Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Logi Ólafs: Myndi aldrei fara í þetta félag ef ég væri markmaður

Víkingur Reykjavík hefur komið á óvart með frammistöðu sinni í fyrstu tveimur leikjum Pepsi-deildarinnar. Liðið er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina. Liðið gerði markalaust jafntefli við Íslandsmeistara Vals í síðustu umferð. „Ég er mjög ánægður með framlagið og niðurstöðuna," sagði Logi Ólafsson, þjálfari Víkinga, í útvarpsþættinum Fótbolta.net í gær.

May 13, 2018

Landsliðshringborð - Rýnt í landsliðsvalið fyrir HM

Á föstudag var opinberað hvaða 23 leikmenn fara með íslenska landsliðinu á HM í Rússlandi. Mikil spenna var fyrir valinu og ýmsir leikmenn hafa verið gríðarlega svekktir. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson ræddu um valið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 og fengu Sigurbjörn Hreiðarsson til að leggja sitt mat.

May 12, 2018

Þriðja umferð Pepsi skoðuð með Davíð Snorra

Komandi leikir í Pepsi-deild karla voru til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Magnús Már fengu Davíð Snorra Jónasson til að rýna í leiki umferðarinnar.

May 12, 2018

Innkastið - Fergie bati og spádómar

Daníel Geir Moritz hélt um stjórnartaumana í Evrópu-Innkastinu þessa vikuna. Hann fékk til sín tvo góða gesti, Runólf Trausta Þórhallsson og Halldór Marteinsson af raududjoflarnir.is. Spáð var í spilin fyrir tvo stórleiki sem eru framundan; úrslitaleik FA Cup þar sem Manchester United leikur gegn Chelsea og svo viðureign Real Madrid og Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar.

May 09, 2018

Innkastið - Spjaldað fyrir að sýna ástríðu

Önnur umferð Pepsi-deildarinnar er að baki. Eftir hverja umferð fara Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson yfir alla leikina. Spjallað er um leikina, stemninguna, kjaftasögurnar, draumaliðsdeildina og spáð í spilin fyrir næstu leiki.

May 08, 2018

Landsliðshringborð - Spáð í valið stóra sem tilkynnt verður á föstudag

Næsta föstudag, 11. maí, mun Heimir Hallgrímsson opinbera landsliðshóp Íslands sem fer á HM í Rússlandi. 23 manna hópur verður valinn og er hart barist um flugmiðana. Hjörvar Hafliðason var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þar sem spáð var í valið og mótið framundan. Tómas Þór og Elvar Geir voru á sínum stað.

May 06, 2018

Upphitun - 2. umferð Pepsi skoðuð með Tryggva Guðmunds

Ítarlega er fjallað um Pepsi-deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 á laugardögum. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu í dag við markakónginn Tryggva Guðmundsson sem var í beinni frá Vestmannaeyjum og fór yfir 2. umferðina sem leikin er á sunnudag og mánudag. Þá fór Tómas yfir samantekt sína yfir framlag ungra leikmanna í markaskorun í 1. umferð deildarinnar.

May 05, 2018

Innkastið - Liverpool draumur og Arsenal martröð

Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon eru mættir með Evrópu- Innkastið þessa vikuna. Daníel mættur úr fríi og endurnærður eftir að hafa skoðað landsbyggðina. Vonbrigði Arsenal voru auðvitað til umfjöllunar og frammistaða Liverpool sem hefur tryggt sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fram fer í Kænugarði.

May 03, 2018

Innkastið - Flugeldasýning í fyrstu umferð Pepsi

Pepsi-Innkastið er mætt aftur. Eftir hverja umferð fara Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson yfir alla leikina. Spjallað er um leikina, stemninguna, kjaftasögurnar, draumaliðsdeildina og spáð í spilin fyrir næstu leiki. <b>Meðal efnis:</b> Iðnaðarsigur Víkinga í kartöflugarðinum, sérstakur leikur í Egilshöll, Lennon gerir gæfumuninn, umræðan um Andra Rúnar strax byrjuð, Sveinn Aron þakkaði traustið, furðuleg verkaskipting Eyjamanna, óvænt atburðarás í Garðab...

Apr 29, 2018

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 28. apríl - Pepsi og Inkasso

Komin er inn upptaka af nýjasta útvarpsþætti Fótbolta.net í heild sinni. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Grétar Sigfinnur Sigurðarson ræddu um íslenska boltann. Pepsi-deildin fór af stað með hvelli. Dramatískur sigur Vals á KR, endurkoma Keflavíkur gegn Stjörnunni og hitað upp fyrir aðra leiki. Einnig var spáð í spilin fyrir Inkasso-deildina sem fer af stað eftir viku.

Apr 28, 2018

Innkastið - Salah stoppar ekki

Það er komið að sjóðheitum þætti af Innkastinu. Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Magnús Már Einarsson ræddu um boltann. Aðalmálið var áhugaverður leikur Liverpool og Roma í Meistaradeildinni í kvöld en hann endaði með 5-2 sigri Liverpool. Daníel Geir Moritz var í fríi en lesið var upp skeyti frá honum þar sem hann valdi úrvalslið leikmanna sem hafa spilað undir stjórn Arsene Wenger hjá Arsenal. Hvað þurfa lið að gera til að veita Manchester City samkeppni á næsta ári? Þýski bolt...

Apr 24, 2018

Eiður Aron og Birkir Már - Ekki hægt að mæta Messi skjálfandi á beinunum

Tveir af bestu varnarmönnum Pepsi-deildarinnar mættu á skrifstofu Fótbolta.net til að ræða tímabilið framundan. Eiður Aron Sigurbjörnsson og Birkir Már Sævarsson, leikmenn Vals, spjölluðu við Elvar Geir Magnússon en ríkjandi Íslandsmeisturum er spáð efsta sætinu í sumar. Birkir Már, sem er 33 ára, á fast sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins en er kominn heim í Val.

Apr 24, 2018

Gummi Kristjáns og Davíð Þór - Fyrirliðinn er sem betur fer ekki á Twitter

Guðmundur Kristjánsson og Davíð Þór Viðarsson, miðjumenn FH, voru brattir þegar þeir heimsóttu skrifstofu Fótbolta.net og ræddu við Elvar Geir Magnússon um komandi tímabil í Pepsi-deildinni. Guðmundur gekk í raðir FH í vetur eftir sex ára dvöl hjá Start í Noregi en Davíð er fyrirliði FH-liðsins og hefur verið einn allra öflugasti leikmaður íslenska boltans undanfarin ár.

Apr 23, 2018

Brynjar Gauti og Jói Lax: Menn misharðir í grillveislum í sveitinni

Brynjar Gauti Guðjónsson og Jóhann Laxdal, varnarmenn Stjörnunnar, segja að liðið geti haft betur gegn núverandi meisturum í Val í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn í sumar. „Við erum með lið í það. Valur er the team to beat. Það er erfiðara að verja titilinn en að sækja hann. Valur er mjög vel mannað og það verður mikið verkefni að kljást við þetta lið í sumar," sagði Jóhann við Fótbolta.net. Stjörnumenn enduðu í 2. sæti í Pepsi-deildinni annað árið í röð á síðasta tímabili. Garðbæingar mæta m...

Apr 23, 2018

Pepsi-hringborðið - Rýnt í öll liðin og spáð í spilin fyrir mót

Í veglegu Pepsi-hringborði var rýnt í öll lið deildarinnar fyrir komandi tímabil en sparkað verður til leiks á föstudagskvöld. Skoðuð var spá Fótbolta.net fyrir deildina og rætt um möguleika liðanna í mótinu. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson fóru yfir málin en með þeim var Davíð Snorri Jónasson sem var aðstoðarþjálfari Stjörnunnar í fyrra og þjálfaði Leikni í deildinni fyrir nokkrum árum.

Apr 21, 2018

Elfar Árni og Hrannar - Bjuggust aldrei við að spila með KA

„Miðað við veturinn kemur þetta ekkert sérstaklega á óvart en það kemur á óvart að eitt af stóru liðunum er fyrir neðan okkur," segir Hrannar Björn Steingrímsson bakvörður KA um að Fótbolti.net spái liðinu 4. sæti í Pepsi-deildinni í sumar.

Apr 20, 2018

Óskar og Aron - Breytingar hjá KR, karfan og Peter Crouch

Óskar Örn Hauksson og Aron Bjarki Jósepsson komu báðir ungir til KR og hafa leikið með liðinu í áraraðir. Þeir mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í gær og ræddu meðal annars um spá Fótbolta.net en KR er spáð 5. sæti í Pepsi-deildinni.

Apr 19, 2018

Gísli Eyjólfs og Arnþór Ari - Vissir um að geta endað ofar en Valur

Fótbolti.net spáir Breiðabliki sjötta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. Liðið myndi ekki sætta sig við þá niðurstöðu enda segir Ágúst Gylfason, þjálfari Blika, að stefnan sé sett á topp þrjá. Fótbolti.net ræddi við tvo leikmenn Kópavogsliðsins, Gísla Eyjólfsson og Arnþór Ara Atlason, í dag og bar æfingaferð liðsins til Spánar og aukin virkni á samfélagsmiðlum snemma á góma í því spjalli.

Apr 18, 2018

Brynjar Ásgeir og Gunnar - Lofa að Grindavík skorar meira í sumar

Grindavík var spútnikliðið í Pepsi-deildinni í fyrra en nýliðarnir enduðu þá í 5. sæti. Grindavík hefur ekkert gefið eftir í vetur en liðið fór í úrslit bæði í Fótbolta.net mótinu og í Lengjubikarnum. Andri Rúnar Bjarnason skoraði 19 af 31 marki Grindvíkinga í fyrra en liðið hefur haldið sjó í vetur þó að hann sé horfinn á braut. Gunnar Þorsteinsson og Brynjar Ásgeir Guðmundsson leikmenn Grindavíkur telja að liðið geti fundið mörk frá öðrum stöðum eftir brotthvarf Andra.

Apr 18, 2018

Beggi og Gummi Kalli - Golf, fyrirlestrar og viðskilnaðurinn við FH

Bergsveinn Ólafsson og Guðmundur Karl Guðmundsson gengu til liðs við Fjölni á nýjan leik í vetur eftir dvöl hjá FH. Þeir komu báðir til Fjölnis á sama degi í febrúar síðastliðnum en þeir sáu ekki fram á að fá mörg tækifæri í liði FH. Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, tilkynnti Bergsveini að hann væri ekki ofarlega í röðinni hjá sér.

Apr 17, 2018

Atli og Sindri í Eyjum - Enginn veit hvað mun koma frá okkur

Atli Arnarson og Sindri Snær Magnússon, miðjumenn ÍBV, heimsóttu útvarpsþátt Fótbolta.net. Eyjaliðinu er spáð 9. sæti í Pepsi-deildinni og þegar Atli og Sindri voru spurðir að því hvort þeir myndu taka því sæti fyrir tímabilið var svarið einfaldlega nei.

Apr 17, 2018

Albert og Ragnar fara yfir víðan völl - Fylkishjartað, tölvuleikir og hestar

Fótbolti.net spáir Fylki 10. sæti í Pepsi-deildinni í sumar. Fylkismenn komu í gær heim frá Spáni þar sem þeir voru í æfingaferð en liðið gerði markalaust jafntefli við KR í æfingaleik á laugardag. Albert Brynjar Ingason og Ragnar Bragi Sveinsson kíktu í spjall á skrifstofu Fótbolta.net í dag en sá síðarnefndi fékk rauða spjaldið í leiknum á laugardag.

Apr 16, 2018

Innkastið - Sófameistaratitill og Liverpool gestur

Innkastið er mætt aftur eftir stutt hlé. Martin Sindri Rosenthal, stuðningsmaður Liverpool, var gestur Elvars og Daníels í þætti dagsins. Enska úrvalsdeildin, sófameistarar Manchester City, Meistaradeildin, Zlatan og fleira var til umræðu.

Apr 15, 2018

Gústi Gylfa kom í útvarpið - Stefnan sett á topp þrjá

Ágúst Gylfason þjálfari Breiðabliks var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann ræddi við Tómas Þór og Elvar Geir um komandi tímabil en Blikar eru nýkomnir úr æfingaferð á Spáni. Gústi er augljóslega mjög bjartsýnn fyrir því sem framundan er og segir að Blikar setji stefnuna ótrauðir á að enda í einu af þremur efstu sætum Pepsi-deildarinnar.

Apr 14, 2018

Fótboltafréttir vikunnar - Ísland, Færeyjar og Meistaradeildin

Hér má nálgast fyrri hluta útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 þann 14. apríl. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir allt það helsta sem er að frétta úr boltanum. Það styttist í Pepsi-deildina og Þróttarar skiptu um þjálfara rétt áður en átökin hefjast í Inkasso-deildinni. Þá sagði Elvar Geir frá ferð sinni til Færeyja en hann sá tvo leiki með HB, liði Heimis Guðjónssonar og Brynjars Hlöðverssonar, í færeysku deildinni. Einnig var fjallað um undanúrslitadráttinn í Meistaradeild Evrópu, Framunan er ...

Apr 14, 2018

Bræðurnir í Keflavík: Liggur við að við förum í slag á æfingum

Bræðurnir Sindri Kristinn Ólafsson og Ísak Ólafsson eru fastamenn í liði Keflavíkur en liðið er komið upp í Pepsi-deildina á nýjan leik eftir tveggja ára fjarveru. Fótbolti.net spáir Keflavík 12. sæti í sumar en Sindri og Ísak kíktu í spjall á skrifstofu Fótbolta.net í vikunni og ræddu um hitt og þetta.

Apr 12, 2018

Návígi - Óli Þórðar

Ólafur Þórðarson er gestur Gunnlaugs Jónssonar í hlaðvarpsþáttunum vinsælu Návígi í þessari viku.

Apr 10, 2018

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 7. apríl

Komin er inn upptaka af nýjasta útvarpsþætti Fótbolta.net í heild sinni. Tómas Þór Þórðarson var einn við stjórnvölinn í fjarveru meðstjórnanda síns, Elvars Geirs Magnússonar sem er að fylgja íslenska kvennalandsliðinu. Þó var hringt í Elvar og staðan tekin. Þrjár vikur eru í að Pepsi-deildin hefjist og Baldur Sigurðsson miðjumaður Stjörnunnar var í viðtali. Þrjár vikur eru í að Pepsi-deildin hefjist og Baldur Sigurðsson miðjumaður Stjörnunnar var í viðtali. Kristinn Jakobsson formaður dómaranef...

Apr 08, 2018

Innkastið - Nóg að frétta þrátt fyrir spennuleysi á toppnum

Innkastið er mætt aftur eftir landsleikjahlé. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz skoða það sem var í gangi í Evrópufótboltanum um páskahelgina. Enski boltinn er í aðalhlutverki að vanda en einnig kemur spænski og þýski boltinn til tals. Farið var yfir lista yfir bestu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar sem léku færri en 100 leiki og hitað upp fyrir Meistaradeildina.

Apr 02, 2018
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android