Tuttugasti og fyrsti þáttur Trivíaleikanna en í þessum þætti mættu gömlu reynsluboltarnir til leiks í stúdíó 9A þegar Jón Hlífar og Magnús Hrafn tókust á við Kristján og Inga í einhverjum rosalegasta þætti hlaðvarpsins hingað til. Frá hvaða landi kemur rétturinn Massaman Karrí upprunalega, í hvaða blóðflokki eru fæstir íslendingar, hvaða ár komu leikjatölvurnar Playstation 3 og Nintendo Wii fyrst út? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Jón Hlífar, Magnús Hrafn, Kristján og Ingi...
Jun 28, 2023•1 hr 46 min
Tuttugusti þáttur Trivíaleikanna en í þennan tímamótaþátt mættu tveir nýjir keppendur til leiks Valdi og Leifur frá borðspilahlaðvarpinu Pant vera Blár! Kristján og Ástrós mættu til leiks á ný eftir svekkjandi endi á síðasti þætti og freista þess hér að sækja sigur í hinu goðsagnakennda stúdíó 9A. Hvað heitir mennski strákurinn í sögunni um Bangsímon? Hvað kallast túnfífill eftir að hann hefur afblómgast? Hvaða kvikmynd frá tíunda áratugnum gerði línuna „Hasta la vista, baby" ódauðlega í poppkúl...
May 30, 2023•1 hr 41 min
Nítjándi og einn allra besti þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu tveir nýjir keppendur til leiks, Marín Eydal frá Gametíví og Ástrós Hind frá hlaðvarpinu Listin og Lífið. Með Marínu í liði var okkar allra besti Arnór Steinn og með Ástrós í liði var okkar einnig allra besti Kristján. Er Bambi Elínmundur löglegt nafn samkvæmt Mannanafnanefnd? Hvað heitir erkióvinur pabba Ronju Ræningjadóttur? Safi hvaða ávaxtar er notaður í kokteilinn „Screwdriver?" Hvaða frægi leikari talar fyrir persónun...
Mar 31, 2023•1 hr 58 min
Átjándi þáttur Trivíaleikanna og sá fyrsti á árinu 2023. Í þessum frábæra þætti mættu tvö lið til leiks í Mekka Trivíaleikanna í stúdíó 9a. Kristján og Hnikarr Bjarmi tókust á við Inga og Heiðdísi Maríu eða Heiðingja eins og liðið er orðið þekkt nú til dags. Í hvaða ríki Bandaríkjanna er að finna Miklagljúfur? Hvaða leikkona talaði fyrir gervigreindina í kvikmyndinni Her frá árinu 2013? Hvort eru fleiri umferðarljós á höfuðborgarsvæðinu eða bílastæði í bílastæðahúsi Hörpu? Þetta og margt annað e...
Feb 27, 2023•1 hr 34 min
Sautjándi þáttur Trivíaleikanna og sá síðasti á þessu ári. Við bombuðum í þennan aukaþátt sem jólagjöf til ykkar kæru hlustendur, gleðilega hátíð og takk fyrir að hafa fylgt okkur í gegnum þetta fyrsta ár okkar sem kornungt hlaðvarp. Þið eruð einfaldlega best. Að þessu sinni tók lið Stefáns Más og Stefáns Geirs eða Stefán í öðru veldi á móti reynslumiklu liði Kristjáns og Jóns Hlífars í glænýju stúdíói eða Stúdíó 2. Hver er næst fjölmennasta borg Grikklands? Hvaða ávöxtur er þurrkaður til þess a...
Dec 23, 2022•1 hr 30 min
Sextándi þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni mættu liðin tvö til leiks í stúdíó 22 í annað skiptið. Kristján og Heiðdís María tóku á móti Inga og nýja keppandanum Fanneyju Ósk í stórskák vitsmuna og vitneskju afar seint um kvöld. Hver er stærsta eyja Breiðafjarðar? Hvaða lið hefur fallið næst oftast úr ensku úrvalsdeildinni? Hvað heitir kaffihúsið í sjónvarpsþáttunum Seinfeld? Í hvaða mánuði fæðast flest börn í Bandaríkjunum? þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Kristján, He...
Dec 18, 2022•1 hr 38 min
Fimmtándi þáttur Trivíaleikanna en í þessum magnaða þætti tókust á tvö lið reynslubolta þegar Arnór Steinn og Ingi mættu Kristjáni og Jóni Hlífari yfir glasi af öli. Ekkert var til sparað og útkoman varð ein af betri þáttum hlaðvarpsins hingað til. Hver er besti árangur Afríkuríkis á HM karla í knattspyrnu? Hvað hefur gamla útgáfan af kettinum Klóa margar tær á hvorum fæti? Eftir hvaða leikriti Williams Shakespeare var unglingakvikmyndin 10 Things I Hate About You skrifuð? Hver slapp einn úr Njá...
Nov 25, 2022•1 hr 50 min
Fjórtándi þáttur Trivíaleikanna en í þessum yndislega þætti mættu Magnús og nýliðinn Stefán Már til leiks gegn Inga og Hnikarri Bjarma. Engu var haldið aftur og stoðir íslensks trivíasamfélags titruðu undan stúdíói 9A. Að þessu sinni bættist A4 og Kubbabúðin í hóp styrktaraðila hlaðvarpsins ásamt ELKO. Hvor hefur gengið í gegnum fleiri skilnaði Kevin Bacon eða Ted Bundy? Hvenær lokaði McDonalds skyndibitakeðjan á Íslandi? Úr hvaða ávöxt er meðlætið „Asíur" framleitt? Hvert er íbúaheiti einstakli...
Oct 30, 2022•1 hr 49 min
Þrettándi þáttur Trivíaleikanna. Í þessum frábæra þætti mættu í stúdíó 9A tvö lið reynslubolta en Jón Hlífar og Kristján tókust á við Inga og Hnikarr Bjarma. Að þessu sinni var ekkert til sparað og þá er þetta einnig fyrsti þátturinn í nýju samstarfi ELKO og Trivíaleikanna þar sem ELKO er orðinn styrktaraðili hlaðvarpsins. Í hvaða landi eru flestir pýramídar heims? Hvort hefur Jackie Chan gefið út fleiri stúdíóplötur eða unnið fleiri óskarsverðlaun? Hvort eru fleiri tröppur fyrir framan Akureyra...
Sep 23, 2022•1 hr 35 min
Tólfti þáttur Trivíaleikanna sem og allra fyrsti þemaþátturinn en þemaþættir eru eins konar bónusþættir fyrir hlustendur þar sem tekið er fyrir eitthvað eitt þema og allar spurningar þáttarins eru úr því efni. Að þessu sinni var þemað Harry Potter heimurinn en fengnir voru fjórir Potter-sérfræðingar til að keppa sín á milli. Lið Heiðdísar Maríu og Inga eða Heiðingi líkt og það hefur verið kallað tók á móti liði Stefáns Geirs og Sólveigar í títanískum slag ófyrirgefanlegra bölvana og galdra. Af h...
Sep 02, 2022•1 hr 19 min
Ellefti þáttur Trivíaleikanna en í þessum frábæra þætti mættu Stefán Geir og Kristján til leiks gegn splunkunýju liði Inga og nýs keppanda að nafni Heiðdísar Maríu sem keppti sinn fyrsta Trivíaleikaþátt. Hið goðsagnakennda stúdíó 9A titraði undan þessum reginslag gáfna og fimmaura en bæði lið tefldu fram öllu mögulegu allt fram á síðustu metrana. Við hvaða haf stendur hafnarborgin Jeddah sem er talin höfuðleiðin til Mekka? Hvaða ár yfirgaf bandaríski herinn Keflavíkurflugvöll? Hvaða ber var leng...
Aug 25, 2022•1 hr 29 min
Tíundi þáttur Trivíaleikanna en í þessum tímamótaþætti var ekkert til sparað! Stefán Geir og Arnór Steinn mættu Jóni Hlífari og Kristjáni í reginslag vitsmuna og kímni í hinu goðsagnakennda stúdíói 9A. Takk kærlega fyrir góðir hlustendur að hafa fylgt okkur þetta lengi og hjálpað okkur að komast að þessum tímamóta-tíunda-þætti. Ég held að orð ömmu rokksins segi allt sem segja þarf: „You're simply the best." Er Fatal Devastation kvikmynd með Sylvester Stallone eða ávöxtur ímyndunarafls spurningah...
Jul 22, 2022•1 hr 33 min
Níundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu þrír splunkunýjir keppendur til leiks, eitthvað sem hefur ekki gerst frá árdögum fyrsta þáttar hlaðvarpsins. Í hið goðsagnakennda stúdíó 9A mætti til leiks lið Jón Arnars og Viktors Huga sem mætti liði Hnikars Bjarma og Hrafns Splidt í sannkölluðum reginslag vitsmuna og seiglu. Er Love in the Time of Sewage rómantísk gamanmynd með John Cusack í aðalhlutverki eða brot af ímyndunarafli spurningahöfundar? Á landamærum hvaða tveggja bandarísku ríkja...
Jul 01, 2022•1 hr 21 min
Áttundi þáttur Trivíaleikanna en í þessum frábæra þætti skáluðu keppendur og dómari í öli og kepptu einn magnaðasta þátt Trivíaleikanna hingað til. Að þessu sinni var þátturinn tekinn upp utan stúdíó 9A eða það er að segja í stúdíó 22. Það voru svo reynsluboltarnir Stefán Geir og Jón Hlífar sem tókust á við fyrrum stigamethafana Inga og Kristján í títanískum vitsmunaslag þar sem ekkert var til sparað. Er Code of Ethics kristilegt rokkband eða þáttur af hinum goðsagnakenndu þáttum Baywatch? Hvaða...
Jun 10, 2022•1 hr 25 min
Sjöundi þáttur Trivíaleikanna, en að þessu sinni var hið goðsagnakennda stúdíó 9A fyllt trivía-reynsluboltum sem og tveimur nýjum keppendum. Þá var einnig eitthvað bogið við dómara, spurningahöfund og þáttastjórnanda að þessu sinni því hann líkist ekkert fyrrum þáttastjórnanda, hvorki í skeggvexti né í skoðunum á ágæti íslenska vegakerfisins. Já það var enginn annar en Arnór Steinn sem tók að sér stöðu þáttastjórnanda að þessu sinni og í fyrsta sinn settist enginn annar en stofnandi Trivíaleikan...
May 30, 2022•1 hr 6 min
Sjötti þáttur Trivíaleikanna, að þessu sinni var ekkert til sparað og voru gerðar miklar breytingar á dagskrárliðum þáttanna til framtíðar. Í hið goðsagnakennda stúdíó 9A mættu tveir nýjir keppendur til leiks, Embla Kristín og Magnús Orri sem tókust á við Trivíaleika-reynsluboltana Inga og Kristján. Hvaða borg er komið að ef siglt er beint í hánorður frá eyjunni Capri? Er Molluscum Contagiosum galdur úr heimi Harry Potter eða kynsjúkdómur? Hvað þýðir nafn ítalska eftirréttsins Tiramisu á ítölsku...
Apr 26, 2022•1 hr 10 min
Fimmti þáttur Trivíaleikanna, í þessum frábæra þætti mættu fjórir reyndir keppendur til leiks í hið goðsagnakennda stúdíó 9A. Arnór Steinn og Ingi tókust á við Magnús Hrafn og Jón Hlífar í títanískum vitsmunaslag þar sem ekkert var til sparað. Hvaða ríki Bandaríkjanna liggur landfræðilega næst Afríku? Hvaða íslenska jurt gefur Brennivíni sitt sérstaka bragð? Hvað kallast skaginn sem liggur milli Eyjafjarðar og Skjálfandaflóa? Á hvaða tölustaf hefjast öll VISA kreditkortanúmer? Á hvaða setningu h...
Feb 25, 2022•1 hr 16 min
Fjórði þáttur Trivíaleikanna. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu m.t.t. covid-19 urðu keppendur og spyrill því miður að bera andlitsgrímur sem hafði áhrif á hljóðgæði þáttarins. Að þessu sinni mættu tveir nýjir keppendur til leiks, Ólafur Patrick og Hafsteinn tókust á við stigahæsta lið Trivíaleikanna hingað til, Stefán Geir og Inga. Er The Circle of Friends sértrúarsöfnuður eða þáttur af Latabæ? Hvaða bandarísku borg var lyft upp af jörðinni hús fyrir hús og hækkuð um nokkra metra um miðja 19. öld?...
Jan 14, 2022•47 min
Þriðji þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni komu tveir nýjir keppendur í þáttinn, Ingi gekk til liðs við Stefán Geir og Kristján gekk til liðs við Jón Hlífar er liðin tókust á í gígantískum trivíaslag. Er Kant borg í Kyrgyzstan eða IKEA húsgagn? Hvaða Bandaríkjaforseti kastaði upp á forsætisráðherra Japans? Hver er yngsti og elsti gestaleikari í sögu sjónvarpsþáttanna Saturday Night Live ? Hver var fyrsti frægi einstaklingurinn til að leika sjálfan sig í Grand Theft Auto tölvuleik? Þetta og mar...
Dec 23, 2021•59 min
Annar þáttur Trivíaleikanna þar sem pöbbkviss stemmarinn er færður heim til þín í miðjum heimsfaraldri. Eftir hnífjafna keppni í fyrsta þætti kom ekki annað til greina en að tapliðið fengi annað tækifæri til að bera sigur úr býtum. Arnór Steinn og Jón Hlífar mæta Stefáni Geir og Magnúsi Hrafni á ný í gígantískum vitsmunaslag. Er Urban Justice bandarískt strákaband eða kvikmynd með Steven Seagal? Í baði af hvers konar matvælum átti Kleópatra að hafa baðað sig til að viðhalda fegurð sinni samkvæmt...
Dec 12, 2021•1 hr 12 min
Allra fyrsti þáttur Trivíaleikanna þar sem við færum ykkur pöbbkviss stemninguna heim í stofu í miðjum heimsfaraldri. Magnús Hrafn og Stefán Geir takast á við Arnór Stein og Jón Hlífar í reginslag í þessum fyrsta þætti. Hver er eini aðalleikaranna sex úr Friends sem lék gestahlutverk í Seinfeld ? Hver söng bakrödd í lagi Dire Straits Money for Nothing ? Hvað þarftu að vera ríkisborgari lengi til að geta boðið þig fram í forsetakosningum Bandaríkjanna? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Þ...
Dec 01, 2021•1 hr