Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson ræða um skipan sendiherra, stöðuna á stjórnarheimilinu og í stjórnmálunum almennt, ríkisstjórn sem þorir ekki að takast á við alvöru mál og annað það helsta sem við þurfum að vita fyrir jólin.
Dec 22, 2023•1 hr 5 min•Season 1Ep. 184
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, mætir í Þjóðmálastofuna og svarar spurningum um orku- og loftslagsmál, þau áhrif sem þessir málaflokkar hafa á stjórnmálaumræðu, skattlagningu og lagasetningu. Þá er rætt um það hvort að rétt sé að staðsetja umhverfismál á vinsti-hægri ás stjórnmálanna, hvaða áhrif atvinnulífið hefur á þessa málaflokka, hvort að aðgerðir á Íslandi skipti einhverju máli, einföldun reglugerða, losunarheimildir og kostnað vegna þeirra og margt annað. Ei...
Dec 18, 2023•59 min•Season 1Ep. 183
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta, málefni Marels, verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra sem eru að stórskaða okkur, hvaða kröfur aðilar vinnumarkaðarins munu leggja fram í komandi kjaraviðræðum, horfurnar í hagkerfinu, skort á umræðu um hlutabréfaverð og margt fleira.
Dec 15, 2023•1 hr•Season 1Ep. 182
Gestur Pálmason stjórnendaráðgjafi hefur á undanförnum árum unnið með stjórnendum fyrirtækja, leiðtogum innan félagasamtaka og stjórnmálamönnum bæði hér á landi og erlendis. Hann mætir í Þjóðmálastofuna og ræðir um það hvort að sömu lögmál gildi um leiðtoga í ólíkum geirum, um leiðtoga sem verða værukærir og lenda í kyrrstöðu, hvort að stefnumótun sé ofnotað hugtak, hvort og þá hvernig markmið við ættum að setja okkur, um leiðtoga sem eru svo uppteknir í daglegum amstri að þeir gleyma að móta fr...
Dec 11, 2023•1 hr 4 min•Season 1Ep. 181
Þáttur dagsins var tekinn upp á Jómfrúnni. Þar mættu nokkrir góðir viðmælendur til að ræða meðal annars um listamannalaun, niðurstöðu Pisa könnunar, furðulega umfjöllun ríkisfjölmiðilsins um krónuna, leit að heimildarmönnum, það hvort að Icesave skipti lengur máli í umræðunni, málefni Marels og Eyri Invest, orkumál og margt margt fleira. Meginmarkmið þáttarins var þó að hafa gaman, svona eins og í lífinu sjálfu.
Dec 07, 2023•1 hr 20 min•Season 1Ep. 180
Það hefur hvorki þurft dyraverði né lögreglu í Þjóðmálastofuna hingað til. Það þurfti heldur ekki í dag þegar þeir Brynjar Níelsson og Þórður Gunnarsson mættu og fóru yfir allt það helsta sem ber á góma í okkar ágæta samfélagi. Þar má nefna handtöku þingmanns og undarlega eftirmála þess, mikinn fjölda Íslendinga á loftslagsráðstefnu SÞ, hvort að loftslagsmál snúist í raun um það eða pólitíska hugmyndafræði, vangetu stjórnmálanna í útlendingamálum og margt fleira. Þátturinn endar síðan á nokkrum ...
Dec 01, 2023•43 min•Season 1Ep. 179
Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og Bergur Ebbi Benediktsson, rithöfundur og fyrirlesari, ræða framtíðina í nýjasta hlaðvarpsþætti Þjóðmála. Við vitum ekki nákvæmlega hvernig framtíðin lítur út og hvað hún beri í skauti sér en við vitum þó að hún kemur. Í þættinum ræðum við almennt um framtíðina, hvort við séum of upptekin af því að hugsa um hana, hvort það skiptir máli hvað við vitum eða vitum ekki, hvernig störf munu þróast, hvernig við metum efnahag og hagsæld, lífslíkur, tækniþróun og ...
Nov 27, 2023•1 hr 9 min•Season 1Ep. 178
Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Konráð S. Guðjónsson, fráfarandi aðalhagfræðingur Arion banka og nýráðinn aðstoðarmaður fjármálaráðherra, ræða um stöðuna í hagkerfinu, peningamálafund Viðskiptaráðs og ummæli seðlabankastjóra þar, horfur í vaxtamálum, stöðuna í Grindavík, kjaraviðræður sem eru framundan og margt fleira.
Nov 24, 2023•1 hr 4 min•Season 1Ep. 177
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson gera upp Hátíðarkvöld Þjóðmála sem haldið var á degi íslenskrar tungu í síðustu viku, þær viðurkenningar sem Þjóðmál veittu og margt fleira sem snýr að þessu vel heppnaða kvöldi. Þá er rætt um stöðuna í Eyri Invest sem hefur áhrif á stöðu Marel, hlutabréfakaup forstjóra, komandi stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, stöðuna í Grindavík og margt fleira.
Nov 20, 2023•1 hr 14 min•Season 1Ep. 176
Erla Ósk Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Marine Collagen í Grindvík, og Vilhjálmur Árnason alþingismaður, sem einnig er búsettur í Grindavík, ræða um þá stöðu sem komin er upp í bænum sem nú er búið að rýma, um þær áskoranir sem íbúar standa frammi fyrir við að koma lífinu í eins eðlilegt horf og hægt er, um stöðu atvinnulífsins á svæðinu og margt annað sem snýr að lífi Grindvíkinga um þessar mundir.
Nov 16, 2023•49 min•Season 1Ep. 175
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson mæta í Þjóðmálastofuna, þó ekki skjálfandi eins og jörðin. Í þættinum er meðal annars fjallað um skattahækkanir í Garðabæ, uppsögn forstjóra Marel, lokun Bláa lónsins og það hvernig fámennur hópur hefur komið í veg fyrir að íbúar á Suðurnesjum búi við raforkuöryggi, það hvort að verkalýðshreyfingin sé líkleg til að standa sameinuð að kjarasamningum, grein þar sem krafist var brottreksturs seðlabankastjóra, laxadauða á Vestfjörðum og margt fleira.
Nov 09, 2023•48 min•Season 1Ep. 174
Kristján Johannessen, stríðsfréttaritari Þjóðmála og fréttastjóri á Morgunblaðinu, ræðir um stöðu mála í Úkraínu og fyrir botni Miðjarahafs. Rætt er um það hvort að innrás Rússa inn í Úkraínu falli í skuggann af átökum Ísraelsmenna við hryðjuverkasamtökin Hamas, hvernig vopnum er beitt á þessum svæðum, hvernig stuðningi Vesturlanda er háttað, hvaða hlutverki Ísland gegnir í þessu öllu saman og margt fleira.
Nov 06, 2023•52 min•Season 1Ep. 173
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um átökin sem nú eiga sér stað fyrir botni Miðjarahafs, orsök þeirra og afleiðingar, hvort og þá hvernig afleiðingar þeirra koma fram í íslenskum stjórnmálum. Rætt er um söguna sem liggur þarna að baki, um grimma stefnu Hamas-samtakanna, hvernig tillagan um tveggja ríkja lausn hefur fallið um sjálfa sig, hvort að hægt sé að byggja undir hagsæld í Gaza-svæðinu og margt fleira.
Oct 31, 2023•1 hr 24 min•Season 1Ep. 172
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um hlutabréfamarkað í ládeyðu, flókna stöðu Marel og það hvort að verið sé að skortselja félagið, erfiðleika þingmanna við að eiga vildarpunkta, um verkalýðsleiðtoga sem eru ekki takt við félagsmenn sína, gagnrýni formanns Samfylkingarinnar á skattalækkanir fyrir tekjulága, afslátt við sölu á hlut í Hampiðjunni, litla framleg matvöruverslana, ríkisstyrk til rafmagnsbílaeigenda og margt fleira.
Oct 26, 2023•56 min•Season 1Ep. 171
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, ræðir um stöðu sjávarútvegsins, hvort að leyndarhyggja ríki yfir greininni eins og sumir stjórnmálamenn halda fram, möguleikann á frekar samþjöppun, um fiskeldi og tækifærin sem þar liggja, fjárfestingar og arðsemi og margt annað sem snýr að þessari mikilvægu atvinnugrein á Íslandi.
Oct 23, 2023•1 hr 4 min•Season 1Ep. 170
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, ræðir um stöðuna í efnahagslífinu hér heima og erlendis, hvaða áhrif átök hafa á hagkerfi heimsins og hvort að til sé að verða ójafnvægi í heimskerfinu út frá efnahag þjóða. Þá er rætt um stöðu ríkisstjórnarinnar, hvort það hafi virkilega verið bara best að kjósa Framsókn, Samkeppniseftirlitið og samskipti þess við atvinnulífið, stöðu fjölmiðla og hversu heilbrigt það sé að vera með ríkisstyrkta fjölmiðla, hvalrekaskatt og margt fleira.
Oct 18, 2023•1 hr 9 min•Season 1Ep. 169
Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson ræða um stólaskipti innan ríkisstjórnarinnar, helstu verkefni hennar, hvaða mál hún er að einblína á – og ekki að einblína á – og hver skilaboð hennar eru. Þá er einnig fjallað um átökin fyrir botni Miðjarahafs og það vaxandi gyðingahatur sem við höfum því miður orðið vitni að síðustu daga.
Oct 15, 2023•1 hr 2 min•Season 1Ep. 168
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða í sérstökum aukaþætti um aðdraganda og ástæður fyrir óvæntri afsögn Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Rætt er um álit umboðsmanns Alþingis og þá þau atriði sem þar koma fram, hvaða pólitísku afleiðingar afsögn Bjarna hefur, hvort að andstæðingar Bjarna hafi borið sigur úr býtum og margt annað sem þessu tengist.
Oct 11, 2023•46 min•Season 1Ep. 167
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um það hvort að ákvörðun Seðlabankans um að hækka ekki vexti í síðustu viku hafi átt að koma á óvart eða hvort um biðleik sé að ræða, um skrýtin viðbrögð við ráðherragríni og enn eitt höggið í innri samskipti ríkisstjórnarinnar, um sviptingar á fjármálamarkaði, um þá hræðilegu atburði sem áttu sér stað í Ísrael um helgina og furðuleg viðbrögð þeirra sem styðja aðgerðir Hamas-samtakanna. Þá er einnig farið yfir spurningar úr sal og margt fleira....
Oct 09, 2023•1 hr 8 min•Season 1Ep. 166
Þórður Pálsson mætir í Þjóðmálastofuna og fjallar um aðdraganda og eftirmála fjármálahrunsins haustið 2008, þar sem nú eru liðin 15 ár frá þeim tíma. Við fjöllum um það hvort að staða Íslands hafi verið öðruvísi en annarra ríkja, hvort það sé eðli fjármálamarkaða að taka dýfur eða jafnvel hrynja með reglulegu millibili, hvort og þá hvernig hagkerfið hefur breyst síðan þá og margt fleira. Við tökum einnig stöðuna á hagkerfinu nú, horfurnar í efnahagsmálum, of mikil ríkisútgjöld, háa verðbólgu og ...
Oct 06, 2023•1 hr 10 min•Season 1Ep. 165
Félag viðskipta- og hagfræðinga, í samstarfi við Þjóðmál, stóð fyrir hádegisfundi þann 4. október sem ber yfirskriftina Er fasteignamarkaðurinn kominn út í stýrivaxtahorn . Á fundingum var rætt um nýja stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands, sem var birt fyrr um morguninn, og hvaða áhrif stefna Seðlabankans hefur á fasteignamarkaðinn og efnahaginn. Gestir fundarins voru þau Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri Peningastefnunefndar Seðlabankans, Konráð S. Guðjónsson, aðalhagfræðingur Ario...
Oct 05, 2023•1 hr 6 min•Season 1Ep. 164
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson koma saman á ný. Í þættinum er rætt um smjörklípu verkalýðsforystunnar sem vill allt í einu skipta um gjaldmiðil, stöðuna á eldrauðum hlutabréfamarkaði, stjórnmálamenn sem boða umfangsmiklar aðgerðir við vandamálum sem ekki eru orðin, yfirlætisfulla lækna sem vilja banna alla hluti, vandræðagang Samkeppniseftirlitsins, gula spjaldið sem við gefum Willum Þór og margt annað.
Sep 27, 2023•1 hr 18 min•Season 1Ep. 163
Andrés Jónsson og Friðjón Friðjónsson fara yfir sviðið á vettvangi stjórnmála nú þegar þingið er byrjað á ný, hvaða mál verða hitamál í pólitíkinni í vetur, hvaða mál eru ekki rædd, hvaða verkefni hefur ekki tekist að leysa og fleira í þeim dúr. Þá er rætt um stjórnsýsluklúður Samkeppniseftirlitsins og matvælaráðuneytisins, við förum yfir spurningar úr sal, tekin er umræða um yfirvofandi greiðsluþrot Reykjavíkurborgar og flókna stöðu verðandi borgarstjóra, og margt fleira.
Sep 21, 2023•1 hr 16 min•Season 1Ep. 162
Bjarni Már Magnússon, prófessor og nýr forseti lagadeildar við Háskólann á Bifröst og hafréttarsérfræðingur, ræðir um hafrétt og það hlutverk sem fagið gegnir í öryggis- og varnarmálum, um muninn á fullveldi og sjálfstæði þjóða, átök um umráðasvæði og nýtingu á Norðurslóðum, það hvort að alþjóðastofnanir séu að taka völd af þjóðríkjum og önnur flókin mál sem krefjast úrlausna. Þá er einnig fjallað um hegðun ríkisvaldsins í heimsfaraldi, um skipan dómara og það hvort að mögulegt sé að hefja alvör...
Sep 18, 2023•1 hr 10 min•Season 1Ep. 161
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson rýna fjárlög næsta árs og hvaða, eða öllu heldur hvort þau feli í sér einhver pólitísk skilaboð. Þá er rætt um horfur á vinnumarkaði, hvort að það séu einhverjar líkur á því að vextir fari lækkandi og margt fleira.
Sep 13, 2023•56 min•Season 1Ep. 160
Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir um það helsta á vettvangi stjórnmálanna, ríkisstjórnarsamstarfið, hvort að pólitískt erindi Sjálfstæðisflokksins felist eingöngu í því að bæta eða breyta vondum málum í þinginu, hvernig pólitísk umræða endar oft út í skurði, hvort það sé rangt fyrir stjórnmálamenn að sækjast eftir völdum, hvaða flokk hún vildi síst vilja hafa á þingi og margt fleira.
Sep 08, 2023•1 hr 4 min•Season 1Ep. 159
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ferðast með hlaðvarpi Þjóðmála til að skoða öfluga starfsemi Amaroq Minerals og þau áhrif sem hún hefur haft á atvinnuuppbyggingu á Suður-Grænlandi. Fjallað er um hetjusögur úr atvinnulífinu, breyting á þinginu, hvalveiðar og kvikmyndageirann, sektarsjóð Samkeppniseftirlitsins, innherjaupplýsingar á gjaldeyrismarkaði og margt annað.
Sep 05, 2023•1 hr 13 min•Season 1Ep. 158
Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson eru menn sem taka þriðju vaktina alvarlega. Þeir mæta í Þjóðmálastofuna og taka umræðu um vottaðar hvalveiðar, leikþáttinn í kringum skýrslu matvælaráðherra um sjávarútveginn, hvort það sé vandamál að bankar séu reknir með hagnaði, horfurnar á gasmarkaði í Evrópu í vetur, svartan bakstur og margt margt fleira.
Aug 31, 2023•49 min•Season 1Ep. 157
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, ræðir um stjórnarsamstarfið og samskipti ríkisstjórnarflokkanna, það hvort að flokksráðsfundir Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna hafi kveikt einhverja neista í ástlausu hjónabandi flokkanna, um helstu áskoranirnar framundan, flókin mál sem stjórnmálamenn forðast að ræða og margt fleira.
Aug 28, 2023•49 min•Season 1Ep. 156
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um stýrivaxtahækkun Seðlabankans og það hvort að bankinn sé að missa salinn eða standi fastur fyrir á sínu, um stöðuna á vinnumarkaði og undarleg ummæli verkalýðsforystunnar, um forstjóraskiptin í Kviku banka, hlutverk Stoða í fjárfestingum hér á landi, undarlegan samning Samkeppniseftirlitsins við matvælaráðuneytið og margt fleira. Þá svörum við nokkrum spurningum frá hlustendum sem við fengum sendar fyrir þáttinn.
Aug 23, 2023•1 hr 20 min•Season 1Ep. 155