Hlaðvarpsstjarnan, kynjafræðingurinn og aktívistinn Þorsteinn V. Einarsson, eða Steini í Karlmennskunni eins og margir þekkja hann, mætti til mín ásamt sínum Betri helmingi sálfræðingnum og aktívistanum Huldu Jónsdóttur Tölgyes. Steini er menntaður kynjafræðingur en heldur hann úti fræðslu instagram-reikningnum vinsæla “Karlmennskan” ásamt því að stjórna hlaðvarpi undir sama nafni með það að markmiði að breiða út femenískum boðskap með ábendingum um hluti sem betur mættu fara er snertir jafnrétt...
Feb 22, 2023•1 hr 43 min•Season 1Ep. 96
Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir eða Heidi Ola eins og margir kannast við hana og hennar betri helmingur garðyrkju og ævintýramaðurinn Erlendur Kristjánsson mættu til mín í einlægt og skemmtilegt spjall nú á dögunum. Heiða var á sínum tíma margfaldur model fitness meistari, hélt úti matarbloggi og þjálfaði í WorldClass en er hún þessa daganna í fæðingarorlofi á milli þess sem hún býr til húsgögn af ýmsu tagi úr drumbum, en þess fyrir utan sér hún um Hlöðuna sem er gæluverkefni hennar og er stefnan teki...
Feb 15, 2023•1 hr 47 min•Season 1Ep. 95
Vellíðunar, heilsu og kuldaþálfarinn Vilhjálmur Andri Einarsson eða Andri Iceland eins og hann er gjarnan kallaður mætti til mín ásamt sínum betri helmingi Tanit Karolys í virkilega áhugavert og skemmtilegt spjall. Andri umbreytti lífi sínu þegar hann kynntist aðferðarfræðinni Wim hof eftir langa baráttu við streitu og vanlíðan en hann lenti ungur í slysi sem hafði mikil áhrif á líf hans. Í dag rekur Andri fyrirtækið Andri Iceland, ásamt Tanit, þar sem hann miðlar til annara þekkingu sinni á hei...
Feb 08, 2023•2 hr 18 min•Season 1Ep. 94
Þjálfarinn og heilsusérfræðingurinn Rafn Franklín Hrafnsson mætti til mín ásamt sínum betri helmingi, þjálfaranum og markaðsdrottningunni Kareni Ósk Gylfadóttur í mjög áhugavert og skemmtilegt spjall. Rafn var nánast alinn upp í innan veggja líkamsræktarinnar og hefur áhugi hans á hreyfingu og heilsu verið ríkjandi allt frá barnæsku en í dag er hann starfandi þjálfari, næringarráðgjafi og fyrirlesari ásamt því að halda úti hlaðvarpinu 360°heilsa og hefur hann einnig gefið út bókina Borðum betur....
Feb 01, 2023•1 hr 29 min•Season 1Ep. 93
Þáttur vikunnar er stórskemmtilegur þó ég segi sjálfur frá en fékk ég til mín listahjónin Friðrik Friðriksson og Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur sem bæði hafa getið sér gott orð sem leikarar & leikstjórar. Friðrik hefur komið víða við innan leiklistargeirans en var hann lengi fastráðinn við Þjóðleikhúsið, þar sem hann lék bæði og leikstýrði. Árið 2016 tók hann svo stöðu framkvæmdastjóra Trjarnarbíós en er hann nú nýfarinn að sinna framkvæmdastjórn fyrir Sviðslistarmiðstöð Íslands. Álfrún kemur ú...
Jan 25, 2023•1 hr 39 min•Season 1Ep. 92
Atvinnukylfingurinn & golfledgendið Ólafía Þórunn Kristinsdóttir mætti til mín í stórskemmtilegt spjall um lífið og tilveruna ásamt sínum betri helmingi Thomas Bojanowski. Ólafía er einn okkar allra besti kylfingur og hefur afrekað ótrúlega hluti inná golfvellinum en meðal annars hefur hún spilað á mörgum stærstu golfmótum heims og komst til að mynda tvisvar inná LPGA mótaröðina. Í dag hefur hún sagt skilið við atvinnumenskuna og er að koma sér upp eigin rekstri sem mun líta dagsins ljós á n...
Jan 18, 2023•1 hr 35 min•Season 1Ep. 91
Fótboltamaðurinn, íslandsmeistarinn og frumkvöðullinn Viktor Karl Einarsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi, lögfræðingnum og frumkvöðlunum Jónínu Þórdísi Karlsdóttur. Viktor fór ungur út í atvinnumennsku í fótbolta og spilaði með með Jong AZ í hollandi og IFK Värnamo í Svíþjóð áður en hann kom svo aftur heim í Kópavoginn og er í dag einn af lykilmönnum íslandsmeistara Breiðabliks. Jónína er körfuboltakona og lögfræðinemi en spilar hún með Ármanni og var m...
Jan 11, 2023•1 hr 34 min•Season 1Ep. 90
Fótbolta og landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason mætti til mín í skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi fyrirsætunni og bloggaranum Andreu Röfn Jónasdóttur. Arnór Ingvi hefur verið atvinnumaður í fótbolta síðan 2012 og spilað hjá liðum víðsvegar um heiminn meðal annars í Boston, Noregi, Grikklandi, Austurríki og Svíþjóð þar sem hann spilar nú með félaginu Norrköpping. Ásamt þessu spilar hann með íslenska landsliðinu og skoraði meðal annars markið sem tryggði Íslandi leikinn á móti Eng...
Jan 04, 2023•1 hr 27 min•Season 1Ep. 89
Gleðilega hátíð kæru hlustendur. Mig langar að byrja á því að benda á að þáttur dagsins er á ensku en í þetta skiptið átti ég eitt áhugaverðasta spjall frá upphafi við Guðmund Felix Grétarsson og hans betri helming Sylwiu Nowakowska. Guðmundur hefur vakið mikla athygli undanfarin ár vegna aðgerðar sem hann gekkst undir og ekki síður fyrir sitt einstaklega jákvæða hugarfar, en sem ungur maður lenti hann í slysi sem varð til þess að hann missti báðar hendur við axlir. Árið 2021 fór hann í víðfræga...
Dec 28, 2022•1 hr 33 min•Season 1Ep. 87
Íþróttafrétta og Dagskrárgerðarkonan Helga Margrét Höskuldsdóttir mætti til mín ásamt sínum betri helmingi tónlistarmanninum og trommaranum Bergi Einari Dagbjartssyni í stórskemmtilegt spjall. Helga Margrét hefur komið víða við í fjölmiðlum en allt hófst þetta á RÚV-Núll fyrir fimm árum síðan en hefur hún síðan þá tekið að sér fjölbreytt verkefni innan RÚV bæði í útvarpi og sjónvarpi. Undanfarið hefur Helga starfað innan íþróttadeildarinar og var einmitt einn umsjónarmanna umjöllunarþátta í krin...
Dec 21, 2022•1 hr 40 min•Season 1Ep. 86
Tónlistarmaðurinn og rapparinn Birnir Sigurðarson mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi Vöku Njálsdóttur. Birnir hefur verið virkilega áberandi undanfarin ár en skaust hann hratt uppá stjörnuhimininn árið 2016 og hefur síðan þá verið einn atkvæðamesti tónlistarmaðurinn innan síns sviðs með lögum á borð við Já ég veit og Spurningar svo dæmi séu tekin. Vaka hefur heldur betur í nógu að snúast þessa dagana en starfar hún í viðskiptaþróun hjá Nova ásamt þ...
Dec 14, 2022•1 hr 26 min•Season 1Ep. 86
Burlesque drottningin og fyrrum fjölmiðlakonan Margrét Erla Maack mætti í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum Betri Helmingi útvarpsmanninum Tómasi Steindórssyni. Margrét er sannkölluð fjöllistakona en er hún einna þekktust fyrir Burlesque sýningar sínar og kemur hún fram við hin ýmsu tilefni, veislustýrir, kennir á námskeiðum og er meðlimur í Sirkus Íslands en áður fyrr starfaði hún í fjölmiðlum bæði á RÚV og Stöð 2. Tómas stendur útvarpsvaktina á X-inu á hverjum degi ásamt því að sjá af o...
Nov 30, 2022•1 hr 27 min•Season 1Ep. 84
Söngkonan Guðrún Árný Karlsdóttir mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helming, Sveinbirni Enokssyni. Það eru komin ansi mörg ár síðan Guðrún Árný söng sig inní hug og hjörtu íslendinga en var hún til að mynda partur af Frostrósum sem voru ómissandi í kringum hátíðarnar á sínum tíma, en gaf hún einmitt nýverið út splunkunýtt jólalag sem heitir “Desember”. Sveinbjörn er bílamálari og bifreiðasmíðameistari en tók sér pásu frá því og er í dag rótarinn hennar Guðrúnar. Svei...
Nov 23, 2022•1 hr 42 min•Season 1Ep. 83
Hlaðvarpsstjarnan, áhrifavaldurinn, íþróttakonan og nú síðast rithöfundurinn Edda Falak og hennar betri helmingur, bardagakappinn Kristján Helgi Hafliðason eru gestir vikunnar í Betri helmingnum. Edda hefur verið áberandi undanfarin misseri fyrir hlaðvarpið sitt Eigin konur þar sem hún vekur athygli & opnar umræðuna á erfiðum málefnum, en þar fær hún til sín viðmælendur sem deila með henni reynslusögum sínum sem oft á tíðum geta verið ansi átakanlegar. Ásamt podcastinu er Edda nýbúin að gefa...
Nov 16, 2022•1 hr 17 min•Season 1Ep. 82
Fjölmiðla og dagskrárgerðarkonan Snærós Sindradóttir og hennar betri helmingur blaðamaðurinn Freyr Rögnvaldsson eru gestir þáttarins þessa vikuna. Snærós vaknar með þjóðinni eldsnemma alla virka morgna á Rúv en hefur hún einmitt stjórnað þar morgunþætti rásar tvö undanfarið árið en gegndi hún áður hinum ýmsu störfum innan Rúv, þar á meðal sem verkefnastjýra Ungrúv. Freyr hefur verið í blaðamennskunni síðan 2006 og hefur undanfarin fjögur ár starfað sem blaðamaður hjá fréttamiðlinum Stundinni ása...
Nov 09, 2022•1 hr 56 min•Season 1Ep. 81
Tónlistarmaðurinn Einar Stefánsson og dansarinn og leiklistarneminn Sólbjört Sigurðardóttir eru viðmælendur Betri helmingsins þessa vikuna. Einar hefur gert garðinn frægann sem gimpið í hljómsveitinni Höturum sem kepptu eftirminnilega í Eurovision árið 2019 og vöktu þeir gríðarlega athygli og ekki síst Einar í sínu hlutverki innan hljómsveitarinnar. Einar er einnig einn þriggja meðlima í hljómsveitinni Vök en á daginn sér hann um markaðsmál fyrir Íslenska Dansflokkinn. Sólbjört er menntaður dans...
Nov 02, 2022•1 hr 18 min•Season 1Ep. 80
Séra Davíð Þór Jónsson og hans Betri helmingur Þórunn Gréta Sigurðardóttir eru viðmælendur vikunar í Betri helmingnum. Davíð Þór hefur komið víða við á sínum starfsferli en var hann meðal annars annar Radíusbræðra sem nutu gríðarlegra vinsælda á tíunda áratugnum, gegndi ritstjórn, þýddi bæði leikrit og sjónvarpsþætti, stjórnaði Gettu betur en hefur hann verið sóknarprestur Laugarnseskirkju síðan 2016. Þórunn Gréta er menntuð með BA í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands og er hún formaður Tónskáld...
Oct 26, 2022•1 hr 49 min•Season 1Ep. 79
Gylfi Einarsson fyrrum atvinnumaður í fótbolta og spark-spekingur með meiru kom til mín í stórskemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi, ofurþjálfaranum vinsæla Karitas Maríu Lárusdóttur. Gylfi er eins og fyrr segir fyrrum atvinnumaður í fótbolta en spilaði hann á sínum ferli fyrir klúbba á borð við Lilleström, Brann og Leeds. Í dag rekur Gylfi fyrirtækið Iceland Tax free og bregður reglulega fyrir á skjám landsmanna um helgar yfir enska boltanum. Karitas er þjálfari hjá World Class til fjöl...
Oct 19, 2022•1 hr 14 min•Season 1Ep. 78
Leikarinn Jóhann G Jóhannsson mætti til mín ásamt sínum betri helmingi framkvæmdastjóranum Guðrúnu Kaldal í einlægt og skemmtilegt spjall nú á dögunum. Jóhann eða Jói eins og hann er alltaf kallaður hefur á sínum ferli sem leikari komið víða við en hófst leiklistarferill hans í sjónvarpsþáttunum vinsælu um Nonna og Manna eftir samnefndum bókum, þá aðeins 14 ára gamall. Hann hefur bæði unnið mikið á sviði og í kvikmyndum en er fókus hans þessa stundina nær eingöngu í kvikmyndaheiminum og hefur ha...
Oct 12, 2022•1 hr 33 min•Season 1Ep. 77
Körfuboltaparið Helena Sverrisdóttir og Finnur Atli Magnússon kíktu við hjá mér í virkilega áhugavert og skemmtilegt spjall fyrir skemmstu. Helena er ein okkar allra fremsta körfuboltakona fyrr og síðar en hefur hún spilað mikilvæga rullu hjá sínum félagsliðum sem og með landsliðinu. Hún er ein fárra íslenskra kvenna sem farið hefur út í atvinnumennsku í körfubolta og spilaði hún meðal annars í Slóvakíu, Ungverjalandi og Póllandi. Hún hefur unnið til fjölda verðlauna á ferlinum og margsinnis ver...
Oct 05, 2022•1 hr 18 min•Season 1Ep. 76
Áhrifavaldurinn og dansarinn Ástrós Traustadóttir mætti til mín ásamt sínum betri helmingi Adam Karli Helgasyni í virkilega skemmtilegt spjall nú á dögunum. Ástrós hefur verið áberandi undanfarin ár á samfélagsmiðlum og talar hún um að það hafi í raun allt byrjað eftir að hún tók þátt í sjónvarpsþáttunum Allir geta dansað þar sem hún var fengin til að dansa og þjálfa einn keppandann. Ástrós var um tíma atvinnu dansari og kennir nú dans samhliða hinum fjölbreyttu verkefnum sem berast á borð henna...
Sep 28, 2022•1 hr 20 min•Season 1Ep. 75
Hlaupagarpurinn og þjálfarinn Sigurjón Ernir Sturluson mætti til mín í áhugavert og stórskemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi Simonu Vareikaité. Sigurjón er afreksmaður í utanvegahlaupum en hefur hann lengst hlaupið hvorki meira né minna en 147 kílómetra og í hækkun í þokkabót. Sigurjón rekur einnig líkamsræktarstöðina UltraForm sem er hugmynd sem byrjaði í bílskúrnum hjá honum 2017 en eru þau nú með tvær stöðvar í fullum gangi og fara ört stækkandi. Simona er Litháensk að uppruna og flu...
Sep 21, 2022•1 hr 18 min•Season 1Ep. 74
Söng og leikkonan Margrét Eir Hönnudóttir og hennar betri helmingur, tónlistarmaðurinn Jökull Jörgensen eru gestir vikunnar í Betri helmingnum. Margrét Eir ætti að vera flestum kunnug fyrir sína einstaklega fallegu söngrödd og hefur Margrét komið víða við í tónlistinni og sungið við hin ýmsu tilefni í áraraðir. Margrét er mikið jólabarn og er því ekki að undra að það ber mikið á henni á þeim tíma árs og hefur hún spilað lykilhlutverk í Frostrósum. Margrét hefur einnig verið áberandi á leikferli ...
Sep 14, 2022•1 hr 45 min•Season 1Ep. 73
Leikarinn, leikstjórinn, söngvarinn og skemmtikrafturinn Bjartmar Þórðarson og hans betri helmingur Snorri Sigurðarson komu til mín í ansi skemmtilegt spjall nú á dögunum. Bjartmar er menntaður leikari frá leiklistarskólanum Weber Douglas í London og útskrifaðist þaðan árið 2004. Bjartmar er svo sannarlega ekki við eina fjölina felldur þegar kemur að listaheiminum en hann ákvað að sækja sér nám í leikstjórn fljótlega eftir leikaranámið en í millitíðinni tók hann þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins ...
Sep 07, 2022•1 hr 41 min•Season 1Ep. 72
Fótboltagoðsögnin og þjálfari Víkinga Arnar Gunnlaugsson mætti til mín í einlægt og virkilegs skemmtilegt spjall ásamt sýnum betir helming, Maríu Builien Jónsdóttur. Arnar hefur verið áberandi í boltanum frá því hann var aðeins 16 ára gamall og spilaði þá með uppeldis-klúbbnum ÍA. Þremur árum síðar var hann kominn út í atvinnumennsku þar sem hann fékk samning við Feyenoord í Hollandi en kom hann víða við sem atvinnumaður og spilaði meðal annars í ensku úrvalsdeildinni með liðum á borð við Bolton...
Aug 31, 2022•1 hr 21 min•Season 1Ep. 71
Leikarinn og tónlistarmaðurinn Haraldur Ari Stefánsson og hans betri helmingur fimleikadrottningin Kristjana Sæunn Ólafsdóttir mættu til mín stórskemmtilegt spjall. Haraldur fann ungur fyrir leiklistarbakteríunni enda alinn upp í leikhúsinu þó hann hafi byrjað sinn feril í sviðsljósinu sem slagverksleikari í hljómsveitinni Retro Stefson sem urðu gríðarlega vinsælir bæði hér heimafyrir og ekki síður í Evrópu. Leiklistin togaði þó alltaf í hann, og útskrifaðist hann sem leikari frá Central school ...
Aug 24, 2022•1 hr 23 min•Season 1Ep. 70
Hlaðvarpsstjarnan & Hollywood sérfræðingurinn Birta Líf Ólafsdóttir kom ásamt sínum betri helmingi Gunnari Patrik Sigurðssyni í virkilega hresst og skemmtilegt spjall. Birta Líf er annar þáttastjórnenda hlaðvarpsþáttarins vinsæla, Teboðsins, þar sem farið er vel yfir allt það helsta sem gerist í heimi hollywood stjarnanna og allt þar á milli ásamt því að mæta vikulega í heimsókn í Brennsluna á FM957 með te-vikunnar. Þá er Birta markaðsfræðingur og starfar sem markaðsráðgjafi hjá auglýsingast...
Aug 17, 2022•1 hr 22 min•Season 1Ep. 69
Listamaðurinn Logi Pedro Stefánsson og hans betri helmingur Hallveig Hafstað Haraldsdóttir kíktu til mín í skemmtilegt spjall nú á dögunum. Logi er ekki við eina fjölina felldur en er hann einna þekktastur fyrir músíkina sína en byrjaði hann snemma í mússíksenunni og vakti fyrst athygli fyrir störf sín í hljómsveitinni Retro Stefson sem var geysivinsæl hér um árið en síðan þá hefur hann gert heilan helling af solo efni sem hefur slegið í gegn. Logi er þessa stundina í Listaháskólanum að læra Vör...
Aug 10, 2022•1 hr 20 min•Season 1Ep. 68
Í þætti dagsins fékk ég til mín hjónin Yesmine Olsson og Arngrím Fannar Haraldson, eða Adda Fannar eins og hann er betur þekktur, í létt og skemmtilegt spjall. Þeim hjónunum er ýmislegt til lista lagt en er Yesmine meðal annars afar vinsæll einkaþjálfari hjá World Class, dansdrottning með meiru og stjörnukokkur en er hún búin að koma víða við í eldamennskunni bæði sem sjónvarpskokkur og haldið fjölda námsskeiða. Það kemur því kanski fáum á óvart að hún er einmitt þessa stundina ásamt Adda Fannar...
Aug 03, 2022•1 hr 29 min•Season 1Ep. 67
Leikkonan Birna Rún Eiríksdóttir og hennar betri helmingur Ebenezer Þórarinn Einarsson eru viðmælendur 66 þàttar af Betri helmingnum. Birna Rún er eins og fyrr segir leikkona en hefur hún meðal annars verið fastráðin í Borgargarleikhúsinu og lék þar í fjölda sýninga. Þá hefur hún einnig unnið til Edduverðlaunana en það var fyrir hlutverk sitt í Rétti sem sló í gegn árið 2016. Birna hefur einnig verið verið afar vinsæl á samfélagsmiðlinum tiktok undanfarið fyrir einstaklega fyndið og skemmtilegt ...
Jul 27, 2022•1 hr 35 min•Season 1Ep. 66