Já það er komið að fertugasta og sjötta þætti Trivíaleikanna og að þessu sinni var þátturinn algjör negla. Marín Eydal og Daníel Óli mynduðu stórskemmtilegt teymi sem tókst á við hörkusterkt lið Ödda og Kristjáns á meðan að Arnór Steinn vermdi þáttastjórnendasætið. Júlí markar tímamót í sögu Trivíaleikanna þar sem við munum héðan í frá vera að gefa út þrjá þætti í hverjum mánuði og lækkuðum einnig áskriftargjaldið okkar á Patreon úr 10$ í 8$. Það þýðir að allir sem eru í áskrift munu vera að fá ...
Jul 07, 2025•1 hr 39 min
Já þú last rétt! Við erum að fjölga fjölda þátta af Trivíaleikunum sem við gefum út í hverjum mánuði og lækka áskriftargjaldið sömuleiðis, sturlað! Hlustaðu á kynninguna, skelltu þér á Patreon og vertu með okkur í veislunni!
Jul 01, 2025•3 min
Við vildum leyfa ykkur öllum að prófa að hlusta á einn af þeim fjölmörgu frábæru þáttum sem við erum að bjóða upp á inni á Patreon þessa dagana. Kíktu á Patreon vef okkar, komdu í áskrift og fáðu hátt í 20 þætti sem eru þar inni nú þegar! Heyrst hefur að áskriftargjaldið hafi lækkað á síðustu dögum, mæli með að tékka á því! Keppendur: Arnór Steinn, Marín Eydal, Ingi & Haraldur Örn.
Jun 30, 2025•1 hr 38 min
Fertugasti og fimmti þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Arnór Steinn, Ástrós Hind, Jón Hlífar og Kristján í gamla góða stúdíó 9A seint á þriðjudagskvöldi. Chi-húa-húa og Lanmótið Lana Del Reykjavík - ekki missa af þessari veislu. Nafn hvaða eftirréttar merkir á ítölsku „eldaður rjómi.” Hvaða land á flesta páfa á eftir Ítalíu? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Arnór Steinn, Ástrós Hind, Jón Hlífar og Kristján.
May 29, 2025•1 hr 31 min
Fertugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Kristján og Hnikarr þeim Inga og Ödda í títanískum reginslag í gamla góða stúdíói 9A. Ekki missa af þessari skyrþöktu veislu! Hver var fyrsta skáldsagan sem var skrifuð í allri heild sinni á ritvél? Hvaða tæknirisi framleiddi fyrsta örgjörvann sem var seldur almenningi? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Kristján, Ingi, Hnikarr Bjarmi og Öddi.
Apr 28, 2025•1 hr 36 min
Fertugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni mættu Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Heiðdís María í upprunalega stúdíó hlaðvarpsins, hið yndislega Stúdíó 9A. Ekki missa af þessari Imodium veislu. Hvert er fjölmennasta landlukta land heims? Hvað gefur verðmætasta prikið í Míkadó mörg stig? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Heiðdís María
Mar 30, 2025•1 hr 39 min
Já þið lásuð rétt, það er loksins komið að þemaþætti! Að þessu sinni vorum við með kosningu á Instagram þar sem hlustendur sendu inn tillögur og níundi áratugurinn (80's) var valinn úr þeim uppástungum. Magnús Hrafn og Jón Hlífar tóku á móti Daníel Óla og Kristjáni í gamla góða stúdíó 9A en í dómarasætið brá sér okkar allra besti Arnór Steinn. Fyrir hvaða Bond kvikmynd samdi Duran Duran þemalag? Hve langur var Berlínarmúrinn? Hver lék eltihrellinn ógurlega í Fatal Attraction ? Þetta og margt ann...
Feb 25, 2025•1 hr 17 min
Já þið lásuð rétt - við ætlum að leyfa ykkur að prófa einn af Patreon þáttunum okkar frítt. Heima Quiz er í rauninni Pub Quiz sem þú getur spilað heima hjá þér eða hvar sem þú ert. Þú getur ýmist keppt á móti Inga og Kristjáni eða keppt við maka, vin, foreldra eða hvern sem er - þú ræður algjörlega ferðinni. Daníel ber upp 16 flokkaspurningar, eina textabók og þríþraut og þú svarar á blað (við bjóðum upp á blað sem þú getur prentað út á heimasíðu okkar trivialeikarnir.net) og svo förum við yfir ...
Feb 13, 2025•1 hr 18 min
Fertugasti og fyrsti þáttur Trivíaleikanna en í þennan kyngimagnaða þátt mætti Haraldur Örn frá hlaðvarpi Fótbolti.net þar sem hann er með spurningakeppnisþáttinn "Fótbolta nördinn." Í liði með Haraldi var enginn annar en okkar allra besti Stefán Geir en á móti þeim tveimur keppti eitt kunnuglegasta lið hlaðvarpsins "Heiðingi" eða Heiðdís María og Ingi. Hvaða þrjú ríki kallaði George W. Bush, Öxulveldi hins Illa? Hvaða norræni rithöfundur skrifaði ævintýrið um Snædrottninguna? Þetta og margt ann...
Jan 22, 2025•1 hr 25 min
Fertugasti þáttur Trivíaleikanna en að þessu mættu Marín Eydal og Ingi þeim Kristjáni og Hnikarri sem létu vel um sig fara í Stúdíó Frystikistu. Hvert er enska og þekktara heiti eitursins Kristspálma? Hvaða íslendingur lék stórt hlutverk í lokaseríu sjónvarpsþáttanna um Dexter? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Marín Eydal, Ingi, Kristján og Hnikarr Bjarmi.
Jan 04, 2025•1 hr 22 min
Já þið lásuð rétt! Þann 05. desember 2024 klukkan 21:00 verða Trivíaleikarnir með Pub Quiz í Arena Kópavogi. Hlustaðu á kynninguna og ekki láta þig vanta á fimmtudaginn næsta!
Nov 30, 2024•6 min
Þrítugasti og níundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni rændum við tónlistarmanninum og spurningaþáttagoðsögninni Vilhelm Antoni eða Villa Naglbít eins og hann er kallaður og buðum honum sæti í ísköldu stúdíó Sána. Auk hans mættu til leiks Trivíaleikakempurnar Arnór Steinn, Ingi og Kristján í einhverjum eftirminnilegasta þætti hlaðvarpsins. Nafn hvaða pastategundar merkir einfaldlega „litlar tungur” á ítölsku? Hvað byrja spilarar með mörg spil á hendi í Ólsen Ólsen? Þetta og margt annað er tæ...
Nov 28, 2024•1 hr 27 min
Þrítugasti og áttundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mætti stórgott lið Jóns Hlífars og Kristjáns sterku liði Arnórs Steins og Inga í Stúdíó Sánu. Ekki missa af þessari rjúkandi heitu skemmtun af hlaðvarpsþætti, komdu þér fyrir, ýttu á play og njóttu vel. Hvaða land sem liggur ekki að sjó (er landlukt) er stærst allra landluktra landa að flatarmáli? Hvers konar dýr er persónan fræga Tom Nook sem kemur fyrir í Animal Crossing tölvuleikjaseríunni? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. ...
Nov 05, 2024•1 hr 19 min
Þrítugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni hefur lukkudýr hlaðvarpsins snúið aftur í framhaldsþætti sem allir hafa beðið eftir! Marín Eydal og Arnór Steinn tókust á við sterkt lið Ástrósar Hindar og Kristjáns í gígantískum vitsmunaslag í hinu gamla og góða stúdíói 9A. Hvert er algengasta orðið í enskri tungu? Hvert er háværasta dýr jarðarinnar? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Arnór Steinn, Marín Eydal, Ástrós Hind og Kristján.
Oct 02, 2024•1 hr 32 min
Þrítugasti og sjötti þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni mættu Magnús Hrafn, Ástrós Hind, Ingi og Kristján til leiks í stúdíó Sána. Ekki missa af þessari veislu og hlustaðu á hundrað mismunandi leiðir til að mjálma vitlaust. Undir hvaða listamannsnafni er tónlistarmaðurinn Richard Starkey betur þekktur? Hvað er Cosa Nostra? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Magnús Hrafn, Ástrós Hind, Ingi og Kristján.
Sep 05, 2024•1 hr 35 min
Þrítugasti og fimmti þáttur Trivíaleikanna en Daníel er mættur aftur og tók á móti Stefáni Geir, Jóni Hlífari, Kristjáni og Inga í meðalheitu stúdíó Sána. Er ælubogi færeyskt orð yfir hringtorg eða regnboga? Hvaða land hefur flesta staði á heimsminjaskrá? Hvaða áfengi drykkur er notaður þegar búið er til Sangria? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Stefán Geir, Jón Hlífar, Kristján og Ingi.
Aug 16, 2024•1 hr 23 min
Þrítugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna, Daníel er ennþá týndur en það er víst góð ástæða fyrir því samkvæmt spurningahöfundi þáttarins Arnóri Steini. Að þessu sinni mættu Marín Eydal, Ástrós Hind, Heiðdís María og Ingi í löðrandi heitt stúdíó undir súð í Grafarvoginum þar sem spænskunni var slett óspart og ekkert var tilsparað. Í hvaða borg er að finna hina frægu Karlsbrú? Hvaða fyrirtæki kom með fyrstu stafrænu myndavélina á almennan markað árið 1999? Þetta og margt annað er tæklað í þættin...
Jul 02, 2024•1 hr 51 min
Þrítugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni brá Arnór Steinn sér í dómarasætið þar sem Daníel er stunginn af út á land yfir sumarið. Kristján og Jón Hlífar tókust á við Inga og Heiðdísi Maríu í löðrandi sveittu stúdíói 33 þar sem engu var til sparað. Hvers konar matvæli er Paneer? Hvernig eru skeljarnar á litinn sem skjóta má á fremsta ökumann í Mario Kart tölvuleikjaseríunni? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Heiðdís María....
May 29, 2024•1 hr 18 min
Þrítugasti og annar þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni er það þemaþáttur um tíunda áratuginn. Arnór Steinn og Daníel Rósinkrans fara um allar trissur tíunda áratugarins er þeir taka á móti Jóni Hlífari og Kristjáni í 90's slag sem lætur Jean-Claude van Damme líta út eins og nýfæddan kettling frænku þinnar. Hver vinanna í Friends átti flestar talaðar línur? Hver Kryddpíanna hætti fyrst í hljómsveitinni? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Arnór Steinn, Daníel Rósinkrans, Jó...
Apr 19, 2024•1 hr 42 min
Þrítugasti og fyrsti þáttur Trivíaleikanna en í stúdíó 9A mættu að þessu sinni meistararnir Einar og Óli úr hlaðvarpinu vinsæla Tveir Fellar . Einar gekk til liðs við okkar allra besta Inga og Óli plús Kristján mynduðu saman ofurliðið "Króli." Í þessari viku opnuðum við einnig fyrir áskrift að hlaðvarpinu inni á Patreon.com/trivialeikarnir fyrir þá sem vilja fá fleiri þætti og meira efni frá Trivíaleikunum - endilega tékkið á því! Hvaða ógeðfellda hráefni er í Sardinska ostinum Casu Martzu? Hvað...
Mar 15, 2024•1 hr 42 min
Stærsta tilkynning í sögu Trivíaleikanna! Vertu með og komdu í áskrift: https://www.patreon.com/trivialeikarnir
Mar 12, 2024•14 min
Þrítugasti þáttur Trivíaleikanna! Í þennan stórmerkilega tímamóta þátt mættu þau Ástrós Hind, Magnús Hrafn, Ingi og Arnór Steinn í stúdíó 9A og létu til sín taka. Hver er fjölmennasta þjóðin sem hefur aldrei unnið til verðlauna á Ólympíuleikum? Hver er mest seldi PEZ karl allra tíma? Hvaða frumefni og gastegund er notuð til að vernda bandarísku stjórnarskrána? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Arnór Steinn, Ástrós Hind, Ingi og Magnús Hrafn.
Feb 13, 2024•1 hr 44 min
Tuttugasti og níundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mætti atvinnu- og landsliðsmaðurinn í handbolta Donni Kristjáns ásamt góðvini sínum Tomma í stúdíó 9A. Á móti þeim tóku reynsluboltarnir Kristján og Ingi í hörkuslag þar sem reynt var á nýtt fyrirkomulag nokkurra spurningaliða. Hver er refsingin fyrir að gleyma að segja „ólsen” í spilinu Ólsen Ólsen? Bílamerki hvaða bílategundar er ekki bara fyrsti bókstafurinn í nafninu heldur er einnig talið tákna handaband kaupanda og seljanda bílsins...
Jan 22, 2024•2 hr 3 min
Tuttugasti og áttundi þáttur Trivíaleikanna. Til leiks mættu Jón Hlífar, Marín Eydal, Kristján og Ástrós Hind í stúdíó 9A. Hver var Borgarstjóri Reykjavíkur áður en að Jón Gnarr tók við embættinu árið 2010? Hvert er algengasta fyrsta eiginnafn kvenna á Íslandi sem hefst á bókstafnum „E”? Af hvers konar dýri er kasmírull unnin? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Jón Hlífar, Marín Eydal, Kristján og Ástrós Hind.
Jan 06, 2024•1 hr 48 min
Tuttugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna og fyrsti bónusþáttur í sögu hlaðvarpsins! Í bónusþáttum leyfum við okkur að breyta út af venjulega formattinu og prófa nýja dagskrárliði, ný þemu og algjörlega ný formött. Að þessu sinni var Jólaþema tekið fyrir og mættu til leiks bræðurnir Valdi og Bjarki en þeir tóku á móti Kristjáni og Heiðdísi Maríu í Jólaslag vitsmuna og kímni þar sem miklu meira en Macintoshi og piparkökum var tortímt. Hver er mest selda Jólasmáskífa allra tíma? Hvaða skrápdýr v...
Dec 11, 2023•1 hr 34 min
Tuttugasti og sjötti þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Marín Eydal og Arnór Steinn þeim Kristjáni og Hnikarri Bjarma í títanískum slag vitsmuna og kómedískrar fagurfræði. Hvaða tvö tónskáld sömdu The Sound of Music ? Hvaða söngkona átti smellinn Milkshake sem kom út árið 2004? Sýklalyf eru stundum kölluð fúkkalyf en hvað þýðir orðið „fúkki"? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Marín Eydal, Arnór Steinn, Kristján og Hnikarr Bjarmi....
Nov 20, 2023•1 hr 25 min
Tuttugasti og fimmti þáttur Trivíaleikanna. Við opnum þáttinn með glænýju og geggjuðu þemalagi en að þessu sinni mættu reynsluboltarnir Ingi og Kristján til leiks á móti Leifi úr 20. þætti og bróður hans Bjarka. Hvaða rómantíska gamanmynd átti upprunalega að heita 3000 ? Um hve margar gráður hallar skakki turninn í Pisa? Hvaða spænski listamaður hannaði vörumerki Chupa Chups sleikjóa? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Bjarki, Ingi, Kristján og Leifur....
Oct 30, 2023•1 hr 18 min
Tuttugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna. Jón Hlífar og Marín Eydal tóku á móti Ástrós Hind og Kristjáni í rosalegum þætti af hlaðvarpinu skemmtilega. Hvaða hljómsveit ber skammstöfun sem stendur fyrir Bangtan Sonyeondan? Hver var fyrsta þjóðin til að senda kött út í geim? Hvers konar baunir eru notaðar í hefðbundið mexíkóst Chili con carne? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Ástrós Hind, Jón Hlífar, Kristján og Marín Eydal.
Oct 07, 2023•1 hr 50 min
Tuttugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna sem útvarpað var í beinni á Útvarp Mosfellsbæ sem partur af bæjarhátíðinni Í túninu heima . Arnór Steinn og Ástrós Hind tóku á móti Inga og Kristjáni í hörkuþætti þar sem snert var á einu og öðru úr heimabæ hlaðvarpsins. Hvert er lengsta fljót Bandaríkjanna? Hvaða tæki skapaði Alexander Graham Bell til að bjarga lífi James A. Garfield forseta Bandaríkjanna? Í upphafsatriði hvaða sjónvarpsþátta grípa aðalpersónurnar epli sem dettur af skilningstrénu? Þet...
Aug 27, 2023•1 hr 24 min
Tuttugasti og annar þáttur Trivíaleikanna sem og annar þemaþátturinn í sögu hlaðvarpsins. Að þessu sinni var þemað tölvuleikir sem þýðir að allar spurningar þáttarins snúast um tölvuleikjasenuna en í þáttinn mættu tveir fyrrum keppendur Arnór Steinn og Marín Eydal en einnig Óli Jóels og Daníel Rósinkrans frá Gametíví. Hvort er Dartrix pokémon eða stinningarlyf? Hvaða svindlkóða notuðu spilarar til að fá pening í upprunalega Sims leiknum? Hve mörg rauð ljós blikkuðu í hinu hrikalega Red Ring of D...
Aug 15, 2023•1 hr 49 min