#31 Fyrir alla hlustendur!
Við fórum um víðan völl í dag, umræðan var allt frá kvíðakasti yfir í lyfjanotkun. Gerðum upp Bose hlaupið og hituðum upp fyrir vorið sem er í vændum!

Við fórum um víðan völl í dag, umræðan var allt frá kvíðakasti yfir í lyfjanotkun. Gerðum upp Bose hlaupið og hituðum upp fyrir vorið sem er í vændum!
MÍ krifjað, fjálsíþróttasenan og spretthlaup er á boðstólum hjá okkur langhlaupurunum í dag. Stórskemmtilegt viðtal við hraðasta mann landsins Kolbein Höð Gunnarsson!
Allt frá hlaupum á braut í snjómoð í fjöllunum ásamt allskonar í viðbót!
Við erum komnir í vorfíling, enda kominn febrúar. Í þættinum ræðum við landsliðsverkefnið í Frakklandi, ITRA og margt fleira. Góðir gestir slá á þráðinn og við hlaupum hressir inn í helgina!
Annað season komið af stað hjá okkur í Út að hlaupa.
Þriðji þáttur af jóladagatalinu kominn út, Gleðileg jól!
Viðtal við ofurkonuna Írisi Önnu Skúladóttur þar sem hún fer yfir hlaupaferilinn, fjölskyldulífið og margt fleira. Loksins náðum við að setjast saman fyrir framan hljóðnemana. Vonandi finnst ykkur jafn gaman og okkur að hlusta á Írisi Önnu!
Jólastemningin heldur áfram hjá Út að hlaupa bræðrum, að þessu sinni var það Thelma Björk Einarsdóttir sem spjallaði við okkur!
Nú eru jólasveinarnir komnir til byggða og Út að hlaupa strákarnir náðu að sjálfsögðu tali á þeim. Sá fyrsti er enginn annar en góðvinur þáttarins, Örvar Steingrímsson!
Í þættinum í dag verður Valencia maraþonið gert upp. Sagan verður á sínum stað, Strava liðurinn og allt þetta helsta. Hlustun gerir eyrunum gott!
Hlaupaspjall eins og það gerist best, nýr dagskrárliður, nóg af aulabröndurum og spjall við Tobba og Andreu!
Í þættinum er farið yfir síðustu hlaup, strava liðurinn er á sínum stað og síminn var að sjálfsögðu tekinn upp en allar línur voru rauðglóandi að vanda!
Í þættinum ræða þeir út að hlaupa bræður það nýliðna, framhaldið og allt þar á milli er varðar hlaup!
Þriðji þáttur af liðnum Heimshornið þar sem við tökum viðtal við erlenda hlaupara. Þriðja viðtalið er við engan annan en síkáta Svíann, Petter Engdahl. Það þarf vart að kynna kappann en hann vann til að mynda CCC (100 km og 6000+ hæðarmetrar) árið 2022 sem er eitt sterkasta hlaup heims.
Afsakið langa pásu en hér er glóðvolgur þáttur af laufléttu hlaupaspjalli og vonandi stutt í þann næsta!
Út að hlaupa bræður stikla á stóru varðandi hlaupasumarið í sérstökum live þætti í Útilíf. Sérstakar þakkir fá þau sem mættu í salinn. Einhverntíman er allt fyrst!
Glænýr þáttur kominn í loftið þar sem Wildstrubel ferðin til Sviss var gerð upp. Einnig fara strákarnir yfir styrktaræfingar með Gumma Kri hjá Elite þjálfun.
Við förum um víðan völl í þætti dagsins, allt frá hlaupaskotfimi yfir í hvað virkar best í baráttunni við krampa!
Titillinn segir allt sem segja þarf fyrir þennan þátt!
Annar þáttur að liðnum Heimshornið þar sem við tökum viðtal við erlenda hlaupara. Að þessu sinni er Bailey Kowalczyk viðmælandi þáttarins. Bailey er hlaupari að atvinnu og er í Bandaríska landsliðinu í utanvegahlaupum. Hún var fimmta í Golden Trail Series árið 2022. Hlustun er heyrn ríkari!
Við erum mættir aftur, ferskir sem aldrei fyrr eftir smá sumarfrí!
Viðtal við Halldóru Huld Ingvarsdóttur hlaupadrottningu með meiru!
Allskonar umræður um það hvernig á að undirbúa sig fyrir stórt verkefni á borð við Reykjavíkurmaraþonið.
Laugavegsuppgjörið mikla!
Keppnisvikan fyrir Laugaveginn, Dyrfjallahlaupið, Akureyrarhlaupið, Saga Garðars og margt fleira rætt í sjóðandi heitum og glænýjum þætti af Út að hlaupa!
Fyrsti þáttur af liðnum Heimshornið þar sem við tökum viðtal við hlaupara erlendis. Fyrsta viðtalið er við tvöfaldan heimsmeistara í fjallahlaupum, Norðmanninn geðþekka Stian Angermund.
Hólmsheiðarhlaupið, Stravaliðurinn og mannasiðir á hlaupum var á milli tannanna á Teinunum tveimur í þætti dagsins!
Í þættinum er farið yfir víðan Laugaveg með einum af okkar dáðustu hlaðvarpssonum og sjónvarpsstjörnum, Vilhjálmi Hallssyni. Við mælum með að poppa og njóta hlustunarinnar eftir góðan hlaupatúr!
Í þættinum var Snæfellsjökulshlaupið krufið til mergjar þar sem hlaupasögur frá okkur félögunum fengu mikið rými. Hugmyndum af deildarkeppni í hlaupunum kom upp á yfirborðið, áhugavert að sjá hvert það fer!
Fimmti þátturinn er mættur! Esjan Ultra, Gullspretturinn og margt fleiri á boðstólum. Sá vinnur sem mest hefur gaman! Fylgdu okkur á @utadhlaupa á Instagram!