Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Enska hringborðið - Spáin fyrir tímabilið

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net rýndi í sérstaka spá fyrir ensku úrvalsdeildina. Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Ingólfur Sigurðsson skoðuðu spá Fótbolta.net og ræddu um liðin 20 sem skipa deildina.

Aug 11, 2018

Innkastið - Sóknartilþrifa sárt saknað

Fimm af sex leikjum 15. umferðar Pepsi-deildarinnar er lokið. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson voru ekki hrifnir af lágu skemmtanagildi leikjanna þegar þeir fóru yfir þá í Pepsi-Innkasti vikunnar. Einnig var rætt um bikarinn, Val í Evrópu, Inkasso-deildina og nýjan landsliðsþjálfara Íslands.

Aug 09, 2018

Er mætingin á Pepsi-deildina í sumar vonbrigði?

Hér má nálgast seinni hluta útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 4. ágúst. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson voru í þættinum. Hringt var til Vestmannaeyja í Daníel Geir Moritz, fyrir Þjóðhátíðarleik ÍBV og Fylkis. Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, kom í heimsókn og ræddi um mætingu á Pepsi-deildina. Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, var á línunni frá Reading en Brynjar spilaði undir stjórn Erik Hamren sem virðist vera að taka við íslens...

Aug 04, 2018

Innkastið - Mourinho leggur rútunni og kastar mönnum undir hana

Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Manchester United. Elvar Geir Magnússon ræddi við Halldór Marteinsson af raududjoflarnir.is um það neikvæða andrúmsloft sem er kringum United og Mourinho á þessu undirbúningstímabili. Er ástæða til svartsýni hjá stuðningsmönnum United? Tíðindi sumarsins og fleira til umræðu. Einnig er fjallað um stofnun kvennaliðs Manchester United en Halldór skrifaði langa grein um það nýlega.

Jul 31, 2018

Innkastið - Hungur, endurkomur og óboðlegar frammistöður

14. umferð Pepsi-deildarinnar er að baki og það er mikil spenna á báðum endum. Elvar Geir Magnússon og Gunnar Birgisson eru á sínum stað í íslenska Innkastinu en Arnar Daði Arnarsson fyllir skarð Magnúsar Más að þessu sinni.

Jul 31, 2018

Leiðin út - Oliver Sigurjónsson

Leiðin út er nýtt podcast hlaðvarpsþáttaröð þar sem rætt er við fótboltamenn sem fóru ungir út í atvinnumennsku. Sumir eru þar enn, aðrir komu heim og fóru jafnvel aftur út. En hvað voru þeir að gera til að komast út og hvernig voru fyrstu skrefin erlendis? Viðmælandi þáttarins er Oliver Sigurjónsson. Hann ræðir akademíu Breiðabliks, sjálfstraust, hvernig er best að hefja atvinnumannaferilinn, lífið úti og endurkomuna til Íslands. Að lokum gefur hann fimmtán ára sjálfum sér ráð áður en hann held...

Jul 30, 2018

Oliver mætti í útvarpið - Blikaspjall og boltapælingar

Oliver Sigurjónsson, miðjumaður Breiðabliks, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann spjallaði við Elvar Geir og Tómas Þór um Breiðablik, stöðu sína hjá Bodö/Glimt og pælingar sínar varðandi þjálfun. Svo eitthvað sé nefnt!

Jul 29, 2018

Úrvalslið umferða 1-11 í Inkasso-deild karla

Fyrri helmingur Inkasso-deildarinnar var gerður upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag, umferðir 1-11. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson opinberuðu úrvalsliðið, besta leikmanninn og besta þjálfarann en fréttaritarar Fótbolta.net voru í dómnefndinni.

Jul 28, 2018

Útvarpsumræða - Landsliðsmál, Pepsi og Evrópuframmistaða

Hér má nálgast upptöku af fyrri hluta útvarpsþáttarins Fótbolti.net sem var á X977 laugardaginn 28. júlí. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu um leitina að næsta landsliðsþjálfara Íslands, skoðuðu komandi umferð í Pepsi-deildinni og ræddu um Evrópuframmistöðu íslenskra liða.

Jul 28, 2018

Leiðin út - Rúnar Alex Rúnarsson

Leiðin út er ný hlaðvarpsþáttaröð þar sem rætt er við fótboltamenn sem fóru ungir út í atvinnumennsku. Sumir eru þar enn, aðrir komu heim og fóru jafnvel aftur út. En hvað voru þeir að gera til að komast út og hvernig voru fyrstu skrefin erlendis? Fyrsti gestur þáttarins er Rúnar Alex Rúnarsson. Í þættinum er meðal annars rætt um fótboltalegt uppeldi hans erlendis, aukaæfingar, hugarfar, samkeppni, markmiðasetningu og mikilvægi þess að hafa gott fólk í kringum sig. Umsjónarmaður þáttarins er Gyl...

Jul 23, 2018

Inkasso-umræða úr útvarpsþættinum

Inkasso-deildin er rétt rúmlega hálfnuð en hún var til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Tómas Þór Þórðarson, Ingólfur Sigurðsson og Grétar Sigfinnur Sigurðarson ræddu málin.

Jul 21, 2018

HM uppgjör 2018 - Sportrásin

Sportrásin er á Rás 2 á sunnudagskvöldum en umsjónarmaður er Orri Freyr Rúnarsson. Í nýjasta þættinum var HM í Rússlandi gert upp en með Orra voru Elvar Geir Magnússon, ritstjóri Fótbolta.net, og Benedikt Bóas Hinriksson, blaðamaður á Fréttablaðinu. Rætt var um sigur Frakklands gegn Króatíu í úrslitaleiknum í Moskvu og sérstök verðlaunaafhending var sett upp fyrir mótið í heild sinni.

Jul 15, 2018

Elvar og Tómas ræða um Pepsi-deildina - Skortur á mörkum áhyggjuefni

Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um Pepsi-deildina og frammistöðu íslenskra liða í Evrópukeppnum í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Talað var um hversu lítið flest liðin í Pepsi-deildinni skora af mörkum. Er lágt skemmtanagildi í deildinni áhyggjuefni. Víkingar fá verðskuldað lof og rætt um möguleika Valsmanna í seinni leiknum gegn Rosenborg.

Jul 14, 2018

Stærstu fótboltatíðindin - Sarri og Ronaldo færa sig um set

Það bárust stórtíðindi í vikunni þegar Cristiano Ronaldo yfirgaf Real Madrid og samdi við Ítalíumeistara Juventus. Í morgun tilkynnti Chelsea svo formlega um ráðningu á Maurizio Sarri sem stýrði áður Napoli. Björn Már Ólafsson er helsti sérfræðingur landsins um ítalska fótboltann og hann ræddi við Elvar og Tómas um þessar stóru fréttir í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Jul 14, 2018

HM hringborðið - Í beinni frá Frakklandi og Englandi

Úrslitaleikur Frakklands og Króatíu á HM í Rússlandi er framundan. Elvar og Tómas hituðu upp fyrir leikinn í útvarpsþættinum á X977. Davíð Snorri Jónasson, HM sérfræðingur þáttarins, er staddur í Frakklandi og sagði frá stemningunni í landinu og sinni tilfinningu fyrir leiknum. Þá var rætt um enska landsliðið og grasrótarstarfið í landinu. Árni Ingi Pjetursson vinnur fyrir Nike og hefur unnið náið með enska knattspyrnusambandinu.

Jul 14, 2018

Vængjum þöndum - Valur í Evrópu

Fótbolti.net fékk sérstakt leyfi til að birta viðhafnarþátt af Podcasti Vals, Vængjum þöndum. Í þættinum er hitað upp fyrir komandi leiki Valsmanna gegn Rosenborg og möguleikarnir skoðaðir. Jón Grétar Jónsson og Þorgrímur Þráinsson, fyrrum leikmenn Vals, settust niður í hljóðveri og rifjuðu upp nokkra Evrópuleiki. Þegar Kevin Keegan spilaði með Hamburg, viðureignina við Mónakó þar sem Arsené Wenger var við stjórnvölinn og auðvitað Juventus. Ferðalagið sjálft þegar spilað var við Wismut Aue. Umsj...

Jul 10, 2018

Hannes: Tankurinn tómur eftir EM en ekki núna

„Þetta kom upp beint eftir þennan Argentínuleik," segir markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson en hann er genginn í raðir Qarabag í Aserbaídsjan. Hannes ræddi við Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson í útvarpsþættinum Fótbolta.net á X-inu 977 í gær, laugardag.

Jul 08, 2018

HM hringborðið - Átta liða úrslit með Davíð Snorra

Er fótboltinn að koma heim? Davíð Snorri Jónasson er HM-sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolti.net og fór yfir leikina í 8-liða úrslitum. Hann skoðaði sigurleiki Frakka og Belga í gær og ræddi um leiki dagsins við Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson. Davíð var einn af leikgreinendum íslenska landsliðsins á HM í Rússlandi.

Jul 07, 2018

Innkastið - Leikurinn sem bjargaði mótinu

Pepsi-útgáfan af Innkastinu er mætt aftur eftir hlé vegna þátttöku Íslands á HM í Rússlandi. Í þætti dagsins skoða Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson elleftu umferð deildarinnar. Einnig er rætt aðeins um HM í fótbolta og Inkasso-deildina.

Jul 03, 2018

Lífið í FH - Gummi Kristjáns og Jónatan heimsóttu útvarpsþáttinn

Guðmundur Kristjánsson og Jónatan Ingi Jónsson eiga það sameiginlega að hafa gengið í raðir FH fyrir yfirstandandi tímabil. Þeir voru gestir í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Guðmundur kom heim eftir atvinnumennsku í Noregi en Jónatan, sem er 19 ára, lék með unglingaliðum AZ Alkmaar. Í þættinum ræddu þeir um lífið í FH og erlendis, byrjun Hafnarfjarðarliðsins, markmið, fótboltann í Noregi og Hollandi og ýmislegt fleira.

Jul 01, 2018

Landsliðspælingar - Kaflaskil hjá Íslandi

Í útvarpsþættinum Fótbolti.net ræddu Elvar og Tómas um þau kaflaskil sem íslenska landsliðið er nú að fara að ganga í gegnum. Báðir miðverðirnir virðast á förum, rétt eins og sjálfur landsliðsþjálfarinn. Þá eru leikmenn í liðinu komnir á lokasprettinn á sínum ferli. Þá var spjallað við Hilmar Jökul í Tólfunni og hann sagði aðeins frá upplifun sinni af því að styðja Ísland á HM í fótbolta.

Jul 01, 2018

Rýnt í 16-liða úrslit HM með Davíð Snorra

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 er kominn aftur í sitt eðlilega horf þar sem Elvar Geir og Tómas Þór eru komnir heim frá Rússlandi. Í þætti dagsins voru 16-liða úrslit HM í Rússlandi skoðuð með Davíð Snorra Jónassyni. Davíð var leikgreinandi fyrir KSÍ á HM í Rússlandi og hefur séð góðan fjölda leikja.

Jun 30, 2018

Gunnar Jarl skoðar komandi umferð í Pepsi-deildinni

Gunnar Jarl Jónsson, fyrrum dómari og nú sérfræðingu Pepsi-markanna, er staddur á Orkumótinu í Vestmannaeyjum. Elvar Geir og Tómas Þór heyrðu í Gunnari í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag og fengu hann til að skoða 11. umferð Pepsi-deildarinnar. Fimm leikir verða á morgun og umferðinni lýkur svo með stórleik FH og Stjörnunnar á mánudagskvöld.

Jun 30, 2018
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android