Ein Pæling - podcast cover

Ein Pæling

Thorarinn Hjartarsonwww.spreaker.com
Hlaðvarp
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#54 Tjáningarfrelsi - Only Fans, stjórnmál og samsæriskenningar

Kristín og Þórarinn ræða við Helga Hrafn Gunnarsson um tjáningarfrelsi. Þrátt fyrir stutt viðtal er farið um víðan völl. Rætt erum um takmarkanir á tjáningarfrelsi, klám, Only Fans vefsíðuna, stjórnmál, vísindi og samsæriskenningar.

Apr 20, 202157 min

#52 Varnaðarorð Orwells - Siðanefndir og blaðamenn (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson)

Jakob Bjarnar er þungavigtarmaður í íslenskri blaðamennsku. Þórarinn og Jakob ræða um úrskurð siðanefndar RÚV í máli Helga Seljan og umfjöllun hans um Samherja, viðtal Frosta Logasonar við Katrínu Jakobsdóttur um aðgerðir stjórnvalda við Covid-19, hatursorðræðu og margt fleira. Rauður þráður í samtalinu eru varnaðarorð Orwells um málfrelsi og fleira.

Mar 30, 20211 hr 16 min

#51 Ofríki samráðsins - Ungt fólk og stjórnmál (Viðtal við Hrafn Haraldsson Dungal)

Þórarinn og Eyþór ræða við Hrafn Haraldsson Dungal um stjórnmál, ungt fólk og áhrif tækninnar. Umræðan hrærist í kringum hugtakið ofríki samráðsins, vísindi og sannleikann. Rætt er um líffræðilegar ástæður slaufunarmenningar, Orwell og stöðnun sögunnar, ábyrgð einstaklingsins, skjótfengna hamingju, andstæðuheitin jöfnuð og frelsi og fleira.

Mar 28, 20211 hr 21 min

#50 Better Left Unsaid (With Curt Jaimungal)

Better Left Unsaid: https://bit.ly/blu_preorder Tóti interviews Curt Jaimungal about Better Left Unsaid, a film written and directed by Curt. The film incorporates interviews with intellectuals such as Coleman Hughes, Steven Pinker, Michael Shermer, Noam Chomsky, Janice Fiamengo, and more. It addresses the issue of political extremism in the West, the implications of identity politics, and the new woke-culture promulgated by, and broadcasted from, Western universities....

Mar 24, 20211 hr 10 min

#49 In the aftermath of Trump (With Philip Gourevitch)

Þórarinn discusses American politics with Philip Gourevitch. Philip is a staff writer at the New Yorker and an author of several books. The discussion is focused on how American politics will look like in the post-Trump era and Trump’s impact on the Republican party.

Mar 20, 202156 min

#48 Slaufunarmenning, ofstæki og ábyrgð (Viðtal við Brynjar Níelsson)

Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson um slaufunarmenningu (cancel culture). Rætt er um fitufordóma, ábyrgð, femínisma, ofstæki innan akademískra stofnanna og margt fleira. Einnig er reynt að finna svar við spurningunni afhverju fólk gefur eftir í stað þess að standa í lappirnar gagnvart fasískum öflum.

Mar 13, 202158 min

#45 Atvinnuframboðstrygging, húsnæði og peningar (Viðtal við Ólaf Margeirsson)

Þórarinn ræðir við Ólaf Margeirsson um atvinnuframboðstryggingu. Auk þess er rætt um borgaralaun, áhrif atvinnuframboðstryggingar á verkalýðsbaráttu, fjórðu iðnbyltinguna og fleira. Húsnæðismál (mínúta 25) eru einnig sérstaklega rædd. Ólafur er doktor í hagfræði með sérþekkingu á þróun og eðli peninga og tengslum þeirra við húsnæðisverð.

Feb 17, 202147 min

#44 Íslenskur sósíalismi (Viðtal við Gunnar Smára Egilsson)

Þórarinn ræðir við Gunnar Smára Egilsson um sósíalíska baráttu á Íslandi. Tímalína: •00:01:00 – Samstöðin og elítu miðlar •00:03:00 – Kurteisi umræðunnar •00:17:20 – Hverjar yrðu áherslur sósíalistaflokksins með hreinan alþingismeirihluta? •00:25:00 – Frelsi og hinn frjálsi markaður •00:39:00 – Krónutöluhækkanir og lífskjör •00:47:00 – Lýðræðisfyrirtæki •00:57:00 – Sjálfstæðisflokkurinn og velferðarkerfið •01:02:30 – Fjölmiðlar •01:10:40 – Afhverju gefa ungir rapparar sig á vald elítunnar •01:18...

Feb 11, 20211 hr 37 min

#43 Alþingiskosningar 2021 (Viðtal við Ólaf Þ. Harðarson og Bjarna Halldór Janusson)

Langloka þar sem Þórarinn ræðir við Ólaf Þ. Harðarson og Bjarna Halldór Janusson um næstkomandi alþingiskosningar. Drepið er á ýmsu og farið um víðan völl. Rætt er um hindranir, kosti, galla, sögulegan- og alþjóðlegan samanburð. Hér að neðan má sjá tímalínu umræðunnar: 0:01:00 – Kosningabaráttan 0:19:00 – Staða Viðreisnar í íslenskum stjórnmálum 0:27:30 – Hvað þýðir að vera til vinstri eða hægri í alþjóðlegum samanburði 0:33:50 – Vandamál VG vegna ríkisstjórnarsambandsins 0:39:50 – Afhverju voru...

Feb 07, 20212 hr 13 min

#41 Kjötneysla og loftslagsaðgerðir í Reykjavík (Viðtal við Líf Magneudóttur og Egil Þór Jónsson)

Þórarinn ræðir við Líf Magneudóttur og Egil Þór Jónsson borgarfulltrúa um ágreining þeirra varðandi áætlanir meirihluta borgarstjórnar um að minnka kjötneyslu til muna á ýmsum sviðum Reykjavíkurborgar. Samræðurnar fara um víðan völl, auk kjötneyslu ræða þau loftslagsmál, lífstílssjúkdóma, þéttingu byggðar og húsnæðisskort.

Jan 26, 20211 hr 2 min

#40 Mun Bitcoin ná heimsyfirráðum? (Viðtal við Ívar Ketilsson)

Kristín, Þórarinn og Eyþór koma öll saman til þess að ræða við Ívar Ketilsson um Bitcoin. Fólk sér ýmist Bitcoin fyrir sér sem fjárfestingu, gjaldmiðil eða jafnvel eitthvað sem mun koma til með að gjörbreyta núverandi efnahagskerfi. Umræðurnar snúa að því að fara betur í saumana á þessu máli. Þau ræða peninga í sögulegu samhengi, hvernig Bitcoin virkar og hvaða eiginleika það hefur ásamt því að rökræða með hvaða hætti Bitcoin geti betrumbætt samfélög.

Jan 20, 20211 hr 21 min

#39 Árás á þinghúsið í Washington D.C. (Viðtal við Friðjón R. Friðjónsson)

Þórarinn ræðir við Friðjón R. Friðjónsson um árásina á þinghúsið í Washington þann 6. janúar. Rætt er um hvaða orsakasambönd leiddu til þess að árásin var gerð, hugtakið "Moral Marshall Plan" ásamt því að íhuga og ígrunda hvaða skref séu nauðsynleg fyrir Bandaríkjamenn að taka til þess að takast á við þau vandamál sem bandarísk stjórnmálamenning stendur frammi fyrir.

Jan 13, 20211 hr 1 min

#38 Skattar, neysla og landsbyggðin

Þórarinn og Eyþór ræða við Ívar Elí um skatta, neyslu og vægi landsbyggðarinnar. Auk þess ræða þeir hvort fyrirgefa eigi Samherja, atvinnuleysisbætur og álitamál sem snúa að niðurgreiddri sálfræðiþjónustu.

Jan 08, 20211 hr 14 min

#37 Ekki-party í Ásmundarsal (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson)

Eyþór og Þórarinn ræða við Þórð Snæ Júlíusson um grein Þórðar sem ber heitið 'Bjarni Sigurvegari'. Greinin fjallar um athæfi Bjarna Benediktssonar á Þorláksmessu þegar honum var boðið í samkvæmi sem lögreglan stöðvaði vegna brots á sóttvarnarreglum. Þremenningarnir ræða kosningagengi Sjálfstæðisflokksins í sögulegu samhengi og hvaða áhrif Þorláksmessuævintýrið muni koma til með að hafa í komandi kosningum.

Dec 29, 202053 min

#35 Landsréttarmálið, hrossakaup og fleira (Viðtal við Bjarna Halldór Janusson)

Bjarni Halldór Janusson komst í fréttirnar vegna atkvæðagreiðslu árið 2017 í Landsréttarmálinu svokallaða. Þórarinn ræðir við Bjarna Halldór um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu, hrossakaup og hræsni í íslenskum stjórnmálum, ítök Sjálfstæðisflokksins, Bandarísk stjórnmál, Covid-19 og fleira. MDE 00:02:00 Hrossakaup í íslenskum stjórnmálum og aðhaldsskylda stjórnmálamanna 00:14:30 Ítök sjálfstæðisflokksins 00:17:00 Door to door politics og Ásmundur friðriks 00:20:30 Hafa vinstri...

Dec 13, 20202 hr 22 min

#34 The Future of Capitalism (A conversation with Sir Paul Collier)

On this podcast, Þórarinn speaks to Sir Paul Collier, professor of economics at the Blavatnik School of Government at Oxford University. They speak about Paul's book, The Future of Capitalism: Facing the New Anxieties, which was published in 2018. They discuss what implications Covid-19 has had on his prior projections and how societies can fix the economic problems following the great divergence of the past few decades.

Dec 06, 202041 min

#33 Iceland and the Great Barrington Declaration (An interview with Martin Kulldorff)

Martin is a professor of medicine at Harvard University and does research in statistical and epidemiological methods for disease surveillance. Martin answers Þórarinn's inquiries about the proposals laid out in the infamous Great Barrington Declaration within the context of Iceland, the political implications of the virus, and much more.

Nov 28, 202049 min

#32 Fyrirtæki og hagsmunir (Viðtal við Simma Vill)

Þórarinn og Eyþór ræða við Simma Vill um rekstur fyrirtækja á Íslandi. Þeir ræða veitingarekstur og muninn á því að vera í slíkum rekstri á Íslandi í samanburði við önnur lönd og sögu Simma í rekstrinum. Í kjölfarið á því er skipt um gír. Þremenningarnir ræða pólitískan rétttrúnað og stjórnmál. Mun langtímahugsjóna Kína í samanburði við skammtímalausnir vestrænna landa. Orkumál og hvaða þýðingu loftslagsbreytingar munu koma til með að hafa á þau, kjaraviðræður og muninn á litlum og meðalstórum f...

Nov 25, 20201 hr 40 min

#26 Þróun stjórnmála í hinum vestræna heimi - Kosningar, lýðræði og Covid 19 (Viðtal við Ólaf Þ. Harðarson)

Þverpólitískt hlaðvarp þar sem Þórarinn sest niður með Ólafi Þ. Harðarsyni háskólaprófessor við Háskóla Íslands. Þeir ræða þróun flokkakerfisins á Íslandi síðastliðin 20 ár, óstöðuleika í stjórnmálum, áhrif covid 19 á íslensk og erlend stjórnmál, uppgang popúlisma, hvort að vinstri stjórnmálaflokkar hafi svikið verkamenn, bergmálshella og nýju stjórnarskrána.

Oct 20, 20201 hr 6 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android