61.þáttur - Þorrablót!
Það vill svo til að Þorrablót eru ekki vandamálalaus, þessvegna ákveða Tveir Loðnir að leysa öll þau vandamál sem eiga sér stað á blótunum.
Lausnamiðuðu vandræðagemsarnir Óskar og Kristbergur leysa öll þín vandamál

Það vill svo til að Þorrablót eru ekki vandamálalaus, þessvegna ákveða Tveir Loðnir að leysa öll þau vandamál sem eiga sér stað á blótunum.
Gleðilegt allt saman! Við erum komnir aftur og eftir allt dramað sem er búið að vera í gangi síðasta mánuðinn þá verðum við bara að tala um morgunkorn!
Hvað á að gefa fólkinu ykkar í jólagjöf? sem betur fer erum við með svörin við því og finnum út hvað fólk vill fá i gjöf í dag. Og gleðileg jól!
Óskar og Kristbergur ræða á milli sín þau vandamál sem geta komið upp í verslunarmiðstöðvum, hver kannast ekki við það að vera þreyttur, lúinn og búinn á því eftir erfiða ferð í verslunarmiðstöð. Við erum Lausnamiðaðir vandræðagemsar og leysum öll vandamál!
Ekki einu sinni Hlaðvörp eru laus við ýmis vandamál. Fengum Salómon Smára og Arnór Braga úr Mjólkurbræðrum til að aðstoða okkur við að finna lausnina á málinu.
Bílaviðgerðar sérfræðingarnir Óskar og Kristbergur ræða allt um hvernig maður á að gera við bíla og allt tengt bílum.
Eldriborgarar glíma stundum við vandamál og við Tveir Loðnir gerum okkar besta í leysa þau vandamál
今日、2つのカラフトシシャモが外国人と、その周りでどのような誤解が生じる可能性があるかについて話し合っています。 どうぞ! Eða á íslensku í dag ræða tveir loðnir um útlensku og hvaða misskilningar geta komið upp í kringum það, gjörið svo vel!
Óskar og Kristbergur kafa í það heimsþekkta vandamál rán og ræningjar. Rán eru framin nánast á hverjum degi en hvernig komumst við í veg fyrir það, hvað þarf að gera? hvernig geta tveir Loðnir leyst þetta vandamál!
BÚ! Strákarnir eru mættir aftur í annað sinn að ræða Hrekkjavöku, þeir sjá til þess að þú hafir ekkert að óttast í lok Október
Óskar og Kristbergur eru með splunkunýjan þátt um Tölvur og Tækni. Tölvur og tækni geta nefnilega reynst mikið vandamál fyrir marga. við auðvitað Leysum það þar sem að við erum Lausnamiðaðir vandræðagemsar.
PARTYYY! Party kóngarnir Óskar og Kristbergur ræða um ýmis mál sem að tengjast partíum. Dramatík og party sögur í þessum nýjasta þætti Tvo Loðna.
Tjáknmyndir geta stundum verið flóknar. þegar við erum í samskiptum þá eigum við það til að notast við tjáknmyndir, en stundum eru sumar tjáknmyndir búnar að fá skrítnar meiningar. Óskar og Kristbergur fara yfir nokkur tjákn og útskýra meiningu þeirra og hvernig þeir hafa nú stundum verið misskildir.
!APPELSÍNUGUL VIÐVÖRUN! Fellibylurinn Loðinn mun geysa yfir landið í dag (eða meðan þú hlustar) og ætla Kristbergur og Óskar að fræða ykkur um óveður!
núna eru kosningar að hefjast og við Tveir Loðnir höfum tekið saman nokkra flokka og fjöllum um þá.
Ekki örvænta, útilegu sérfræðingarnir Óskar og Kristbergur eru loksins tilbúnir að ræða um allt sem þarf að hafa með sér í næstu útilegu.
Óskar og Kristbergur ræða um raunveruleikaþætti. þeir tala um sýna uppáhalds raunveruleika þætti, verstu þætti sem þeir hafa séð, og margt meira. en eru raunveruleikaþættir í alvöru?
Stundum er erfitt að vita hvernig við gerum hitt og þetta.. en sem betur fer höfum við Kristberg og Óskar til þess að fara yfir nokkra hluti og hvernig maður fer að því að gera þá.
Óskar er kominn aftur, sem gleður Kristberg rosalega.Loksins er komið eitthvað skipulag í þáttinn og tala þeir nú um útlöndþeir hafa ferðast víða saman og í sitthvoru lagi.
Nú er Óskar í fríi í Svíþjóð, hvað gerist þá? það má eiginlega segja að allt skipulag fari í vaskinn... það vill svo til að Kristbergur er ekkert sérlega vel skipulagður og þegar skipulagið fer í rugl hvað er þá best að tala um, jú auðvitað skipulag.
Óskar og Kristbergur ræða um Pokémon, og allt sem tengist þeim. svo kemur óskar með einhverjar svaðalegar spurningar um pokémon og Kristbergur svarar þeim eins vel og hann getur.
ákvarðanir geta reynst erfiðar, við höfum tekið þá ákvörðun að fara í sumarfrí.
Óskar og Kristbergur ræða um geimverur, Geimverur geta verið margslugnar og skrítnar. Jafnvel vitum við ekkert hvort geimverur séu til en við oft bara höldum það eða hvað? Það kemur margt í ljós í þessum þætti! þar sem þeir Vandræðagemsar leysa þessa ráðgátu
Óskari og Kristbergi dreyma mikið, um mis merkilega hluti. það má segja að þetta sé bara draumur í dós? við ræðum um drauma í þessum þætti og förum aðeins yfir martraðir og dagdrauma.
Óskar og Kristbergur ræða um það sem hræðir þá, og fara yfir nokkrar fóbíur.
Tíska, Tíska og Tíska! Hvað er í Tísku? eru Tveir Loðnir í Tísku? vá margar spurningar! Óskar og Kristbergur ræða um tísku í þessum splunkunýja þætti
Óskar er loksins kominn aftur eftir smá frí á vestfirði, Óskar og Kristbergur ræða síðan á milli sín steríótýpur, og spjalla um það.
Hver kannast ekki við það að eldast og allt í einu finnast hann vera orðinn miklu eldri. við verðum öll eldri með tímanum. Tveir Loðnir kasta fram nokkrum vandamálum og leysa þau, hinsvegar var Óskar ekki við og fengum við hann Guðgeir til þess að fylla í skarðið.
Góðan daginn og gleðilegann mánudag. Óskar og Kristbergur ræða um borðspil og þau vandamál sem geta gerst í spilum. farið er yfir Djöfla og dýflisum yfir í olsen olsen.
Óskar, Kristbergur og Lúna ræða um gæludýr, þó lúna var nú ekki virkur þáttakandi í umræðunni. það vill svo til að Óskar og Kristbergur hafa át nokkur gæludýr á ævinni og ræða um þau vandamál sem geta komið upp með gæludýr. lúna mjálmaði bara, því hún er köttur.