Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir stöðuna á markaði, yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræður, hvort að staða ríkissjóðs sé í raun verri en áður var haldið, mikla hækkun á gengi Amaroq MInerals, erlendar fjárfestingar á Íslandi og margt fleira. Í þættinum eru jafnframt flutt tíðindi um Áramótasprengju Þjóðmála, þar sem árið verður gert upp í Borgarleikhúsinu mánudaginn 30. desember nk. Miðasala á viðburðinn hefst strax eftir helgi.
Dec 13, 2024•1 hr 17 min•Season 1Ep. 274
Snorri Másson, nýkjörinn þingmaður Miðflokksins, ræðir um nýafstaðnar kosningar og kosningabaráttuna, það hvernig pólitísk umræða fer fram, hvernig pólitískir andstæðingar tala um hvorn annan, hvernig stjórnmálin gætu þróast næstu ár og margt fleira.
Dec 10, 2024•1 hr 7 min•Season 1Ep. 273
Andrés Magnússon og Þórður Gunnarsson ræða um mögulegt ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, ákvörðun Bjarna Benediktssonar að heimila hvalveiðar, einkunnagjöf fráfarandi ráðherra og margt fleira sem helst ber á góma á vettvangi þjóðmálanna þessa dagana.
Dec 06, 2024•1 hr 6 min•Season 1Ep. 272
Sigríður Ásthildur Andersen og Brynjar Þór Níelsson fara yfir niðurstöður kosninganna um helgina en ræða einnig um það hvernig stjórnmálin eru að þróast, hvort að niðurstaðan feli í sér hægri bylgju eða kratisma, um það hvort að embættismenn ráði meiru heldur en stjórnmálamenn og margt fleira.
Dec 02, 2024•1 hr 21 min•Season 1Ep. 271
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt sem skiptir raunverulega máli fyrir kosningarnar á laugardaginn. Við förum yfir kosningabaráttuna, hvernig næstu tveir sólarhringar gætu litið út, tíðindi af vettvangi stjórnmálann sem okkur bárust á meðan upptöku stóð, skróp nokkurra flokka á kosningafundi á Suðurlandi og margt margt fleira.
Nov 28, 2024•1 hr 47 min•Season 1Ep. 270
Björn Brynjólfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, fara yfir stöðuna þegar fjórir dagar eru í kosningar. Rætt er um það sem helst skiptir máli, það sem ekki hefur verið fjallað um í aðdraganda kosninga, hvort eitthvað hafi komið á óvart, skoðanakannanir og fleira. Við tökum einnig snúning á kosningaprófi Viðskiptaráðs sem yfir 10.000 manns hafa tekið þátt í, hvaða málefni brenna helst á fólki og hver ekki. Þá er tilkynnt um kosni...
Nov 26, 2024•1 hr 3 min•Season 1Ep. 269
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson mæta glaðir í bragði eftir Hátíðarkvöld Þjóðmála. Við ræðum um þau verðlaun sem Þjóðmál veitti aðilum úr atvinnulífinu og helstu rökum á bakvið þau. Þá er einnig fjallað um stýrivaxtalækkun Seðlabankans í vikunni, stöðuna í aðdraganda kosninga, umræðuna um evrópusambandsaðild og margt fleira.
Nov 22, 2024•1 hr 2 min•Season 1Ep. 268
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson frá Morgunblaðinu fara yfir stöðuna í aðdraganda kosninga, hvernig næstu tvær vikur kunna að líta út, helstu málefnin sem fjallað er um í kosningabaráttunni, fjölmiðlaumfjöllun um kosningarnar, hvaða áhrif komandi vaxtaákvörðun kann að hafa og margt fleira sem vert er að fjalla um þegar tæpar tvær vikur eru í kosningar.
Nov 19, 2024•1 hr 27 min•Season 1Ep. 267
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, og Hörður Ægisson ræða um það hvaða áhrif séríslenskar reglur og háir skattar hafa á fjármálakerfið – og að lokum viðskiptavini bankanna. Þá er einnig rætt um líkurnar á stýrivaxtalækkun í næstu viku, gagnrýni Benedikts og annarra á vaxtastefnu Seðlabankans, stöðu heimila og fyrirtækja út frá sjónarhorni bankanna, horfurnar í hagkerfinu, stöðuna á hlutabréfamarkaði og margt fleira.
Nov 16, 2024•1 hr 11 min•Season 1Ep. 266
Hannes Hólmsteinn Gissurarson tekur kaffispjall í Þjóðmálastofunni. Við förum yfir úrslit kosninganna í Bandaríkjunum og það hvað kann að skýra niðurstöður þeirra, tökum stöðuna hér heima, ræðum um óhamingjusama vinstri menn og hægri menn sem eru seinþreyttir til vandræða, um þjóðarstolt og alþjóðahyggju og margt fleira.
Nov 14, 2024•1 hr 9 min•Season 1Ep. 265
Við heimsækjum Guðmund Fertram Sigurjónsson, stofnanda og forstjóra Kerecis, á Ísafjörð í aðdraganda fundar sem haldinn er á vegum Innviðafélags Vestfjarða. Rætt er um stöðuna á Kerecis eftir söluna í fyrra, verðmætasköpun á landsbyggðinni, mikilvægi þess að treysta samgöngur og aðra innviði og margt fleira. Myndina á forsíðu þáttarins tók Eyþór Árnason fyrir Viðskiptablaðið.
Nov 12, 2024•57 min•Season 1Ep. 264
Sigurður Hannesson og Björn Ingi Hrafnsson ræða um viðhorf stjórnmálaflokkanna til atvinnulífsins, hvað hefur borið á góma í kosningabaráttunni sem snýr að atvinnulífinu og fleira. Við förum yfir það helsta sem kom fram á fundi Samtaka iðnaðarins með formönnum flokkanna sem haldinn var í vikunni, umræðu um orkuframleiðslu, skatta, skipulagsmál og margt fleira. Þá er rætt um hið svonefnda ehf-gat sem sumir stjórnmálamenn telja sig þurfa að fylla, hvaða þýðingu kjör á nýjum forseta í Bandaríkjunum...
Nov 07, 2024•56 min•Season 1Ep. 263
Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi ræðir um nokkur atriði sem brenna nú á fólki hvað varðar heimilisbókhaldið, endurfjármögnun lána, einkaneyslu í verðbólgu, aðgengi að húsnæðismarkaði, kauphegðun á tilboðsdögum, hvort að tekjuskattskerfið sé til þess fallið að draga úr áhuga fólks að vinna og margt fleira.
Nov 04, 2024•59 min•Season 1Ep. 262
Andrea Sigurðardóttir og Þórður Gunnarsson ræða um allt það helsta á vettvangi stjórnmálanna, hvernig fylgi flokka er að þróast, hvernig kosningabaráttan er háð, deilur innan Samfylkingarinnar, hvaða áhrif niðurstöður kosninga hafa á fjármál stjórnmálaflokkanna og margt fleira. Þá er greint frá nýrri könnun sem unnin var fyrir Þjóðmál, þar sem spurt var um afstöðu fólks til þess að Dagur B. Eggertsson, fv. borgarstjóri, tæki sæti ofarlega á lista Samfylkingarinnar.
Nov 01, 2024•58 min•Season 1Ep. 261
Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, ræðir um allt það helsta sem snýr að bandarísku forsetakosningunum sem fara fram í næstu viku, af hverju fylgi frambjóðenda hefur þróast með þeim hætti sem nú er, hvernig kosningabaráttan hefur verið, hvað hefur komið á óvart, hverjar áherslurnar eru, hvaða þjóðfélagshópar styðja hvern og margt fleira.
Oct 30, 2024•59 min•Season 1Ep. 260
Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq Minerals, og Heiðar Guðjónsson, hagfræðingur og fjárfestir, fjalla um orkunýtingu, þörfina á aukinni orkuframleiðslu, samhengi orkunýtingu og lífskjara, áskoranir sem bæði Íslandi og heimurinn allur standa frammi fyrir, nýtingu málma og margt fleira sem snýr að orku og auðlindarmálum. Þá er fjallað um nýafstaðinn málfund Þjóðmála um sama erindi sem haldinn var í síðustu viku.
Oct 28, 2024•1 hr 39 min•Season 1Ep. 259
Hörður Ægisson og Örn Arnarson fara yfir allt það helsta sem er að gerast í viðskiptalífinu og stjórnmálunum. Rætt er um vandræði Controlant, þungan rekstur Play, uppgjör bankanna, dyggðarskreytingu LSR, fordæmalausa húsleit vegna bílalúguapóteka, ný nöfn sem eru að koma fram í pólitíkinni og margt fleira.
Oct 25, 2024•1 hr 7 min•Season 1Ep. 258
Andrés Magnússon fer yfir allt það helsta sem er að eiga sér stað á vettvangi stjórnmálanna þessa dagana. Hvernig kosningabaráttan mun þróast, hvort eitthvað hafi komið á óvart enn sem komið er, hvernig raðast á lista og hvaða aðferðum er beitt til þess, hvaða þingmenn eru að kveðja og hvort að ný nöfn muni vekja athygli, hvernig fylgi flokkanna kann að þróast og margt fleira.
Oct 22, 2024•1 hr 11 min•Season 1Ep. 257
Upptaka frá Kosninga-Bjórkvöldi Þjóðmála sem fram fór á Kringlukránni 16. október. Örn Arnarson, Þórður Gunnarsson, Björn Ingi Hrafnsson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir stöðuna, hvort og þá hvaða áhrif komandi kosningar hafa á efnahagsmálin og mögulegt vaxtalækkunarferli, umræðu um skattamál, hvaða mál verða helst á dagskrá í kosningabaráttunni, stjórnarslitin og atburði síðustu daga, hvaða nýju nöfn við munum mögulega sjá á framboðslistum næstu daga og margt fleira.
Oct 17, 2024•1 hr 57 min•Season 1Ep. 256
Ríkisstjórnin er sprungin aðeins viku eftir að Svandís Svavarsdóttir tekur við formennsku í VG. Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir atburði dagsins, kosningabaráttuna sem er framundan, stöðu flokkanna, þau hjaðningavíg sem kunna að eiga sér stað innan einstakra flokka og margt annað sem snýr að stjórnarslitum og komandi kosningum.
Oct 14, 2024•1 hr 6 min•Season 1Ep. 255
Björn Ingi Hrafnsson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir stöðu ríkisstjórnarinnar sem virðist komin á endastöð. Við veltum vöngum yfir því sem kann að eiga sér stað næstu daga, af hverju staðan er orðin með þessum hætti, hvort og þá hvaða flokkar eru tilbúnir í kosningar, þingmenn sem virðast á útleið og margt annað sem snýr að stjórnmálunum.
Oct 12, 2024•1 hr 24 min•Season 1Ep. 245
Albert Jónsson, sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum og fv. sendiherra, fer yfir stöðuna fyrir botni Miðjarahafs nú þegar ár er liðið frá árás hryðjuverkasamtakanna Hamas á Ísrael, hvernig mál hafa þróast á árinu sem liðið er, hvað kunni að vera framundan og hvaða áhrif þetta hefur á alþjóðakerfin. Þá er einnig farið yfir stöðuna á innrás Rússa inn í Úkraínu, veika stöðu Úkraínumanna, hvernig stuðningur vesturlanda á eftir að þróast, komandi forsetakosningar í Bandaríkjunum og fleira. Loks er rætt ...
Oct 07, 2024•1 hr 13 min•Season 1Ep. 253
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um stýrivaxtalækkun Seðlabankans, hvaða áhrif hún hefur og hvernig næstu skref gætu litið út, um ágreining innan peningastefnunefndar, undarlegan upplýsingafund og margt fleira. Þá er rætt um hegðun lífeyrissjóða vegna netverslunar með áfengi, nýtt frumvarp sem hefur verið lagt fram í þeim efnum, ráðgjafa sem maka krókinn vegna nýrra reglna um sjálfbærniskýrslur, fréttir Rúv um látna menn sem eru ríkismiðlinum ekki þóknanlegir, hugmyndir um bann við...
Oct 04, 2024•1 hr 20 min•Season 1Ep. 252
Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson ræða um stöðuna í stjórnmálunum, ný andlit sem hafa litið dagsins ljós í vettvangi stjórnmálanna, nýjasta Þjóðarpúlsinn og hvaða áhrif breytingar á fylgi flokkanna geta haft, hvernig ríkisstjórnarsamstarfið mun þróast, hvers vænta megi næstu vikur og fleira. Þá er rætt um flugskeytaárás Írana á Ísrael sem átti sér stað á meðan upptöku þáttarins stóð.
Oct 01, 2024•55 min•Season 1Ep. 251
Við heimsækjum gagnver Borealis á Blönduósi og tökum stöðuna á fyrirhugaðri stækkun þar á bæ. Hörður Ægisson og Þórður Gunnarsson ræða um uppbyggingu gagnavera hér á landi, hvaða þýðingu þessi starfsemi hefur í hagkerfinu og þar fram eftir götunum. Í því samhengi ræðum við um orkumál og nauðsyn þess að framleiða meiri orku hér á landi, þær orkuskerðingar sem eru yfirvofandi og hvaða áhrif þær hafa. Þá er einnig fjallað um samkeppni á bankamarkaði, ákvörðun bankanna um að hækka vexti, stöðuna í s...
Sep 26, 2024•1 hr 4 min•Season 1Ep. 250
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, ræðir um stöðu þessarar mikilvægu atvinnugreinar, ummæli stjórnmálamanna sem vilja leggja aukna skatta á greinina eða koma böndum á hana, vöxt hennar og vaxtaverki, það hvort að menn hafi lært eitthvað af örum vexti hennar fyrir faraldur, hvernig greinin mun þróast til lengri tíma, hvort að framþróunin verði til á skrifborði stjórnvalda eða hjá fólkinu sem starfar í greininni, hvort að greinin sé í vörn eða sókn, efnahagslegu áhr...
Sep 23, 2024•1 hr 19 min•Season 1Ep. 249
Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fer yfir sviðið í ítarlegu viðtali. Rætt er um ársfund atvinnulífsins og þau skilaboð sem þar koma fram, nauðsyn þess að ná samstöðu um græna orkuframleiðslu – og aukna orkuframleiðslu, svonefnda grænþreytu og óraunhæf markmið í loftslagsmálum, stöðuna í hagkerfinu, hvort að aðilar vinnumarkaðarins hafi reynt að hafa áhrif á ákvarðanir Seðlabankans, um gallað vinnumarkaðsmódel hér á landi og sinnuleysi stjórnvalda gagnvart því...
Sep 19, 2024•1 hr 12 min•Season 1Ep. 248
Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson ræða um deilur innan ríkisstjórnarinnar, atburðarrásina síðustu daga og hvaða afleiðingar hún kann að hafa, hvaða möguleikar eru fyrir hendir ef ríkisstjórnin springur, hvort að hlutabréfin í dómsmálaráðherranum hafi hækkað eða lækkað, hvort að flokkarnir séu tilbúnir í kosningar og margt fleira.
Sep 17, 2024•52 min•Season 1Ep. 247
Við settum Þjóðmálastofuna upp á á Akureyri fyrir vel sótt bjórkvöld Þjóðmála. Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson ræða um það helsta í stjórnmálunum, þingsetningu, fjárlögin, fjölgun ríkisstarfsmanna, vangaveltur um formannsefni VG, mikla fjármagnsþörf ríkisins og fleira. Þá er rætt um kostnað við forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur, fólk sem þykist hafa gaman að því að borga skatta, ríkisstyrki til stjórnmálaflokka og margt fleira.
Sep 13, 2024•1 hr 32 min•Season 1Ep. 246
Ólafur Andri Ragnarsson, sérfræðingur í tæknimálum, kemur í Þjóðmálastofuna og ræðir um þá miklu tækniþróun sem hefur átt sér stað á liðnum árum. Fjallað er um gervigreind og hvort að ástæða sé að óttast þær breytingar sem hún hefur í för með sér, notkun dróna og róbóta, af hverju nær öll framþróun í tæknimálum á sér stað utan Evrópu, hvernig iðnbyltingar fara af stað, hvað verður um störfin sem síðar verða unnin af tölvum og margt fleira.
Sep 09, 2024•1 hr 35 min•Season 1Ep. 245