A-landsliðshópurinn fyrir komandi í verkefni var tilkynntur í dag. Karlalandsliðið er á leið í þrjá leiki í undankeppni HM. Allir verða þeir leiknir á heimavelli. Eftir að hópurinn var tilkynntur og eftir fréttamannafund gaf landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson sér tíma í að ræða við Fótbolta.net um valið og verkefnið. Arnar var spurður út í einstaka leikmenn og hvernig honum líst á komandi verkefni.
Aug 25, 2021
Það var stórleikur í ensku úrvalsdeildinni síðasta sunnudag. Chelsea fór með sigur af hólmi gegn Arsenal. Jón Kaldal, stuðningsmaður Arsenal, og Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, eru gestir þáttarins að þessu sinni. Þeir köfuðu djúpt í stórleikinn og ræddu einnig um aðra leiki í annarri umferð deildarinnar.
Aug 24, 2021
18. umferð Pepsi Max-deildarinnar gerð upp og einnig rætt um Lengjudeildina. Sérstakur gestur þáttarins er Albert Brynjar Ingason, sóknarmaður Kórdrengja. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Albert Brynjar fara yfir leikina og fréttir sem eru tengdar þeim. Víkingar sýndu magnaða frammistöðu gegn Val og opnuðu titilbaráttuna í Pepsi Max-deildinni upp á gátt. Breiðablik vann KA og getur farið á toppinn á morgun. Stjarnan vann fallbaráttuslag gegn Fylki á meðan HK gerði markalaust jafntefli í Breiðholti...
Aug 24, 2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir sviðið en eins og oft áður er íslenski boltinn í forgrunni. Úlfur Blandon, sérfræðingur þáttarins, ræðir um það helsta sem er í gangi í Lengjudeildinni. Í Lengjudeildinni er Fram komið upp og úrslitin í deildinni svo gott sem ráðin. Í Pepsi Max-deildinni eru stórleikir framundan. Í þættinum er einnig rætt við Jón Sveinsson, þjálfara Fram.
Aug 21, 2021
Aldrei áður hafa eins margir Íslendingar spilað fótbolta á Ítalíu og þeim fjölgar með hverri vikunni. Í þessum upphitunarþætti verður farið yfir stöðu Íslensku strákanna og hitað upp fyrir Serie A sem hefst um helgina. Tekst Internazionale að verja titilinn? Verður endurkoma Allegris eins og endurkoma Marcellos Lippis? Hvernig mun Jose Mourinho ganga í borginni eilífu? Ítalski boltinn - Þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila.
Aug 20, 2021
Sverrir Mar mætti að vanda í stúdíóið en Gylfi Tryggva tók sér frí. Með Sverri Mar var kominn Stefán Birgir Jóhannesson, leikmaður Víðis frá Garði, annan þáttinn í röð. Þeir fóru yfir 17.umferð í 2.deild og úrskurðuðu Kára og Fjarðabyggð fallin úr deildinni. Þá tóku þeir einnig fyrir 5 leiki í 3.deild og þar sem loksins kláraðist umferð og hægt var að velja leikmann umferðarinnar. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Po...
Aug 19, 2021
Sverrir Mar mætti að vanda í stúdíóið en Gylfi tók sér frí. Með Sverri Mar var kominn Stefán Birgir Jóhannesson, leikmaður Víðis frá Garði. Þeir fóru yfir 16.umferð í 2.deild þar sem stutt er í að fallbaráttunni ljúki en nóg eftir á toppnum. Þá tóku þeir einnig fyrir 5 leiki í 3.deild þar sem enn er leikið í mismunandi umferðum. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
Aug 19, 2021
Kjartan Henry Finnbogason, sóknarmaður KR, og Hlynur Valsson, lýsandi á Síminn Sport, eru gestir í fyrstu útgáfu tímabilsins af hlaðvarpinu Enski boltinn á Fótbolta.net.
Aug 17, 2021
Elvar Geir og Tómas Þór eru í Innkasti vikunnar. Með þeim að þessu sinni er Sverrir Mar Smárason sem kom á lánssamningi frá Ástríðunni. Sex efstu lið Pepsi Max-deildarinnar unnu í 17. umferðinni en sex neðstu liðin töpuðu. Hverjir verða Íslandsmeistarar? Meðal efnis: Kristall þaggaði niður í stuðningsmönnum Fylkis, Kórinn breyttist í suðupott, Skagamenn reiðir eftir vítaspyrnudóm, markaflóð FH gegn Leikni, Íslandsmeistararnir aftur á sigurbraut, ekkert fellur með Stjörnunni og stórleikurinn í Le...
Aug 17, 2021
Enski boltinn var mættur aftur fullur af fjöri. Stóru strákarnir Salah og Bruno sýndu hvers þeir eru megnugir. Lukaku er stór strákur. Hann er kominn í deildina. Á að velja hann strax? Er Benrahma alvöru gæi? Hvað á að gera við alla þessa 4.0 gæja í vörninni sem fengu að spila? Þetta var rætt ásamt ýmsu öðru í nýjasta þætti Fantabragða. Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella <a href="http://www.patreon.com/fantabrogd" target="_b...
Aug 17, 2021
Elvar Geir og Benedikt Bóas bjóða upp á boltahlaðborð í útvarpsþætinum. Það er nóg að ræða enda íslenski boltinn í fullum gangi og boltinn byrjaður að rúlla á Englandi. Gunnar Ormslev lýsandi á Síminn Sport kemur í heimsókn og skoðar boltafréttir vikunnar. Gunnar lýsti opnunarleik Brentford og Arsenal sem heimamenn unnu 2-0. Gunnar Birgisson segir ferðasögu frá Skotlandi en hann var í stúkunni á leik Aberdeen og Breiðabliks. Fylgst var með gangi mála í leik Manchester United og Leeds United en e...
Aug 14, 2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þætti fjalla drengirnir um hvaða ungu leikmönnum í hverju liði ensku úrvalsdeildarinnar skal fylgjast með í vetur. Drengirnir ræða einnig um hvaða ungstirni hafa verið að færa sig um sess í sumar sem og margt fleira.
Aug 14, 2021
Magnús Þór Jónsson, stuðningsmaður Liverpool, og Þorsteinn Hjálmsson, stuðningsmaður Manchester United, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í morgunsárið.
Aug 13, 2021
Fantabrögð eru mættir aftur og komu með sjóðandi heit ráð fyrir komandi tímabil sem hefst á föstudaginn. Farið var yfir liðin, þeirra helstu leikmenn, strategíur og leikjadagskrá. Gylfi, Gunni, Hemson og Ásgeir voru við hljóðnemann. Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella hér. Þannig gerir þú strákunum kleift að leggja þá vinnu sem þeir vilja í hlaðvarpið. Smelltu hér til að ganga í Fantasy-deild Fantabragða. Kóðinn á deildina er 0d...
Aug 10, 2021
Enska úrvalsdeildin, uppáhalds deild flestra Íslendinga, hefst á föstudaginn.
Aug 10, 2021
Sverrir og Gylfi fóru yfir málin í 3. deildinni og það sem hefur gerst undanfarna daga. Leikjadagskráin þar er óregluleg vegna smita í herbúðum KFG og Ægis en fjórum leikjum hefur verið frestað. Höttur/Huginn eru svo gott sem komnir upp, Augnablik eru farnir að einbeita sér að næsta tímabili, mikil spenna á toppi og botni og allt að gerast.
Aug 10, 2021
Sverrir og Gylfi hittust og gerðu upp það sem gerðist í kringum verslunarmannahelgina. Bjarni Jó hættur með Njarðvík. Peningar ráða ekki öllu. Af hverju eru bara til ungir Haukamenn? Hver er munurinn á Kára og Fjarðabyggð? Þetta var til umræðu og margt fleira.
Aug 10, 2021
Við spilum Maggi-ball með Ólympíuandann að vopni í Innkastinu að þessu sinni. Elvar Geir, Gunni Birgis og sérstakur gestur er Magnús Már Einarsson, fyrrum ritstjóri Fótbolta.net og þjálfari Aftureldingar. 16. umferð Pepsi Max-deildarinnar er í brennidepli en einnig er rætt um Sambandsdeildina og smá um Lengjudeildina. Meðal efnis: Meistarabragur á Blikum, Escobar kláraði Íslandsmeistarana, Víkingar misnotuðu tækifærið, bull um breiddarleysi KR, Raggi Sig frumsýndur í Keflavík, HK magalenti á Ska...
Aug 09, 2021
Það er langt liðið á sumarið og línur aldeilis að skýrast í öllum deildum. Heimavöllurinn fer yfir allt það helsta með góðum gestum, þeim Alexöndru Bíu Sumarliðadóttur og Sigríði Dröfn Auðunsdóttur, sem hafa fjallað vel um boltann á Fótbolta.net í sumar.
Aug 09, 2021
Það er minna en vika í upphafsflaut ensku úrvalsdeildarinnar tímabilið 2021-22. Arsenal tekur á móti Brentford í opnunarleiknum á föstudag.
Aug 09, 2021
Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 7. ágúst. Elvar Geir og Tómas Þór ræða við Kristján Atla Ragnarsson um enska boltann. Kristján kemur með sína spá fyrir tímabilið en enska úrvalsdeildin fer af stað á föstudag. Einnig er rætt um Lionel Messi sem er á leið til PSG.
Aug 07, 2021
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 7. ágúst. Elvar Geir og Tómas Þór ræða við Rafn Markús Vilbergsson um íslenska boltann. - Einvígi Breiðabliks og Aberdeen í Sambandsdeildinni. - Besti leikmaður annars þriðjungs í Pepsi Max-deildinni. - 15. umferð Lengjudeildarinnar skoðuð. - Besti leikmaður annars þriðjungs í Lengjudeildinni. - Komandi umferð í Pepsi Max.
Aug 07, 2021
Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas eru í Innkastinu eftir 15. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Benedikt brunaði (á löglegum hraða) á skrifstofu Fótbolta.net eftir stórleik Vals og KR. Í þættinum er einnig fjallað um Breiðablik í Sambandsdeildinni, Lengjudeildina og tilnefningar í kosningu á besta leikmanni annars þriðjungs Pepsi Max-deildarinnar. Meðal efnis: Sigur Vals í toppslagnum gegn KR, Stjarnan rúllaði yfir ÍA í botnslagnum, FH fékk skell gegn HK, Smit í aðalhlutverki í Árbænum, Haxgrím...
Aug 04, 2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Árni Vilhjálmsson á línunni og Þórir Hákonarson gestur. Í fyrri hlutanum: Boltafréttir vikunnar, Lengjudeildin, Pepsi Max slúður og Sambandsdeildin. Í seinni hlutanum er rætt um peningana í íslenska boltanum, Evrópupeninga og nýja sjónvarpssamninga.
Jul 31, 2021
Sverrir og Gylfi voru mættir á sinn heimavöll í Krókhálsi að ræða málin. Þar fóru einstaklega tíðindalitlir leikir fram í 2. deildinni á meðan 3. deildin hélt áfram að gefa og taka. Sum lið einfaldlega neita að vera í toppbaráttu á meðan sum lið einfaldlega neita að koma sér úr fallbaráttunni. Niðurstaðan er því ógnvænlega spennandi deild sem verður bara meira og meira spennandi. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Pod...
Jul 28, 2021
Elvar Geir, Ingó Sig og Gunni Birgis í Innkastinu þessa vikuna. Gönguferð á Meistaravöllum, Keflavík vann Breiðablik (aftur) í ótrúlegum fótboltaleik, Lennon elskar að skora þrennu á Skaganum, Pedersen elskar að skora gegn HK, Stubbur í stuði á Domusnova, Smit í Breiðholti, Víkingar hóta einvígi gegn Val, Stjörnubíóið heldur áfram, Gunni giskar, Sambandsdeildin og Lengjudeildarhornið.
Jul 26, 2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þætti er fjallað um Khvicha Kvaratskhelia (Rubin Kazan) og Odilon Kossounou (Leverkusen). Gestir þáttarins að þessu sinni eru Valsmennirnir, Sverrir Páll Hjaltested og Birkir Heimisson. Drengirnir takast á í spurningakeppni og ræða um það sem hefur verið í gangi á ferli þeirra.
Jul 25, 2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 24. júlí. Rætt um Sambandsdeildarleiki FH, Vals og Breiðablik. Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Blika, segir frá ferðinni til Vínarborgar og leiknum sjálfum á fimmtudaginn. Farið er yfir gang mála í Lengjudeildinni og Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður ÍBV, er á línunni. Eyjamenn fá ekki þjóðhátíð þetta árið, allavega ekki á hefðbundnum tíma, en leikmenn ÍBV ætla að sjá um að gleðja heimamenn. Hitað er upp fyrir komandi umferð í Pepsi Max-deildinni...
Jul 24, 2021
Farið var yfir 12. umferð í 2. og 3. deild ásamt því sem úrvalslið úr umferð 1-11 voru tilkynnt úr hvorri deild fyrir sig. Sverrir og Gylfi voru mættir í stúdíóið eins og venjulega og fóru yfir stöðutöflurnar. Þvílíkt toppbarátta í báðum deildum. Hvaða lið á að stöðva Þróttarana? Er Völsungi og KF alvara með að ætla að taka þátt í toppbaráttunni? Eru allir á Dalvík að hlusta? Hversu stór er sokkaskúffa Gunnars Heiðars? Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustað...
Jul 22, 2021
Heimavöllurinn fær til sín gamlan og góðan gest. Knattspyrnuþjálfarinn og boltaspekúlantinn Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir mætir til okkar eftir útlegð í Svíþjóð þar sem hún hefur þjálfað unglingalið Kristianstad undanfarið tæpt ár. Bára fer yfir þjálfaralífið og sænska boltann áður en hún segir sínar skoðanir á íslenska boltanum sem hefur verið aldeilis fjörugur þetta sumarið.
Jul 22, 2021