Þjóðmál - podcast cover

Þjóðmál

Þjóðmálwww.thjodmal.is
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#304 - Upplýst umræða um sjávarútveg í miðri upplýsingaóreiðubrælu

Einar Sigurðsson, stjórnarformaður Ísfélagsins, fer yfir stöðuna í sjávarútvegi, starfsemi Ísfélagsins, skráningu félagsins á markað, samþjöppunina sem þurfti nauðsynlega að eiga sér stað, staðreyndalausa umræðu um greinina, samanburðinn á íslenskum og norskum sjávarútvegi, fyrirhugaða skattahækkun ríkisstjórnarinnar, miklar fjárfestingar í greininni, fjárfestingar í „ótengdum” greinum og margt fleira.

Mar 31, 20251 hr 41 minSeason 1Ep. 304

#303 - Afmælis-björkvöld Þjóðmála á Kringlukránni

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um hrakfarir ríkisstjórnarinnar frá þvi að hún tók við völdum fyrir þremur mánuðum, almennt um stöðuna í stjórnmálum, hvort að Stefán Einar sé að stefna að því að verða bæjarstjóri í Garðabæ, hvort að það sé nýtt vandamál fyrir ríkisstjórnina í vændum, hvernig stjórnarandstaðan mun standa sig, um óviðeigandi spjallgrúbbur og margt annað sem vert er að fjalla um á afmælis-bjórkvöldi Þjóðmála. Hlaðvarp Þjóðmála fagnar nú fjögurra ára afmæli og það e...

Mar 27, 20251 hr 33 minSeason 1Ep. 303

#302 – Þriggja mánaða busavígsla ríkisstjórnarinnar að baki – Björn Bjarnason fer yfir stöðuna

Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ræðir um stöðu ríkisstjórnarinnar eftir afsögn menntamálaráðherra, þau ósköp sem hafa gengið yfir á fyrstu þremur mánuðum ríkisstjórnarinnar, ummæli sem hann lét falla um Flokk fólksins í hlaðvarpi Þjóðmála í byrjun ársins og fleira. Þá er rætt um stefnu og orðræðu Bandaríkjaforseta í garð vestrænna ríkja, stöðu mála í Úkraínu, hvort að vestræn ríki þurfi að friðþægjast við Rússa á einhverjum tímapunkti og fleira úr alþjóðamálunum - en einnig um öryggis- og varnarm...

Mar 24, 20251 hr 9 minSeason 1Ep. 302

#301 - Helgarvaktin með Herði og Erni - Þegar þú leggst með hundum færðu flær

Hörður Ægisson og Örn Arnarson fara yfir helstu tíðindi úr pólitíkinni, afsögn mennta- og barnamálaráðherra og vandræði ríkisstjórnarinnar í kringum það mál, nýja borgarstjórann sem hrökklaðist úr formannsstól í Sambandi íslenskra sveitarfélaga, upptakt forsætisráðherra fyrir skattahækkunum og fleira. Þá er rætt um nýlega stýrivaxtalækkun Seðlabankans og hvers megi vænta um frekari vaxtalækkanir, stöðuna á hlutabréfamarkaði, og margt fleira.

Mar 21, 20251 hr 20 minSeason 1Ep. 301

#300 - Bubbi Morthens í ítarlegu viðtali

Bubbi Morthens, einn áhrifa- og afkastamesti tónlistarmaður Íslands í áratugi, er gestur í 300. þættinum í hlaðvarpi Þjóðmála. Rætt er við Bubba um ferilinn sem nú spannar rúm 45 ár, hvort að líf Bubba sé eins og opin bók sem öll þjóðin má lesa, um viðskiptahliðna á því að vera tónlistarmaður, hvort að pólitískar skoðanir hans séu tilviljunum háðar eða hvort að þær endurspegli samfélagið á einhvern hátt, hvort og þá hvernig tónlist hans og textar hafa áhrif á líf fólks og margt fleira....

Mar 18, 20252 hr 12 minSeason 1Ep. 300

#299 – Helgarvaktin með Andrési og Þórði – Mun Ásthildur Lóa kaupa páskaegg? – Hvað gerir Ásgeir í næstu viku?

Andrés Magnússon og Þórður Gunnarsson fjalla um allt það helsta sem á daga okkar hefur drifið síðustu daga, áherslu ríkisstjórnarinnar á strandveiðar gegn betri vitund, hvernig alið er á tortryggni í garð sjávarútvegsins, ummæli menntamálaráðherra um dómskerfið, átök meðal sósíalista, komandi stýrivaxtaákvörðun, verðhækkanir á kaffi og kakó sem hafa áhrif hér á landi – og margt fleira.

Mar 14, 20251 hr 14 minSeason 1Ep. 299

#298 – Borgarstjóri á ofurlaunum – Síðasta fréttin um styrkjamálið enn óskrifuð

Andrea Sigurðardóttir og Sandra Ocares fjalla um ofurlaun borgarstjóra, um það hvernig Reykjavíkurborg hefur fegrað fjárhagsstöðu sína með reikningi Félagsbústaða, hvaða væntingar (ef einhverjar) má hafa til nýs borgarstjórnarmeirihluta, um það hvort að nýr formaður Sjálfstæðisflokksins sé líklegur til að auka fylgi flokksins, um málefni ÍL-sjóðs í samhengi við kröfuna um ríkisrekinn samfélagsbanka og fleira.

Mar 11, 202553 minSeason 1Ep. 298

#297 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Þórði Pálssyni

Sigríður Andersen og Þórður Pálsson ræða um yfirvofandi tollastríð og þau áhrif sem það kann að hafa á vestræn hagkerfi, um viðskiptahindranir Evrópusambandsins og þann skaða sem þær valda íbúum innan sambandsins, um friðarhorfur í Úkraínu, um hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar sem ríkisstjórnin vill ekkert kannast við þegar á reynir, stöðu fjölmiðla og ægivald ríkisfjölmiðilsins á þeim markaði, horfur á lækkun stýrivaxta og margt fleira.

Mar 06, 20251 hr 31 min

#296 – Landsfundarþynnkan – Var framtíðinni frestað?

Andrés Magnússon og Þórður Gunnarsson fara yfir nýafstaðna kosningu um formann Sjálfstæðisflokksins, hvað bar á milli frambjóðenda, hvort að baráttan hafi verið háð á fundinum sjálfum eða fyrir hann, stöðu nýs formanns og hvernig næstu misseri geta litið út og fleira. Auk þess er fjallað um stöðu ríkisstjórnarinnar, undarlegt útspil Dags B. Eggertssonar í umræðu um Evrópumál og margt fleira.

Mar 03, 20251 hr 6 minSeason 1Ep. 296

#295 – Landsfundarkokteill með Andrési og Stefáni Einari

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um kveðjuræðu Bjarna Benediktssonar á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, formannskjör í flokknum sem fram fer um helgina, um neyðarsjóð Ragnars Þórs Ingólfssonar, um borgarstjóra sem veit ekki hvað samningur við kennara mun kosta, vandræði ríkisstjórnarinnar og margt fleira.

Feb 28, 20251 hr 36 minSeason 1Ep. 295

#294 – Gunnar í Almenna og Ólafur í Birtu fara yfir stöðu lífeyrissjóðanna í hagkerfinu

Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins, og Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, ræða um stöðu lífeyrissjóðanna, eignarhald þeirra á skráðum fyrirtækjum og samskiptum við einkafjárfesta, tilnefningarnefndir og áhrif sjóðanna á stjórnarkjör, hvort að lífeyrissjóðirnir eigi að hafa skoðun á starfskjaramálum og kaupréttasamningum, um sjálfbærni stefnu þeirra og ákvörðun um útilokun á fjárfestingum, um samskiptin við Seðlabankann, iðgjöldin, félagafrelsið og...

Feb 25, 20251 hr 16 minSeason 1Ep. 294

#293 – Helgarvaktin með Jóni Sigurðssyni í Stoðum

Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, ræðir um bréf sín til hluthafa félagsins sem vakið hafa athygli á liðnum árum, um rekstur og fjárfestingar Stoða, um fjármálamarkaðinn, mögulegar sameiningar banka, hvernig reglur og skattar bitna helst á viðskiptavinum bankanna, mýtuna um að ríkið þurfi að eiga banka, gagnrýni hans og fleiri á vaxtastefnu Seðlabankans, stöðuna á hagkerfinu og framtíðarhorfur, hlutabréfamarkaðinn, fjárfestingar í ferðaþjónustu og uppbyggingu greinarinnar og margt fleira í efnismi...

Feb 21, 20251 hr 47 minSeason 1Ep. 293

#292 – Guðrún Hafsteinsdóttir í viðtali fyrir formannsframboð

Guðrún Hafsteinsdóttir ræðir um formannsframboð sitt í Sjálfstæðisflokknum, um endalok síðustu ríkisstjórnar, um erindi Sjálfstæðisflokksins, um meintar fylkingar innan flokksins, hvernig stjórnmálamenn líta á atvinnulífið og margt fleira.

Feb 19, 202559 minSeason 1Ep. 292

#291 – Valentínusardagur með Stefáni Einar og Andrési

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson mæta í rólegt og rómantískt í Þjóðmálastofunni fyrir þessa helgi. Það er allt undir í þætti dagsins, listamenn sem gera kröfu á aðra, skrýtin aðför að sjávarútvegi, byrlunarmálið sem Rúv vill helst gleyma, formannskosning í Sjálfstæðisflokknum og innanflokksátök sem fáir vilja kannast við, málefni Grænlands og margt fleira.

Feb 14, 20251 hr 48 minSeason 1Ep. 291

#290 – Hver þarf sjónvarp þegar við fáum allt okkar drama í stjórnmálunum?

Björn Ingi Hrafnsson og Ólöf Skaftadóttir ræða um krísustjórnina á stjórnarheimilinu, það sem helst kom fram – og kom ekki fram – í stefnuræðu forsætisráðherra og umræðum um hana í gærkvöldi, um formannskjör í Sjálfstæðisflokknum og loks stöðuna í Reykjavíkurborg og hvernig framhaldið kann að líta út eftir að borgarstjóri rauf meirihlutasamstarf vinstri flokkanna.

Feb 11, 20251 hr 2 minSeason 1Ep. 290

#289 – Helgarvaktin með Herði og Þórði – Meirihlutinn í borginni á lokametrunum – Kerecis heldur áfram að gefa og gefa

Hörður Ægisson og Þórður Gunnarsson fara yfir allt það helsta. Meirihlutinn í Reykjavíkurborg er kominn að endamörkum og mun springa, við ræðum um vaxtalækkun Seðlabankans og hvers vænta megi í framhaldinu, aukið líf á hlutabréfamarkaði og góð uppgjör í Kauphöllinni, óvænta skattgreiðslu Kerecis, sætaskipun á Alþingi og margt fleira.

Feb 07, 20251 hr 17 minSeason 1Ep. 289

#288 – Af hverju lækka þau ekki bara skatta? – Björt Ólafs og Jens Garðar taka kvöldvaktina

Björt Ólafsdóttir, fv. ráðherra og þingmaður, og Jens Garðar Helgason, nýkjörinn þingmaður, ræða um stöðuna í stjórnmálunum, hverjar helstu áherslurnar og hvaða áherslur vantar, þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar og margt fleira. Þá er rætt um komandi formannskjör í Sjálfstæðisflokknum, hvernig það er að reka fyrirtæki hér á landi, stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og margt fleira.

Feb 04, 20251 hr 17 minSeason 1Ep. 288

#287 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Bundinn er bátlaus maður – Formsatriði var ekki fullnægt

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir fyrsta mánuðinn í lífi ríkisstjórnarinnar, hið nýja styrkjamál, hvernig halda þarf Flokki fólksins í gjörgæslu, um ónot í garð Morgunblaðsins, ráðningu á flokksgæðingum í ráðuneyti menntamála, slaginn um þingflokksherbergin, formannskjör í Sjálfstæðisflokknum og mögulega í Framsóknarflokknum og margt fleira.

Jan 31, 20251 hr 44 min

#286 – Áslaug Arna í viðtali fyrir formannsframboð

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ræðir um formannsframboð sitt í Sjálfstæðisflokknum, hvert flokkurinn á að stefna að hennar mati, hvað hefur misfarist á liðnum árum, hvað hún á við þegar hún segist vilja breyta flokknum, hvernig stjórnarandstöðunni verður háttað og margt fleira.

Jan 27, 20251 hr 7 minSeason 1Ep. 286

#285 – Við erum komnir til að sjá og hirða (peningana frá) Sigurjón digra

Hörður Ægisson og Örn Arnarson ræða um titring í Húsi atvinnulífsins vegna gagnrýni á kjarasamninga, það hvernig íslenska vinnumarkaðsmódelið heftir samkeppnishæfni og lífskjör í landinu, furðulegan fréttaflutning Ríkisútvarpsins um umsvif sjávarútvegsfyrirtækja í atvinnulífinu – sem eru sáralítil þegar nánar er að gáð, um þá miklu styrki sem Flokkur Ingu Sælands hefur fengið án þess þó að vera stjórnmálaflokkur, um samstarf Vís og Íslandsbanka og frekari þreifingar á fjármálamarkaði, væntanlega...

Jan 24, 20251 hr 16 min

#284 – Gisli Freyr og Stefán Einar í Washington

Gísli Freyr og Stefán Einar voru staddir í Washington D.C. þegar innsetningarathöfn nýs forseta fór fram. Við fjöllum um það sem helst vakti athygli okkar í borginni þessa daga, hvers vænta megi af nýjum forseta, um ofsafengin viðbrögð við litlum hlutum og annað sem helst hefur borið á góma á liðnum dögum – sumt í samhengi við það sem er að eiga sér stað heima fyrir og annað ekki.

Jan 21, 20251 hr 22 minSeason 1Ep. 284

#283 – Helgavaktin með Heiðari Guðjóns og Heiðrúnu Lind

Heiðar Guðjónsson og Heiðrún Lind Marteinsdóttir ræða um það sem hefur helst borið á góma hjá nýrri ríkisstjórn, hvort að líklegt sé að hagræðingartillögum verði fylgt eftir, hvort að rétt sé að leggja áherslu á umsókn að Evrópusambandinu, snúna stöðu stjórnarflokkanna vegna strandveiða og fleira. Þá er rætt um líkurnar á lægri vöxtum á árinu, leyfisveitingar í atvinnulífinu, hvaða áhrif áhugi Trump á Grænlandi hefur í för með sér fyrir Ísland, hver sé líklegastur til að verða formaður Sjálfstæð...

Jan 17, 20251 hr 23 minSeason 1Ep. 283

#282 – Kaffispjall með Sigurði G. Guðjónssyni

Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður ræðir um félagafrelsið og rétt starfsmanna veitingastaða til að gera kjarasamning við stéttarfélagið Virðingu, þrátt fyrir mótmæli Eflingar. Þá er rætt um stöðu fjölmiðla, aðgerðir stjórnvalda til að setja hindranir í veg fyrir einstaklinga og fyrirtæki, slaufunarmenningu og loks réttarríkið og það hvernig því var vikið til hliðar við rannsóknir og dómaframkvæmd í hinum svokölluðu hrunmálum.

Jan 14, 20251 hr 7 minSeason 1Ep. 282

#281 – Helgarvaktin – Þú setur mig ekkert á hillu

Hörður Ægisson og Þórður Gunnarsson leiða okkur inn í helgina. Við ræðum um væntanlega formannakjör í Sjálfstæðisflokknum, hvað Dagur B. ætti að gera við ofurlaunin sín, ummæli Katrínar Ólafdóttur hagfræðings um aukna skattheimtu á sjávarútveginn, rándýra auglýsingarherferð Isavia, stöðuna á hlutabréfamarkaði, af hverju það er ekki búið að skipa nýjan varaseðlabankastjóra og margt fleira.

Jan 10, 20251 hr 2 minSeason 1Ep. 281

#280 – Bjarni sprengir stóru tertuna á þrettándanum – Björn Bjarnason fer yfir stöðuna

Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ræðir þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar að sækjast ekki eftir endurkjöri sem formaður Sjálfstæðisflokksins, formannstíð Bjarna, stöðu flokksins og almennt yfir stöðuna í íslenskum stjórnmálum. Þá er einnig rætt um stöðuna í alþjóðastjórnmálum, valdatöku Trump síðar í þessum mánuði, veikleika ESB-ríkjanna, stöðuna í Úkraínu og margt fleira.

Jan 06, 20251 hr 10 minSeason 1Ep. 280

#279 – Nýtt ár og nýtt upphaf með Andrési og Stefáni Einari

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson taka stöðuna í upphafi nýs árs. Við ræðum vel heppnaða Áramótasprengju Þjóðmála sem haldin var í Borgarleikhúsinu, förum yfir nýliðið ár og þá atburðarrás sem hófst strax í upphafi ársins og leiddi af sér tvennar kosningar, hvernig ný ríkisstjórn fer af stað, val á aðstoðarmönnum, áskoranirnar á nýju ári, mögulegt uppgjör í Sjálfstæðisflokknum, stöðu alþjóðamála og margt fleira.

Jan 02, 20251 hr 45 minSeason 1Ep. 279

#276 – Gummi vísar veginn

Guðmundur Hafsteinsson, Gummi, fjallar um nýútkoma bók sína þar sem sagt er frá störfum hans hjá Google, Apple og öðrum fyrirtækjum í tækniheiminum. Rætt er um ástæður fyrir velgengni eða falli stórra fyrirtækja, vandanum sem skapast þegar frumkvöðlar flækjast fyrir í vexti sinna eigin fyrirtækja, um tækninýjungar sem hafa eða munu breyta lífum okkar, hvort við ættum að óttast gervigreindina eða nýta hana til frekari framfara og margt fleira. Einnig er rætt um störf Guðmundar sem stjórnarformann...

Dec 19, 20241 hr 19 minSeason 1Ep. 276

#275 – Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Opinber starfsmaður

Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, og Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræða um þær ólíku aðstæður sem annars vegar opinberir starfsmenn og hins vegar starfsmenn á einkamarkaði búa við, nýlega úttekt Viðskiptaráðs um sama mál og viðbrögðin við þeirri úttekt, styrki til stjórnmálaflokka, yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræður, rekstur fyrirtækja á leikskólum, skipulagsslys í Reykjavík og margt fleira.

Dec 16, 202456 minSeason 1Ep. 275
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android