Trú og Líf - podcast cover

Trú og Líf

Trú og lífwww.truoglif.is
Hlaðvarpið Trú og Líf snýst um að ræða áhrif trúarinnar á lífið í heild sinni og hvernig Jesús Kristur, Biblían og kirkjan hans umturnar hugsunarhætti og lifnaðarhætti á praktískan hátt. Við leitumst við að vaxa í þekkingu á Guði með því að glíma við spurningar, vaxa í því að elska Guð, og að líkjast honum í okkar daglega lífi. Ef þú ert Kristinn einstaklingur sem hefur áhuga á því að vaxa í trú þinni þá er þetta hlaðvarp fyrir þig, og líka ef þú ert efasemdarmanneskja með miklar spurningar og efasemdir en ert tilbúin(n) að taka tíma til að skilja trú okkar betur þá ertu meira en velkominn.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#54 - Hvað er málið með sambandið á milli margra kristna og Ísrael?

Hefur þú tekið eftir því að margir Kristnir hafa mjög mikinn áhuga á Ísrael? Fyrir nokkrum mánuðum var bent á að þetta væri gott umræðuefni í þátt, en nú þegar margt hræðilegt er að gerast í Ísrael þá var ákveðið að taka þetta umræðuefni fyrir.

Oct 13, 202336 minSeason 6Ep. 4

#53 - kyn- og kristinfræðsla í skólum landsins

Kynfræðsla hefur mikið verið í umræðunni á samfélagsmiðlum undanfarna daga þar sem fólk hefur sterkar skoðanir, sömuleiðis hefur eitthvað verið rætt um kristinfræði í skólum, Gunnar kemur fram með einhverjar hugleiðingar fyrir foreldra og dvelur á nokkrum versum í Biblíunni.

Oct 06, 202350 minSeason 6Ep. 3

#52 - Hvað er það að "biðja í Jesú nafni"?

"Í Jesú nafni, amen." er vinsælasti endirinn á bænum okkar, en hvað þýðir það að biðja í Jesú nafni? Hvernig hefði fólk fyrir 2000 árum skilið orð Jesú Krists þegar það kemur að því að biðja í nafni einhverns? Gunni og Svava gera sitt besta að pæla aðeins í þessu.

Sep 29, 202328 minSeason 6Ep. 2

#51 - Hvernig er kristin trú frábrugðin öðrum trúarbrögðum?

Hefur þú heyrt að öll trúarbrögð séu sama súpan? Að í grunninn er þetta allt sami boðskapurinn og lítill sem enginn munur á þeim? Gunni og Svava demba sér í að ræða þetta málefni og athuga hvort það sé raunverulega rétt.

Sep 22, 202332 minSeason 6Ep. 1

#50 - Er það ókristilegt að dæma?

Oft ertu með kristið fólk með mjög mismunandi skoðanir á hvað það þýðir að dæma og hvenær eða hvort það eigi að vera að dæma yfir höfuð sem kristið fólk, Gunnar og Svava taka þetta mikilvæga umræðuefni fyrir í seinasta þættinum af 5 seríu.

Apr 21, 202329 minSeason 5Ep. 8

#48 - Eiga kristnir að halda hvíldardaginn?

Það er nóg af lögum í Gamla Testamentinu, en afhverju fylgjum við bara sumum lögmálum þar og ekki öðrum? Og nú einblýnum við sérstaklega á hvíldardaginn.

Mar 24, 202327 minSeason 5Ep. 6

#47 - Hvað þýðir það að "stíga út í trú"?

Oft notum við orð án þess að skilgreina það mikið, hvernig lítur það út fyrir okkur að stíga út í trú? Hebreabréfið 11 og 12 er með fullt af svörum og dæmum fyrir okkur :)

Mar 17, 202329 minSeason 5Ep. 5

#46 - Eru spámenn ennþá til í dag?

Eru spámenn ennþá til í dag? Ef svo er afhverju er ekkert bætt við ritninguna síðustu 2000 ár, og hvað er eiginlega spámaður eða spákona samkvæmt Biblíunni? Gunni og Svava demba sér í þetta skemmtilega umræðuefni.

Mar 03, 202328 minSeason 5Ep. 4

Getur kristin manneskja tapað hjálpræði sínu?

Þessa vikuna er spurning sem margir hafa mögulega ekki velt fyrir sér, en Gunnar og Svava demba sér í að pæla í því hvort kristin manneskja geti tapað hjálpræði sínu, sem krefst þess meðal annars að við ræðum almennilega um hvað það er að vera kristinn.

Feb 24, 202329 minSeason 5Ep. 3

Eilíft samhengi

Samhengi breytir ótrúlega hvernig við skiljum og bregðumst við aðstæðum, Gunnar og Svava ræða hvernig samhengi Biblían mælir með að við höfum á okkar líf í heild sinni og hvernig það hefur áhrif á okkar daglega líf.

Feb 10, 202329 minSeason 5Ep. 1

Hvað segir Biblian um áfengi?

Margir með mjög mismunandi skoðanir á þessu, Gunni og Svava reyna sitt besta að gefa þér góð og Biblíuleg ráð :)

Dec 09, 202226 minSeason 4Ep. 8

Nýtt líf, og hvað svo?

Oft er mikill fókus á að koma fólki inn í trúnna, en hvað á að gera eftir að það skref er tekið?

Nov 11, 202227 minSeason 4Ep. 5

Jesús og heilbrigð mörk (Hluti 2)

Enn meira sem við lærum af Jesú um heilbrigð mörk! Ef þú ert með spurningar þá er hægt að senda þær inn hér: https://www.loftstofan.church/tru-og-lif

Nov 04, 202227 minSeason 4Ep. 4

Boðorðin 9... Eða hvað!?

Mér var bennt á þær hræðilegu fréttir að boðorðunum fer fækkandi, hvað er í gangi!? Gunni er einn í dag að tala um þessa hluti, en greinin sem við vitnum í er hér: https://www.visir.is/g/20222323874d/ekki-lengur-strangt-til-tekid-bannad-ad-girnast-konu-naungans

Oct 14, 202229 min

Hvar get ég rætt um efasemdirnar mínar?

Ertu með efasemdir, hættu því! Hefuru heyrt það? Það er ekki gott, við ræðum hvar er gott að ræða efasemdirnar þinar í þættinum í dag! Sendu inn spurningar á www.loftstofan.church/tru-og-lif

Oct 07, 202226 min

Hvernig velur þú þér kirkju? (Hluti 1)

Er eitthvað sérstakt sem að maður ætti að hafa í huga þegar maður er að leita sér að kirkju? Er það tónlistin sem skiptir mestu máli? Prédikanir? Barnastarf? Svava kemur með svörin.

Mar 25, 202226 minSeason 3Ep. 7

Trúarofbeldi

Hver eru einkenni trúarofbeldi og hver eru bestu viðbrögðin við því? Gunni fer í málið einn og einsamall á ferð.

Mar 18, 202226 minSeason 3Ep. 6

Er synd að mæta ekki í kirkju?

Þarf að mæta í kirkju? Er það synd að mæta ekki á samkomur? Hvað hefur Biblían að segja um þessa hluti?

Mar 07, 202224 minSeason 3Ep. 5

Hvað segir Biblían um gleði?

Er munur á gleði og hamingju eins og margir hafa sagt, og ef svo er, hver er sá munur? Hvað hefur Biblían að segja um gleði og hefur hún öðruvísi viðhorf heldur en önnur trúarbrögð og heimsviðhorf? Gunnar og Svava demba sér í þetta.

Feb 28, 202223 minSeason 3Ep. 4

Hvað segir Biblían um skírn?

Hvað er skírn? Afhverju ætti fólk að skíra sig? Hver ætti að láta skírast? Hvenær ætti einstaklingur að skírast? Hvar ætti einstaklingur að skírast og hvernig? Er það með því að skvetta vatni á ungbörn, eða eitthvað öðruvísi? Gunnar og Svava leitast eftir því að gefa svör við þessum spurningum :)

Feb 21, 202224 minSeason 3Ep. 3

Biblíulegar sannfæringar og persónulegar skoðanir

Hver er munurinn á persónulegum skoðunum og Biblíulegum sannfæringum? Hvernig er hægt að greina muninn þar á, og hvernig eigum við eiginlega að nálgast aðra kristna sem deila ekki okkar persónulegum skoðunum sem spretta upp frá Biblíulegum sannfæringum?

Jan 31, 202226 minSeason 3Ep. 1

Er Guð sjálfhverfur?

Er Guð egóisti eða sjálfhverfur fyrir það að heimta lofgjörð og ást okkar? Gunni og Svava hafa velt þessu eitthvað fyrir sér og gera sitt besta að veita svör.

Dec 13, 202127 minSeason 2Ep. 12
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android