Ein Pæling - podcast cover

Ein Pæling

Thorarinn Hjartarsonwww.spreaker.com
Hlaðvarp
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#315 Jón Bjarki Bentsson - Hvað geta stjórnvöld gert í húsnæðisvandanum?

Þórarinn ræðir við Jón Bjarka en hann er aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Lögð er sérstök áhersla á efnahagsmál og hvaða áhrif húsnæðismarkaðurinn hefur á efnahagshorfurnar næstu árin. Fjallað er um: - Inngrip hins opinbera. - Er peningaprentun hins opinbera stjórnlaus? - Hvaða áhrif hefur ákvörðun Seðlabankans á húsnæðismarkaðinn? - Er möguleiki að lækka stýrivexti án þess að húsnæðisverð fari enn hærra? Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling...

May 22, 202420 min

#313 Viðtal við forsetaframbjóðanda - Katrín Jakobsdóttir

Þórarinn ræðir að þessu sinni við síðasta forsetaframbjóðandann, Katrínu Jakobsdóttur. Rætt er um eftirfarandi málefni: - Fóstureyðingar - Mannréttindastofnun - Verður VG sterkari án Katrínar? - Er Katrín stoltur Íslendingur? - Nýju stjórnarskrána

May 15, 202441 min

#312 Inga Sæland - "Ég er ekki Woke"

Þórarinn ræðir við Ingu Sæland, formann Flokk fólksins. Rætt er um stjórnmálin, öryrkja, húsnæðis- og leigumál, útlendingamál og Eurovision sniðgönguna. Hlaðvarpið má finna í heild á www.pardus.is/einpaeling

May 12, 202425 min

#310 Viðtal við forsetaframbjóðanda - Halla Hrund Logadóttir

Þórarinn ræðir við Höllu Hrund Logadóttur en hún býður sig fram til forseta í kosningum sem háðar verða þann 1. júní næstkomandi. Í þessu hlaðvarpi er rætt um orkumál, háskólamál í Bandaríkjunum, hvaða áherslur Halla telur sig muna koma til með að leggja áherslu á verði hún forseti og margt fleira. Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus.is/einpaeling

Apr 27, 20241 hr

#309 Jasmína Vajzović Crnac - Viðsnúningur Samfylkingarinnar í útlendingamálum?

Þórarinn ræðir við Jasmínu Vajzović Crnac um viðsnúning Samfylkingarinnar í hælisleitendamálum. Fjallað er um orðið inngildingu, agavandamál í skólum, hvernig eigi að takast á við glæpi sem framdir eru af erlendum ríkisborgurum, stefnu stjórnvalda og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

Apr 26, 202420 min

#307 Jónas Atli Gunnarsson - Ákvarðanir og stefna Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Þórarinn ræðir við Jónas Atla Gunnarsson um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun eða HMS. Þórarinn ræðir efasemdir um, og fær svör við, ákvarðanir um: Hlutdeildarlán og önnur sértæk úrræði Merkjalýsingar Sértök úrræði Loftslagsmarkmið Forgangsröðun Er mygla í skólum siðfár? Hlaðvarpið í heild sinni má finna á www.pardus.is/einpaeling

Apr 20, 202419 min

#306 Viðtal við forsetaframbjóðanda - Jón Gnarr

Þórarinn ræðir við Jón Gnarr en hann býður sig fram til forseta í kosningum sem háðar verða þann 1. júní næstkomandi. Í þessu hlaðvarpi er rætt um áherslur Jóns, hvort að grínisti geti valdið svo formlegu embætti, hvað hann vill setja á dagskrá verði hann forseti, muninn á þjóðarstolti og stærilátum, framboð Katrínar Jakobsdóttur, Bandaríkin og margt fleira. Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus.is/einpaeling

Apr 16, 20241 hr 26 min

#305 Viðtal við forsetaframbjóðanda - Helga Þórisdóttir

Þórarinn ræðir við Helgu Þórisdóttur um það hvaða áherslur hún sér fyrir sér að leggja fram fyrir komandi kosningar en hún hefur boðið sig fram til forseta. Rætt er um persónuvernd, gildi, agaleysi í skólum, PISA kannanir hvort að börn séu snillingar og margt fleira.

Apr 13, 202455 min

#304 Hjálmtýr Heiðdal - Sex mánaða stríð Ísrael og Palestínu

Þórarinn ræðir við Hjálmtý Heiðdal, formann samtakanna Ísrael-Palestína. Rætt er um: - Árás Hamas samtakanna þann 7. október - Hverjum tilheyrir landsvæði Ísraels og Palestínumanna - Eru Hamas samtökin hryðjuverkasamtök? - Er tveggja ríkja lausnin fyrir bí? Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

Apr 10, 202422 min

#303 Viðtal við forsetaframbjóðanda - Baldur Þórhallsson

Þórarinn ræðir við Baldur Þórhallsson en hann sækist eftir forsetaembættinu í komandi kosningum. Hér er rætt um hatursorðræðu, veru maka Baldurs, Felix Bergssonar á Twitter, hvað framboð Katrínar Jakobsdóttur þýði fyrir stjórnmálin á Íslandi, alþjóðastjórnmálin og margt fleira.

Apr 07, 20241 hr 2 min

#300 Andrea Sigurðardóttir - Ríkisstjórnin þurfi að vera í næstu seríu Viltu finna milljón

Þórarinn ræðir við Andreu Sigurðardóttur um ýmis mál og eftirfarandi spurningum svarað: Hver verður næsti formaður Sjálfstæðisflokksins? Afhverju virðist HMS ekki taka góðar ákvarðanir? Hvernig verður lágri fæðingartíðni snúið við? Hvað er hægt að gera í leikskólamálum? Áhrif áforma Sigurðar Inga um þrengri leigulög á leigjendur. Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling

Mar 30, 202422 min

#299 Orri Páll Jóhannsson - Inngilding, aðlögun og mannréttindastofnun

Þórarinn ræðir við Orra Pál Jóhannsson, alþingismann og þingflokksformaður Vinstri Grænna. Í hlaðvarpinu ræða tvímenningarnir um stjórnmálin, útlendingamál, muninn á aðlögun og inngildingu, hatursorðræðu og mannréttindastofnun. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

Mar 26, 202421 min

#298 - Guðmundur Hrafn Arngrímsson - Leigjendur geti hvorki reitt sig á bandalög né stéttarfélög

Þórarinn ræðir við Guðmund Hrafn Arngrímsson, formann leigjendasamtakanna, um nýundirskrifaða kjarasamninga og hvaða áhrif þeir muni koma til með að hafa á stöðu leigjenda. - Erum við enn í Covid stjórnmálunum? - Skyldu stéttarfélögin leigjendur eftir? - Þurfti fátækasta fólkið á ókeypis skólamáltíðum að halda? - Þarf húsnæðismarkaðurinn á fleiri kostum og úrræðum til þess að búa til húsnæði? Þessum spurningum er svarað hér. Í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling...

Mar 22, 202417 min

#297 Jakob Bjarnar - Er woke-ið til vinstri eða hægri?

Þórarinn ræðir við Jakob Bjarnar Grétarsson um listamannalaun, stöðu blaðamanna, útlendingamálin og rétttrúnaðinn. - Er afhending blaðamannaverðlaunanna á villigötum? - Eru hlaðvörp fjölmiðlar? - Var Kristrún að segja það sem að öllum finnst? - Hver ber ábyrgð á auknum fasisma? - Afhverju er Gunnar Smári woke? - Eigum við að taka þátt í Eurovision? - Er rétttrúnaðurinn með stjórnmálmenn í sjálfritskoðaðri gíslingu? - Hver verður forseti? Þessum spurningum er svarað hér. Hlaðvarpið í heild má fin...

Mar 16, 202421 min

#296 Þorsteinn Siglaugsson - Mun gervigreindin eyðileggja samfélagsmiðla eða fjölmiðla?

Þórarinn ræðir við Þorstein Siglaugsson um áhrif gervigreindar, einstaklingsábyrgð, nýjar kröfur og samfélagshnignun. Fer Ísland sömu leið og Feneyjar forðum? Mun gervigreind eyðileggja samfélagsmiðla? Hvaða áhrif hefur gervigreind á fjölmiðla? Hvaða áhrif hefur gervigreindin á persónulega ábyrgð? Hvað gerist þegar gervigreindin tekur störfin? Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

Mar 11, 202416 min

#295 Árni Helgason - Breytt staða í útlendingamálum krefst hreinskilnari umræðu

Þórarinn ræðir við Árna Helgason um útlendingamál. Árni hefur starfað sem lögmaður á ýmsum mismunandi sviðum í útlendingamálum í yfir 15 ár. Tvímenningarnir reyna að finna svörin við eftirfarandi spurningum: - Hvernig getur Ísland lært af Norðurlöndunum? - Breytti Kristrún Frostadóttir umræðum um hælisleitendamál? - Hvað finnst Pólverjum á Íslandi um hælisleitendamál? - Hvaða áhrif hefur breytt staða á stöðu ríkisstjórnarinnar? Þessu og fjölmörgu öðru er svarað hér. Hlaðvarpið í heild má finna á...

Mar 05, 202432 min

#294 Halldór Armand - Þarf ríkið að verja mig fyrir mínum eigin ákvörðunum?

Þórarinn ræðir við rithöfundinn Halldór Armand þar sem eftirfarandi spurningum er svarað: - Hversu langt má ríkið ganga í því að verja mig fyrir sjálfum mér? - Þarf ríkið að réttlæta eigið vald? - Afhverju erum við hérna saman? - Hvað sameinar okkur? - Hvert erum við að fara? - Hvernig ræktum við hæfileika okkar? - Hvað þýðir það að við treystum ekki löggjafanum? - Rifna samfélög frá vinstri til hægri eða upp og niður? - Er menningarstríðið afvegaleiðing frá raunverulegum vandamálum? Hlaðvarpið ...

Mar 02, 202421 min

#293 Snorri Másson - Íslensk tunga og menning þarf á málsvara að halda

Snorri Másson stýrir miðlinum Ritstjóri en miðillinn hefur náð mikilli athygli allt frá því að hann hóf göngu sína. Í þessum þætti er rætt um stöðu íslenskrar tungu og menningar ásamt þeim spurningum sem vert er að spyrja sig á tímum mikilla samfélagsbreytinga. Þessum spurningum er meðal annars svarað: Hvaða áhrif hefur bág fæðingartíðni Íslendinga? Er rétttrúnaðurinn liðinn undir lok? Afhverju hætti Ritstjórinn á Stöð 2? Munum við ávallt reiða okkur á Bandaríkin? Er Katrín Jakobsdóttir sammála ...

Feb 28, 202420 min

#290 Björgvin Ingi Ólafsson - Hvað er gott, hvert stefnum við?

Þórarinn ræðir við Björgvin Inga Ólafsson, meðeiganda hjá Deloitte. Í þættinum er rætt við skilvirkni og hagræðingu innan opinberra kerfa. Farið er yfir hvaða forsendur og hvatar þurfa að liggja fyrir ef að bæta eigi kerfi og hvaða áhrif það hefur ef að starfsfólk vinnur við öfugsnúna hvata. Rætt er um eftirfarandi spurningar: Er neyslumynstur upplýsinga að breytast? Hvað er Íslendingur og hvað er samfélag? Höfum við það of gott til þess að grípa til nauðsynlegra aðgerða? Í hvað eyðir heilbrigði...

Feb 18, 202432 min

#289 Þórður Snær Júlíusson - Umræða um hælisleitendur pólitísk tækifærismennska Sjálfstæðisflokksins

Þórður Snær er ritstjóri hjá Heimildinni en í þessu hlaðvarpi er rætt um hælisleitendamál. Þórður telur að umræðan sem hefur átt sér stað undanfarið vera til komin vegna pólitískrar tækifærismennsku Sjálftæðisflokksins sem beitir þessum málaflokki sem örþrifaráði vegna sífallandi fylgi flokksins.. Þarf að hafa áhyggjur af menningarlegum breytingum á Íslandi vegna aukins fjölda útlendinga? Er núverandi umræða um hælisleitendur örþrifaráð Sjálfstæðisflokksins? Hver ber ábyrgð á núverandi stöðu? Hv...

Feb 13, 202418 min

#288 Kristrún Frostadóttir - Hvað vill Samfylkingin gera í hælisleitendamálum?

Þórarinn ræðir enn einu sinni við Kristrúnu Frostadóttur, formann Samfylkingarinnar. Að þessu sinni er rætt um hælisleitendamál og hvað Samfylkingin sér fyrir sér að þurfi að gera í þeim efnum. - Hvað finnst Kristrúnu um fyrirhuguð áform Guðrúnar Hafsteinsdóttur um lokaðar flóttamannabúðir? - Hvað fannst Kristrúnu um tjaldbúðirnar á Austurvelli? - Telur Kristrún að grípa þurfi til álíka úrræða og Mette Fredriksen hefur gert í Danmörku? - Hvaða ráðstafanir þarf að gera til þess að taka á móti fól...

Feb 10, 202419 min

#287 Guðlaugur Þór Þórðarson - Mun þessi ríkisstjórn koma í veg fyrir orkuskort?

Þórarinn ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um stöðu ríkisstjórnarinnar, hælisleitendamálin og orkumálin. Mun VG koma í veg fyrir orkuöflun og mun þessi ríkisstjórn geta komið í veg fyrir orkuskort? Hvað finnst Guðlaugi um tjaldbúðirnar á Austurvelli? Mun Guðlaugur bjóða sig aftur fram í formann Sjálftæðisflokksins? Er Ísland að ljúga að sjálfu sér með fyrirhuguðum loftslagsmarkmiðum? Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling...

Feb 08, 202419 min

#286 Þórður Gunnarsson - Endamarkmiðið er að fækka fólki og minnka lífsgæði

Þórður Gunnarsson er hagfræðingur og viðskiptablaðamaður. Í þessum þætti er rætt um stöðu orkumála í breyttum heimi. Fjallað er um orkuskiptin, orkuöflun, matvæli, áherslur stjórnmálanna og eftirfarandi spurningum svarað: Getum við útrýmt notkun jarðefnaeldsneytis? Í hvaða stöðu er Ísland í orkumálum? Hvernig heim skiljum við eftir fyrir börnin okkar? Í hvaða stöðu er ríkisstjórnin? Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling

Feb 04, 202415 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android