Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Landsliðsumræða - Viljum ekki vondu tímana aftur

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræða um landsleikina tvo hjá körlunum sem að töpuðust gegn Sviss og Belgíu. Lesin er viðhorfsgrein Ívars Benediktssonar, blaðamanns Morgunblaðsins en hann gagnrýnir þar landsliðsfyrirliða fyrir að mæta ekki í viðtöl. Þá er rætt um komandi verkefni og hvað menn vilja sjá í síðustu fjórum landsleikjum ársins.

Sep 15, 2018

Elvar og Tómas hituðu upp fyrir úrslitaleikinn

Elvar Geir og Tómas Þór tóku veglega upphitun fyrir bikarúrslitaleikinn í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Stjarnan og Breiðablik mætast og var slegið á þráðinn til aðstoðarþjálfara liðanna. Jón Þór Hauksson og Guðmundur Steinarsson voru á línunni. Hvernig væri sameiginlegt lið hjá þessum tveimur félögum? Þá var spjallað við Kára Ársælsson sem var fyrirliði Breiðabliks þegar liðið varð bikarmeistari 2009.

Sep 15, 2018

Miðjan - Óli Stefán fer yfir víðan völl

Miðjan er nýr hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net. Þátturinn fer á fulla ferð í vetur en í hverjum þætti fáum við til okkar góðan gest. Við tökum forskot á sæluna í dag með ítarlegu viðtali við Óla Stefán Flóventsson. Tilkynnt var á dögunum að Óli Stefán muni hætta sem þjálfari Grindvíkinga eftir tímabilið eftir magnaðan árangur undanfarin þrjú ár.

Sep 12, 2018

Innkastið - Hrist upp eftir sjokk í landsleikjahléi

Á að nýta þá landsleiki sem eftir eru á árinu í að hrista upp í landsliðshópnum? Elvar Geir, Magnús Már og Tryggvi Guðmundsson fengu sér sæti eftir 0-3 tapið gegn Belgíu á Laugardalsvelli í kvöld. Ísland er að fara að falla úr Þjóðadeildinni og rætt var um hvort ekki ætti að nýta þá leiki sem eftir eru á árinu, tvo Þjóðadeildarleiki og tvo vináttulandsleiki, í að yngja upp í liðinu. Einnig var að sjálfsögðu talað um leikinn í kvöld og frammistöðu íslenska liðsins.

Sep 11, 2018

Innkastið - Djúp sár sleikt eftir Sviss og horft til Belgíuleiksins

Á meðan íslenska landsliðið æfði á Laugardalsvelli í dag spjölluðu Elvar Geir og Magnús Már við Hörð Snævar, ritstjóra 433.is, um landsliðið. Rætt var um hamfarirnar í Sviss og komandi landsleikur gegn Belgíu var til skoðunar. Meðal efnis: Allt fór úrskeiðis í Sviss, hverjar eru helstu orsakirnar fyrir skellinum, hefði Hamren getað gert betur?, hvaða breytingar verða gerðar á byrjunarliðinu, öflugur mótherji morgundagsins.

Sep 10, 2018

Landsliðsumræða frá Sviss - Elvar og Tómas ræða um leikinn

Á morgun mætast Sviss og Ísland í Þjóðadeildinni en Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson eru staddir í Sviss. Þeir fengu sér sæti á varamannabekk á keppnisvellinum í St. Gallen, þar sem leikurinn fer fram, og spáðu í spilin. Stemningin í Sviss, líklegt byrjunarlið Íslands, úrvalslið leikmanna sem ekki eru í hópnum og ýmislegt fleira.

Sep 07, 2018

Innkast frá Austurríki - Jón Daði og Viðar Örn gestir

Íslenska landsliðið í fótbolta býr sig undir leiki gegn Sviss og Belgíu í Þjóðadeildinni. Liðið er við æfingar í Austurríki, í fögrum fjallabæ sem heitir Schruns, og heldur svo yfir til Sviss á morgun. Elvar Geir Magnússon er í Austurríki og fékk sér sæti með Selfyssingunum Jóni Daða Böðvarssyni og Viðari Erni Kjartanssyni. Það var nóg að ræða við þá tvo, ekki bara um komandi landsliðsverkefni heldur einnig um félagsliðaferil þeirra. Viðar gekk á dögunum í raðir Rostov í Rússlandi.

Sep 05, 2018

Ástríðan í neðri deildunum - Æsispennandi lokabarátta framundan í 2. deild

Það eru þrjár umferðir eftir í 2. deildinni og spennan mikil. Enn eru fimm lið sem eiga möguleika á að komast upp. Afturelding er í fínum málum eftir sigur á Gróttu í toppslagnum í síðustu umferð en þessi lið verma tvö efstu sætin. Ingólfur Sigurðsson mætti í kaffi til Elvars Geirs Magnússonar og rýnt var í gang mála fyrir lokasprettinn. Í lokin var rætt um 3. deildina þar sem einnig er líf og fjör.

Sep 04, 2018

Innkastið - Í misjöfnu skapi inn í landsleikjahlé

Heil umferð var leikin í enska boltanum um helgina og af því tilefni hlóðu þeir Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon í spánýtt Innkast. Um var að ræða 4. umferðina og vekur athygli að enn eru þrjú lið með fullt hús stiga. Þá var rýnt í dráttinn í Meistaradeildinni. Meðal þess sem rætt var í þættinum var: Rashford í gildru, Alisson sprell, frábær byrjun Chelsea, mat á byrjun Arsenal, markaþurrð hjá Ronaldo, draumalið Guardiola, vonbrigði Everton, hörmung West Ham og er Mourinho á réttri lei...

Sep 03, 2018

Innkastið - Spennustigið magnast og þjálfarasögum fjölgar

Elvar Geir, Magnús Már og Gunni Birgis eru á sínum stað í Innkastinu en þar var 19. umferð Pepsi-deildarinnar skoðuð. Aðeins þrjár umferðir eru eftir af deildinni og Valsmenn með eins stigs forystu eftir umferðina. Meðal efnis: Engar lausnir finnast í Grafarvoginum, hungur Stjörnunnar eykst, áföll dynja á KA, hugur Guðmanns leitar til Reykjavíkur, flautumark Birkis gæti reynst dýrmætt, þunnskipaður dómarahópur, FH-ingar sýndu loks alvöru vilja, handbragð Rúnars Kristins, Blikar bíða eftir bikarú...

Sep 03, 2018

Óskar Hrafn talaði umbúðalaust um íslenska boltann

Óskar Hrafn Þorvaldsson er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum en hann mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og ræddi um íslenska boltann. Óskar er núverandi þjálfari Gróttu og fyrrum íþróttafréttamaður og sérfræðingur Pepsi-markanna, um íslenska fótboltann. Ýmislegt mætti betur fara í íslenska boltanum eins og fram kemur í spjalli hans við Elvar Geir og Magnús Má.

Sep 01, 2018

Mikið undir í Pepsi-deildinni - Áhugaverðir leikir framundan

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson hituðu upp fyrir komandi leiki Pepsi-deildarinnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag. Leikir 19. umferðar voru skoðaðir og Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var á línunni og ræddi um komandi leik gegn FH.

Sep 01, 2018

Ástríðan í neðri deildunum - Rosaleg úrslitakeppni í 4. deild

Úrslitakeppnin í 4. deildinni hefst á laugardaginn þegar flautað verður til leiks í 8-liða úrslitum. Magnús Már Einarsson, Magnús Valur Böðvarsson og Haraldur Árni Hróðmarsson settust niður og fóru yfir riðlakeppnina og viðureignirnar sem eru framundan í úrslitakeppninni.

Aug 29, 2018

Innkastið - Geggjaður leikur framundan í Garðabæ

18. umferð Pepsi-deildar karla er að baki en umferðin var gerð upp í Innkastinu að vanda. Elvar Geir, Magnús Már og Gunni Birgis voru á sínum stað og hituðu meðal annars upp fyrir stórleik Stjörnunnar og Vals sem verður á miðvikudagskvöld. Meðal efnis: Mikilvægur sigur Fylkis, varnarsinnaðir Grindvíkingar, sanngjarn Stjörnusigur, Blikar að falla á prófum, varnarvandræði Fjölnis, Siggi Lár lætur til sín taka, KA missti unninn leik úr höndunum, KR með yfirburði gegn ÍBV, skyldusigur FH.

Aug 28, 2018

Innkastið - Fyrirsjáanleg vandræði á Old Trafford

Innkastið heilsar með nýjum þætti og var farið yfir 3. umferðina í enska og einnig komið við á Ítalíu. Þættinum stjórnuðu Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon en þeir ræddust við á sitt hvorri eyjunni. Meðal þess sem rætt var í þættinum var ótrúlega dapurt gengi Man Utd, Liverpool vörnin, Arsenal sigur, Watford nær í Evrópu, Son og herskydan, Everton leikir bjóða upp á fjör, hanskinn tekinn upp fyrir Newcastle og Alexander Mitrovic.

Aug 27, 2018

Landsliðsvalið og meðalaldur íslenskra liða

Hér má nálgast upptöku úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um fyrsta landsliðshóp Erik Hamren, hópinn sem valinn var fyrir leiki gegn Sviss og Belgíu í Þjóðadeildinni. Þá sagði Tómas frá útreikningi sínum á meðalaldri liða á Íslandsmótinu í fótbolta.

Aug 25, 2018

Ólafur Ingi heimsótti útvarpsþáttinn

Reynsluboltinn Ólafur Ingi Skúlason var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Ólafur er kominn heim eftir atvinnumennskuna og spilar með Fylki. i Hann hjálpar uppeldisfélagi sínu að forðast fall úr Pepsi-deildinni. Ólafur á 36 landsleiki fyrir Ísland og var í hópnum á HM í Rússlandi. Hér má nálgast upptöku af spjalli Elvars og Tómasar við Ólaf.

Aug 25, 2018

Inkasso umræða - Hitað upp fyrir lokasprettinn með Láka

Fjórar umferðir eru eftir af Inkasso-deildinni og hörð barátta framundan á lokasprettinum. ÍA og HK eru í fínum málum á toppi deildarinnar og líklegast að þessi lið fari upp. Spenna er í fallbaráttunni en Selfoss og Magni sitja í fallsætunum. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Þorlák Árnason um lokasprettinn í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Aug 25, 2018

Innkastið - Toppliðin sameinuð og Finni fær afsökunarbeiðni

Það vantaði ekki umræðupunktana eftir 17. umferð Pepsi-deildarinnar. Elvar Geir, Magnús Már og Gunnar Birgis fóru yfir málin. Magnús og Gunnar leystu heimaverkefni sín. Þeir settu saman úrvalslið úr leikmannahópum þriggja efstu liða deildarinnar. Meðal umræðuefna: Toppframmistaða Vals í toppslagnum, undarleg skipting Breiðabliks, Tamburini fær afsökunarbeiðni, mörg óþekkt nöfn á bekk Stjörnunnar, neikvætt leikplan KA, markaleysi í KR-leikjum, Óli Skúla öflugur, stuðningsmenn FH gefast upp á Kris...

Aug 21, 2018

Innkastið - Mourinho mæða og titilvonir Liverpool

Í fyrra Innkasti dagsins er enski boltinn í aðalhlutverki en einnig er rætt um helstu tíðindi frá Spáni og Ítalíu. Elvar Geir, Magnús Már og Egill Sigfússon, starfsmenn Fótbolta.net, fóru yfir 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og ræddu helstu mál. Meðal efnis: Erfitt að finna veikan blett á Liverpool, Mourinho með miðverði í B-flokki, Murray æfði sig á Tenerife, Kante fær meira frjálsræði, erfið byrjun Emery, City betra en á síðasta tímabili, Kane aflétti ágústbölvuninni, Everton lærir loks að ...

Aug 21, 2018

Leiðin út - Orri Sigurður Ómarsson

Leiðin út er hlaðvarpsþáttaröð þar sem rætt er við fótboltamenn sem fóru ungir út í atvinnumennsku. Sumir eru þar enn, aðrir komu heim og fóru jafnvel aftur út. En hvað voru þeir að gera til að komast út og hvernig voru fyrstu skrefin erlendis? Viðmælandi þáttarins er Orri Sigurður Ómarsson. Orri Sigurður ræðir leiðina út og fyrstu skrefin, yngri landsliðin og hvernig var að koma aftur til Íslands. Í þættinum kom meðal annars fram hvernig hann fagnar sigrum á Breiðablik, af hverju honum fannst K...

Aug 20, 2018

Hitað upp fyrir 17. umferð - Sérstaklega toppslaginn

17. umferð Pepsi-deildarinnar er leikin á næstu þremur dögum. Hitað var upp fyrir umferðina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Sérstaklega var hitað upp fyrir leik Breiðabliks og Vals, toppslaginn, sem verður á mánudagskvöld. Elvar Geir ræddi við Benedikt Bóas, stuðningsmann Vals, og Hilmar Jökul, stuðningsmann Breiðabliks. Talað var um svekkjandi niðurstöðu í Evrópuleik Vals síðasta fimmtudag og sigur Breiðabliks gegn Víkingi Ólafsvík í undanúrslitum bikarsins. Þá var rætt um þá æsispennand...

Aug 18, 2018

Ítalski boltinn byrjar að rúlla - Við hverju má búast?

Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann, birti sína spá fyrir komandi tímabil á Twitter nýlega. Þá spá má sjá hér að neðan. Hann ræddi við Elvar Geir og Benedikt Bóas, í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977, um tímabilið á Ítalíu á fyrsta leikdegi hennar. 1. Juventus 2. Inter 3. Roma 4. Napoli 5. Lazio 6. AC Milan 7. Fiorentina 8. Atalanta 9. Sampdoria 10. Torino 11. Sassuolo 12. Udinese 13. Empoli 14. Bologna 15. Cagliari 16. Genoa 17. SPAL 18. Frosinone 19. Chievo 20. Parma...

Aug 18, 2018

Gestir úr Garðabænum - Alex og Gaui Bald mættu í útvarpið

Stjarnan er komin í úrslit Mjólkurbikarsins og er í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Tveir leikmenn liðsins, miðjumaðurinn ungi Alex Þór Hauksson og sóknarmaðurinn skæði Guðjón Baldvinsson, mættu í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Þeir spjölluðu við Benedikt Bóas og Elvar Geir.

Aug 18, 2018

Vængjum þöndum - Bjössi Hreiðars í Evrópuspjalli

Á fimmtudagskvöld leikur Valur seinni leik sinn gegn Sheriff frá Moldavíu í forkeppni Evrópudeildarinnar. Sheriff vann nauman 1-0 sigur í fyrri leiknum og má búast við hörkuspennu á Hlíðarenda. Fótbolti.net varpar hér fram upphitun fyrir komandi leik. Benedikt Bóas Hinriksson, blaðaðamaður og stuðningsmaður Vals, spjallar við Sigurbjörn Hreiðarsson, Valsgoðsögn og aðstoðarþjálfara liðsins. Bjössi segir magnaða ferðasögu og einnig er rætt um Pepsi-deildina.

Aug 15, 2018

Innkastið - Þriggja hesta kapphlaupið og val á þeim besta í hverju liði

Sextánda umferð Pepsi-deildarinnar er að baki. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson skoða meðal annars hver hefur verið bestur í hverju liði deildarinnar og hver mestu vonbrigðin það sem af er móti. Meðal efnis: Kristinn Ingi minnir á sig, Viktor heldur Elfari á bekknum, Víkingar með sjálfseyðingarhvöt, erfið fæðing Stjörnunnar, staða Óla Kristjáns hjá FH, Kristján Guðmunds snýr gagnrýnendum við, Keflvíkingar baula á eigin leikmann, leiðindi á KR-velli og Gunni giskar á...

Aug 14, 2018

Leiðin út - Emil Ásmundsson

Leiðin út er hlaðvarpsþáttaröð þar sem rætt er við fótboltamenn sem fóru ungir út í atvinnumennsku.

Aug 13, 2018

Innkastið - Ótímabærir dómar eftir eina umferð

Enski boltinn er í aðalhlutverki í Innkastinu þessa vikuna. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz ræddu málin á Ölveri í Glæsibæ eftir að fyrstu umferð deildarinnar lauk. Meðal efnis: Afmælisbarn dagsins, Liverpool byrjar með hvelli, Gylfa fórnað í Wolverhampton, Sarri tuggði sígarettu í flottri byrjun Chelsea, samband Pogba og Mourinho, Cardiff gæti endað langneðst, spá um lið tímabilsins.

Aug 12, 2018

Pepsi-upphitun - Komandi umferð skoðuð

Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Ingólfur Sigurðsson skoðuðu komandi umferð í Pepsi-deildinni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Rýnt var í 16. umferð sem leikin verður á sunnudag og mánudag.

Aug 11, 2018
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android