Ein Pæling - podcast cover

Ein Pæling

Thorarinn Hjartarsonwww.spreaker.com
Hlaðvarp
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#343 Brynjar Níelsson - "Ég er hættur í pólitík"

Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson um hin ýmsu mál. Fjallað er um hælisumsókn Yazan Tamimi, fjölskylduna, Sjálfstæðisflokkinn, heilbrigðiskerfið, fórnarlambavæðingu og akademískar stofnanir innan veggja Háskóla Íslands, hvað það sé að vera umdeildur maður og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

Sep 24, 202419 min

#342 Helgi Ómars - Rétttrúnaður, ungir drengir og betra samfélag

Þórarinn ræðir við Helga Ómarsson, hlaðvarpsstjórnanda og áhrifavald, um rétttrúnað. Fjallað er um nauðganir, klefamenningu, ljúfa menn, hvort að samúð sé alltaf jákvætt afl, tilfinningar, karlmennsku woke og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

Sep 22, 202428 min

#340 Birgir Hákon - Hnífar, eiturlyf og ofbeldi

Þórarinn ræðir við Birgi Hákon um hnífaburð ungmenna, pólitíkina í undirheimunum, eiturlyfjasölu, skemmtanalífið og margt fleira. Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus.is/Einpaeling

Sep 16, 202449 min

#338 Gísli Freyr - Ósáttir sjálfstæðismenn bíða ekki eftir æfðum ræðum um aukin ríkisútgjöld

Þórarinn ræðir við Gísla Frey Valdórsson, kollega sem heldur úti Þjóðmálum. Í þessum þætti er rætt um stöðu ríkisstjórnarinnar og Sjálfstæðisflokksins sérstaklega, gengdarlaus ríkisútgjöld, rétttrúnaðinn, eitraðar karlmennsku, fjölmiðlanefnd, mannréttindastofnun, upplýsingaóreiðu í veirufaraldri og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

Sep 10, 202422 min

#337 Sigurður Orri Kristjánsson - Yfirgaf Samfylkinguna fyrir Viðreisn

Þórarinn ræðir við Sigurð Orra Kristjánsson um stjórnmálin, afhverju hann hætti í Samfylkinguna fyrir Viðreisn, ESB, efnahagsmálin, Bandarísk stjórnmál, rétttrúnað og margt fleira. Til að nálgast þáttinn í heild sinni má fara á www.pardus.is/einpaeling

Sep 07, 202424 min

#336 Björn Brynjúlfur Björnsson - Árangur barna er ekki einkamál kennara

Björn Brynjúlfur Björnsson er framkvæmdarstjóri Viðskiptaráðs. Í þessum þætti er rætt um stöðu barna í skólakerfinu og varhugaverða þróun á hinum ýmsu sviðum. Rætt er um PISA-kannanir, hagsmunaöfl kennara, stjórnmálin, afhverju foreldrar eigi rétt á því að nálgast gögn um árangur barnanna sinna og hvað sé til ráða. Til að styrkja þetta framlag má fara inn á pardus.is/einpaeling

Sep 01, 202457 min

#335 Georg Leite - Miðbær Reykjavíkur er hættulegri en áður

Georg Leite er bareigandi í Reykjavík og frumkvöðull á ýmsum sviðum. Í þættinum er rætt um breytingar á skemmtanalífi undanfarin ár sem Georg segir birtast í aukinni glæpa of ofbeldistíðni og telur hann lögregluna hafa fá úrræði til þess að takast á við þennan nýja veruleika. Þá er einnig rætt um getu Íslands til þess að taka á móti fólki með erlendan bakgrunn, rasisma, fréttaumfjallanir og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling - Kemur hnífsstunguárás á Menningarnó...

Aug 29, 202419 min

#334 Ágúst Bjarni Garðarsson - Staða Framsóknar, húsnæði og útlendingar

Þórarinn ræðir við Ágúst Bjarna, þingmann Framsóknarflokksins um húsnæðismál, útlendingamál, stöðu ríkisstjórnarinnar og stöðu skólamála. - Er eyðsla stjórnvalda áhyggjuefni ríkisstjórnarinnar? - Heldur ríkisstjórnin? - Hvað er hægt að gera í húsnæðismálum? Þessum spurningum er svarað í þættinum. Sjá þátt í heild á www.pardus.is/einpaeling

Aug 26, 202421 min

#333 Agnar Tómas Möller - Er hægt að lækka stýrivexti?

Þórarinn ræðir við Agnar Tómas Möller um stöðu efnahagsmála. Fjallað er um hvort að hægt sé að lækka stýrivexti, skuldabréfakaup, stjórnmálin, vinnumarkaðinn og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

Aug 18, 202422 min

#332 Guðmundur Fertram - Heilbrigðisþjónusta, innviðir og fiskeldi

Þórarinn ræðir við Guðmund Fertram, stofnanda og forstjóra Kerecis. Fjallað er um stöðu Landspítalans, innviði á Vestfjörðum, stjórnmálin og ríkisstjórnina, orkumál, samgöngumál, yfirstéttina úr Reykjavík, alræði neitunarvaldsins, fiskeldi og margt fleira.

Aug 14, 20241 hr 34 min

#331 Atli Harðarson - Símanotkun og ofurviðkvæmni barna

Atli Harðarson er prófessor á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Í þessum þætti eru hugmyndir og bækur Jonathan Haidt ræddar og þá sérstaklega hans nýjasta, The Anxious Generation sem fjallar um aukinn kvíða barna sem Haidt telur eiga rætur sínar að rekja í símanotkun.

Aug 01, 202453 min

#330 Ómar Annisius - Hvað er að gerast á landamærunum?

Ómar Annisius er fyrrum sérsveitarmaður en starfar í dag sem aðstoðaryfirlögregluþjónninn á Keflavíkurflugvelli. Í þessum þætti er rætt um stjórn og málefni landamæraeftirlits. - Er óstjórn á landamærunum? - Hver eru áhrif stjórnmálanna? - Hvaða áhrif hefur umræðan á störf lögreglu? Þessum spurningum er svarað hér. Hlaðvarpið í heild: www.pardus.is/einpaeling

Jul 21, 202423 min

#329 Diljá Mist Einarsdóttir - Ofstækisfólk ógnar friðsömu samfélagi á Íslandi

Diljá Mist Einarsdóttir mætir til að ræða rétttrúnaðinn, stjórnmálin, stöðu Sjálfstæðisflokksins, útlendingamál og margt fleira. - Veitum við innflytjendum súkkulaðipassa í mannréttindamálum? - Hvað þarf Sjálfstæðislfokkurinn að gera til að auka fylgið? - Er ofstækisfólk haldið sjálfshatri? - Hvernig viðhöldum við eigin gildum er varðar jafnrétti? Þessum spurningum er svarað hér. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

Jul 16, 202423 min

#328 Þórður Gunnarsson - Allt vinstramegin við miðju er öfgahægri

Þórarinn ræðir við Þórð Gunnarsson um stjórnmálin á Íslandi, stöðu efnahagsmála, þróun í Evrópu, hið öfgahægri og hvað það er, horfur í viðskiptalífi á Íslandi og margt fleira. Til að fá fullan aðgang að þessu hlaðvarpi má fara á www.pardus.is/einpaeling

Jul 12, 202421 min

#327 Tryggvi Hjaltason - Staða drengja er slæm

Þórarinn ræðir við Tryggva Hjaltason um stöðu drengja innan skólakerfisins. Nýlega skrifaði Tryggvi skýrslu um stöðuna sem hann segir vera mjög slæma. Rætt er um kerfið í heild, aðkomu foreldra í því að bæta stöðuna, hvað muni koma til með að eiga sér stað ef ekkert er að gert og margt fleira. Til að styðja þetta framtak má fara á www.pardus.is/einpaeling

Jul 07, 20241 hr 4 min

#326 Brynjar Níelsson - Hættur ef að xD krefst prófkjörs

Brynjar Níelsson er nýjasti gestur Þórarins. Í þættinum er rætt um stjórnmálin, nýju Samfylkinguna, útlendinguamál og fjölmenningu, þróunina í Evrópu og þá flokka sem hafa verið kallaðir öfgahægrihóparnir, hvort að Brynjar hyggst bjóða sig fram á lista fyrir næstu Alþingiskosningar og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

Jun 30, 202420 min

#325 Guðrún Hafsteinsdóttir - Útlendingamál: Lokuð búsetuúrræði, fingrafaraskannar og fækkun umsókna

Þórarinn ræðir við Guðrúnu Hafsteinsdóttur um stöðu útlendinga- og lögreglumála. Meginþorri hlaðvarpsins fer í að ræða hluti sem snúa að útlendingamálum og fjallað er um lokuð búsetuúrræði, pólitíkina, landamærin, menningu og gildi, erlenda þróun og það sem að Guðrún kallar séríslensk lög. Einnig er fjallað um skólamál, velferðarkerfið, stjórnmálin á Íslandi og fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

Jun 27, 202422 min

#324 Frosti Logason - Umbrotatímar vegna hægri sveiflu í Evrópu

Þórarinn ræðir við Frosta Logason, útvarps- og hlaðvarpsstjórnanda veitunnar Brotkast. Í þættinum er rætt um hið nýja hægri í Evrópu, stjórnmálin á Íslandi, #MeToo, Vestræn gildi og viðmið, trúleysi og Kristna trú og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á pardus.is/einpaeling

Jun 24, 202424 min

#323 Margrét Valdimarsdóttir - Eru tengsl milli fjölda innflytjenda og glæpatíðni?

Þórarinn ræðir við Margréti Valdimarsdóttur, afbrotafræðing og dósent við Háskóla Íslands um nýja skýrslu Margrétar um tengsl ungra innflytjenda við samfélagið. Sérstök áhersla er lögð á glæpatíðni á Norðurlöndunum og rætt hvort að rekja megi fjölgunina til aukins fjölda innflytjenda. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

Jun 21, 202420 min

#322 Guðmundur Skúli - Óafskipt lesblinda veldur stríði í kennslustofunni

Þórarinn ræðir við Guðmund Skúla Johnsen, formann lesblindrafélagsins. Guðmundur telur að mikið af þeim samfélagsmálum sem eigi sér stað megi með beinum eða óbeinum hætti rekja að miklu leiti til lesblindu. Stjórnvöld geri ekki nægilega mikið til þess að koma til móts við fólk með lesblindu, ungt fólk, og sérstaklega strákar, verði því fyrir mismunun sem brýst út í óæskilegri hegðun. Þeir einstaklingar sem að eru ekki greindir með lesblindu séu einnig í mun meiri áhættuhóp til þess að fara út af...

Jun 18, 20241 hr 4 min

#321 Stefán Baxter - Gervigreind mun valda meiri breytingu en uppgötvun rafmagnsins

Stefán Baxter er frumkvöðull sem að hefur komið af fjölmörgum verkefnum sem varða tæknigeirann og starfar í dag sem framkvæmdarstjóri snjallgagna. Hann er viss um að gervigreindin muni koma til með að umbylta okkar hugmyndum um störf og að eftir tíu ár verði hlutirnir orðnir allt öðruvísi. - Hvernig verður þín persónulega gervigreind? - Verða tölvunarfræðingar ónothæfir? - Hvaða störf munu hverfa? - Hvernig mun upplýsingaöflun breytast? Þessum spurningum er svarað hér. Hlaðvarpið í heild má finn...

Jun 15, 202420 min

#320 Jakob Birgisson - Bakslag í gríninu og grínið í bakslaginu

Þórarinn ræðir við Jakob Birgisson um ýmis mál sem snýr að gríni og bransanum í kringum uppistandið. Fjallað er um hvort að grínistar eigi að skipta sér að stjórnmálum, forvirka meðvirkni, hvort að spuni sé skemmtilegur, veitt er hjónabandsráðgjöf, rætt um föðurlaus börn, þróun framtíðarinnar, heimsmálin og íslensk stjórnmál. Til þess að fá fullan aðgang að þessu hlaðvarpi má fara á www.pardus.is/einpaeling

Jun 09, 202428 min

#319 Brynjar Karl - Breiðholtið, þjálfun, vandamál og lausnir

Þórarinn ræðir við Brynjar Karl, körfuboltaþjálfara og frumkvöðul. Brynjar hefur reynslu af því að starfa í Efra Breiðholti og í þættinum lýsir hann reynslu sinni af því að starfa þar, hvernig eigi að takast á við félagsleg vandamál, þjálfun, markmið, hvað það þýðir að vera sterkur einstaklingur, framtíðina og margt fleira. Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus.is/einpaeling

Jun 07, 20241 hr 56 min

#318 Albert Jónsson - Loftslagsmálin verða ekki leyst af alþjóðakerfinu

Þórarinn ræðir við Albert Jónsson um alþjóðakerfið, áhrif þess og praktískt eðli er varðar stríðið á Gaza, loftslagsmálin, stríðið í Úkraínu, alþjóðasáttmála og margt fleira. - Getur alþjóðakerfið leyst loftslagsvána? - Hvaða áhrif hefur stríðið á Gaza á alþjóðakerfið? - Hvað mun gerast í Úkraínu? - Er Ísland á villigötum í loftslagsaðgerðum? Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

Jun 04, 202420 min

#317 Mads Gilbert - Israel, Gaza, and the Palestinian people

Tóti speaks with Mads Gilbert, a physician and a specialist in anesthesiology who has been fighting for the Palestinian cause for decades. What is happening in Gaza today? How can the conflict be resolved? Are the numbers provided by health officials in Palestine to be trusted? What does this conflict mean for the political situation in the Western world? All of these questions, and more, are answered in this podcast.

May 31, 20241 hr 9 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android