Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 5. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur þáttarins: Freyr Alexandersson. Í upphafi þáttar er fjallað um landsleikinn gegn Færeyjum, svo kemur Freyr Alexandersson og ræðir meðal annars um mánuði sína í Katar. Hvaða skref tekur Freyr næst á þjálfaraferlinum? Einnig er rætt um Pepsi Max-deildina, EM landsliða og fimmtu umferð Lengjudeildarinnar.
Jun 05, 2021
Sem fyrr er nóg að ræða á Heimavellinum. A-landsliðið okkar mætir Írum í tvígang á Laugardalsvelli og U19 landsliðið er að verða þjálfaralaust. Þá er bikarinn kominn á fleygiferð og eftir skemmtileg 16-liða úrslit er ljóst hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum. Gestir þáttarins eru þær Björk Björnsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir.
Jun 04, 2021
Þáttastjórnendur Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason komu saman og ræddu 3. umferð í 2. og 3. deild karla. Í 2.deild tóku Njarðvík og Leiknir fásk sína fyrstu sigra, áfram tapa Kári og Fjarðabyggð, Völlarar kláruðu norðurlandsslaginn og hammer time í vogunum. Í 3.deild unnu Einherji sinn fyrsta sigur, KFG og ÍH voru undir í rokbaráttu, Sindri vinnur heima og Augnablik gerir jafntefli úti en í Eyjum töpuðu KFS fyrir Hetti/Huginn sem eru ekki í áttunda sætinu. Ástríðan er í boði ...
Jun 01, 2021
Fótboltahelgin er gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis fara yfir málin. Rætt er um leikina þrjá í Pepsi Max-deildinni í gær og einnig um þrjá leiki í Lengjudeildinni. Þá er fjallað um 2-1 tap Íslands gegn Mexíkó aðfaranótt sunnudags og í lokin um sigur Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
May 31, 2021
Lið ársins í Serie-A er valið og farið yfir flókinn þjálfarakapal sem verið er að leggja. Þá ætlar Björn Már líka að finna ný lið handa þeim Íslendingum sem eru ekki að spila nægilega mikið. Hvers vegna réðst faðir Gianluca Scamaccas inn á æfingasvæði Roma vopnaður járnröri? Leikstíl hvaða þjálfara má líka við Barolo rauðvín? Banter-era byrjunarlið Internazionale. Þetta og fleira í uppgjörsþætti ítalska boltans. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Má...
May 31, 2021
Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 29. maí. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Valur Gunnarsson. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um enska boltann, gerir upp tímabilið í úrvalsdeildinni og velur lið ársins. Þá er rætt um tap Manchester United í Evrópudeildinni og hitað upp fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
May 29, 2021
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 29. maí. Elvar Geir Magnússon, Valur Gunnarsson markvarðaþjálfari og sérfræðingurinn Rafn Markús Vilbergsson ræða um íslenska boltann. Lengjudeildin er aðalumræðuefni þáttarins en þrír leikir fóru fram á föstudagskvöld. Þeir áttu upphaflega að vera fimm en tveimur var frestað vegna veðurs. Valur velur þrjá bestu markverði deildarinnar og Rabbi velur þrjá bestu varnarmennina. Þá eru komandi leikir í Pepsi Max-deildinni skoðaðir.
May 29, 2021
Þetta sumar fer stórkostlega af stað og Heimavöllurinn fer yfir svakalega 5.umferð í Pepsi Max deildinni. Gestir þáttarins eru Rún Friðriksdóttir fyrrverandi leikmaður Hauka og Margrét Sveinsdóttir þjálfari ÍR.
May 28, 2021
Þáttastjórnendur Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason komu saman og ræddu 3. umferð í 2. og 3. deild karla. Það er vellíðan í Vogunum en frústrasjón á Fáskrúðsfirði. Óvænt lið á toppnum í báðum deildum. Landsbyggðin gefur, landsbyggðin tekur. Varamenn komu inn á af krafti og uppbótartíminn reyndist mörgum liðum erfiður. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna.
May 26, 2021
Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas gera upp 6. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Meðal efnis: Frækinn Leiknissigur, sæti Loga hitnar, KR misstígur sig, tíðindamikill leikur á Akranesi, Toddi í stöðu sem hann vildi aldrei vera í, frábær uppskera Vals, KA svaraði, Lengjudeildarhornið. Þátturinn er tekinn upp á Ölveri í Glæsibæ.
May 25, 2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Farið var yfir hvaða ungu leikmenn voru að standa sig í efstu fimm deildum Evrópu, hvaða ungstirni eru á leið á EM alls staðar sem og ýmislegt fleira. Kolbeinn Þórðarson leikmaður Lommel í Belgíu var gestur þáttarins að þessu sinni og var farið yfir það sem hefur verið í gangi á hans ferli hingað t...
May 25, 2021
Það var dramatík í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar sem fór fram í gær. Jóhann Már Helagson, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Manchester United, kíktu í heimsókn í dag og gerðu tímabilið upp í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn." Meðal efnis: Stress hjá Chelsea, Leicester getur kennt sjálfum sér um, Liverpool hrökk í gang, kveðjuleikur Mata?, mikilvægi Maguire, spennandi úrslitaleikir framundan, Mendy og Kante tæpir, lið ársins, Aguero kvaddi með stæl, hrun hjá Ev...
May 24, 2021
Það voru alls tíu leikir í Pepsi Max-deildinni og Lengjudeildinni á dagskrá í gær og útvarpsþátturinn Fótbolti.net gerir þá upp. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur þáttarins er Gunnlaugur Jónsson sem hefur verið á vellinum fyrir Stöð 2 Sport í Pepsi Max-deildinni. Leikir fimmtu umferðar eru skoðaðir með honum. Þá er farið yfir leiki Lengjudeildarinnar og einnig rætt um einn sérstakasta landsliðshóp Íslands í langan tíma!
May 22, 2021
Það dugði ekkert minna fyrir lokaumferðina á þessu tímabili í Fantasy en að fá spilara sem á möguleika á toppsætinu til að koma og ræða málin. Heiðmar Eyjólfsson, með liðið Hemson, er sem stendur í 10. sæti, 22 stigum á eftir toppsætinu. Hann, Aron, Gylfi og Gunni skoðuðu síðustu leikina, hvaða lið hafa að einhverju að keppa og hvaða leikmenn gætu verið sniðugir til að græða nokkur sæti í þinni einkadeild í lokaumferðinni. Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.
May 20, 2021
Enska úrvalsdeildin klárast um helgina en næstsíðasta umferðin fór fram í gæro g í fyrradag. Jóhann Skúli Jónsson og Gunnar Ormslev fóru yfir málin í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag.
May 20, 2021
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna.
May 18, 2021
Elvar Geir og Gunni Birgis stýrðu Innkastinu eftir 4. umferð Pepsi Max-deildarinnar og fengu heiðursgest í þáttinn; Gunnar Sigurðarson. Rætt er við Gunna samloku um leiki umferðarinnar og upphaf mótsins. Meðal efnis: Augnablik ársins í deildinni hingað til, Valsmenn vinna, viðbúið jafntefli á Skaganum, Road runner í Krikanum, KA áfram á flugi, vonbrigðabyrjun grænna í Kópavogi, Víkingar léku á als oddi, nýliðarnir í Leikni unnu sinn fyrsta leik, Þátturinn í dag er í boði Ölvers og Domino's....
May 17, 2021
Guðmundur Felixson mætti í stúdíóið sem gestur til Arons, Gunna og Gylfa. Það gerist ekki mikið stærra. Hann deildi frábærum ráðum og truflaði alla línulega dagskrá sem Fantabræður hafa getið sér gott orð fyrir. Tvær umferðir eru eftir, nú er það að príla eða hvíla. Hvern á að hafa fyrirliða í næstu umferð? Verður Chelesa - Leicester markalaust jafntefli eða þægilegur sigur Chelsea? Er Felix Bergsson með COVID-19? Þú færð svörin við þessu og fleiri spurningum í nýjasta þættinum. Fantabrögð eru í...
May 17, 2021
Jón Kaldal og Engilbert Aron Kristjánsson, stuðningsmenn Arsenal, eru gestir vikunnar Bikarsigur Leicester, dramatískt sigurmark Alisson og margt fleira er einnig til umræðu. Meðal efnis: Öskubuskubragur Leicester, eigandi Leicester flottur, Tielamans gerði eins og á YouTube, Alisson eins og lax, Liverpool líklegir í Meistaradeildina, vonbrigði Everton, vonarstjörnur fá tækifæri, versta tímabil Arsenal, Arteta rekinn?, Villarreal einvígið hörmung, Spotify kóngurinn reynir að kaupa, ekki með menn...
May 17, 2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Hitað er upp fyrir komandi umferð í Pepsi Max-deildinni og Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, er á línunni. Kristján Atli Ragnarsson skoðar enska boltann og Rafn Markús Vilbergsson fer yfir 2. umferð Lengjudeildarinnar þar sem umræðupunktarnir eru fjölmargir.
May 15, 2021
Egill Sigfússon var sérstakur gestur í Boltanum á Norðurlandi á fimmtudagskvöld. Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Steinke fóru yfir það helsta með Agli. KA og Þór unnu en Þór/KA og Tindastóll töpuðu. Farið var vel yfir sigur KA á Dalvíkurvelli, tveir vítadómar, glórulaus tækling og einkunnagjöf á leikmenn KA. Þórsarar unnu 4-1 í Boganum og strákarnir heyrðu í Ólafi Aroni sem þótti eiga góðan leik á miðjunni í liði Þórsara. KA er með sjö stig eftir þrjá leiki og Þór hefur skorað sjö mörk í fyrst...
May 14, 2021
Markaregn, rauð spjöld, skellir og ljót meiðsli. Innkastið er með ykkur eftir þriðju umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Gunni Birgis og Ingó Sig fara yfir umferðina. Meðal efnis: Mikkelsen með þrennu, þungskýjað í Garðabæ, enn og aftur fá andstæðingar FH rautt í fyrri hálfleik, Almarr hetja á Hlíðarenda, KR fer hikstandi af stað, KA með yfirburði á Dalvík, gluggadagurinn og óvænt úrslit í Lengjudeildinni.
May 13, 2021
Fantabrögð fundi tíma til að taka upp þátt þegar 2 leikjum var ólokið í 35. umferð. Þrefalda umferðin hjá Manchester United fór ekki alveg eins og fantasy þjálfarar höfðu vonað. Ole róteraði liðinu nánast alveg milli leikja 1 og 2 og Greenwood var sá eini sem spilaði stærstan hluta beggja leikja og skoraði í báðum. Það var mikið um stig á bekkjunum hjá spilurum í þessari umferð og það birtist sannkallaður hausverkjarþráður á Facebook grúppunni Fantasy Bragðarefir þar sem menn eins og Stuart Dall...
May 13, 2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Aðal umræðuefnið í þessum þætti er Pepsi-Max deildin. Farið er yfir hvaða ungu leikmenn liðanna hafa verið að standa sig og jafnvel hverjir geta farið í atvinnumennsku eftir tímabilið.
May 12, 2021
Það voru heldur betur óvænt úrslit í 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar og nóg að ræða á kaffistofum landsins. Úrslitin í 1. umferð Lengjudeildarinnar voru ekki síður óvænt og nú bíðum við spennt eftir að keppni hefjist í 2. deild. Heimavöllurinn fær góðkunningjann Brynju Dögg Sigurpálsdóttur í heimsókn, fer yfir leiki liðinnar viku og tekur lokaupphitun fyrir 2. deildina sem fer af stað í kvöld.
May 12, 2021
Þáttastjórnendur Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason komu saman og ræddu komandi sumar. Ástríðudeildirnar fóru af stað um helgina og var 1. umferð gerð upp. Meðal annars var rætt um leikstjóra á Kópavogsvelli, húsnæðismál á Austurlandi, 69. mínútu og leikmenn sem skilja ekki leikáætlun liðs síns í 3. deild. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna.
May 10, 2021
Það er Liverpool þema í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" að þessu sinni. Einar Matthías Kristjánsson, Magnús Þór Jónsson og Sigursteinn Brynjólfsson frá kop.is mættu í þátt dagsins og fóru yfir málefni Liverpool sem og aðra leiki helgarinnar. Meðal efnis: Liverpool þarf mann í hverja línu, Firmino skorar ekki lengur, stórt sumar framundan á félagaskiptamarkaðinum, varnarmennirnir færast aftar í röðinni, Meistaradeildardraumurinn á lífi, aftur skjálfti hjá Leicester, vill fá Grealish til Liverpo...
May 10, 2021
Elvar Geir, Gunni Birgis og Ingó Sig gera upp 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Ekkert lið er með fullt hús og allir eru komnir á blað! Meðal efnis: Rautt í stórleiknum, stórskemmtun í Breiðholti, hreinskilinn Arnar virðir stigið, stemning í Kórnum, KA vill flytja á Dalvík, hringt í vin í Keflavík, Stjarnan í limbói, Gunni giskar, hátt spennustig í Mosó og Vestri rúllar yfir Selfyssinga.
May 09, 2021
Boltinn á Norðurlandi er mjög þéttur þenann sunnudaginn, fimm símtöl, púlsinn tekinn á Húsavík og staðan á Króknum krufin. Þeir Egill Sigfússon, Anton Freyr Jónsson, Nikola Dejan Djuric, Jóhann Kristinn Gunnarsson og Óskar Smári Haraldsson fóru yfir það helsta í þessu öllu saman. Yfirvaraskegg og Bjössi sýslumannssonr komu við sögu. KA, KF, Völsungur, Dalvík/Reynir og Þór/KA unnu sigra, Tindastóll gerði jafntefli en Þór og Magni töpuðu í miklum markaleikjum. Það eru þeir Aksentije Milisic og Sæb...
May 09, 2021
Íslenski boltinn í tæplega tvo tíma. Atli Viðar Björnsson er sérstakur gestur þáttarins. Rætt er um Pepsi Max-deildina og farið ítarlega yfir sigur KA gegn KR og fréttir vikunnar. Guðmundur Andri gekk í raðir Vals og Finnur Tómas kom heim í KR. Rúnar Páll er hættur sem þjálfari Stjörnunnar. Hvað gerðist í Garðabænum? Skoðaðir eru næstu leikir í deildinni. Einnig er farið yfir fyrstu fjóra leiki Lengjudeildarinnar.
May 08, 2021