Þjóðmál - podcast cover

Þjóðmál

Þjóðmálwww.thjodmal.is
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#214 – Jack í kók fyrir Bessastaðakapphlaupið – Bjartasta vonin á markað

Stefán Einar Stefánsson og Örn Arnarson ræða um þau forsetaframboð sem komin eru fram, erfiðar spurningar sem frambjóðendur hafa fengið um lífsgildi sín og viðhorf, hvernig kannanir eru að þróast og fleira því tengt. Þá er rætt um stöðu verðbólgunnar, þróun og áhrif vaxta, skráningu Oculis á markað og annað skemmtilegt í líflegum þætti.

Apr 26, 202453 minSeason 1Ep. 214

#213 – Reynum að hætta að rífast fyrir framan börnin

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, fer yfir stöðuna í stjórnmálunum, undarlega grein nýs formanns VG um orkumál, skot Framsóknar á Samfylkinguna um helgina, stöðu Bjarna Benediktssonar, hvort að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn gætu mögulega unnið saman, um skrýtna stöðu í borginni og afneitun borgarfulltrúa á veruleikanum. Þá er rætt um komandi forsetakosningar, áhugavert viðtal við Katrínu Jakobsdóttur í Spursmálum Morgunblaðsins og margt fleira.

Apr 22, 202459 minSeason 1Ep. 213

#212 – Kjósendum mútað með eigin peningum – Kauptækifæri á markaði

Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson ræða um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem er líkleg til að viðhalda verðbólguþrýstingi, yfirlýsingar þeirra sem héldu því fram að hugtakið gróðaverðbólga væri raunverulegt, skrýtin átök bankaráðs Landsbankans við Bankasýsluna, árshátíðarferð Landsvirkjunar, fjármunina sem streyma til Rúv, hugmyndir um alheimsskatt og margt fleira.

Apr 18, 202457 minSeason 1Ep. 212

#211 – Íran og Ísrael ræsa vélarnar – Albert Jónsson fer yfir stöðuna í alþjóðakerfinu

Albert Jónsson, fv. Sendiherra og einn helsti sérfræðingur landsins í alþjóðamálum, ræðir um áhrif og afleiðingar af árás Írans á Ísrael um helgina, stöðu Ísraels og viðbrögð alþjóðasamfélagsins, hvernig útlitið er framundan á þessu svæði, hvaða hagsmuni Kínverjar hafa á svæðinu og fleira þessu tengt. Þá er rætt um stöðuna í Úkraínu, hvort að Bandaríki og evrópsk ríki hafi brugðist Úkraínumönnum og hvaða staða myndast ef að Rússar hafa betur í því stríði sem nú stendur yfir. Loks er rætt um loft...

Apr 15, 20241 hr 11 minSeason 1Ep. 211

#210 – Endurnýjuð heit í hagkvæmnishjónabandi ríkisstjórnarinnar – Flókin staða í hagkerfinu næstu mánuði

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um skipun nýrrar ríkisstjórnar, hvort líklegt sé að hún nái að leysa þann ágreining sem ríkt hefur, hvaða aðrir möguleikar voru í boði, hvort að VG reyni að sprengja ríkisstjórnina síðar á árinu og hvort að gagnrýni þingmanna Sjálfstæðisflokksins á Svandísi Svavarsdóttur hafi verið innantóm. Þá er rætt um stöðu Alvotech sem hefur valdið óróa á markaði, aukna bindiskyldu bankanna sem mun fela í sér kostnað fyrir viðskiptavini þeirra, brotthvarf aðsto...

Apr 10, 20241 hr 18 minSeason 1Ep. 210

#209 – Mamma fer í framboð og hinir finna bara út úr þessu

Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson ræða um nýjustu vendingar í pólitíkinni, forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur, hvaða áhrif pólitísk fortíð hennar hefur og þá hvaða áhrif hún mun hafa, hverjir möguleikar annarra forsetaframbjóðenda eru, hvernig ný ríkisstjórn getur litið út, hvort að þessar breytingar feli í sér tækifæri fyrir aðra flokka og margt fleira.

Apr 05, 20241 hr 3 minSeason 1Ep. 209

#207 – Páskaþáttur með Þorsteini Má Baldvinssyni

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, fjallar um sögu og uppbyggingu félagsins, hvernig það kom til að þrír ungir frændur ákváðu að reyna fyrir sér í sjávarútvegi, um framtíð greinarinnar og samkeppnina við erlenda risa, hvaða möguleikar kunna að felast í fiskeldi, hvort til greina komi að skrá Samherja í Kauphöllina, hvernig umræða um fiskveiðistjórnunarkerfið hefur þróast, 12 ára baráttu við Seðlabankann og aðra anga kerfisins, ummælin um Gugguna sem átti að vera gul og margt fleira. ...

Mar 27, 20241 hr 20 minSeason 1Ep. 207

#206 – Þú tryggir ekki (samskiptin) eftir á – Forsætisráðherra á ríkisstyrk

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fjalla um fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM, um ákvörðun Seðlabankans um óbreytta stýrivexti og ákall formanns VR um götuóreiðir, forstjóraskipti hjá Play og hvort að hægt sé að reka hér tvö alþjóðleg flugfélög, um hlaðvarpsgerð starfsmanna Rúv um sjálfa sig, um endalausar uppsprettur skattahækkana, um ríkisstyrk til forsætisráðherra og margt fleira.

Mar 20, 20241 hr 15 minSeason 1Ep. 206

#205 – Hér er enginn lítill í sér – Sigmundur Davíð í viðtali

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fv. forsætisráðherra, ræðir um stöðuna í stjórnmálunum bæði hér og erlendis. Rætt er um þunga málaflokka sem stjórnmálin eiga erfitt með, hvort að gagnrýni Miðflokksins á Sjálfstæðisflokkinn eigi rétt á sér, hvort að erindi stjórnmálamanna sé það sama í aðdraganda kosninga og að kosningum loknum, um Samfylkinguna sem Sigmundur Davíð segir vera í tísku, fyrirhugað forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur og margt fleira.

Mar 15, 20241 hr 41 minSeason 1Ep. 205

#204 – Hvað ætlar þú að gera við peninginn sem þú sparar með skólamatnum? – Frumvarp aðlagað að lægsta samnefnara á þinginu

Hörður Ægisson og Örn Arnarson ræða um stöðuna á vinnumarkaði í kjölfar undirritun kjarasamninga, ummæli stjórnarmanns VR um að það sé nóg til af fjármagni í þjóðfélaginu sem þurfi bara að sækja, ummæli Joseph Stiglitz um stýrivexti og verðbólgu, ímyndað samfélagslegt tap af meintu samráði skipafélaga, stjórnarkjör í Festi og undarlega hegðun lífeyrissjóða í aðdraganda kjörsins, fyrirhugaða sölu í Íslandsbanka og margt fleira.

Mar 11, 202454 minSeason 1Ep. 204

#203 – Hugmyndir breyta heiminum – Þjóðmál á Iðnþingi - Aukaþáttur

Hlaðvarpi Þjóðmála er annt um raunhagkerfið og var því að sjálfsögðu statt á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins, sem nú fagna 30 ára afmæli. Rætt er við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, og Sigríði Mogensen, sviðsstjóra iðnaðar- og hugverkasviðs, og Hörð Ægisson, ritstjóra Innherja og yfirgreinanda Þjóðmála. Þá er einnig rætt við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, um erindi sem hún hélt á þinginu.

Mar 09, 202435 minSeason 1Ep. 203

#202 – Vinnumarkaðurinn ríkisvæddur með nýjum samningum – Ríkið vill matarsóun í skólum

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um nýjan kjarasamning sem undirritaður var í dag, hvaða áhrif hann hefur, hvað hann mun kosta, aðdraganda hans, undarlega aðkomu ríkisins að samningnum. Þá er rætt um þá aðila sem eiga ekki aðild að þessum samningi og hver staða þeirra er. Einnig er rætt um árásir á stjórnmálamenn, þörf á öryggisgæslu þeirra og annað því tengt.

Mar 08, 20241 hr 16 minSeason 1Ep. 202

#201 – Lífið er ekki málfundafélag – Hannes Hólmsteinn í viðtali

Hannes Hólmsteinn Gissurarson ræðir um stöðuna í alþjóðakerfinu og pólitíkina hér heima í ítarlegu viðtali. Þá er fjallað um hlutverk háskóla, hvernig þjóðfélagsumræða er að þróast, rifjað er upp þegar hann ásamt fleirum stóð fyrir opnun ólöglegrar útvarpsstöðvar, rætt er um að það sé betra að flytja vörur og þjónustu á milli landa frekari en hermenn, hlutverk ríkisins í þeirri stöðu sem nú er komin upp í Grindavík og margt fleira í afar fróðlegum og skemmtilegum þætti.

Mar 04, 20241 hr 44 minSeason 1Ep. 201

#200 – Hér stöndum við og getum ekki annað

Tímamótaþáttur í hlaðvarpi Þjóðmála, þáttur nr. 200. Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta í viðskiptalífinu, nýtt nafn á sameinað félag Fossa og VÍS, bréf forstjóra Stoða til hluthafa, hversu oft sé hægt að nýta hækkað veiðigjald, samdrátt í hagkerfinu, viðbrögð Seðlabankans, stöðu Alvotech, undarlega baráttu gegn Rapyd, stöðuna í pólitíkinni og margt fleira.

Feb 29, 20241 hr 17 minSeason 1Ep. 200

#199 – Stjórnmálamenn þurfi að þora að taka afstöðu – Diljá Mist í viðtali

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, ræðir um nýlega ferð sína til Úkraínu, um stöðuna í stjórnmálunum hér heima og erlendis, hvernig henni varð við þegar veist var að henni fyrir utan Alþingi nýlega, um stjórnmálamenn sem veigra sér undan því að taka afstöðu til mála, blýhúðun á regluverki og hvort að það séu einhverjar líkur á því að það komi til með að breytast, um ríkisstuðning til stjórnmálaflokka og margt fleira.

Feb 26, 20241 hr 15 minSeason 1Ep. 199

#198 – Gömlu byssurnar sóttar upp í hillu – Ríkisstjórnin með fyrirvara ofan á fyrirvara

Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir allt það helsta á vettvangi stjórnmálanna. Þeir ræða um skrautlega uppákomu í þinginu, hvernig umræða um útlendingamál hefur tekið breytingum, krísustjórnun RÚV fyrir hönd Samfylkingarinnar, ríkisstjórnarsamstarfið, stöðu fjölmiðla, hlaðvarpsframleiðslu opinberra stofnana og margt fleira.

Feb 23, 20241 hr 6 minSeason 1Ep. 198

#197 – Kaldur vetur á austurvígstöðvum – Evrópa vaknar við vondan draum

Kristján Johannessen, fréttastjóri á Morgunblaðinu og stríðsfréttaritari Þjóðmála, ræðir um stöðuna í Úkraínu, hvernig herjum Rússa og Úkraínumanna hefur orðið ágengt, hvort að vestræn ríki séu að standa sig í stuðningi við Úkraínu, um tækjatjón Svartahafsflotans, ummæli Trump um varnarmál Evrópuríkja og margt fleira.

Feb 20, 202446 minSeason 1Ep. 197

#196 – Bjórkvöld Þjóðmála – Live from Kringlukráin

Við færðum Þjóðmálastofuna á Kringlukrána og tókum upp þátt fyrir framan fullt hús af hlustendum sem nutu þess að vera viðstaddir upptöku á valentínusardaginn. Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um undarlega umræðu stjórnmálamanna um HS Orku, hugmyndir VG um svonefnt atvinnulýðræði, um stöðu flugfélaganna og ferðaþjónustunnar, stöðuna í kjaraviðræðum auk þess sem teknar eru áhugaverðar spurningar úr sal. Þátturinn er unninn í samstarfi við Kringlukrána og Ölgerðina.

Feb 15, 20241 hr 24 minSeason 1Ep. 196

#195 – Hversu margar ríkisstofnanir þarf í 400 þúsund manna samfélagi?

Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, og Björgvin Ingi Ólafsson, meðeigandi hjá Deloitte, ræða um samspil hins opinbera og einkageirans, hvort að líkur séu á því að opinberir aðilar nýti sér þær lausnir sem einkafyrirtæki hafa upp á að bjóða eða þá þekkingu og reynslu sem þau búa yfir, hversu margar ríkisstofnanir það þarf til að reka um 400 þúsund manna samfélag, hvernig gögn nýtast til framþróunar og annað þessu tengt sem rætt var á nýafstöðu Viðskiptaþingi.

Feb 12, 20241 hr 2 minSeason 1Ep. 195

#194 – Að loknu Viðskiptaþingi – Hvað eru fylgistölur stjórnmálaflokka að segja okkur?

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um Viðskiptaþing, hvernig Viðskiptaráð hefur þróast, hvort að stjórnendur í atvinnulífinu eigi að taka þátt í þjóðfélagsumræðunni og þá hvernig, um samskipti einkageirans og hins opinbera, hvort að áhersla fyrirtækja á samfélagsskýrslur fari þverrandi og fleira þessu tengt. Þá er einnig tekin umræða um stöðuna í stjórnmálunum, hvort að ólík afstaða stjórnarflokkanna í mörgum málum geri stjórnarsamstarfið erfiðara en það er nú þegar, um fylgi flokkann...

Feb 08, 20241 hr 23 minSeason 1Ep. 194

#193 – Ísland er gulleyja full af tækifærum – Þórdís Kolbrún í ítarlegu viðtali

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra og varformaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir um stöðuna í stjórnmálunum og á stjórnarheimilinu, þá gagnrýni sem ríkisstjórnin fær á sig fyrir að ná ekki saman um stór og mikilvægi mál, um fjármálaráðuneytið og ríkisfjármálin, fyrirhugaða sölu á Íslandsbanka, hvernig hægt er að bregðast við stöðunni í Grindavík, stöðu Sjálfstæðisflokksins og margt fleira í ítarlegu viðtali.

Feb 02, 20241 hr 17 minSeason 1Ep. 193

#192 – Verðbólgan kólnar og gul viðvörun á vinnumarkaði – Er ástæða til að stofna þjóðarsjóð?

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um hjaðnandi verðbólgu og útlitið framundan, hvort að von sá á vaxtalækkun, kjaraviðræður sem nú eru í frosti, ummæli Vilhjálms Birgissonar í nýlegu viðtali í Spursmálum, hvort að rétt sé að stofna þjóðarsjóð eða ekki, andstöðu Landverndar við framförum, um stöðu Alvotech og Marel og margt fleira.

Jan 31, 20241 hr 19 minSeason 1Ep. 192

#191 – Sannleikurinn er fyrsta fórnarlambið í stríði – Upplýst umræða um átökin fyrir botni Miðjarahafs

Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Bjarni Már Magnússon, prófessor og forseti lagadeildar við Háskólann á Bifröst, ræða um stöðuna fyrir botni Miðjarahafs, um þá skautun sem á sér stað í umræðu um þau mál, frjálslega notkun gildishlaðinna hugtaka, og margt annað sem tengist þeim átökum sem nú eiga sér stað á svæðinu.

Jan 25, 20241 hr 21 minSeason 1Ep. 191

#190 – Er fálkinn orðinn múkki? – Tvígrip á glasið og ólögleg blokkering

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir atburði dagsins í pólitíkinni, vantrauststillögu sem var lögð fram en dregin til baka, aðdragandann og mögulegar afleiðingar, stöðuna í ríkisstjórnarsamstarfinu, aðgerðir vegna stöðunnar í Grindavík og þær ríkislausnir sem þar eru boðaðar, færslu utanríkisráðherra um mótmæli vegna hælisleitenda og margt fleira.

Jan 23, 20241 hr 15 minSeason 1Ep. 190

#189 – Launahækkanir en engar kjarabætur – Sáttartónninn brestur á hátónum

Björn Brynjúlfur Björnsson hagfræðingur og Hörður Ægisson ræða um hvaða möguleikar eru til staðar varðandi húsnæði Grindvíkinga, hvaða áhrif það mun hafa á verðbólgu og vexti, hvað óvinsæl ríkisstjórn er líkleg til að gera, um stöðuna í kjaraviðræðum, um verðmætasköpun útflutningsgreina og margt fleira.

Jan 19, 20241 hr 2 minSeason 1Ep. 189

#188 – Svandís í vanda og siðfræðingarnir þagna – Árangur áfram, ekkert stopp í hlaðvarpi þjóðarinnar

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um heitustu mál dagsins. Svandís Svavarsdóttir er í vanda og hlutabréfin eru græn. Það er ekki endilega orsakasamhengi þarna á milli en það er farið nánar yfir það í þættinum. Rætt er um stöðu matvælaráðherrans og ríkisstjórnarinnar, um þróun mála í kjaraviðræðum, dulda varasjóði ríkisins, stöðuna í orkumálum og afturhaldsáróður Landverndar, mögulegan smásölurisa sem kann að vera í smíðum og margt fleira. Svona byrjum við vikuna í hlaðvarpi þjóðarin...

Jan 09, 20241 hr 7 minSeason 1Ep. 188

#187 – Aukin orkuframleiðsla er forsenda framfara og hagsældar

Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq Minerals, og Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og efnahagsráðgjafi Þjóðmála, ræða um orkumál í sögulegu og efnahagslegu samhengi. Rætt er um mögulegan orkuskort hér á landi, hvaða þýðingu það hefur að búa til orku, til hvers hún er nýtt, hvernig hægt er að auka orkuframleiðslu, hvernig við stöndum í samanburði við aðrar þjóðir og margt fleira.

Jan 05, 20241 hr 26 minSeason 1Ep. 187

#186 – Guðni kveður Bessastaði – Margir (halda að þér séu) kallaðir en fáir útvaldir

Stefán Einar Stefánsson og Friðjón Friðjónsson ræða um þá óvæntu ákvörðun Hr. Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, að gefa ekki kost á sér á ný. Rætt er um hvaða ástæður kunna að liggja þar að baki, aðdragandann að því hvernig Guðni varð forseti, sögulegan fróðleik um forsetaembættið og þá sem setið hafa á Bessastöðum, hvaða kandídatar eru líklegir til að bjóða sig fram og það sem meira máli skiptir – hverjir eigi yfir höfuð erindi í þetta embætti.

Jan 02, 20241 hr 44 minSeason 1Ep. 186

#185 – Áramótaþáttur og flugeldasýning á Kringlukránni

Það er mikill gestagangur í síðasta hlaðvarpþætti ársins sem tekinn er upp á Kringlukránni. Við horfum til viðskipta, atvinnulífs, stjórnmála og annarra þáttar þegar við förum yfir allt það helsta á árinu, tökum stöðuna um áramót og leggjum mat á komandi ár. Við förum yfir þetta í þremur lotum. Fyrst koma þeir Hörður Ægisson, Stefán Einar Stefánsson og Örn Arnarson. Í lotu tvö koma þau Gréta María Grétarsdóttir, Hermann Guðmundsson og Þórður Pálsson. Við ræðum við Sophus Sigurþórsson, eiganda Kr...

Dec 30, 20233 hr 7 minSeason 1Ep. 185
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android