Trú og Líf - podcast cover

Trú og Líf

Trú og lífwww.truoglif.is
Hlaðvarpið Trú og Líf snýst um að ræða áhrif trúarinnar á lífið í heild sinni og hvernig Jesús Kristur, Biblían og kirkjan hans umturnar hugsunarhætti og lifnaðarhætti á praktískan hátt. Við leitumst við að vaxa í þekkingu á Guði með því að glíma við spurningar, vaxa í því að elska Guð, og að líkjast honum í okkar daglega lífi. Ef þú ert Kristinn einstaklingur sem hefur áhuga á því að vaxa í trú þinni þá er þetta hlaðvarp fyrir þig, og líka ef þú ert efasemdarmanneskja með miklar spurningar og efasemdir en ert tilbúin(n) að taka tíma til að skilja trú okkar betur þá ertu meira en velkominn.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#82 - Sagan okkar

Einhver vildi heyra söguna okkar, sem er full af mistökum og náð Guðs, svo hér kemur sagan okkar, hvernig við ólumst upp, hvernig við komumst til trúar, hvernig það gerðist eiginlega að við byrjuðum kirkju sem svo á endanum leiddi yfir í Trú og Líf útvarpsþáttinn og hlaðvarpið :)

Apr 04, 202529 minSeason 9Ep. 10

#81 - Hógværð og útlitsdýrkun

Biblían talar um hógværð, og varar gegn útlitsdýrkun, en hvernig leitast ég eftir því að sjá vel um sjálfan mig án þess að fallast í útlitsdýrkun? Hvar er millipunkturinn? Gunnar og Svava gera sitt besta að gefa biblíuleg og hjálpleg svör :)

Mar 28, 202531 minSeason 9Ep. 9

#80 - Hversu hávær á ég að vera um trúnna þegar ég er ný í trúnni?

Spurningin sem kom inn hljómar svona: "Hversu hávær á ég að vera um trúnna mína? Ætti ég að fókusa á að fylgja Jesú í verki fyrst eða líka dreifa boðskapnum? Hversu mikilvægt er að vera komin langt í trúnni áður en ég fer að segja öðrum frá? Mér líður eins og ég sé ekki verðug og ekki reiðubúin að gefa svör." Geggjaðar pælingar, við reynum okkar besta að gefa Biblíuleg ráð! :)

Mar 21, 202528 min

#78 - Þríeiningin

Það eru aldeilis bombur sem þið eruð að senda á okkur, núna er það Þríeining Guðs, Gunnar og Svava demba sér í að ræða þessa kenningu kristinnar trúar.

Feb 28, 202526 minSeason 9Ep. 6

#77 - Eru mismunandi kenningar um helvíti?

Jæja spurningin þessa vikuna snýst að helvíti, hverjar eru mismunandi kenningarnar um helvíti og hver af þeim er rökréttust? Eftir að hafa spjallað aðeins um þetta þá sýnist mér við þurfa mun fleiri þætti um þetta, láttu okkur vita ef þú ert sammála.

Feb 21, 202528 minSeason 9Ep. 5

#74 - Hlakka Kristnir til þess að deyja? :o

Ok, titillinn er frekar stuttur en spurningin sem við fengum hljómar svona: "hvað þýðir það þegar kristnir segjast hlakka til að Drottinn komi aftur? Hlakkar þeim til að deyja?" Gunni og Svava taka þetta umræðuefni fyrir og reyna að útskýra hvernig bókstaflega allir kristnir hugsa.

Jan 31, 202529 minSeason 9Ep. 2

#73 - Nútíma skurðgoð

Mikið er talað um skurðgoð í Biblíunni, en ég hef ekki séð marga vera að tilbiðja styttur, er þetta ekki svolítið úreltar hugsanir? Gunni og Svava koma með pælingar um skurðgoð nútíma samfélags, þetta er ekki lengur í Beta heldur 2.0

Jan 24, 202530 minSeason 9Ep. 1

#72 - Hvernig veistu hvaða kirkjudeild er rétt?

Ertu Baptisti? Lúterskur? Hvítasunnumaður? Methodisti? Presbyterian(isti?)? Afhverju eru kirkjudeildir og hver þeirra hefur rétt fyrir sér!? Gunni og Svava reyna að útskýra þessa víðu spurningu.

Nov 22, 202428 minSeason 8Ep. 6

#71 - Kirkjan og Tónlist

Afhverju eru ekki til techno kirkjur!? Afhverju er Orgel svona stór hluti af kirkjum? Segir Biblían eitthvað um tónlist í kirkjum, um afhverju við syngjum eða hvernig við eigum að syngja? Gunni og Svava DEMBA sér út í djúpu laugina.

Nov 15, 202430 minSeason 8Ep. 5

#70 - Hvernig ber maður kennsl á falskennara?

Það er mögulega of lítið talað um þetta umræðuefni, sérstaklega í ljósi þess að Biblían leggur mikið upp úr því að vara okkur á falskennurum og falsspámönnum, en spurningin sem við fengum senda inn er þessi, hvernig vitum við hverjir eru falskennarar? Ef þú ert með spurningu farðu endilega á www.truoglif.is og sendu inn pælingar sem þú ert með :)

Nov 08, 202430 minSeason 8Ep. 4

#69 - Hver er munurinn á Gamla Testamentinu og Nýja Testamentinu?

Hvað þýðir testamenti? Hver er munurinn á Gamla og Nýja Testamentinu? Afhverju er Biblíunni skipt upp í tvo hluta? Gunnar og Svava demba sér í þessa skemmtilegu spurningu senda inn í gegnum instagram, en þú getur sent spurningu á www.truoglif.is, eða í gegnum instagram eða facebook síðuna okkar.

Nov 01, 202429 minSeason 8Ep. 3

#68 - Eiga allir kristnir að eignast börn?

Biblían segir okkur strax í upphafi að við eigum að margfaldast, þýðir það að allir kristnir eiga að eignast börn? Góð spurning sem við fengum senda inn, Gunnar Ingi og Svava taka hana fyrir hér :)

Oct 25, 202426 minSeason 8Ep. 2

#67 - Hvert er hlutverk Satans á jörðinni og afhverju þurfum við að vera vakandi?

Hefur þú pælt í djöflum og Satan? Einhverjir heyra þetta og hlægja, aðrir heyra þetta og muna eftir upplifinum sem þau geta ekki ótskýrt með nátturulegum hætti. Er satan labbandi um í rauðum spandex galla með stóran gaffal eða hvað? Gunnar og Svava demba sér í að athuga hvað Biblían hefur að segja um þetta og hvernig við þurfum að vera vakandi. Ertu með spurningar? Tékkaðu á nýju heimasíðunni okkar www.truoglif.is þar sem þú getur sent inn spurningar og skoðað annað efni sem við vonum að sé bles...

Oct 18, 202431 minSeason 8Ep. 1

Kennsla - Líf í gegnum dauða (Páskar for dummies)

Í seinustu viku kom það í ljós þegar þáttur á RÚV tók viðtal við fólk í Kringlunni að nánast enginn vissi hvað Páskar snérust um, en núna verður það útskýrt. Nú er komið að því að ég (Gunnar) og Svava erum að undirbúa okkur fyrir ferð til Svíþjóðar þar sem Salómon okkar þarf aðgerð, megið endilega biðja fyrir því, en það þýðir því miður að við verður ekki að gera þætti næstu 3 vikur en í dag setjum við inn Íslenska kennslu um páskana sem ber titilinn “Líf í gegnum dauða” og fer yfir páska boðska...

Apr 05, 202454 min

#66 - Hvernig get ég tæklað ótta við menn og hræðslu við álit annara?

Margir koma til trúar og átta sig á því að það sem fær það hvað helst til að segja ekki frá Jesú eða vera meira opin með trúnna sína er ótti við menn eða álit annara, hvað er hægt að gera í því? Svava og Gunni leitast hér eftir Biblíulegum svörum við hversdagslegum spurningum sem þessari :)

Mar 22, 202431 minSeason 7Ep. 4

#65 - Umræða um biskupa og hvað Biblían segir um þá

Nú hefur eitthvað verið umræða um biskupa þar sem Íslenska Þjóðkirkjan er að taka atkvæði um hver mun sinna því hlutverki í komandi framtíð, en lítið hefur verið rætt (af því sem við höfum tekið eftir), hverju einstaklingarnir trúa eða hvort Biblían hafi álit á því hver ætti að sinna biskupsstarfi. Gunni og Svava ræða þetta mál.

Mar 15, 202429 minSeason 7Ep. 3

#62 - Jesús og Jólin

Hver er boðskapur jólanna, hvernig getum við munað að fagna ekki bara, heldur afhverju við fögnum? Gunnar og Svava renna yfir Biblívers sem tengjast fæðingu Jesú, hvað það þýðir fyrir okkur og hvaða fordæmi það setur fyrir okkar líf.

Dec 08, 202329 minSeason 6Ep. 12

#61 - Hvernig er best að deila trúnni sinni? (Hluti 2)

Gunni og Svava demba sér í meiri praktísku hliðina á að deila trú sinni og halda áfram að ræða umræðuefnið frá seinustu viku, her fyrir neðan eru nokkrar hugmyndir nefndar og spurningar til að íhuga: Hvað hefur Guð gefið þér ástríðu fyrir? Hvernig hefur Guð skapað þig? 1-on-1 spjall? Margmiðlun? Fyrirlestra? Búa til lista yfir 3 manneskjur sem þú vilt sjá koma til trúar, biðja fyrir þeim og leitast eftir tækifærum til að segja þeim frá Jesú. Hugmyndir fyrir fólk sem á auðvelt með að tala við fól...

Dec 01, 202328 minSeason 6Ep. 11

#60 - Hvernig er best að deila trú sinni? (Hluti 1)

Í þætti 58 enduðum við á leiðinlegu stefi, að mjög fáir á Íslandi virðast vera Kristnir miðað við skoðunarkönnun sem við vorum að ræða, en okkar von er ekki bara að ræða hlutina heldur spyrja hver lausnin er, og í dag er fyrsti hluti af þeim þáttum þar sem við ræðum hvernig á að deila trú sinni.

Nov 24, 202327 minSeason 6Ep. 10

#59 - Bæn vs. Tortryggni

Því miður vorum við að díla við veikindi á heimilinu og gátum ekki tekið upp þátt en hér kemur gamall þáttur sem fer í endurspilun sem bar nafnið "Bæn og áhrif hennar"

Nov 17, 202348 minSeason 6Ep. 9

#58 - Er bara 1% af Íslandi kristið!?

Nú fyrir 2 dögum kom út grein með niðurstöðum úr skoðunarkönnun sem snérist að skoðunum Íslendinga hvað varðar trú og niðurstöðurnar eru nokkuð sjokkerandi... Mikil breyting hefur átt sér stað frá 2006 í því hvernig Íslendingar horfa á tilvist Guðs. Gunni og Svava fara í að skoða niðurstöðurnar, pæla í hvað hefur gerst og hvað er hægt að gera í komandi framtíð.

Nov 10, 202329 minSeason 6Ep. 8

#57 - Hvernig er best að byrja að lesa Biblíuna?

Það kom góð spurning inn til okkar, en Gunni og Svava gera sitt besta að svara þessari mikilvægu spurningu: Hvernig er best að byrja að lesa Biblíuna? Eða eins og Gunnar segir: Hvernig byrjar noobi að lesa Biblíuna. Hér er nokkrar vefslóðir sem voru nefndar í þættinum: https://www.biblegateway.com/ https://www.blueletterbible.org/ https://enduringword.com/bible-commentary/ https://www.youtube.com/@bibleproject En einnig er nefnt Biblíu appið sem heitir einfaldlega Bible og er gefið út af YouVers...

Nov 03, 202327 minSeason 6Ep. 7

#55 - Hvernig er best að hjónabandast?

Það var beðið okkur um að ræða aðeins um hjónabönd án þess að taka fram sérstaklega hvað, svo við ræðum eitthvað um það með þeirri von um að það sé blessun fyrir ykkur :)

Oct 20, 202330 minSeason 6Ep. 5
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android