#73 - Margrét Eir & Jökull - podcast episode cover

#73 - Margrét Eir & Jökull

Sep 14, 20221 hr 45 minSeason 1Ep. 73
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Söng og leikkonan Margrét Eir Hönnudóttir og hennar betri helmingur, tónlistarmaðurinn Jökull Jörgensen eru gestir vikunnar í Betri helmingnum.
Margrét Eir ætti að vera flestum kunnug fyrir sína einstaklega fallegu söngrödd og hefur Margrét komið víða við í tónlistinni og sungið við hin ýmsu tilefni í áraraðir. Margrét er mikið jólabarn og er því ekki að undra að það ber mikið á henni á þeim tíma árs og hefur hún spilað lykilhlutverk í Frostrósum. Margrét hefur einnig verið áberandi á leikferli sínum og ætti ekki að koma á óvart að hún sé eftirsótt leikkona í söngleikjum, og er hún þessa dagana að æfa sýninguna Chicago sem sýnd verður í Leikfélagi Akureyrar nú í vetur.
Jökull hefur líka komið víða við í tónlistinni og hefur leikið á bassa með mörgum af helstu tónlistarmönnum landsins. Saman eru þau svo í hljómsveitinni Thin Jim and the Castaways sem átti lag sem tilnefnt var til íslensku tónlistarverðlaunanna á síðasta ári.
Margrét og Jökull sáust fyrst á tónleikum hjá Fabúlu á Rósenberg þar sem Jökull var að leika á bassan og augu þeirra mættust þvert í gegnum salinn. Margrét var skeptísk á hann í fyrstu, þar sem henni fannst hann full náin henni Fabúlu. Hún lét þó ekki deigan síga, sendi honum skilaboð á Myspace and the rest is history og eru þau í dag hamingjusamlega gift og spennandi tímar framundan.
Í þættinum ræddum við tónlistarlífið, drauminn sem varð að veruleika í Nashville, ferðalög, sameiningu fjölskyldunar ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Jökull kom Margréti í nánast sjálfheldu á Esjunni.



Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/

Dominos  -  https://www.dominos.is/

Smitten  - https://smittendating.com/

Brynjuís - https://brynjuis.is/

Augað - https://www.augad.is/



For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android