Þórður Gunnarsson er hlustendum kunnugur, hagfræðingur sem hefur marga hatta. Að þessu sinni er rætt um niðurstöður kosninga, orkumál, vinstrið, borgarlínu og margt fleira. - Er loftslagsiðnaðurinn innihaldslaus kjaftaklúbbur? - Mun Dagur B. taka við Samfylkingunni? - Hver verður næsti formaður Sjálfstæðisflokksins? Þessum spurningum er svarað hér. Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus.is/einpaeling
Dec 09, 2024•1 hr 2 min
Björgvin Ingi Ólafsson er meðeigandi hjá Deloitte á Íslandi og sinnir hinum ýmsum verkefnum sem ráðgjafi hjá hinu opinbera og víðar. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við hann um úrslit kosninganna, ráð til næstu ríkisstjórnar, Willum Þór og árangur í heilbrigðiskerfinu, ESB, gervigreind, nýsköpun og skólakerfið.
Dec 07, 2024•1 hr 32 min
Þórarinn ræðir við Þorstein V. Einarsson, frumkvöðul á sviði kynjamála og hlaðvarpsstjórnandi. Fjallað er um hina ýmsu hluti er varðar kosningarnar en stór hliðarskref einnig tekin. Rætt er um Miðflokkinn, Vinstri Græna, hvaða flokkar geti talist femíniskir, og: Er kynjafræði vísindagrein? #MeToo Vísindaleg vinnubrögð Hvernig horfir búrkan við Þorsteini Rasismi Rétttrúnaður Woke Margt fleira. Njótið!
Nov 29, 2024•1 hr 25 min
Þórarinn ræðir við Víði Reynisson, oddvita Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi um: - Útlendingamál og landamærin - Ferðaþjónustuna - Stjórnmálin og jafnaðarmennsku - ESB - Flugvöllinn í Reykjavík - Margt fleira. Njótið!
Nov 28, 2024•1 hr 7 min
Diljá Mist Einarsdóttir mætir í settið til þess að ræða áherslur Sjálfstæðisflokksins. Fjallað er um jafnlaunavottun, sem að Diljá kallar "láglaunavottun", Viðreisn, Samfylkinguna, vinstrið, fjölmenningu, útlendingamál, efnahagsmál og margt fleira.
Nov 27, 2024•1 hr 12 min
- Hver er stefna Samfylkingarinnar í einkarekstri heilbrigðiskerfisins? - Er kerfið að fara að laga kerfið? - Hversu mikið fjármagn þarf heilbrigðiskerfið? Þessum spurningum og fjölmörgum fleirum er svarað í þessum þætti!
Nov 26, 2024•1 hr
- Eru allir flokkar á þingi spilltir? - Afhverju eru fjármunir sem varið er í loftslagsaðgerðir sóun? - Eru fjölmiðlar á móti Arnari Þór? Þessum spurningum er svarað í þessum þætti.
Nov 25, 2024•1 hr
- Gekk #MeToo of langt? - Skjátlast héraðsdómi um búvörulögin? - Er fiskeldi nauðsynleg forsenda fyrir blómlegt líf á Vestfjörðum? Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum er svarað í þessu viðtali við frambjóðanda Framsóknar í Reykjavík Norður, Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur.
Nov 24, 2024•55 min
Þórarinn ræðir við Gunnar Smára, frambjóðanda Sósíalista í Reykjavík, um stjórnmálin á Íslandi, sósíalískt hagkerfi, innflytjendur, ESB, stríð og margt fleira.
Nov 23, 2024•1 hr 10 min
Þórarinn ræðir við Finn Ricart Andrason, oddvita Vinstri grænna í Reykjavík Norður. Finnur er ungur maður sem hefur verið áberandi í umræðum um loftslagsbreytingar og umhverfisvernd og telur hann að rödd náttúrunnar þurfi að heyrast á þingi. Í þættinum er fjallað um kvenfrelsismál, náttúrumál, orkumál, borgarlínu og margt fleira.
Nov 22, 2024•1 hr 5 min
Þórarinn ræðir við formann Miðflokksins um áherslur flokksins í kosningunum. Fjallað er um Evrópusambandið, réttindi og skyldur, Íslan, rétttrúnaðinn, Þórð Snæs málið, innihald, umbúðir og slagorð.
Nov 19, 2024•1 hr 13 min
Hér er reynt að fá svör við eftirfarandi spurningum frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni: - Hvort eigum við að halla okkur nær Bandaríkjunum undir stjórn Trump eða Evrópusambandinu? - Hvað gerist ef vinstristjórn tekur við orkumálunum - Mun Gulli bjóða sig aftur fram í formann?
Nov 18, 2024•1 hr 7 min
Hér er Inga Sæland, formaður flokks fólksins eftirfarandi spurninga: - Verður Inga sami einræðisherra í ríkisstjórn eins og hún er í flokknum? - Munu stefnumálin snúa að því að niðurgreiða allskonar fyrir aumingja? - Afhverju vill Inga að Vinstri grænir falli af þingi? Til að styrkja þetta framtak má fara á www.pardus.is/einpaeling
Nov 16, 2024•1 hr 12 min
Gunnar Páll Tryggvason er stofnandi og framkvæmdarstjóri Alfa framtak. Í þessum þætti er rætt um áhrif fjármagns á mismunandi svið samfélagsins. Fjallað er um dugnað, drifkraft, stjórnmálin, menningu, fjölmiðla og margt fleira.
Nov 15, 2024•1 hr 17 min
Hér er Lilja spurð eftirfarinna spurninga: - Afhverju hatar Lilja Alfreðsdóttir borgarlínuna? - Er Framsókn sá flokkur sem mun taka til í ríkisrekstrinum? - Yrði Framsókn ekki sama hækjan og í borginni ef þau færu í samstarf með Samfylkingunni? Njótið!
Nov 14, 2024•56 min
Sanna Magdalena er oddviti Sósíalista fyrir komandi kosningar. Er byltingin hafin? Hvar hefur sósíalismi virkað? Hvernig verða heilbrigðis- og húsnæðiskerfin undir sósíalistum? Þessum spurningum er svarað hér.
Nov 13, 2024•1 hr 2 min
Hverjar verða áherslur nýju Samfylkingarinar undir leiðsögn Kristrúnar? Þurfa ekki allir flokkar að vera með plan? Hvernig viðheldur Samfylkingin fluginu? Þessar spurningar og fleiri koma fram í nýjum þætti hlaðvarpsins Ein Pæling.
Nov 12, 2024•1 hr 8 min
Voru vopnakaup Íslands til Úkraínu réttlætanleg? Fordæmir Þórdís þjóðarmorð á Gaza? Er hægt að halda úti velferðarkerfi samhliða opnum landamærum? Þessum spurningum svarar Þórdís Kolbrún, utanríkisráðherra, í þessum þætti.
Nov 10, 2024•1 hr 14 min
Þórarinn ræðir við Svandísi Svavarsdóttur, formann Vinstri grænna, um stöðu flokksins, femínisma, útlendingamál og fleira.
Nov 08, 2024•1 hr 6 min
Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson um stjórnmálin í dag, verkefni ríkisins, popúlisma, heimspeki og margt fleira.
Nov 06, 2024•1 hr 40 min
Þórarinn ræðir við Hermann Nökkva, blaðamann á Morgunblaðinu, og Júlíus Viggó, formann Heimdallar, um kosningar í Bandaríkjunum.
Nov 05, 2024•44 min
Mun stefna Mette Fredriksen í Danmörku vera innleidd á Íslandi komist Samfylkingin í stjórn? Hver verður stefna Samfylkingarinnar í heilbrigðis- og efnahagsmálum? Þessu er svarað hér. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling
Nov 04, 2024•1 hr 10 min
Var #MeToo árangursrík herferð? Er stefna Pírata að banna bensín- og díselbíla árið 2025 raunhæft markmið? Hver verður stefna Pírata í málefnum þeirra sem að sækja um alþjóðlega vernd? Oddviti Pírata í Reykjavík svarar þessum spurningum og fjölmörgum öðrum er svarað í þessu hlaðvarpi. Til að styrkja þetta framtak má fara á www.pardus.is/einpaeling
Nov 02, 2024•1 hr 3 min
Þórarinn ræðir við Þorgerði Katrínu, formann Viðreisnar um stefnumál flokksins í útlendingamálum, efnahagsmálum, Evrópumálum og fleira. Til að styðja þetta framtak má fara á www.pardus.is/einpaeling
Oct 31, 2024•1 hr 16 min
Sigurður Ingi mætir í settið til þess að fara yfir áherslur Framsóknar fyrir næstu kosningar. Rætt er um ríkisstjórnina, húsnæðismálin, útlendingamálin og margt fleira
Oct 28, 2024•1 hr 19 min
Þórarinn ræðir við Bjarna Benediktsson, forsætisráðherra, um stjórnmálin á Íslandi, velsæld, kristin gildi og viðmið, útlendingamál, þróun í Evrópu, framtíðina og hvort hann vilji halda áfram sem formaður Sjálfstæðisflokksins Til að styrkja þetta framtak má fara á www.pardus.is/einpaeling
Oct 24, 2024•1 hr
Þórarinn ræðir við Ásmund Einar Daðason um stjórnmálin, skólakerfið, kulnun, kennaraverkfallið, PISA, árangursmælingar og margt fleira. Tili að styrkja þetta framtak má fara á www.pardus.is/einpaeling
Oct 22, 2024•1 hr 6 min
Þórarinn ræðir við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, oddvita í Reykjavík um stefnu Viðreisnar fyrir komandi kosningar. Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus.is/einpaeling
Oct 17, 2024•1 hr 6 min
Þórarinn ræðir við Jón Pétur Zimsen um stöðu skólamála. Fjallað er um foreldra, símanotkun, tölvuleiki, stjórnmálin, pólitíkina innan Kennarasambandsins, hvernig kennarar geta brugðist við og margt fleira. Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus.is/einpaeling
Oct 17, 2024•1 hr 3 min
Viðburður hlaðvarpsins Ein Pæling í Minigarðinum þar sem rætt var við Heiðar Guðjónsson og Þórð Pálsson. Er réttlæti það sama og hefnd? Hver er fórnarkostnaður rétttrúnaðarins? Getur frjálshyggja bætt stöðu ríkisins? Til að styrkja þetta framlag má fara inn á www.pardus.is/einpaeling
Oct 10, 2024•1 hr 27 min