Ein Pæling - podcast cover

Ein Pæling

Thorarinn Hjartarsonwww.spreaker.com
Hlaðvarp
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#115 Omicron breytti öllu og Ísland þarf nýja nálgun í baráttunni við Covid-19 (Viðtal við Ragnar Frey Ingvarsson)

www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Ragnar Frey Ingvarsson um Covid-19. Ragnar hefur farið mikinn undanfarið en hann telur Omicron breyta faraldrinum og að meta þurfi stöðuna upp á nýtt. Þórarinn ræðir þessi mál við hann. Rætt er um hvernig Covid-deildin var stofnuð. Hvort að við myndum koma til með að bregðast við veiru á borð við Omicron með jafn hörðum aðgerðum í framtíðinni, ógreind krabbamein á tímum Covid-19, opinber fjármál, spurt hvort að læknavísindin séu orðin pólitískari, tj...

Jan 23, 202252 min

#114 Lýsir Verbúðin raunveruleikanum? (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson)

www.patreon.com/einpaeling Verbúðin eru þættir sem sýndir eru á RÚV um þessar mundir. Þættirnir sýna íslenskt samfélag um það leyti sem núverandi kvótakerfi í fiskveiðum var tekið upp. Þórður Snær skrifaði beinskeyttan pistil um þættina. Í pistlinum lýsir hann hvernig íslenskt sjávarútvegskerfi hefur þróast frá þessum árum og hvernig málunum er háttað í dag. Þórarinn ræðir við Þórð um bæði þættina og pistilinn. Rætt er um kvótakerfið, orkumál, hagsmunaöfl, lobbíisma, stjórnmál og reynt að komast...

Jan 22, 202256 min

#113 Pottormar, #MeToo og uppbyggileg réttvísi (Viðtal við Margréti Valdimarsdóttur)

Margrét Valdimarsdóttir er afbrotafræðingur og dósent í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri. Kristín og Þórarinn ræða við Margréti um pottormana sem komust með nýjum hætti í sviðsljósið þegar að ung kona, Vítalía Lazareva, steig fram og lýsti atburðarrás í heitapotti með þeim við sumarbústað. Umræðurnar snúa að stöðu fjölmiðla í kynferðisafbrotamálum, valdaójafnvægi, persónufrelsi, fórnarkostnaði #MeToo baráttunnar, sáttamiðlun og uppbyggilegri réttvísi, aktívisma, réttarkerfinu, rasisma, fr...

Jan 15, 20221 hr 10 min

#112 Elítur og valdakerfi á Íslandi (Viðtal við Gunnar Helga Kristinsson)

Gunnar Helgi Kristinsson er prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Í nýrri bók Gunnars fjallar hann um elítur á Íslandi, hvernig mismunandi elítuhópar tengjast og um áhrif þeirra á samfélagið. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Gunnar um hvað sé elíta, hverjir á Íslandi tilheyri þeim hópi, um muninn á lokuðum og opnum elítukerfum, hvort hægt sé að verja pólitískar stöðuveitingar, um fjölmiðlaelítuna og áhrif fjölmiðla á elítur. Að lokum er spurt hvort nýtilkomið mál Vítalíu Lazarevu ...

Jan 13, 202231 min

#111 Að upplifa stríð (Viðtal við Jasmínu Vajzovic Crnac)

www.patreon.com/einpaeling Á árunum 1992 til ársins 1995 geysuðu hryllileg átök í Bosníu. Þetta voru umbreytingatímar þar sem mikil spenna í Júgóslavíu leiddi til stríðs, þjóðarmorðs, nauðgunarbúða og annarskonar hroðaverka. Jasmina Vajzovic Crnac kom ung að aldri til Íslands sem flóttamaður eftir að hafa þurft að flýja Bosníu. Í þessu viðtali lýsir Jasmína upplifuninni af því að búa við stríðsástand, menningu og pólitík Bosníu, alþjóðleg áhrif, þá varhugaverðu leið sem að landið virðist vera að...

Jan 08, 202222 min

#110 Nýársþáttur 2022

Þórarinn, Eyþór og Ívar Elí ræða ýmis mál sem áttu upp á pallborðið árið 2021. Rætt er um KSÍ, #MeToo, samfélagsmiðla, stöðu landspítalans, hvort að hægt sé að taka viðtal við Sölva Tryggva og fleira.

Jan 01, 202241 min

#109 Hentifræði og rétttrúnaður (Viðtal við Ivu Marín Adrichem)

www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Ivu Marín Adrichem um hentifræði og rétttrúnað. Rætt er um öflun upplýsinga, kynjafræði, það að framboð slæmra einstaklinga svarar ekki eftirspurn rétttrúnaðarriddara, get-in-lineisma, narratív stjórnun og transmál. www.patreon.com/einpaeling

Dec 26, 202124 min

#108 KSÍ og #MeToo (Viðtal við Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur)

Þórarinn ræðir við Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur um KSÍ málið og hvernig það er að vera ungur fótboltamaður, #MeToo, rangar sakagiftir,vændi, hvort að það megi misstíga sig, fylgni föðurleysis og þess að gerandi sé sjálfur fórnarlamb kynferðisofbeldis og menningu.

Dec 22, 20211 hr 22 min

#107 Útþynning orða (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson)

www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir enn og aftur við Jakob Bjarnar. Að þessu sinni snýr umræðuefnið að útþynningu orða en Jakob telur rétttrúnaðariðnaðinn fremja hryðjuverk gegn tungumálinu í sínum aðgerðum. Rætt er um Megas, nauðgunarmenningu, femínisma og framtíð grínista. www.patreon.com/einpaeling

Dec 19, 20211 hr 1 min

#106 Þú þarft ekki að vera svona mikill aumingi (Viðtal við Mána Pétursson)

www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Mána Pétursson en Máni er þekktur fyrir að hafa haldið úti útvarpsþættinum Harmageddon ásamt Frosta Logassyni um margra ára skeið. Máni hefur ákveðið að gefa út bók sem ber heitið "Þú þarft ekki að vera svona mikill aumingi". Bókin er sjálfshjálparbók fyrir karlmenn sem telja sjálfshjálparbækur vera fyrir aumingja. Tvímenningarnir ræða skilaboð bókarinnar ásamt ýmsum hliðarskrefum í þeim efnum. Rætt er um lífið, vanþakklæti, að móðgast, að takast á v...

Dec 16, 202149 min

#105 Er Ísland í stöðu til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda? (Viðtal við Albert Jónsson)

www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Albert Jónsson um alþjóðastjórnmál og loftslagsbreytingar. Tvímenningarnir ræða landfræðilega stöðu Íslands, Norðurslóðir og mögulegar nýjar siglingaleiðir, harðnandi deilur Kína og Bandaríkjanna, kjarnorkuvopn, flóttafólk og fleira. Um miðbik samtalsins færast umræðurnar í átt að loftslagsbreytingum. Albert telur að staða Íslands bjóði ekki upp á margar lausnir til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda sökum þess að við notum nú þegar hlutfallslega ...

Dec 10, 202122 min

#104 Alþingiskosningar kærðar til Mannréttindadómstóls Evrópu (Viðtal við Magnús Davíð Norðdahl)

Þessi þáttur er birtur í heild sinni. Til þess að fá aðgang að öllum þáttum hlaðvarpsins er hægt að fara inn á www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Magnús Davíð Norðdahl, en Magnús hefur ákveðið að kæra alþingiskosningar 25. september til MDE. Hann vill fá úr því skorið hvort ákvörðun um að láta kosningar í NV-kjördæmi standa samræmist lögum.

Dec 08, 202139 min

#103 Sóttvarnalæknir svarar spurningum í þriðja sinn (Viðtal við Þórólf Guðnason)

www.patreon.com/einpaeling Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir svarar hugleiðingum Þórarins um framvindu faraldursins. Rætt er um hvernig honum lýst á nýjan heilbrigðisráðherra, hvað myndi gerast ef að allt yrði opnað, hvort að hægt sé að endurskoða sænsku leiðina núna þegar stærsti hluti Íslendinga er bólusettur, Omicron og hvort von sé á fleiri afbrigðum, af hverju bylgjur eiga sér ekki stað á Indlandi, í Svíþjóð eða Brasilíu og fleiri stöðum sem hafa þurft að þola útbreidd smit og hvort hægt sé...

Dec 03, 202126 min

#102 Bólusetning, mismunun og frelsi (Viðtal við Hrafnhildi Sigurðardóttur og Arnar Þór Jónsson)

www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Hrafnhildi Sigurðardóttur og Arnar Þór Jónsson um Covid-19. Þau hafa bæði lýst áhyggjum af framvindu mála í aðgerðum stjórnvalda gegn veirunni og um það hvort að bóluefni eigi að vera valkvæð. Rætt er um mikilvægi efans, frelsi, bólusetningar barna, trúarbrögð, tíma sem gjaldmiðil og fleira. https://www.patreon.com/einpaeling

Dec 01, 202123 min

#101 Að takast á við áföll (Viðtal við Kristínu Sif)

Áskriftarleið fyrir viðtalið í heild sinni: https://www.patreon.com/einpaeling Kristín Sif er útvarpskona á K100, hnefaleikakona, Crossfit þjálfari og margt fleira. Kristín hefur gengið í gegnum margt á sinni lífsleið og í þessu hlaðvarpi fjallar hún um það hvernig best sé að takast á við áföll og hvernig hægt sé að nýta þau í að vera þakklátur með það sem maður hefur. Þórarinn og Kristín ræða sjálfsvorkunn, hvort að kurteisi sé verðmætari en hreinskilni, míkrónarratív, uppeldi, mistök og #MeToo...

Nov 28, 202121 min

#99 Hræðsluáróður eða nauðsynleg tilmæli? (Viðtal við Hildi Björnsdóttur)

Þórarinn ræðir við Hildi Björnsdóttur borgarfulltrúa um ummæli hennar þar sem hún sagði tilmæli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnarlæknis vera orðin líkari tilhæfulausum hræðsluáróðri en nauðsynlegum tilmælum. Rætt er um frelsi og sóttvarnaraðgerðir, bólusetningar, afleiddar afleiðingar, heilbrigðiskerfið og komandi borgarstjórnarkosningar.

Nov 18, 20211 hr 3 min

#97 Að móðgast fyrir hönd annarra (Viðtal við Dr. Gunna)

Þórarinn ræðir við Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, um pistil sem hann skrifaði fyrir um 13 árum og ber heitið "Að móðgast fyrir hönd annarra". Tvímenningarnir ræða allskyns hluti í samhengi við efni pistilsins, meðal annars rétttrúnað, kynjamál, Covid-19, tónlistarmanninn Auður og Gylfa Ægis.

Nov 09, 202156 min

#96 Hvað er hatursorðræða? (Viðtal við Þorbjörgu Þorvaldsdóttur)

Þorbjörg Þorvaldsdóttir er formaður Samtakanna '78. Þórarinn rökræðir við Þorbjörgu um það hvort að hatursorðræða sé yfir höfuð til og, ef svo er, hvort að hana eigi að banna. Umræðuefnin snúa að lagalegum og siðferðislegum álitamálum, forréttindum, Dave Chapelle, slaufunarmenningu og fleira.

Nov 04, 202153 min

#92 Mannréttindi eða aðgerðir (Viðtal við Jón Ívar Einarsson)

Jón Ívar er prófessor við læknadeild Harvard Háskóla í Boston. Þórarinn ræðir við hann um hvaða afleiðingar harðar aðgerðir hafa haft í faraldrinum, vísindalegan sannleika, skuggabann samfélagsmiðla, sænsku leiðina, umfjöllun kveiks um bólusetningar, hræðsluáróður og tjáningarfrelsi.

Oct 15, 202149 min

#90 Hvers virði eru fjölmiðlar? (Viðtal við Kristján Kristjánsson)

Þórarinn ræðir við Kristján Kristjánsson, stjórnanda þáttarins Sprengisandur á Bylgjunni. Tvímenningarnir fara um víðan völl, ræða úrslit kosninganna, sérhagsmunaöfl, kjarabaráttu, fjórðu iðnbyltinguna og fleira. Rauði þráðurinn í samtali þeirra snýr að hlutverki fjölmiðla og því umhverfi sem fjölmiðlum er búið á Íslandi.

Oct 10, 20211 hr 1 min

#89 Brynjar Níelsson kveður Alþingi (Viðtal við Brynjar Níelsson)

Brynjar Níelsson mun kveðja Alþingi eftir að hafa sinnt þingmennsku frá árinu 2013. Þórarinn ræðir við Brynjar um hvað hann hann telur sig ætla að taka sér fyrir hendur og hvort hann muni koma til með að snúa aftur í stjórnmál. Auk þess ræða þeir aðgerðir vegna Covid-19, frelsi, akademíu og ofstæki, kynjafræði, hvort að Sjálfstæðisflokkurinn sé orðinn of "woke" og að lokum hvort að Brynjar ætti að sækja um sem formaður KSÍ eða stofna fjölmiðil með Þórarni.

Oct 06, 20211 hr 49 min

#88 Frelsi og ábyrgð (Viðtal við Arnar Þór Jónsson)

Arnar Þór Jónsson hefur ákveðið að leggja niður dómarastörf og kveðst vilja leita á ný mið þar sem ekki er þrengt að hugsun hans og tjáningarfrelsi. Arnar spreytti sig nýlega á hinum pólitíska vettvangi og munaði litlu að hann kæmist inn á Alþingi fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Hlaðvarpið snýr að ábyrgð og frelsi. Arnar og Þórarinn ræða klaustursmálið, karlmennsku og Jordan Peterson, fórnarkostnað, tjáningarfrelsi, covid-19 og fleira.

Oct 01, 20211 hr 7 min

#87 Hvað er að gerast á húsnæðismarkaðnum? (Viðtal við Ólaf Margeirsson)

Ólafur Margeirsson fer með Þórarni Hjartarsyni yfir húnæðismál á Íslandi. Rætt er um tengsl fasteignaverðs við leiguverð, áhrif kjarasamninga og krónutöluhækkanna, áhrif krónunnar, hvort að aðkoma lífeyrissjóðanna geti bjargað málunum og hvort að fasteignaverð muni koma til með að halda áfram að hækka.

Sep 28, 202149 min

#86 Kosningaspjall - Framsókn (Viðtal við Sigurð Inga Jóhannsson)

Þórarinn ræðir við Sigurð Inga Jóhannsson um stefnu og áherslur Framsóknarflokksins fyrir komandi kosningar. Þeir ræða samgöngumál, atvinnumál og fjórðu iðnbyltinguna, orkumál og húsnæðismál. Þórarinn spyr einnig Sigurð hvort að hann myndi kjósa að fara með Gunnari Smára eða Sigmundi Davíð í hestaferð.

Sep 22, 202144 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android