Tveir Loðnir - podcast cover

Tveir Loðnir

Óskar Heiðar Hansson og Kristbergur Ómar Steinarssonredcircle.com

Lausnamiðuðu vandræðagemsarnir Óskar og Kristbergur leysa öll þín vandamál

Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

121.Þáttur - Útskrift

Ef þið hlustið á einhvern þátt á ævinni, hlustið þá á þennan og þið munið útskrifast. 🎓

Nov 20, 202356 min

120.þáttur - Bíltúr og Leikir

Við skreppum aftur í bíltúr, keyrum út í auðnina og ræðum um tölvuleiki og vandamálinu sem fylgir þeim

Nov 13, 202350 min

119.þáttur - Haust

Brrr! Haustið er komið, eða.. er það á leiðinni? Allavega, við þurfum að ræða það svo enginn fari blind/ur inn í haustið!

Oct 30, 202351 min

118.þáttur - RoadTrip!

Tveir Loðnir í bíltúr! Já þið lásuð rétt, Óskar og Kristbergur ákváðu að taka upp þátt á leiðinni heim til Reykjavíkur og ræða allskonar um akstur, sögur og annað. Vesgú! 🚗

Oct 23, 20231 hr 25 min

117.þáttur - að Byrja

Ahh alveg rétt 😁 Tími til að byrja að alvöru! Núna erum við að komast í gang aftur og þá þurfum við að fara yfir hvernig það ferli hefur verið. Endilega byrjið á þessum ef að þið eruð að "stilla inn" í fyrsta skipti! 🎙🎙

Oct 16, 20231 hr

116.þáttur - Hvadda búinn að gera?

Við erum komnir aftur! 🎉 Mikið fjör framundan en til að byrja með ákváðum við að hafa þetta afslappað, nice og fara aðeins yfir stöðuna. Hlökkum til að halda áfram!

Oct 09, 202355 min

115.þáttur - Timburmenn

Timburmenn koma stundum og smíða í kollinum á manni, oftast nær um helgar. en hvað er þá til ráða? hvernig losar maður sig við þessa menn? þú þarft ekki að leita lengra því við erum lausnamiðaðir vandræðagemsar sem leysa öll vandamál.

Jun 05, 202353 min

114.þáttur - Týna

Ef að þú týndir þessum þætti þá fundum við hann fyrir þig. Við erum alveg vissir um að þú átt ekki eftir að týna neinu framar eftir að hafa hlustað á þennan þátt!

May 22, 202356 min

113.þáttur - Endur

Við erum alltaf að prófa e-ð nýtt, í þetta skipti fáið þið að fara með okkur í göngutúr, gefum að borða og gerum tilraun til að búa til ASMR, gjörið svo vel.

May 15, 202339 min

112.þáttur - Matvöruverslanir

Það er enginn að fara út i búð fyrr en þið eruð búin að hlusta á þennan þátt. Við ræðum bestu aðferðirnar við að versla, bestu búðirnar og fullt fullt fleira! 🛒

May 08, 202354 min

111.þáttur - tíminn

Tíminn er endalaus en ekki vandamálalaus! boom ! hvað er klukkan? skíttu á puttan

May 01, 202350 min

110.þáttur - Sumardagurinn frysti

Gleðilegt sumar! Það er ekki oft sem að við fáum sumar á Íslandi en sumarið er samt komið og því ber að fagna. Hvað er til ráða ef að maður þarf að skafa rúðurnar í júní?

Apr 24, 202352 min

109.þáttur - Grænmeti

Þá er komið að special númer tvö, í þessum þætti borðum við grænmeti ótrúlega hátt eins og sellerí, blómkál og kartöflur, namminamm eða hvað?

Apr 16, 202349 min

108.þáttur- Svefn

Góður svefn skiptir ótrúlega miklu máli, en svo að við getum náð sem besta svefninum hafa Tveir Loðnir tekið tíma úr sinni svefn rútínu fyrir ykkur til að ræða um svefninn og hvernig er hægt að sofa sem best.

Apr 03, 202356 min

107.þáttur - Nýr Starfsmaður

Ertu að leita þér að vinnu en veist ekki hvað á að gera? Þá erum við með þátt fyrir þig! Förum yfir allt sem þú þarft að vita þegar kemur að nýrri vinnu.

Mar 27, 202357 min

106.þáttur - Pólland

Austur Evrópa er skemmtileg.. en sko flugvélar geta verið óþægilegur ferðamáti, annars eru Pólverjar mjög skemmtilegir.. en flugvélar eru þröngar, of kaldar og heitar og þú getir ekki farið neitt. Vorum við búnir að tala um að Varsjá er eins og Breiðholtið? En flugvélar eru samt vesen. Við tölum semsagt mikið um flugvélar og austur Evrópu í þessum þætti.

Mar 20, 202353 min

105.þáttur - Súkkulaði

SÚKKULAÐI! Páskarnir eru á leiðinni og vorum við beðnir um að smakka öll páskaeggin. Við getum því miður ekki borðað öll páskaegg landsins en við fórum út í búð og keyptum súkkulaði sem að er einnig notað í páskaeggin og ekki nóg með það heldur komu Omnom okkur til hjálpar og gáfu okkur heilan helling af sínu súkkulaði líka! Bara fyrir ykkur og ekki reyna þetta heima (nema þið viljið það).

Mar 13, 202355 min

104.þáttur - Snjór

Stundum er snjór, stundum er enginn snjór. Sama hvort það er þá þurfum við að ræða það og vera tilbúin í allar aðstæður, hvernig á að skafa rúðuna? Hvernig á að losa bílinn? Við leysum það hér! ❄️🚗🎙

Mar 06, 202352 min

103.þáttur - Reykingar

Reykir þú? Hættu því! Við allavega hjálpum þér að komast yfir þetta vandamál, enda er það ekki lengur cool!

Feb 27, 202358 min

102.þáttur - of útskýring

Okkur finnst ótrúlega gaman að vita hvað ykkur finnst gaman að hlusta á þáttinn okkar. Sérstaklega hvað við eigum til með að tala um allt og ekkert og svoleiðis, stundum útskýrir maður hlutina samt of mikið sem veldur því að fólk missir athygli eins og kennari sem talar alltaf um sjálfan sig í staðinn fyrir námið sem er náttúrulega pínu skrítið, afhverju erum við að tala um kennara? Veit það ekki en við ræðum allavega um hvað það að útskýra hlutina of mikið getur verið pirrandi í þessum nýjasta ...

Feb 20, 20231 hr

101.þáttur - Mistök

Við gerðum mistök! En mistök fylgja okkur öllum hvert sem við förum. Einnig eru mistökin til þess að læra af og ekki alltaf alslæm, við förum yfir það í þættinum í dag þegar þú hlustar á hann.

Feb 13, 202356 min

100.þáttur - Bakstur

Ef þið kunnið ekki brauð að baka þá erum við með þáttinn fyrir þig! Við tölum nefnilega ekki bara í míkrafón heldur erum við líka bakarar. 🍞🍰 Viljum einnig þakka ykkur fyrir að hlusta á okkur hundrað sinnum, án ykkar værum við ekki hér! 🎙🎊❤️

Jan 30, 202356 min

99.þáttur - Heimsóknir

Þið eruð öll alltaf velkomin að koma og hlusta á okkur á öllum helstu streymisveitunum. ... Endilega látið okkur vita með góðum fyrirvara samt, við erum ekki alltaf tilbúnir í heimsóknir en við förum allavega yfir það í þættinum í dag, gjörið svo vel.

Jan 23, 202352 min

98.þáttur - Heimilisverk

Við erum komnir aftur! 🎊 Gaman að sjá vita af þér kæri hlustandi. Á nýju ári fylgir stundum áramótaheit sem við ætlum reyndar ekkert að tala um en ef þig langar að hafa hreint heima hjá þér í ár þá þarftu bara að hlusta á nýja þáttinn okkar!

Jan 16, 20231 hr

97.þáttur - Jólalög

Jólin eru að koma og ákváðum við að gefa ykkur smá jólalaga pælingar þangað til. Svo erum við einnig farnir í stutt frí, takk fyrir að hlusta! Við óskum ykkur gleðilegrar hátíðar og farsælt nýtt ár. 🎄🎆 Þangað til næst!

Dec 19, 20221 hr 3 min

96.þáttur - Próf

Þar sem allir eru búnir í prófum þá er gott að vera veeeel undirbúinn til þess að tala um það líka! Kristbergur kann próf og Óskar kann próf líka og var í prófi og var meira undirbúinn fyrir það heldur en til þess að ræða um það!

Dec 12, 202250 min

95.þáttur - Bensínstöðvar

Þarf að fylla á tankinn en þú veist ekki hvaða eldsneyti á að nota? Eða veist ekki hvoru megin tankurinn er? Eða ratar ekki á næstu bensínstöð? Þá er þetta þáttur fyrir þig kæri hlustandi!

Dec 05, 202252 min

94.þáttur - Efnisskapari

Hvað eigum við að tala um? Er myndavélin rétt stillt? Og erum við alveg pottþétt að taka upp? Að skapa content getur verið erfitt og þurftum við aðstoð frá Leikjaranum til að leysa vandamál vikunnar.

Nov 28, 202256 min

93.þáttur - Kvef

Ertu með kvef? Ekki örvænta því að Kristbergur og Óskar hafa líka fengið kvef og hjálpa þér að komast í genum þetta. Farðu undir teppi, með fullt af nefsprey og hlustaðu á Tvo Loðna.

Nov 21, 202258 min

92.þáttur - Sund og Sundlaugar

Óskar og Kristbergur ræða um sund og sundlaugar. Það er hægt að segja að sund og sundlaugar geta verið vandamálasamar, t.d. hvernig á að komast í laugina, hvernig á að stinga sér og þ.h.

Nov 14, 202254 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android