Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson í Innkasti vikunnar. Fjallað er um 13. umferð Pepsi Max-deildarinnar og ýmislegt fleira. Meðal efnis: Endurkoma Ragga Sig í Árbæinn, Leiknir slær stigamet sitt, þungt yfir Stjörnumönnum, frábær innkoma Kwame Quee, dauðafæri fóru forgörðum í Hafnarfirði, jafntefli á Meistaravöllum, slakir HK-ingar, óvænt úrslit á Skaganum, leikmaður umferðarinnar, Evrópustuð og Lengjudeildarhornið.
Jul 20, 2021
Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 17. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Guðmundur Benediktsson mætti og ræddi um Evrópumótið og komandi umferð í Pepsi Max-deildinni þar sem áhugaverðir leikir eru framundan. Stórleikur umferðarinnar er viðureign KR og Breiðabliks. Áhugaverðar umræður.
Jul 17, 2021
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 17. júlí. Elvar Geir og Benedikt Bóas ræða um Evrópuleikina hjá íslensku liðunum og einnig um 12. umferð Lengjudeildarinnar. Baldvin Már Borgarsson var á leik Grindavíkur og Þórs og þá er Davíð Smári Lamude, þjálfari Kórdrengja, í viðtali. Kórdrengir eru aðeins stigi frá öðru sæti.
Jul 17, 2021
Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson í Innkasti vikunnar. Það er af nægu að taka enda fullt í gangi í íslenska boltanum. Meðal efnis: Leikir vikunnar í Pepsi Max-deildinni, nauðsynlegur sigur Fylkis, KA fatast flugið, leiðinlegur leikur í Kórnum, Víkingur misstígur sig gegn liðum í neðri hlutanum, Skelfilegir Skagamenn, heimavöllur Leiknis heldur áfram að gefa, FH daðrar við fallsæti, Þórir Jóhann á leið til Ítalíu, Sambandsdeildin, Heiðar Birnir missti klefann, úrval...
Jul 14, 2021
Þá er fyrri hluta 2. og 3. deildar lokið og spennan er gífurleg á mörgum vígstöðvum. Toppliðin voru mörg hver að missa óvænt stig um helgina, liðin halda áfram að styrkja sig og jafnvel skipta um þjálfara á misumdeildan hátt. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
Jul 14, 2021
EM lauk í gær þegar Ítalía vann sigur á Englandi í úrslitaleik eftir vítaspyrnukeppni. Sæbjörn Steinke fékk þá Benedikt Bóas Hinriksson og Tómas Þór Þórðarson með sér og var farið yfir það helsta í leiknum. Hvers vegna var Saka látinn taka fimmta vítið? Þá var einnig horft í keppnina í heild, samanburður á Júmbó og Sóma og annað sniðugt.
Jul 12, 2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 10. júlí. Umsjón Elvar Geir og Tómas Þór. Hjálmar Örn Jóhannsson, Hjammi, mætir og ræðir um úrslitaleik EM alls staðar, leik Englands og Ítalíu sem fram fer á sunnudagskvöld. Hjammi er sannfærður um að fótboltinn sé á leið heim. KR-ingarnir Kjartan Henry Finnbogason og Theodór Elmar Bjarnason mæta í þáttinn en þeir eru sameinaðir á ný í Vesturbænum eftir viðburðarík ár í atvinnumennskunni. Þá var rætt um Pepsi Max-deildina, Lengjudeildina, Samban...
Jul 10, 2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þætti fjölluðu drengirnir um Illya Zabarnyi (2002 / Dinamo Kíev) sem hefur mikið verið orðaður við Chelsea og Michael Olise (2001 / Crystal Palace) en hann gekk til liðs við Crystal Palace á dögunum og er hann dýrasta sala í sögu Reading. Meðal umræðuefnis var EM alls staðar, U-19 ára deil...
Jul 10, 2021
Landsliðskonurnar Alexandra Jóhannsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eru gestir Heimavallarins. Þær eru aðeins tvítugar en eru báðar komnar í stórlið í þýsku úrvalsdeildinni. Þær ólust upp í FH og Haukum og voru báðar komnar snemma í stór hlutverk í sínum liðum. Árið 2018 tóku þær báðar stökkið yfir í Breiðablik, slógu í gegn og æfa núna á hverjum degi með þýskum landsliðsvélum í einni bestu deild heims. Við fórum meðal annars yfir fyrstu árin í meistaraflokki með FH og Haukum, yngri landsl...
Jul 09, 2021
Óskar Smári kom sem heiðursgestur á sinn gamla heimavöll og fór yfir stöðuna. Það var því ekki að spyrja að því - þessi þáttur fór langt yfir öll tímamörk. Þróttur Vogum og Njarðvík eru komin í toppsætin sem þeim var spáð á meðan fallbaráttuliðin fengu líflínu. Í 3. deild voru vægast sagt óvænt úrslit sem hleyptu mótinu í algjört rugl. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
Jul 07, 2021
11. umferð Pepsi Max-deildarinnar og 10. umferð Lengjudeildarinnar eru gerðar upp í Innkastinu að þessu sinni. Gunnar Birgisson er mættur aftur eftir smá hlé. Elvar Geir spjallar við hann og Sæbjörn Steinke. Meðal annars er opinberað úrvalslið fyrri helmings Pepsi Max-deildarinnar og Gunni giskar snýr aftur.
Jul 06, 2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 3. júlí. Farið yfir síðustu umferð í Lengjudeildinni og tíðindi úr Pepsi Max-deildinni. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, var á línunni frá Akureyri. Rætt var um sölu KA á Brynjari Inga, Dalvíkurvöll og fleira. Þá var Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann, í beinni frá Danmörku. Umræðuefnið var að sjálfsögðu EM alls staðar.
Jul 03, 2021
Sverrir og Gylfi fóru yfir málin eins og venjulega. Í þetta sinn var sérstaklega farið yfir 2. deildina þar sem engin umferð fór fram í 3. deild á milli þátta. Hins vegar ræddu þeir í lokin helstu fréttir úr 3. deild.
Jul 02, 2021
Sextán liða úrslitum EM alls staðar er lokið og eftir standa átta þjóðir. England sló út Þýskaland, heimsmeistararnir eru úr leik og ríkjandi Evrópumeistarar sömuleiðis. Sæbjörn Steinke ræðir um EM með tveimur góðum gestum. Þeir Eiður Ben Eiríksson og Tómas Þór Þórðarson mættu og ræddu um EM en auk þess var í upphafi þáttar aðeins rýnt í nýja stjóra Everton og Tottenham.
Jul 01, 2021
Sérstakur aukaþáttur þar sem fjallað er um fjármál og fótbolta. Rætt er um íslensk félagslið í Evrópukeppnum. Elvar Geir spjallar við Birgi Jóhannsson framkvæmdastjóra ÍTF og Björn Berg Gunnarsson deildarstjóra Greiningar Íslandsbanka. Fjallað er um þessa nýju Sambandsdeild, C-deildar Evrópukeppnina, sem hefur verið sett á laggirnar og möguleika íslenskra félagsliða á tekjum með tilkomu hennar. Hvernig er fyrirkomulagið og hvað þarfað gera til að endurheimta Evrópusætið sem Ísland hefur misst? E...
Jul 01, 2021
Sverrir og Gylfi fóru yfir málin eins og venjulega. Áfram halda nýliðarnir að stríða 2. deildinni og KV situr á toppi deildarinnar á meðan botnliðin tvö eru að falla dýpra og dýpra í mýrina. Í 3. deild voru óvæntustu úrslit Íslandsmótins í sumar þegar Augn... nei KFS vann Ægismenn. KFG fær styrk úr Pepsi-deildinni á meðan Ægir leitar út fyrir landssteinana. Félagaskiptaglugginn er galopinn og liðin eru öll farin að horfa í kringum sig. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma...
Jun 30, 2021
Innkastið eftir 10. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Ingó Sig fara yfir allt það helsta. Meðal efnis: Leiknir fyrsta liðið til að vinna Víking, Skagamenn missa niður forystu, Ungstirni með sigurmark á Meistaravöllum, Valur missti af stigum, dramatískur slagur um Kópavog, tíu leikmenn KA jöfnuðu gegn FH. Einnig er rætt um Lengjudeildina. Eru þjálfarasæti að hitna hratt þar?
Jun 29, 2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 26. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Úlfur Blandon. Skoðuð er tíunda umferð Pepsi Max-deildarinnar. Hvaða leikmenn hafa verið að valda vonbrigðum og hverjir hafa komið á óvart í sumar? Fjallað er vel um Lengjudeildina. Hverjir eru bestu miðjumenn deildarinnar og hverjir bestu sóknarmennirnir? Þá er opinberað hvaða leikmaður var valinn bestur í fyrsta þriðjungi. Í lokin er stutt EM horn þar sem Tómas velur úrvalslið riðlakeppni...
Jun 26, 2021
Riðlakeppni EM alls staðar er að baki og nú hefst mótið fyrir alvöru. Sextán liða úrslitin eru að fara af stað og mesta spennan er fyrir leik Englands og Þýskalands. Sæbjörn Steinke ræðir um EM með tveimur góðum gestum, Valsararnir Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður á RÚV og Jóhann Skúli Jónsson hlaðvarpsstjórnandi mæta í hljóðver.
Jun 25, 2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum nýjasta þætti fjölluðu drengirnir um Abdul Fatawu Issahaku sem hefur verið orðaður við Liverpool og Leverkusen. Drengirnir fjölluðu einnig um Riccardo Calafiori, ný vonarstjarna Róma á Ítalíu en Calafiori leikur stöðu vinstri bakvarðar. Hinir ungu og efnilegu Rúnar Sigurgeirsson og Davíð S...
Jun 25, 2021
Sverrir og Gylfi hittust seint í þetta sinn en gæðin voru til staðar, annað en í 3. deildinni. Af hverju geta liðin ekkert? Spennan er að magnast upp í 2. deildinni þar sem nýliðarnir eru báðir komnir á toppinn og mætast í næstu umferð! Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
Jun 25, 2021
Pepsi Max-deildin er loksins farin að finna taktinn aftur og Innkastið mætir eftir smá frí. Í þætti kvöldsins er farið yfir níundu umferð deildarinnar. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson skoða leiki umferðarinnar. Meðal efnis: Stórleikur kvöldsins, þjálfaraskiptin í Krikanum, embættisferð Hannesar norður, vítaklúður, skelfileg mistök Skagamarkvarðar, Stjarnan vaknar, Keflavík vann nýliðaslaginn gegn Leikni og næstu leikir í Pepsi Max og Lengjunni eru skoðaðir.
Jun 21, 2021
Patrik Sigurður Gunnarsson er samningsbundinn Brentford á Englandi en lék á liðinni leiktíð með Viborg og Silkeborg á láni í Danmörku. Bæði Viborg og Silkeborg komust upp úr dönsku B-deildinni í vetur og leika því í efstu deild á komandi leiktíð. Patrik var hjá Viborg fyrir áramót og Silkeborg eftir áramót. Hann náði því merkilega afreki að fara taplaus í gegnum allt tímabilið. Brentford, liðið sem hann var á láni frá, fór þá einnig upp um deild, úr Championship og upp í úrvalsdeildina.
Jun 21, 2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 19. júní. Umsjón: Tómas Þór og Benedikt Bóas.
Jun 20, 2021
Gylfi og Sverrir hittust á ný og fóru yfir eina umferð í 2. deild karla og tvær umferðir í 3. deild. Nýliðar sitja á toppi 2. deildar sem er jafn gufurugluð og áður. Hvorki Kári né Fjarðabyggð þorðu að vinna botnslaginn. Í 3. deildinni fékk toppliðið skell á meðan allt gengur á afturfótunum hjá ÍH og KFS sem mætast í næsta leik! Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
Jun 17, 2021
Ísland spilaði loksins heimaleiki undir stjórn Steina og sótti tvo sigra í vináttuleikjunum gegn Írum. Leikirnir eru til umræðu ásamt fyrsta þriðjungi Pepsi Max-deildarinnar en ótrúlegir hlutir hafa átt sér stað í umferðum 1-6. Gestir Heimavallarins að þessu sinni eru knattspyrnuþjálfarinn Aníta Lísa Svansdóttir og íþróttafréttamaðurinn Sæbjörn Þór Steinke.
Jun 16, 2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 12. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Guðmundur Benediktsson er gestur og rætt ítarlega um EM alls staðar. Einnig er fjallað er um Pepsi Max-deildina, Lengjudeildina og landsliðið. Meðal annars er opinberað hvaða leikmaður er besti leikmaður fyrsta þriðjungs Pepsi Max-deildarinnar og hlýtur vegleg verðlaun frá Bose.
Jun 12, 2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þættinum að þessu sinni velja þeir sérstakt úrvalslið Evrópumóts U21 landsliða en Þýskaland vann Portúgal í úrslitaleik á sunnudag. Þá skoða þeir efnilega leikmenn sem verða á EM alls staðar. Fjallað er um Kacper Kozlowski hjá Póllandi en hann er einn af þremur leikmönnum sem fæddir eru 2003 og e...
Jun 09, 2021
Þáttastjórnandi Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason, fékk til sín Stefán Birgi Jóhannesson, fyrrum leikmann Njarðvíkur sem er í tímabundnu fríi frá æfingum. Saman fóru þeir yfir 5.umferð í 2. og 3. deild karla. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
Jun 09, 2021
Evrópumót landsliða fer af stað á föstudaginn og lýkur með úrslitaleik á Wembley þann 11. júlí. Mótið átti upphaflega að fara fram í fyrra en var frestað vegna heimsfaraldursins. Í þessum sérstaka upphitunarþætti fer Sæbjörn Steinke, fréttamaður Fótbolta.net, yfir riðlana og rætt er um þá keppni sem framundan er. Sérfræðingar eru Eiður Ben Eiríksson, aðstoðarþjálfari kvennaliðs Vals, og Benedikt Bóas Hinriksson, blaðamaður á Fréttablaðinu.
Jun 07, 2021