. Jóhann ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór um titilvonir Chelsea, Sarri og þeirra helstu leikmenn
Oct 20, 2018
Grétar Rafn Steinsson, fyrrum landsliðsmaður, menntaði sig í fótboltafræðunum eftir að skórnir fóru á hilluna og er í dag yfirmaður fótboltamála hjá Fleetwood í ensku C-deildinni. Félagið á sér það markmið að komast upp í Championship-deildina og fer vel af stað á þessu tímabili. Grétar var í stuttri heimsókn hér á landi í vikunni og Fótbolti.net fékk hann í spjall. Hann sagði frá starfi sínu hjá Fleetwood og færði rök fyrir því að staða yfirmanns fótboltamála hjá KSÍ gæti hjálpað íslenskum fótb...
Oct 16, 2018
Komið er glænýtt Innkast frá Laugardalsvelli þar sem rýnt var í leik kvöldsins í Þjóðadeildinni, viðureignina gegn Sviss. Elvar Geir Magnússon og Arnar Daði Arnarsson ræddu um leikinn en með þeim var Tómas Þór Þórðarson. Sviss vann 2-1 útisigur. Rýnt var í frammistöðu leikmanna og allt sem tengist leiknum. Hvað á að leggja áherslu á í næsta landsleikjaglugga? Mikilvægi boltastráka, enska landsliðið og fleira bar á góma.
Oct 15, 2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum. Björn Berg Bryde var á línunni en þessi hrikalega öflugi miðvörður yfirgaf Grindavík og gekk í raðir bikarmeistara Stjörnunnar. Hann er ekki eini lykilmaður Grindavíkur sem hefur horfið á braut. Elvar og Tómas ræddu meðal annars um stöðu Grindavíkur, fáa spennandi bita Inkasso-deildarinnar og þjálfaramál í þættinum í dag.
Oct 13, 2018
Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um íslenska landsliðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Farið var yfir jafnteflið gegn heimsmeisturum Frakka og frábæra frammistöðu Íslands. Elvar er nýlentur frá Frakklandi og Tómas lýsti leiknum á Stöð 2 Sport. Leikurinn gegn Sviss á mánudag er mikilvægari en margan grunar. Hvernig verður byrjunarlið Íslands?
Oct 13, 2018
Komið er nýtt Innkast frá Frakklandi, þar sem Ísland leikur vináttulandsleik gegn heimsmeisturunum annað kvöld. Elvar Geir Magnússon, Daníel Rúnarsson og Henry Birgir Gunnarsson hituðu upp fyrir leikinn. Rætt var um sýningaræfingu Frakka, líklegt byrjunarlið Íslands, gagnrýni á Þjóðadeildina og fleira.
Oct 10, 2018
Kominn er í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður um íslenska knattspyrnu kvenna. Fyrsti þáttur varð aðgengilegur í gær en í honum fara þáttastjórnendurnir, Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir, yfir gang mála í Pepsi-deild kvenna í sumar. Ræða tímabilið og velja bestu leikmenn hvers liðs í deildinni.
Oct 10, 2018
Evrópu-Innkastið fór yfir málin og hvort liðin gangi sátt inn í landsleikjahlé. Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon stýrðu þættinum.
Oct 07, 2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir slúðursögur úr íslenska fótboltanum og einhverjar staðfestar fréttir. Úr því spunnust ýmsar vangaveltur. Báðir höfðu þeir heyrt, úr ólíkum áttum, að Heimir Hallgrímsson fyrrum landsliðsþjálfari sé á óskalista kanadíska félagsins Vancouver Whitecaps sem spilar í MLS-deildinni bandarísku. Sagan segir að Heimir sé í Vancouver en þjálfari liðsins var rekinn í lok september. Leigubílasögur úr Pepsi-deildinni voru einnig til umr...
Oct 06, 2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það var margt áhugavert í vali Erik Hamren á landsliðshóp fyrir komandi leiki, vináttulandsleiknum gegn heimsmeisturum Frakklands og Þjóðadeildarleiknum gegn Sviss (11. og 15. okt). Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um valið, fréttamannafundinn og verkefnið framundan. Kristján Guðmundsson kom með sitt álit. Átti að velja Arnór Sigurðsson? Færði leikbann Jóni Degi sæti í landsliðinu? Er þriggja miðvarða kerfi málið? Er rétt að velja Kolbein? Hvaða væntingar get...
Oct 06, 2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um enska boltann. Frétt Mirror um að búið væri að ákveða að reka Jose Mourinho og upphitun fyrir stórleik Liverpool og Manchester City. Kristján Atli Ragnarsson, talsmaður Liverpool á Íslandi, var á línunni.
Oct 06, 2018
Evrópu-Innkastið stóð svo sannarlega undir nafni í kvöld hjá þeim Daníel Geir Moritz og Elvari Geir Magnússyni. Meistaradeildinni var blandað saman við Evrópudeildirnar í ferskri umræðu og staðan í hinum og þessum deildum gerð upp. Meðal efni þáttarins: Krísa í Liverpool? Edin Hazard, nú er nóg komið hjá Mourinho, topp 10 bestu hingað til í enska, spenna í Þýskalandi, Gylfi og Jóhann Berg á eldi o.fl. o.fl.
Oct 03, 2018
Í Miðjunni þessa vikuna ætlum við að gera upp stórskemmtilegt sumar í 2. deild karla. Deildin var æsispennandi og margir eygðu möguleika á að komast upp. Elvar Geir Magnússon fékk til sín þjálfarana tvo sem komust upp í Inkasso-deildina, Arnar Hallsson hjá Aftureldingu og Óskar Hrafn Þorvaldsson hjá Gróttu, og þeir gerðu upp tímabilið á afar hreinskilinn hátt. Báðir staðfestu að þeir verði áfram við stjórnvölinn hjá sínum félögum. Rætt var um deildina í sumar og vonir og væntingar hjá Aftureldin...
Oct 02, 2018
Eiður Aron Sigurbjörnsson, varnarmaður Vals, mætti í langt og gott spjall við Innkastið eftir að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í dag. Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson ræddu við hann á Hlíðarenda með Íslandsmeistarabikarinn sjálfan. Eiður Aron var á einlægu nótunum í spjallinu og opnaði sig meðal annars um það að hann hafi verið kominn í skuldir vegna spilafíknar á tíma sínum í atvinnumennsku erlendis. Eiður spilaði póker fram á nótt og það hafði áhrif á frammistöðu hans á vel...
Sep 29, 2018
Það er vel við hæfi að síðasta Pepsi-Innkast tímabilsins var tekið upp á Hlíðarenda, eftir að Valsmenn lyftu Íslandsmeistarabikarnum. Elvar Geir, Maggi og Gunni Birgis gerðu upp tímabilið eftir lokaumferðina. Þeir opinberuðu val Fótbolta.net á bestu mönnum mótsins og völdu sjálfir besta leikmanninn í hverju liði deildarinnar. Innkastið þakkar fyrir hlustunina í sumar!
Sep 29, 2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net. Lokahóf Inkasso-deildarinnar fór fram á föstudag þar sem opinberað var lið ársins og bestu menn. Elvar Geir og Benedikt Bóas fóru yfir valið í útvarpsþættinum Fótbolti.net og ræddu við Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfara ÍA. ÍA og HK komust upp úr deildinni.
Sep 29, 2018
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net. Tryggvi Páll Tryggvason á raududjoflarnir.is ræddi við Elvar Geir og Benedikt Bóas fljótlega eftir 3-1 tap Manchester United gegn West Ham. United er í miklum vandræðum og spurning hvort Jose Mourinho sé rétti maðurinn til að koma liðinu úr þeim?
Sep 29, 2018
Miðjan er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem rætt er við skemmtilega viðmælendur sem tengjast boltanum. Viðmælandinn að þessu sinni er hinn grjótharði en manneskjulegi Heimir Þorsteinsson. Heimir er fæddur 1966 og ólst upp á Stöðvarfirði. Hann er hvað þekktastur fyrir að hafa þjálfað Fjarðabyggð, fyrst 2004 og 2005 og síðan frá 2008 - 2012. Hann var hársbreidd frá því að koma Fjarðabyggð í deild þeirra bestu en upplifði einnig brösótta tíma við stjórnartaumana. Oft og tíðum snerist þjálfaraf...
Sep 26, 2018
Evrópu-Innkastið gerði upp 6. umferð enska boltans í þætti kvöldsins. Þáttastjórnandi var Daníel Geir Moritz en Elvar Geir Magnússon var fjarri góðu gamni, þar sem hann er í hópeflisferð í Ungverjalandi.
Sep 24, 2018
Næstsíðasta umferðin í Pepsi-deild karla fór fram í gær og í Innkasti dagsins er farið vel yfir hana. Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson fóru yfir leikina ásamt skemmtikraftinum Hjálmari Erni Jóhannssyni.
Sep 24, 2018
Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson voru með útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu milli klukkan 12 og 16:00 á laugardaginn en Elvar Geir Magnússon er staddur erlendis.
Sep 24, 2018
HK tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni um síðustu helgi og leikur því á meðal þeirra bestu næsta sumar eftir tíu ár í næstefstu og þriðju efstu deild.
Sep 19, 2018
Evrópu-Innkastið heilsar á þessu fallega mánudagskvöldi. Elvar Geir og Daníel Geir Moritz rýndu í síðustu umferð í enska, litu til Ítalíu og skoðuðu komandi keppni í Meistaradeildinni. Þá fóru þeir í samkvæmisleik og gáfu þeim leikmönnum sem Liverpool hefur keypt frá Southampton einkunn. Rætt í þættinum: Hazard í sínu besta formi, Liverpool og City einu kandídatarnir, afleit byrjun Burnley og Everton, hvað er í gangi með Ryan Fraiser? Zaha að væla í fjölmiðlum, Wolves með skemmtibolta, Ronaldo v...
Sep 17, 2018
Það var nóg að gerast í íslenska boltanum um helgina og Elvar Geir, Magnús Már og Gunni Birgis bjóða upp á langt og öflugt Innkast að þessu sinni. Bikarúrslitaleikurinn, Pepsi-deildin, þjálfarasögur og Inkasso-deildin voru til umræðu. Meðal efnis: Markverðirnir og dómarinn bestir í bikarúrslitaleiknum, aðhlaup Olivers, rauð spjöld og dúfur í Víkinni, er verið að byggja upp lið hjá FH?, löng innköst, Binni bolti bekkjaður, Pedersen langbesta nían, Gunni giskar, þjálfarasögurnar, Eiður Smári í þjá...
Sep 17, 2018
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, ræddi við útvarpsþáttinn Fótbolti.net um stærstu fréttirnar á Akureyri. Tufa hættir sem þjálfari liðsins eftir tímabilið en það var staðfest í vikunni. Með hvaða hætti var viðskilnaðurinn og hvað tekur við hjá KA?
Sep 15, 2018