www.patreon.com/einpaeling Nafnarnir Þórarinn Hjartarson og Þórarinn Ingi Pétursson ræða um fæðuöryggi Íslendinga. Þórarinn Ingi er þingmaður Framsóknar og telur hann að fæðuöryggi á Íslandi sé verulega ábótavant, sérstaklega nú í breyttum heimi. Rætt er um ESB, hækkun hrávöruverðs, stöðu Íslands, þróunarlönd og fleira.
Apr 16, 2022•42 min
www.patreon.com/einpaeling Brynjar Níelsson ræðir málefni líðandi stundar yfir einum köldum með Þórarni Hjartarsyni. Vestræn gildi eru rauði þráðurinn að þessu sinni en farið er yfir kynferðisafbrotamál á Íslandi og hvað það þýðir fyrir þolendur að verða aðilar máls, sölu Íslandsbanka, innflytjendamál, ummæli Sigurðar Inga gagnvart Vigdísi Häsler, twittermanneskjuna og margt fleira. www.patreon.com/einpaeling...
Apr 13, 2022•40 min
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Friðrik Jónsson um innrásina í Úkraínu. Friðrik er sérfræðingur í utanríkismálum og hefur margt um innrásina að segja. Umræðuefnin snúa að því hvort að vestrænar þjóðir séu tilbúnar að berjast fyrir eigin gildum, getu rússneska heraflans, ágæti efnahagsaðgerða og fleira.
Apr 10, 2022•42 min
www.patreon.com/einpaeling Nýverið báru þrír þingmenn fram tillögu um að leggja niður heiðurslaun listamanna. Vilhjálmur Árnason er einn þeirra. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Árna um álitaefni sem snúa að þessu máli og fleira.
Apr 08, 2022•32 min
w www.patreon.com/einpaeling Jódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri grænna, skrifaði nýverið pistil sem bar heitir "Hatursorðræða og fjórða valdið." Pistillinn var andsvar og gagnrýni við öðrum pistli sem skrifaður var af Írisi Erlingsdóttur en Íris skrifaði grein í morgunblaðið sem nefndist "Siðræna transgátan." Í þessu hlaðvarpi er rætt um þau heimspekilegu ágreiningsefni sem snýr að því hvort að þingmenn eigi að vera að skipta sér af rekstri fjölmiðla og hvað eigi að heyra undir hatursorðræðu a...
Apr 07, 2022•40 min
www.patreon.com/einpaeling Guðmundur Hrafn er formaður Samtaka leigjenda á Íslandi. í þessu hlaðvarpi rökræða Þórarinn og Guðmundur um ágæti leiguþaks til þess að takast á við vandann sem hefur skapast á húsnæðismarkaði.
Apr 02, 2022•43 min
Page Wilson is a senior lecturer at the University of Iceland who specializes in international relations and security studies. In this interview, Page explains what impact the invasion of Ukraine has on security and politics globally. The questions raised relate to whether realism is making a comeback, nuclear deterrence and vulnerability, balance of power, buffer states and sphere of influence, game-theoretical analysis from Putin's perspective and how the conflict might end.
Mar 31, 2022•59 min
www.patreon.com/einpaeling Kristín og Þórarinn ræða við Halldóru Mogensen um afglæpavæðingu fíkniefna. Umræðan snýr að því að reyna að greina kosti og galla afglæpavæðingar, hvort að mismunandi reglur eigi að gilda um ákveðin fíkniefni, hvort að hið opinbera eigi að standa í því að gæðavotta, muninn á lögleiðingu og afglæpavæðingu og fleira.
Mar 26, 2022•42 min
www.patreon.com/einpaeling Eldur Ólafsson er jarðfræðingur og einn stofnenda AEXGold, sem meðal annars starfar í námugreftri á Grænlandi. Nýverið skrifaði Eldur pistla á visir.is þar sem hann ræðir áhrif stríðsins í Úkraínu á hrávöru og orkumál á Íslandi. Ein pæling spurði Eld nánar út í þessi mál í samhengi við pólitík, aðföng, loftslagsmál og fleira.
Mar 23, 2022•44 min
Dóra Björt mun leiða Pírata í næstkomandi borgarstjórnarkosningum. Þórarinn ræðir við Dóru um Braggamálið, fjármál borgarinnar, rafræna stjórnsýslu og fleira.
Mar 23, 2022•1 hr 1 min
Sanna Magdalena mun leggja áherslur á sósíalískar breytingar og kjör hinna lægst settu. Í þessu hlaðvarpi er rætt um stefnu Sósíalistaflokksins, kjaramál, húsnæðismál hinna lægst settu, mögulegt samstarf og fleira.
Mar 20, 2022•1 hr 6 min
Líf Magneudóttir hlaut oddvitasæti Vinstri Grænna í Reykjavík. Í þessu hlaðvarpi er farið yfir þær áherslur sem Líf ætlar að leggja fyrir kjósendur og þær ræddar í ljósi nýrra aðstæðna þar sem stríðsástand í Úkraínu og hækkandi verðbólga mun koma til með að hafa áhrif á efnahag Reykjavíkurborgar.
Mar 19, 2022•1 hr
Pawel Bartoszek býður sig fram fyrir Viðreisnar í næstu borgarstjórnarkosningum. Í þessu hlaðvarpi er farið yfir áherslur Viðreisnar ásamt því að rætt er um hvernig hugmyndir Pawels sem hægri manni rúmast inn í meirihlutasamstarfi með þremur flokkum til vinstri.
Mar 18, 2022•49 min
Vigdís Hauksdóttir hefur ákveðið að draga framboð sitt til baka og mun því ekki koma til með að leiða Miðflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum. Þórarinn ræðir við Vigdísi um hvernig fjármálum borgarinnar er háttað en hún hefur margt út á það að setja. Umræðuefnin snúa að bensínstöðvamálinu svokallaða, borgarlínunni, skipulagsmálum og afhverju Vigdís talaði inn á auglýsingar þar sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er harðlega gagnrýndur.
Mar 17, 2022•58 min
Kolbrún Baldursdóttir er oddviti Flokks fólksins og ætlar sér að leiða flokkinn í næstkomandi borgarstjórnarkosningum. Þórarinn ræðir við Kolbrúnu um húsnæðismál, fjármál borgarinnar, velferðarmál og fleira.
Mar 16, 2022•50 min
Dagana 18-19 mars næstkomandi munu Hildur Björnsdóttir og Ragnhildur Alda vilhjálmsdóttir etja kappi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Sigurvegarinn mun síðan leiða flokkinn í næstkomandi borgarstjórnarkosningum sem fram fara þann 14. maí. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Hildi um hennar áherslur og afhverju hún telur sig betur í stakk búna til þess að leiða flokkinn í þessum kosningum.
Mar 15, 2022•59 min
Dagana 18-19 mars næstkomandi munu Ragnhildur Alda vilhjálmsdóttir og Hildur Björnsdóttir etja kappi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Sigurvegarinn mun síðan leiða flokkinn í næstkomandi borgarstjórnarkosningum sem fram fara þann 14. maí. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Öldu um hennar áherslur og afhverju hún telur sig betur í stakk búna til þess að leiða flokkinn í þessum kosningum.
Mar 15, 2022•59 min
Þórarinn ræðir við Dag. B. Eggertsson Borgarstjóra. Dagur skrifaði nýverið bók sem nefnist Nýja Reykjavík. Rætt er um bókina og komandi borgarstjórnakosningar þar sem að Dagur ætlar að bjóða sig fram fyrir Samfylkinguna. Farið er yfir skipulags- og húsnæðismál, hvort Samfylkingin ætlar að breyta sínum áherslum vegna útkomu í síðustu alþingiskosningum, velferðarmál og fleira. Að lokum spyr Þórarinn um drykkjufélagana sem að Dagur myndi kjósa að fara með á djammið.
Mar 14, 2022•52 min
Jón Ólafsson er prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingur í málefnum Rússlands. Í þessu hlaðvarpi er rætt um þau menningarlegu og sögulegu áhrif sem stríðið mun koma til með að hafa í alþjóðakerfinu. Rætt er um stöðu Rússa frá falli múrsins, appelsínugulu byltinguna í Úkraínu og hvort að til sé sú lausn sem að allir sem í hlut eiga geti sætt sig við.
Mar 10, 2022•42 min
Www.Patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Sigurð Má Jónsson á áttunda degi innrásar Rússa í Úkraínu. Sigurður hefur skrifað pistla um málefni Rússa og Pútín undanfarin og að Pútín sé hættulegasti maður í heimi. Umræðuefnin snúa að stöðu Rússa í alþjóðakerfinu, leikjafræðilega möguleika Rússa, viðbrögð Vestrænna þjóða og áhrif efnahagsþvinanna, falsfréttir og fleira.
Mar 05, 2022•26 min
Bill Deresiewicz is a former Yale professor who wrote a book about the failures of the elite education institutions in the West called Excellent Sheep: The Miseducation of the American elite and the way to a meaningful life. In this podcast, Þórarinn speaks with Bill about how he perceives the problem today, who are these excellent sheep, the grade-inflation, wokeism and its implications on free speech and censorship, classism, and more.
Mar 03, 2022•50 min
Þórarinn ræðir enn og aftur við Jakob Bjarnar um hvers konar upplýsingar eiga erindi við almenning. Fjórir blaðamenn eru sakborningar í stórfurðulegu máli sem snýr að byrlun, símastuldi og kynferðisbroti. Umræðurnar snúa að þessu máli, viðbrögðunum við því, mikilvægi fjölmiðla, dagskrárvaldi, femínisma og fyrirvarapólitík. Þetta viðtal var tekið upp þann dag sem Rússar ákváðu að gera innrás í Úkraínu. Upphaf viðtalsins hefst því á stuttum umræðum um það.
Feb 27, 2022•1 hr 4 min
www.patreon.com/einpaeling Brynja Huld er öryggis- og varnamálfræðingur sem hefur meðal annars starfað fyrir NATO í Afghanistan. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Brynju Huld um innrásina í Úkraínu út frá leikjafræðilegri strategíu. Annars vegar frá sjónarhorni Rússa og hins vegar NATO. Rætt er um fölsk loforð og rauðar línur, breytta heimsmynd, lýðræðisvæðingu og einræði.
Feb 25, 2022•25 min
Þórarinn ræðir við Unnar Karl Halldórsson um pistla sem hann hefur skrifað til stuðnings við þolendur kynferðisafbrota. Pistlarnir hafa náð mikilli athygli en Unnar talar hispurslaust um þessi mál. Rætt er um ásakanir, #metoo hreyfinguna, pólitík, hagsmunabaráttu og fleira.
Feb 20, 2022•1 hr 9 min
www.patreon.com/einpaeling Arnar Þór Ingólfsson er rísandi stjarna í blaðaheiminum. Nýlega var honum tilkynnt að hann væri sakborningur í máli sem tengist starfsmanni Samherja. Hér er tæpt á því og jafnframt spurt hvort hlaðvörp séu fjölmiðlar. Samtalið snýst þó aðallega um samgöngumál, borgarlínu og borgarstjórnarpólitík. Rætt er um bílamenningu, kostnað við borgarlínu, rask vegna þéttingar byggðar og fleira.
Feb 17, 2022•23 min
Sigmar Guðmundsson hefur gagnrýnt stjórnvöld undanfarið vegna ýmissa ákvarðanna sem teknar hafa verið í efnahagsmálum. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Sigmar um húsnæðismál, velferðarmál og heimspekina bakvið jöfnuð og skiptingu auðs.
Feb 13, 2022•59 min
Þórarinn ræðir við Halldór Benjamín Þorbergsson, formann Samtaka Atvinnulífsins. Rætt er um stöðu SA í atvinnulífi og hagsmunabaráttu launþega, næstkomandi kjarabaráttu, kaupmátt, krónutöluhækkanir, húsnæðismál og fleira. Að lokum er snert á þeim áherslum sem að Halldór telur að Íslandi þurfi að leggja í þróun atvinnulífsins og tengsl þess við akademíuna.
Feb 09, 2022•24 min
Þórarinn ræðir við Kristrúnu Frostadóttur um hvernig sé að starfa á Alþingi, efnahagshorfur fyrir og eftir kóvid, kostnaðinn sem fylgir því að reka gott velferðarsamfélag og fleira. Undir lok samtalsins ræðir Þórarinn við Kristrúnu um rétttrúnaðarvæng Samfylkingarinnar og hvort að flokkurinn þurfi að móta áherslurnar til þess að breiða út faðminn til ólíkarri hópa.
Feb 06, 2022•1 hr 4 min
Þórarinn ræðir við Evu Hauksdóttur um ærumeiðingar og ásakanir um kynferðisbrot, brotaþola sem aðila máls, jafnréttisiðnaðinn, femíniskar rannsóknir, samhengi brota, pottormamálið og torskiljanleg hugtök.
Feb 04, 2022•24 min
Þórarinn ræðir við Ólaf Margeirsson um ríkisfjármál og stefnu ríkisstjórnarinnar í þeim efnum. Rætt er um hvort Landspítalinn geti ráðið til sín það starfsfólk sem að hann þarf, peningarprentun og hvernig ríkið kveikir í peningum, hvort skuldir ríkissjóðs séu áhyggjuefni, vermætasköpun þegar kaupmáttur verður of mikill og pólitískan hvata ríka fólksins til þess að halda húsnæðisverði háu.
Jan 27, 2022•22 min