Eyþór og Þórarinn ræða við Þórhildi Sunnu þingmann Pírata. Þau ræða aðgerðir stjórnvalda vegna Covid 19, stéttabaráttu Icelandair, málefni hælisleitenda, mörk tjáningarfrelsis og hatursorðræðu og fleira.
Oct 18, 2020•1 hr 13 min
Í þessu hlaðvarpi ræða Kristín og Þórarinn við Berg Ebba um framtíðina. Umgjörð spjallsins byggist á bók Bergs Ebba, Skjáskot, og fara þremenningarnir vítt og breytt í sínum hugleiðingum um tækniframfarir, samfélagsmiðla og gervigreind.
Oct 11, 2020•1 hr 35 min
Forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir sest niður með Þórarni og Eyþóri til þess að ræða ýmis pólitísk álitaefni. Þau ræða núverandi stjórnarsamband VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks, kosningarnar 2021, aðgerðir stjórnvalda í kringum heimsfaraldurinn, nýju stjórnarskrána og fleira.
Sep 11, 2020•31 min
Farið er um víðan völl. Einar Steingrímsson er stærðfræðingur sem bítur sjaldan í tunguna. Eyþór og Þórarinn ræða við hann um háskólamenningu og rannsóknarstarf, liðahugsun og skoðanapakka, einkennapólitík (identity politics), hlutafjárútboð Icelandair, trickle down economics og stjórnarsamband VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. Að lokum tala þremenningarnir um tjáningarfrelsi og spá í framtíð akademísks frelsis.
Sep 09, 2020•1 hr 8 min
Þórarinn og Kristín ræða við Uglu Stefaníu um samfélagslegu spurningar sem brenna á mörgum í sambandi við trans mál. Þau ræða tjáningarfrelsi og siðareglur fjölmiðla, mismunandi kyn og fornöfn, hvenær trans manneskja verður trans, blæðingar, íþróttir, fangelsi vald og fleira.
Aug 15, 2020•2 hr 9 min
Þórarinn ræðir við Margréti Valdimarsdóttur um lögregluafskipti og afleiðingar þess í Bandaríkjunum. Rasismi er rauði þráður hlaðvarpsins en Margrét skrifaði doktorsritgerð um afleiðingar lögregluafskipta á ungt fólk og hvernig það hefur áhrif á framtíð þess. Ásamt ritgerðinni ræða þau morðið á George Floyd, ákvörðun Trump um að beita alríkislögreglunni til þess að takast á við mótmælin, aðrar ritgerðir um álíka efni og fleira. Ritgerð Margrétar má finna hér: https://opencuny.org/margretv/2013/1...
Aug 09, 2020•52 min
Kristín, Sunna og Þórarinn ræða um menningarnám (cultural appropriation) og fara yfir þau ýmsu álitamál sem að málinu snúa. Þau ræða íþróttir, hrekkjavökubúninga, fastar fléttur og fleira. Hefði Dagbjört Rúriks átt að biðjast fyrirgefningar fyrir að fá sér fastar fléttur? Hefði Pétur Jóhann átt að biðjast fyrirgefningar fyrir það að gera grín að asískum vændiskonum? Þríeykið reynir að svara þessum spurningum.
Jul 11, 2020•1 hr 15 min
Sunna Sasha Larosiliere er blönduð stelpa sem ólst að hluta til upp í Bandaríkjunum. Hún er stjórnmálafræðingur og með mastersgráðu í krísustjórnun. Kristín og Þórarinn ræða við hana um rasisma í Bandaríkjunum, óeirðirnar og mótmælin í kringum morðið á George Floyd og fleira. Viðtalið er nokkurskonar framhald af þarsíðasta viðtali þar sem aðrir vinklar eru skoðaðir.
Jun 30, 2020•1 hr 45 min
Þórarinn ræðir við Guðmund Franklín forsetaframbjóðanda. Viðtalið er stutt og fer þorri þess í að rýna í pólitískar skoðanir Guðmundar á hinum ýmsu málefnum. Stefna hans er að efla forsetaembættið með því að nýta málskotsréttinn í meira mæli en fyrrum forsetar. Þeir ræða innflytjendamál, efnahagsmál, jafnréttismál, loftslagsmál og hvaða alþingismann Guðmundur myndi kjósa sér til þess að prófa ayahuasca í sumarbústað.
Jun 24, 2020•24 min
Í þessum þætti ræða Kristín, Þórarinn og Eyþór lögregluofbeldi og morðið á George Floyd. Þau velta fyrir sér hugmyndafræði Black Lives Matter, dyggðarskreytingu fjölmiðla og black out tuesday, hvort rasismi sé meiri á Íslandi eða í Bandaríkjunum og hvaða áhrif mótmælin og óeirðirnar munu koma til með að hafa á framtíðina.
Jun 14, 2020•1 hr 58 min
Kristín og Þórarinn ræða við Töru Margréti og Ernu Kristínu um fitufordóma. Fyrst fara Tara og Erna yfir skilgreiningu fitufordóma og hvaða áhrif þeir hafa á samfélagið í heild. Rætt er um álitamál heilbrigðisvísindanna, holdarfar og hamingju, offitu barna, hvort það megi gera grín að feitum og ummæli Kára Stefánssonar um greindarvísitölu fólks í offitu.
Jun 08, 2020•1 hr 22 min
Í þessum þætti kynnast Þórarinn og Eyþór Brynjari Níelssyni. Í fyrstu er rætt um upphaf Brynjars í stjórnmálum og álit hans á ýmsum efnum. Þaðan er lagt í umræður um fíknivanda, hugsunastjórnun, akademíuna, fóstureyðingar og aðgerðir stjórnvalda á tímum Covid-19. Að lokum er Brynjar spurður hverjum hann myndi bjóða í eftirparty og hverjum hann myndi síst vilja fara með í sumarbústaðarferð.
May 30, 2020•1 hr 4 min
Þórarinn ræðir við Þórð Snæ Júlíusson um aðgerðir stjórnvalda og þá kreppu sem Covid-19 krísunni fylgir. Þeir ræða hlutabótaleiðina, mismunandi styrki og lán sem stjórnvöld hafa lofað, ójöfnuð, skiptingu auðlinda, fjórðu iðnbyltinguna og fleira.
May 27, 2020•1 hr 8 min
Kristín og Þórarinn prófa örlítið nýtt í þessum þætti. Þau ræða mismunandi hugmyndir sem komu fram í hlaðvarpi Sam Harris þar sem hann ræðir við Yuval Noah Harari. Hlaðvarpið nefnist Making Sense Podcast og er þátturinn númer 201. Umræðuefnin eru breyttar hugmyndir um dauðann, vald og ný gildi á tímum covid, stöðu alþjóðasamskipta, samfélagslegan klofning og jákvæðar hliðar þjóðernishyggju, og að lokum framtíð menntunar.
May 17, 2020•37 min
Þórarinn, Eyþór og Ívar Elí ræða Covid 19 og áhrif þess. Tekist er á um hvort að "sænska leiðin" sé rétta svarið og hvaða afleiddu afleiðingar það mun koma til að hafa á efnahag þróunarlanda. Þeir ræða hlutabótaleiðina, hegðun fyrirtækja á opinberum markaði og hvaða áhrif það muni hafa á stjórnmál á Íslandi í náinni framtíð. Að lokum er heimspeki rædd og reynt að finna svar við hvers virði mannslíf eru. heimspeki efnahagur þróunarlanda efnahagur íslands stjórnmál sænska leiðin vald...
May 10, 2020•1 hr 25 min
Að þessu sinni fá Kristín og Þórarinn blaðamanninn Jakob Bjarnar Grétarsson í hlaðvarpið til að ræða um fjölmiðlun og pólitískan rétttrúnað. Þættinum er skipt í þrjá hluta. Fyrst verður rætt um siðferði og skyldur blaðamanna, æsifréttir, "clickbait" og áhrif samfélagsmiðla. Í öðrum hluta ræða þau um pólitískan rétttrúnað í blaðamennsku, femínisma, #MeToo-byltinguna, fóstureyðingar, fitufordóma, akademískar stofnanir og tjáningarfrelsi. Að lokum lýsir Jakob skoðunum sínum á vanköntum fjölmiðlafru...
Feb 13, 2020•1 hr 36 min
Að þessu sinni ræða Eyþór, Kristín og Þórarinn samfélagsmiðla. Þau ræða menningarleg, heilsufarsleg og pólitísk áhrif þeirra og spá fyrir um hvernig þetta muni breyta samfélögum um allan heim í náinni framtíð. Rýnt er í gögn um þau geðrænu vandamál sem samfélagsmiðlar virðast auka og hvort rétt sé að, og jafnframt hvort hægt sé að, sporna við síauknum yfirráðum tæknirisanna.
Feb 06, 2020•1 hr 18 min
In this episode Þórarinn talks to Lawrence Lessig. Lawrence is a professor at the Harvard School of Law and an adamant fighter for democracy around the world. They discuss how technology is corrupting our minds to benefit financially while simultaneously undermining our democratic institutions. Lawrence gives a brief description of the Icelandic referendum in 2012 for a new constitution, what it meant for Icelandic democracy and Iceland’s unique position in fighting for democracy due to its smal...
Jan 26, 2020•1 hr 2 min
Kristín og Þórarinn fá Þórð Snæ Júlíusson og Jasmínu Crnac með sér í hlaðvarpið til þess að ræða innflytjendur. Þórður er ritstjóri Kjarnans og Jasmína er verkefnastjóri fjölmenningar hjá Mennigarhúsum í Kópavogi og varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ. Farið er yfir efnahagslegar, menningarlegar og samfélagslegar afleiðingar þess að taka á móti innflytjendum. Munurinn milli innflytjenda, flóttamanna og hælisleitanda er skilgreindur og skoðað hvernig sveitarfélög Höfuðborgarsvæðisins taka mismunandi ...
Jan 03, 2020•1 hr 27 min
Eitt þverpólitískt. Þórarinn er einn að þessu sinni en fær til sín góðan gest. Bjarni Halldór Janusson var á sínum tíma yngsti þingmaðurinn til þess að gegna Alþingisembætti og stundar nú framhaldsnám í stjórnmálafræði í Bretlandi. Þórarinn og Bjarni ræða Breskar þingkosningar og hvernig popúlismi hefur haft áhrif á landslag stjórnmálanna í Evrópu. Þeir varpa fram eftirfarandi spurningum: Hafa vinstri flokkar glatað tengslum sínum við verkafólk? Er hugmyndin um upplýstan kjósanda úrelt á tímum t...
Dec 31, 2019•1 hr 39 min
Sökum veikinda og prófatíðar hefur meðlimum hlaðvarpsins ekki tekist að setjast niður í nokkurn tíma. Eyþór og Þórarinn ákveða því að fá Ívar Elí aftur í heimsókn. Hlaðvarpið er að mestu óundirbúið og tekur á eftirfarandi málefnum: Neysluhyggju Loftslagsmálum Kapítalisma Afhverju vinstri-flokkar gáfust upp á verkafólki Kynþáttahatri (Deeyah Khan og Daryl Davis) Hillary Clinton Sameiningu pólitískra hópa. Góða skemmtun.
Dec 06, 2019•1 hr 15 min
Í þessu hlaðvarpi setjast Kristín og Þórarinn niður með Þorsteini V. Einarssyni og ræða um karlmennsku. Þorsteinn er forsprakki hugverksins #Karlmennskan sem leitast eftir að brjóta niður kynjaðar staðalímyndir sem samfélagið setur okkur. Kristín og Þórarinn hafa spurningar og leiðir það til áhugaverðrar samræðu um femínisma, karlmennsku, samfélagið, pólitík, aðferðarfræði „vondra/góðra“ femínista og fleira.
Nov 21, 2019•2 hr 10 min
Kristín, Þórarinn og Eyþór rökræða bæði kynjakvóta og kvennakvóta. Til þess eru notuð tvö tilvik sem nýverið leituðu í fréttirnar. Annarsvegar er rætt um þegar Íslandsbanki tilkynnti að bankinn myndi koma til með að hætta að auglýsa hjá þeim fjölmiðlum sem ekki hefðu jafnrétti kynjanna á sinni stefnuskrá. Og hinsvegar er rætt um nýja stefnu Samfylkingarinnar um kvennakvóta. Flokkurinn vildi rótfesta þau feminísku markmið sem hann gefur sig út fyrir og töldu flokksmenn að sú hugmynd væri fýsilegr...
Nov 05, 2019•34 min
Hvenær gengur grín of langt? Í þessu hlaðvarpi fjalla Eyþór, Þórarinn og Ívar Elí um siðferði uppistandara og nota dæmi þess þegar Anna Svava gerði grin að Reykjavíkurdætrum í uppistandi sínu með Birni Braga.
Nov 03, 2019•1 hr 11 min
Í þessu hlaðvarpi fjalla Þórarinn, Kristín og Eyþór um Norðurvígi, innflytjandamál og hvað það þýðir að vera Íslendingur.
Nov 03, 2019•55 min
Stunda Samtökin 78' hatursorðræðu? Í þessu hlaðvarpi ræða Eyþór, Þórarinn og Kristín um tjáningafrelsi. Farið er yfir siðferðislegar spurningar þessa hvar línan eigi að liggja og hvar tjáningafrelsi verður of rúmt. Einnig er talað um andstæðinga Donald Trump, Trigger Warnings, Safe spaces, Kína og sjálfstæðar hugsanir.
Nov 03, 2019•1 hr 23 min