Þorgerður María er formaður Landverndar. Í þessum þætti er rætt um lífsgæði, loftslagsmál og náttúruvernd og eftirfarandi spurningum svarað: Hvað þýða kröfur um minnkandi losun fyrir þróun í fátækari löndum heimsins? Er hægt að halda í lífsgæði samhliða samdrætti? Er orkuskortur á Íslandi? Hver er sýn Landverndar gagnvart virkjunum? Hlaðvarpið má finna í heild á www.pardus.is/einpaeling
Feb 02, 2024•18 min
Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq kemur í annað skiptið til þess að svara eftirfarandi spurningum: Afhverju eru Norðmenn að íhuga að grafa á hafsbotni? Í hvað eru sjaldgæfir málmar notaðir? Verður Ísland og Grænland að sameiginlegu efnahagssvæði? Afhverju er Kína OPEC málmheimsins? Hvað þarf að gera í orkumálum á Íslandi? Hvaða áhrif hafa sjaldgæfir málmar á alþjóðastjórnmálin? Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling...
Jan 31, 2024•16 min
Diljá Mist Einarsdóttir er þingkona Sjálfstæðisflokksins. Þetta er í þriðja skipti sem hún kemur í hlaðvarpið en í þessum þætti er lögð sérstök áhersla á málefni Palestínu, flóttafólks og hælisleitenda. Rætt er um hversu mörgum Ísland getur tekið á móti, tjaldbúðirnar á Austurvelli, rasisma, menningarleg áhrif innflutnings fólks á samfélagið, staðan í Evrópu og hvort að Ísland þurfi að læra af reynslu Breta og Norðurlandanna. Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling...
Jan 27, 2024•16 min
Þórarinn ræðir við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Í þessum þætti er rætt um stjórnmálin á Íslandi, verðmætasköpun og hugmyndafræði, stöðu menntamála og þá sérstaklega STEM greina og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
Jan 25, 2024•18 min
Þórarinn ræðir við Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyja, um orkumál, stöðu Vestmannaeyja en einna helst um skólamál og þær áherslubreytingar sem gerðar hafa verið með góðum árangri. Til að styrkja þetta hlaðvarp: www.pardus.is/einpaeling
Jan 23, 2024•1 hr 7 min
Þórarinn ræðir við Sigurð Hannesson, framkvæmdarstjóra Samtaka Iðnaðarins. Þetta er í annað skipti sem að tvímenningarnir ræða saman en að þessu sinni er rætt um meintan yfirvofandi orkuskorts og hvaða áhrif það muni koma til með að hafa á fyrirtæki í iðnaði. Fjallað er um húsnæðismál, verðmætasköpun, loftslagsmál og að sjálfsögðu mismunandi orkugjafa. Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
Jan 20, 2024•18 min
Þórarinn ræðir við Hörð Arnarson um orkumál á Íslandi. Fjallað er um þann orkuskort sem Hörður telur yfirvofandi, sjónarmið umhverfissinna, loftslagsmál, flutningsgetu, jarðefnaeldsneyti og fleira. Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
Jan 16, 2024•16 min
Þórarinn ræðir við Helgu Völu Helgadóttur, lögmann og fyrrum þingmann Samfylkingarinnar. Rætt er um stjórnmálin og hvort að Helga Vala sakni þess að vera á þingi. Þá er einnig talað um fólk á flótta og hvaða skyldum Ísland þarf að bera ábyrgð á í því að taka á móti fólki og samfélagsleg áhrif sem fylgir því að taka á móti fólki frá öðrum menningarheimum. Að lokum er svo rætt um rétttrúnað og woke-kúltur. Tekist er á um réttmæti þess og afvegaleiðingu hugtaksins. Hlaðvarpið má finna í heild sinni...
Jan 11, 2024•18 min
Þórarinn ræðir við Jasminu Vajzović Crnac um flóttamanna- og hælisleitendamál. Jasmína er stjórnmálafræðingur og sérfræðingur í málefnum flóttafólks og innflytjenda. Í þessu hlaðvarpi er rætt um þær áskoranir sem fylgja því að taka á móti flóttafólki og hælisleitendum. Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
Jan 05, 2024•15 min
Þórarinn, Ívar Elí og Eyþór ræða ýmis mál. Þar á meðal frásagnarlistina, stjórnmálin, ríkt fólk, fiskeldi, Grindavík, frelsi og fleira. Til að styrkja þetta framlag og fá aðgang að öllu efni hlaðvarpsins má fara á www.pardus.is/einpaeling
Jan 01, 2024•1 hr 27 min
Þórarinn ræðir við Júlíus Viggó, formann Heimdallar. Tvímenningarnir ræða það hvernig Sjálfstæðisflokkurinn getur komist hjá því að missa meira fylgi, hvernig flokknum hefur tekist að takast á við aukinn straum hælisleitenda, menntakerfið og PISA, og hvað Júlíusi finnst um að ráða Svanhildar Hólm sem nýjan sendiherra í Bandaríkjunum. Þáttinn í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
Dec 24, 2023•23 min
Jón Pétur Zimsen er aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla. Í þessum þætti er rætt um nýlegar niðurstöður PISA sem sýna að 40% grunnskólabarna útskrifast án þess að geta lesið sér til gagns. Jón Pétur telur lausn vera fyrir hendi til þess að bæta þessa stöðu en kerfis- og hagsmunaöfl innan skólakerfisins ríghalda í eigin hagsmuni á kostnað barnanna. Þetta telur hann að muni koma til með að leiða til áframhaldandi þróun niður á við er varðar getu barna til þess að takast á við verkefni lífsins síða...
Dec 18, 2023•1 hr 25 min
Þórarinn ræðir við Ingvar Smára Birgisson en í dag starfrækir hann lögmannsstofuna Firma. Ingvar var aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar á meðan hann sinnti stöðu dómsmálaráðherra núverandi ríkisstjórnar. Hann er því sjóaður er varðar málefni hælisleitenda hér á landi en eins og þekkist lagði Jón Gunnarsson sérstaka áherslu á þann málaflokk í sinni ráðherratíð. Í þessu hlaðvarpi er rætt um stöðu mála á Íslandi er varðar hælisleitendur, menningu, þriðju vaktina, tjáningarfrelsi, íslensk stjórnmál og ...
Dec 15, 2023•17 min
Þórarinn ræðir við Magnús Þorkel Bernharðsson um stöðu mála við botni Miðjarðarhafs. Magnús Þorkell er prófessor við Williams College þar sem hann kennir Mið-austurlandafræði. Rætt er um stöðuna í víðu samhengi og hvaða áhrif stríðið mun koma til með að hafa á Mið-Austurlönd í heild sinni. Hlaðvarpið er hægt að finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
Dec 09, 2023•18 min
Atli Þór Fanndal er framkvæmdarstjóri Transparency International sem eru alþjóðasamtök sem berjast gegn spillingu. Í þessum þætti er fjallað um spillingu á Íslandi, fjölmiðla, stjórnmálamenningu og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
Dec 03, 2023•14 min
Þórarinn ræðir við Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur, kynjafræðikennara við Borgarholtsskóla þar sem tekin er staðan á KSÍ-málinu svokallaða og árangur þeirrar baráttu sem hófst árið 2021. Einnig er rætt um mál Frosta Logasonar og Eddu Falak, þriðju vaktina, kulnun kvenna, valdaójafnvægi milli kennara og foreldra, ástarsorg og aumingja. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
Nov 29, 2023•17 min
Þórarinn ræðir í þriðja sinn við Heiðar Guðjónsson, fjárfesti og fyrrverandi forstjóra Sýnar. Í þessum þætti er rætt um: - Umhverfismál - Sorpu - Rétttrúnað - Hvort að Heiðar gæti séð fyrir sér að gerast formaður Sjálfstæðisflokksins - Fjölmiðlastéttina - Skattamál - Akademíuna - Deilu Palestínumanna og Ísraelsmanna Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
Nov 24, 2023•26 min
Hlynur Guðmundsson lýsir reynslu sinni af því að vera samkynhneigður maður sem kemur seint út úr skápnum í litlu bæjarfélagi. Hann fluttist til Reykjavíkur í von um að kynnast fleira fólki á keimlíkum stað og hann var sjálfur þegar hann sótti nám en þar mætti honum andstaða vegna þess að hann er hægrisinnaður í stjórnmálum. Í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling
Nov 20, 2023•15 min
Brynjar Níelsson kemur enn eina ferðina og í þetta sinn býður hann upp á uppeldis- og hjónabandsráðgjöf. Farið er um víðan völl og meðal annars þessum spurningum svarað: Hvað á að skattleggja sjávarútveginn mikið? Er Kristrún Frostadóttir í rauninni vinstri manneskja? Viltu bjóða Þorsteini V. heim til þín? Hver sinnir þriðju vaktinni heima hjá Brynjari? Er ríkisstjórnarsambandið að grafa undan ímynd Sjálfstæðisflokksins? Hver er munurinn á Heimildinni og Mogganum? Afhverju fer ungt fólk í kulnun...
Nov 13, 2023•32 min
Þórarinn ræðir við Má Wolfgang Mixa um stöðu húsnæðismála. Rætt er um leigjendur, stýrivaxtahækkanir og lækkanir, stjórnmálin, hvata og fleira. Hlaðvarpið í heild: www.pardus.is/einpaeling
Nov 11, 2023•18 min
Þórarinn ræðir við Þórð Pálsson um allt á milli himins og jarðar. Meðal annars menntamál, orkumál, woke-hugmyndafræðina, stríðið í Ísrael og Palestínu, heimspeki, íslensk stjórnmál, og kjarasamninga. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
Nov 04, 2023•23 min
Þórarinn ræðir við Þórð Gunnarsson um framtíðarhorfur í efnahagsmálum. Rætt er um orkumál, alþjóðamál, matvælaöryggi, lánamál og stöðu Íslands í öllum þessum málum. Til þess að styrkja hlaðvarpið má fara inn á www.pardus.is/einpaeling
Nov 01, 2023•58 min
Þórarinn ræðir öðru sinni við Lenyu Rún Taha Karim. Að þessu sinni er rætt um hatursorðræðu, deilu Ísrael og Palestínu, íslensk stjórnmál og orkumál. Hlaðvarpið í heild: www.pardus.is/einpaeling
Oct 28, 2023•15 min
Þórarinn ræðir við viðskiptablaðamanninn Magdalenu Torfadóttur um ýmis mál. Rætt er um efnahagsmál, stjórnmálin, áherslur í menntastefnu háskóla á Íslandi, snjóhengju lána og verðbólguna. Þáttinn í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
Oct 22, 2023•15 min
Þórarinn ræðir við Birgi Ármannsson um ríkisstjórnarsambandið, Lindarhvolsmálið, heilbrigðiskerfið og hvort að þessi ríkisstjórn geti starfað saman. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling.
Oct 19, 2023•16 min
Þórarinn ræðir við Björn Inga Hrafnsson, ritstjóra Viljans, um stöðu ríkisstjórnarinnar. Rætt er um stöðuna í víðu samhengi, stöðu stjórnarandstöðunnar, stöðu Bjarna Benediktssonar, fráfarandi fjármálaráðherra, stöðu Samfylkingarinnar og margt fleira. Í heild á www.pardus.is/einpaeling
Oct 12, 2023•13 min
Þórarinn ræðir við Sigmar Guðmundsson um ríkisstjórnarsambandið, stjórnmálin, flóttamannamál og fleira.
Oct 10, 2023•15 min
Þórarinn og Þorsteinn Siglaugsson ræða um gervigreind, ákvörðunartöku, hagfræði, bók Þorsteins sem nefnist From Symptoms to Causes: Applying the Logical Thinking Process to an Everyday Problem og margt fleira.
Oct 06, 2023•1 hr 2 min
Þórarinn ræðir við Eyjólf Ármannsson um stemninguna á þinginu, stjórnmálin, málefni öryrkja, húsnæðis- og flóttamannamál.
Oct 04, 2023•17 min
Er seðlbankastjóri á villigötum? Er verðtryggingin svikamylla? Hvað getur ríkisstjórnin gert? Geta lífeyrissjóðirnir bjargað málunum og ættu þeir að gera það? Um hvað fjallar bók Ólafs Margeirssonar? Öllum þessum spurningum er svarað í þessum þætti og mörgum fleirum. Áskrift: www.pardus.is/einpaeling Bók Ólafs: https://www.amazon.com/-/es/%C3%93lafur-Margeirsson-ebook/dp/B0CCNZQQMM
Sep 28, 2023•21 min