91.þáttur -drykkjarílát
góðan daginn!! við þurfum jú víst að drekka úr einhverju en það getur samt stundum verið vesen. Óskar og Kristbergur ræða um drykkjarílat
Lausnamiðuðu vandræðagemsarnir Óskar og Kristbergur leysa öll þín vandamál

góðan daginn!! við þurfum jú víst að drekka úr einhverju en það getur samt stundum verið vesen. Óskar og Kristbergur ræða um drykkjarílat
Jarðarfarir eru lífsins gangur og það geta fylgt mörg vandamál tengd jarðaförum. Hinsvegar eru tveir loðnir lausnamiðaðir vandræðagemsar komnir á vagninn til þess að leysa þessi vandamál.
Stundum þarf maður bara að fara úr fötunum og leyfa náttúrunni að vinna sitt verk. Við Tveir Loðnir vitum allt um það og ræðum það í þessum þætti.
Vinalán er mjög þekkt dæmi í vinahópum, en það getur stundum verið vandasamt. hvað á maður að gera? hvernig rukka ég vin minn? afhverju þarf hann alltaf lán? Tveir Loðnir köfuðu aðeins í fjármálin voru að grandskoða vinalán.
Rjómaís er þjóðþekkt fyrirbæri og þekkjum við hann öll. ÍS er dálæti allra íslendinga en hinsvegar er ÍS ekki vandamálalaus og þessvegna ákváðu Tveir Loðnir að leysa þann vanda.
Skordýr eru allstaðar og eru út um allt stundum inni hjá okkur og stundum inní okkur. hinsvegar geta skordýr verið smá vandamál en það er auðvitað lítið mál fyrir okkur því við erum Tveir Loðnir
Slagsmál eru því miður orðin allt og algengt á Íslandi í dag. Óskar og Kristbergur reyna að finna lausnina á þessu leiðinlega og óþarfa máli.
Meðan Kristbergur er í útlöndum þarf Óskar að finna út úr því hvernig takkarnir virka. ⌨️ Óskar fær Ólu Blöndal (Olalitla96) í lið með sér og ræða þau allt um Twitch heiminn. Er það að tala í míkrafón með myndavél á sér það sama og að tala í míkrafón með myndavél á sér? 🎮🖥🎙🌐
partur tvö af mat og matargerð þar sem ástríðukokkarnir ræða saman um matargerð og mat.
Maaatuuur! Hvað á að hafa í matinn og setja í hann? Lærið það allt hér í þessum splunkunýja þætti!
Tónleikar er góð skemmtun, en tónleikum fylgir oft vandamál, sem betur fer hafa tveir loðnir mikla reynslu á tónleikum og segja frá sinni reynslu og leysa öll þau vandamál sem þeir gátu fundið.
Halló! Við söknuðum ykkar! Í þessum splunkunýja þætti förum við yfir stöðuna síðustu mánuði og segjum ykkur lang bestu leiðirnar upp á fjöll og upp að gosinu. 🌋⛰️
Veiðimennska! Veiðimennska hefur verið lengi lengi til meðal oss, alveg frá því að við vorum frumbyggjar hinsvegar er veiðimennska ekki vandamálalaus, þar sem að við tveir loðnir erum lausnamiðaðir vandræðagemsar sem leysa öll vandamál þá fannst þeim tilvalið að leysa þessi vandamál.
Lego getur verið stórskemmtilegt, hinsvegar er Lego ekki vandamálalaust við Tveir Loðnir fengum til okkar mikinn sérfræðing í Lego fræðum til þess að hjálpa okkur með þessi vandamál!
Ástarlæknarnir Óskar og Kristbergur ræða loksins hvernig á að eiga hið fullkomna stefnumót. Því við gefum ást, elskið hvort annað ❤️🌹
Orkugjafarnir Óskar og Kristbergur fara yfir alla þá orkudrykki sem eru í kringum okkur og hjálpa þér að vælja þá réttu og hvernig á að forðast þá.
Við ætluðum að skrifa e-ð mjög fyndið... en við gleymdum því.
Leikfimi er mjög flókið fyrirbæri, sérfræðingurinn Kristbergur og ofur sérfræðingurinn Óskar hjálpa ykkur að hreyfa ykkur rétt!
Þið vilduð það besta, en fáið næst besta, eitt af mörgum Hlaðvörpum landsins, Tveir Loðnir! Núna förum við yfir hvernig það er að eiga einn Kiss aðdáanda í lífinu og erfiðleikunum sem því fylgir.
páskaeggin eru farin að verða frekar mikið vandamál, of margar tegundir, framleiðendur og svo margt fleira, sem betur fer ert þú aö hlusta á lausnamiðuðu vandræðagemsana semleysa öll vandamál
Eitt helsta vandamál Íslandssögunnar hefur auðvitað alltaf verið bílastæði og stöðumælar, engin þarf lengur að örvænta því að Tveir Loðnir fara yfir þetta mál í þætti 71!
Stundum þarf maður að gera hluti seinna eða á eftir, en það á það til að gleymast, semsagt gleymast að gera hlutinn. Við Tveir loðnir tókum fyrir þau atvik sem við gerum seinna og förum yfir hvernig hægt er að leysa þau vandamál.
Internet kaup getur stundum verið vandasamt, maður getur stundum rekist á veggi eins og "þetta er of lítið" eða "þetta er ekki það sem ég pantaði!" við erum tveir loðnir og við erum lausnamiðaðir vandræðagemsar.
Fatahönnuðurnir Óskar og Kristbergur fara yfir bestu aðferðirnar við það hvernig á að sauma sama hvort það sé með nál, tvinna, prjónum og jafnvel stálbitum.
Buffering 🔄 Þetta var eitt af mörgum vandamálum sem gamla Internetið hafði uppá að bjóða, en fór það einhverntímann frá okkur? Er það kannski bara búið að breytast svolítið? Við leysum þetta risa vandamál í nýjasta þættinum af Tveim Loðnum.
Gerviblóm má finna á mörgum heimilum og mögulega á þínu heimili. Sem betur fer erum við Lausnamiðaðir vandræðagemsar sem leysa öll vandamál því að gerviblóm eru ekki vandamálalausar. hver kannast ekki við það að lenda í veseni þessi gerviblóm. Hlustaðu og sjáðu hvernig við leysum þennan vanda.
VHS spólur voru einu sinni ríkjandi en eru það ekki lengur, hinsvegar eru myndbandsspólur ekki vandamálalausar. t.d. að spóla til baka? og margt fleira, við erum lausnamiðaðir vandræðagemsar og leysum öll vandamál!
Óskar er úti á Tene og þá þarf Kristbergur að finna staðgengil, að þessu sinni var það Birgir Stefánsson. Birgir og Kristbergur voru saman í Menntaskóla og léku oft saman í leiklist þar á meðal í Fiðlaranum á Þakinu og Litlu Hryllingsbúðinni.
það kemur oft sá tími sem maður "ætlar" í megrun og stendur kanski ekki alveg við það. Við Lausnamiðuðu vandræðagemsarnir förum yfir þau megrunar mál sem þeir sjálfir hafa prófað og leysa ýmis vandamál.
Það kemur fyrir að fólk lendi í vandamálum varðandi álegg, hvaða álegg á að fá sér eða þegar það skemmist, Við erum Lausnamiðaðir vandræðagemsar og leysum áleggs vandamál.