Ein Pæling - podcast cover

Ein Pæling

Thorarinn Hjartarsonwww.spreaker.com
Hlaðvarp
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#83 Kosningaspjall - Samfylkingin (Viðtal við Kristrúnu Frostadóttur)

Þórarinn ræðir við Kristrúnu Frostadóttur um stefnumál og áherslur Samfylkingarinnar. Rætt er um reynslu Kristrúnar úr fjármálageiranum og hvernig það orsakaðist að hún endaði í framboði fyrir Samfylkinguna, húsnæðismál, peningastefnumál, hvatastýringu, velferð og fleira.

Sep 18, 20211 hr 7 min

#79 Hvað er að gerast í Afghanistan? (Viðtal við Magnús Þorkel Bernharðsson)

Magnús Þorkell er prófessor í sögu Mið-Austurlanda við Williams College í Massachusetts. Þórarinn ræðir við Magnús um ástandið í Afghanistan sem Magnús segir í grunninn vera sorgarsögu. Umræðuefnin snúa að hugmyndafræði talíbana, stjórnmál, bæði í Bandaríkjunum og á alþjóðavísu, hvort að yfirtökunni fylgi aukin hryðjuverkaógn, áhrif internetsins, flóttamannamál og fleira. Efnisyfirlit: 00:00:00 Miðausturlönd Fortíð, nútið og framtíð 00:02:00 Hvað er að gerast í Afghanistan? 00:06:45 Hversu mikil...

Sep 01, 202155 min

#78 Þræðir valdsins - Tíu árum síðar (Viðtal við Jóhann Hauksson)

Fyrir um 10 árum skrifaði Jóhann Hauksson blaðamaður bókina Þræðir valdsins. Bókin vakti mikla athygli og fjallar um tengsl viðskipta og stjórnmála á Íslandi; aðstöðubrask, klíkuskap og frændhygli. Þórarinn ræðir við höfundinn um Þræði valdsins í sögulegu samhengi. Telur Jóhann að hlutirnir hafi breyst á þeim 10 árum sem liðin eru frá útgáfu bókarinnar?

Aug 21, 202159 min

#76 Tónlist, stjórnmál og tilgangur lífsins (Viðtal við Bigga Veiru)

Þórarinn ræðir við Birgi Þórarinsson, sem er betur þekktur sem Biggi Veira í GusGus. Umræðuefnið er samspil tónlistar við stjórnmál. Ýmsar hugmyndir eru reifaðar, meðal annars hver tilgangur lífsins er. Efnisyfirlit: 00:00:00 Hver er Biggi Veira? 00:05:00 Nýfrjálshyggjan 00:09:50 Hefur þú alltaf verið tónlistamaður? En pólitískur? 00:15:30 Tónlist sem tól gegn ofríki ríkisstjórna 00:21:30 Er GusGus pólitísk hljómsveit? 00:24:00 Hvað er Techno? 00:28:00 Eru hægri menn lélegri í tónlist? 00:41:00 ...

Jul 28, 20211 hr 34 min

#75 Covid-19 - Frelsi og aðgerðir (Viðtal við Arnar Þór Jónsson)

Þórarinn ræðir við Arnar Þór Jónsson, héraðsdómara og frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins í SV-Kjördæmi, um aðgerðir baráttunni við Covid-19. Umræðurnar snúast um hugmyndir okkar um dauðann, heimspeki, hóphyggju, frelsi og margt fleira.

Jul 24, 20211 hr 21 min

#72 ASÍ - Stéttabarátta og pólitík (Viðtal við Drífu Snædal)

Þórarinn ræðir við Drífu Snædal, Forseta ASÍ, um stéttabaráttu, pólitík, húsnæðismál og hugmyndafræði. 00:00:00 Hvað eru stéttarfélög? 00:03:30 PlayAir 00:10:50 Húsnæðismál 00:20:30 Pólitík 00:30:00 Mun ASÍ taka afstöðu í kosningunum? 00:36:45 Næsta kjarabarátta 00:44:00 Á einkarekstur eitthvað erindi í heilbrigðisþjónustu?

Jul 15, 202149 min

#69 Á frjálshyggja upp á pallborðið í komandi kosningum? (Viðtal við Andrés Magnússon)

Þórarinn ræðir við Andrés Magnússon um það hvort að frjálshyggja eigi erindi við íslensk stjórnmál og hvort að sú hugsjón muni koma til með að eiga upp á pallborðið í næstkomandi kosningum. Efnisyfirlit: 00:00:00 Er einhver flokkur sem að frjálshyggjumenn geta sætt sig við í næstu kosningum? 00:11:00 Fjölmiðlastyrkur 00:21:00 Sjálfstæðislfokkurinn og kerfið 00:28:00 Samfylkingin 00:41:00 Hagsmunir, útgerðirnar og hrunið 00:52:30 Miðflokkurinn og sóttvarnir 01:05:50 Píratar 01:10:30 Framsókn 01:1...

Jul 04, 20211 hr 25 min

#68 Norrænt málþing um fjölmiðlafrelsi og aðför Samherja að Helga Seljan (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson)

Þórarinn ræðir við Þórð Snæ Júlíusson um aðför Samherja gegn Helga Seljan og öðrum fjölmiðlum vegna umfjöllun um Namibíumálið svokallaða. Málið litaði umræður á Norrænu málþingi sem fór fram nýlega. Linkur á málþingið: https://www.press.is/is/um-felagid/felagarnir/streymi-a-norraent-malthing-um-fjolmidlafrelsi-a-islandi Efnisyfirlit: 00:00:00 Fjölmiðlar og lýðræði 00:05:15 Aðför Samherja að Helga Seljan 00:12:00 Verður reynsla Samherja öðrum fyrirtækjum víti til varnaðar? 00:18:20 Afhverju var e...

Jun 30, 202156 min

#67 Er samfélagið safnhaugur einstaklinga? (Viðtal við Gunnar Smára Egilsson)

*Upptaka frá 12.06.21 Þórarinn og Gunnar Smári Egilsson ræða um dauða nýfrjálshyggjunnar, húsnæðismarkaðinn, stjórnmál, félagslegan Darwinisma og margt fleira. •00:06:20 Dauði nýfrjálshyggjunnar •00:20:00 Afrek sósíalískrar hugsunar á 20. öldinni •00:26:00 Aporophobia og húsnæðismarkaðurinn •00:31:00 Að hata vandamálin •00:34:00 Magnús Scheving og innantómar tilfinningar og væl stjórnmálamanna •00:43:00 Talaru Elitísku? •00:52:00 Sala Íslandsbanka •00:57:15 Ég ætla ekki að pakka málflutningnum þ...

Jun 26, 20211 hr 48 min

#66 Framtíð ferðaþjónustu á Íslandi (Viðtal við Jóhannes Þór Skúlason)

Þórarinn ræðir við Jóhannes Þór, framkvæmdastjóra samtaka ferðaþjónustunnar, um framtíð ferðaþjónustu á Íslandi. •00:00 - Tilgangur SAF •04:50 - Simmi Vill er að tala út um rassgatið á sér •14:50 - Þegar ferðaþjónustan breyttist úr frjálshyggjumönnum í sósíalista vegna Covid-19 •21:40 - Hlutverk stjórnvalda eftir Covid •27:30 - Ferðaþjónustan var á niðurleið fyrir Covid-19. Hversu langt mun viðspyrnan að ná? •33:10 - Munu innviðirnir geta gripið þá eftirspurn álíka þeirri sem við sáum áður? •37:...

Jun 24, 202157 min

#64 Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar stefnir á þing (Viðtal við Hildu Jönu Gísladóttur)

Þórarinn ræðir við Hildu Jönu Gísladóttur. Hilda er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Akureyrarbæ og stefnir nú á þing. Hún tók þátt í hinu nýstárlega þverpólitíska tilraunarverkefni þar sem pólitíkin byggðist á samstöðu og allir flokkar mynduðu meirihluta í sameiningu. Þau ræða meðal annars hvort að Hilda sjái fyrir sér hvort slíkt fyrirkomulag myndi virka á Alþingi ásamt öðrum álitaefnum.

Jun 15, 20211 hr 1 min

#60 Kveður eftir fjörutíu ára þingmennsku - Kosningar, umhverfið og Samherji (Viðtal við Steingrím J. Sigfússon)

Þórarinn ræðir við Steingrím J. Sigfússon um ferilinn, pólitík, kosningar og umhverfisvernd. Í síðari hluta viðtalsins ræða þeir um stjórnmálamenningu á Íslandi og hvort að Kristján Þór Júlíusson hefði átt að segja af sér embættinu í kjölfar Samherjamálsins. Að lokum er rætt um hverja Steingrímur myndi helst vilja fá með sér í sumarbústaðarferð.

Jun 02, 20211 hr 10 min

#57 Hugleiðingar með Ivu Adrichem

Þórarinn og Kristín ræða við Ivu Adrichem um allskyns samfélagsleg álitaefni. Rætt er um Onlyfans, stjórnmál, fasisma, feminísma og margt fleira.

May 21, 20211 hr 38 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android