Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

HM innkastið - Eiga heima á stærsta sviðinu (Staðfest)

Þátttöku Íslands á HM í Rússlandi lauk með 2-1 tapi gegn Króatiu í Rostov við Don. HM innkastið, það síðasta frá Rússlandi, var tekið upp í rútu eftir leik en þeir Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Tómas Þór Þórðarson fóru þar yfir málin. Hljóðgæðin eru ekki eins og best verður á kosið, enda er erfitt að losna við rútuhljóðin. Meðal efnis var: Hetjuleg frammistaða gegn Króatíu, Heimir sendur til Bandaríkjanna, næsti landsliðsþjálfari, stór ákvörðun hjá KSÍ, Þjóðadeildin, Emil Hallfre...

Jun 27, 2018

HM Innkastið - Jákvæðir í Rostov við Don

HM Innkastið er enn í góðum gír í Rússlandi. Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður RÚV, er gestur Innkastsins að þessu sinni. Á morgun er komið að leik gegn Króatíu en Elvar og Maggi ræddu við Einar um komandi leik og líkleg byrjunarlið liðanna. Vangaveltur um hvaða lið sé líklegast til að vinna mótið, umræða um langar rútuferðir, spurningar frá Bleikt & blátt, læti á síðustu æfingu Íslands fyrir leik og ýmislegt fleira.

Jun 25, 2018

HM Innkastið - Hvað gerist gegn Króötum?

Íslenska landsliðið er mætt til Rostov fyrir leikinn gegn KRóatíu á þriðjudagskvöld. HM innkastið var að þessu sini tekið upp í rútunni frá flugvellinum. Arnar Daði Arnarsson og Magnús Már Einarsson voru í þætti dagsins ásamt Kolbeini Tuma Daðasyni frá Vísi.

Jun 24, 2018

HM Innkastið - Sögulegur fundur í Volgograd

Innkastið er að þessu sinni sent út frá Volgograd leikvangnum þar sem Ísland og Nígería mætast á morgun. Elvar Geir og Magnús Már fóru yfir það sem hefur verið að gerast í Volgograd. Hörður Snævar Jónsson var með þeim og Tómas Þór Þórðarson var á kantinum. Meðal þess sem um var rætt: Fjarvera Jóa, áhugaverðir fréttamannafundir dagsins, flugur, frestaður fjölmiðlaleikur, styttuskoðun og rýnt í leik morgundagsins.

Jun 21, 2018

HM Innkastið - Gylfi í garðinum og gamli skólinn á Instagram

HM innkast dagsins var tekið upp á flugvellinum í Gelendzhik rétt fyrir flug til Volgograd þar sem Ísland mætir Nígeríu á föstudaginn. Magnús Már Einarsson og Arnar Daði Arnarsson fóru yfir málin ásamt Guðmundi Hilmarssyni íþróttafréttamanni á Morgunblaðinu. Gummi kom með góðar sögur af því þegar Gylfi Þór Sigurðsson var að sparka í bolta í garðinum hjá honum á yngri árum. Gylfi og Viktor Örn, sonur Gumma, hafa verið bestu vinir síðan í æsku og Gummi fór yfir spyrnutæknina með þeim í Hafnarfirði...

Jun 20, 2018

HM Innkastið - Foringinn, fluguhræðsla og félagaskipti

Henry Birgir Gunnarsson, eða Foringinn eins og hann er kallaður á hótelinu í Rússlandi, var með í Innkastinu að þessu sinni. Komið var víða við í skemmtilegu spjalli við Elvar og Magga. Moskítófaraldur í Stalíngrad, heimsókn frá Mið-Íslandi, rússneskar styttur, félagaskiptatíðindi af Kára og Rúnari, Rúrik á Instagram, hornspyrnur Harry Kane, umræðan í Nígeríu og rússneskt sjónvarp koma við sögu ásamt mörgu fleiri.

Jun 19, 2018

HM Innkastið - Spjallað við Tómas Þór um landsliðið og lífið í Rússlandi

Hvað gerði gæfumuninn gegn Argentínu? Hvernig byrjar Ísland gegn Nígeríu án Jóa Berg? Hvað gerðu strákarnir okkar á æfingu dagsins? Verður karókí-keppni annað kvöld? Þessar spurningar og fleiri í HM-Innkastinu þar sem Tómas Þór Þórðarson var með Elvari og Magnúsi í þráðbeinni frá Rússlandi. Áttunda daginn í röð er HM-Innkastið sent út frá Rússlandi. Þátturinn tekur sér frí á morgun en mætir svo endurnærður á þriðjudaginn!

Jun 17, 2018

HM Innkastið - Lokað á hrokafulla Argentínumenn

Innkastið þennan daginn var sent út frá rútunni sem flutti íslenska fjölmiðlamenn frá Spartak vellinum eftir 1-1 jafntefli Íslands og Argentínu. Einn allra besti vinur Innkastsins, Haukur Harðarson á RÚV, spjallaði við Elvar og Magga. Fyrsti leikur Íslands á HM var krufinn. Maradona og Messi komu við sögu, hrokinn í Argentínumönnunum og frammistaða okkar manna var skoðuð. Hver ætlar að skrifa kvikmyndahandritið að myndinni um Hannes?

Jun 16, 2018

HM Innkastið - Mállítill Messi og síðustu vangaveltur fyrir stærsta leikinn

Stærsti leikur Íslandssögunnar verður á morgun þegar leikið verður gegn Argentínu í Moskvu. Innkastið að þessu sinni var tekið upp þegar stund gafst milli stríða í fréttamannaherberginu, rétt fyrir fréttamannafund Argentínu. Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is, spjallað við Elvar og Magga.

Jun 15, 2018

HM Innkastið - Flugferð og framtíð Heimis

Innkastið er útvarpsþátturinn Fótbolti.net þennan fimmtudaginn! Tómas Þór Þórðarson spjallaði við Elvar Geir Magnússon og Magnús Má Einarsson á flugvellinum í Gelendzhik áður en flogið var yfir til Moskvu. Argentínuleikurinn er handan við hornið og spennan eykst!

Jun 14, 2018

HM Innkastið - Svaðilför í Svartahaf og tími til að tengja

Elvar Geir og Magnús Már fengu ansi góðan gest í HM Innkastið að þessu sinni. Reynsluboltinn Arnar Björnsson spjallaði við þá félaga og var víða komið við. Arnar hefur upplifað margt á löngum ferli en bjóst aldrei við því að fjalla um íslenska fótboltalandsliðið á stórmóti. Sundferðir í Svartahaf, rússneskir hermenn, líklegt byrjunarlið Argentínu, þjálfarabrottrekstur Spánar, gamlar og góðar sögur og ýmislegt fleira í öflugum þætti.

Jun 13, 2018

HM innkastið - Sturlaður ferill Hannesar og fyrstu varamenn

Hörður Snævar Jónsson var gestur HM-Innkastsins að þessu sinni. Hann spjallaði við Magnús Má og Arnar Daða Arnarsson frá Fótbolta.net. Rætt var um ótrúlegan feril markmannsins Hannesar Þórs Halldórssonar og sögurnar í kringum hann. Skoðað var hvaða varamenn eru líklegastir til að koma fyrst inn af bekknum hjá Íslandi í mótinu og rætt var um fyrstu dagana í Rússlandi.

Jun 12, 2018

HM Innkastið - Pælingar við sundlaugarbakkann

Haukur Harðarson er gestur HM-Innkastsins að þessu sinni. Hann spjallaði við Magnús Má og Elvar Geir við sundlaugarbakkann á fjölmiðlahótelinu. Umfjöllun RÚV, lífið í Rússlandi, heimsmeistaramótið framundan, svakaleg sóknarlína Argentínu, hugsanlegt byrjunarlið Íslands í fyrri leiknum, Pepsi hornið og dómaraferill Hauks koma við sögu!

Jun 11, 2018

HM Innkastið - Edda uppljóstrar leyndarmálum í Rússlandi

2. þáttur HM-Innkastsins er sendur út beint frá Rússlandi. Edda Sif Pálsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV, fékk sér sæti með Elvari og Magga í stúkunni við æfingasvæði íslenska landsliðsins. Rætt var um ferðalagið til Rússlands og aðstöðu íslenska liðsins, veisluna sem er framundan á RÚV og Edda uppljóstraði leyndarmálum enda er allt látið flakka í Innkastinu.

Jun 10, 2018

Útvarpsþátturinn - Rýnt í alla riðla HM í Rússlandi

Upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þann 9. júní. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már skoðuðu alla riðla HM í Rússlandi og spáðu fyrir um hvaða lið munu komast upp úr þeim. Riðill Íslands fékk að sjálfsögðu gott pláss í þættinum!

Jun 09, 2018

HM innkastið - Mismikil bjartsýni eftir Ganaleik

Ísland gerði 2-2 jafntefli við Gana í vináttuleik á Laugardalsvelli í kvöld. Um var að ræða síðasta leik Íslands fyrir HM í Rússlandi. Eftir leikinn fóru Magnús Már Einarsson, Gunnar Birgisson og Tryggvi Guðmundsson yfir málin í HM Innkastinu. Leikurinn í kvöld var skoðaður sem og HM sem er framundan.

Jun 07, 2018

Gísli Eyjólfs og Davíð Kristján gera upp byrjun Blika á Íslandsmótinu

Pepsi-deildin fer stórskemmtilega af stað og útlit fyrir hörkuspennandi mót. Í þessari jöfnu deild er Breiðablik á toppnum eftir sex umferðir. Fótbolti.net fékk Gísla Eyjólfsson og Davíð Kristján Ólafsson, leikmenn Blika, til að fara yfir byrjunina í útvarpsþættinum. Rætt var um hvern leik fyrir sig. Báðir hafa spilað gríðarlega vel í upphafi tímabils en Gísli er vafalaust einn af allra bestu leikmönnum deildarinnar. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Tryggvi Guðmunds spjölluðu við þá Gísla og Davíð....

Jun 02, 2018

Útvarpsþátturinn - Landsliðið og komandi leikir í Pepsi

Hér má nálgast fyrri helming útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 2. júní. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Tryggvi Guðmunds ræddu um landsliðið, leikinn gegn Noregi og skoðuðu næstu leiki Pepsi-deildarinnar. Ómar Smárason, fjölmiðlafulltrúi KSÍ, gaf okkur innsýn inn í næstu daga landsliðsins og áhuga erlendra fjölmiðla á strákunum okkar. Rætt var við sænska dómarann Jonas Eriksson sem verður með flautuna á Laugardalsvelli í kvöld.

Jun 02, 2018

Innkastið - Síðasta Evrópu-Innkast tímabilsins

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz gerðu upp Evróputímabilið í boltanum í síðasta Evrópu-Innkasti tímabilsins. Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu, þjálfara- og leikmannamálin og ýmislegt fleira. Balotelli hornið, draumalið úr fall-liðunum og ég veit ekki hvað og hvað.

May 28, 2018

Inkasso-hringborðið - Rýnt í öll liðin og byrjun deildarinnar

Inkasso-deildin er farin af stað og útlit fyrir skemmtilega og spennandi deild. Menn eru þó sammála um að færri gæðalið séu í deildinni en oft áður og ljóst að þau lið sem fara upp þurfa að styrkja sig verulega. Öll lið deildarinnar voru skoðuð og spáð í spilin í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson voru á sínum stað en með þeim voru Þorlákur Árnason og Magnús Már Einarsson.

May 26, 2018

Risaleikur í kvöld - Hanna Sím í beinni frá Kænugarði

Það er glimrandi stemning í Kænugarði þar sem Real Madrid og Liverpool eigast við í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um leikinn og heyrðu í fréttaritara þáttarins í Kænugarði. Hanna Símonardóttir verður á vellinum og sagði frá stuðinu í Úkraínu.

May 26, 2018

4. deildar Innkastið - Ástríðudeildin loksins farin af stað

4. deild karla, neðsta deild Íslandsmótsins, er farin á fulla ferð og í tilefni þess sendum við hér út sérstakan þátt um deildina. Það má kalla þetta upphitunarþátt þrátt fyrir að boltinn sé vissulega farinn að rúlla! Runólfur Trausti Þórhallsson er umsjónarmaður þáttarins en með honum eru Einar Guðnason og Grétar Óskarsson.

May 25, 2018

Pepsi yfirferð - 4. umferðin gerð upp með Grétari Sigfinni

Fjórða umferð Pepsi-deildarinnar var gerð upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Tómas Þór Þórðarson, Elvar Geir Magnússon og Grétar Sigfinnur Sigurðarson voru í hljóðverinu og var nóg að ræða. Stórleikir voru á dagskrá, dómaraskandalar og áhorfandi fékk að líta rauða spjaldið. Leikir 4. umferðarinnar: Keflavík - Fjölnir 1-2 KR - Breiðablik 1-1 Víkingur R. -Grindavík 0-1 Valur - Stjarnan 2-2 Fylkir - ÍBV 2-1 FH - KA 3-1

May 19, 2018

Enska hringborðið - Lokauppgjör og upphitun fyrir risaleiki

Síðasta enska hringborð tímabilsins! Úrvalsdeildin var gerð upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Einnig var hitað upp fyrir tvo stórleiki; bikarúrslitaleik Chelsea og Manchester United og sjálfan úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu, viðureign Real Madrid og Liverpool. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson stýrðu umræðum. Góðvinir þáttarins, Kristján Atli Ragnarsson (sérfræðingur um Liverpool) og Tryggvi Páll Tryggvason (sérfræðingur um Manchester United) mæta.

May 19, 2018

Innkastið - Blikar geta unnið mótið

Þrátt fyrir að einum leik sé ólokið í þriðju umferð Pepsi-deildarinnar var Innkast umferðarinnar tekið upp í dag. Eftir hverja umferð fara Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson yfir alla leikina. Spjallað er um leikina, stemninguna, kjaftasögurnar, draumaliðsdeildina og spáð í spilin fyrir næstu leiki.

May 14, 2018
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android