Hannes H. Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor fer yfir orðræðuna í kosningabaráttunni, þá undarlegu hugmynd að ætla að skattleggja ákveðna hópa og fyrirtæki sérstaklega umfram önnur, þær miklu framfarir sem hafa orðið hjá mannkyninu á sl. 200 árum og hvaða afleiðingar það hefur haft á lífsgæði okkar, hvernig minnka þarf valda stjórn stjórnmálamanna ef við þráum raunverulegt frelsi og margt fleira.
Sep 16, 2021•52 min•Season 1Ep. 34
Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson fara yfir stöðuna fyrir kosningarnar sem fram fara eftir tvær vikur. Það er af nægu að taka, það er tekist á um stóreignaskatta, lítið hægt að gagnrýna ríkisstjórnina, það er búið að fela Loga Einarsson, Píratar kunna ekki kosningabaráttu, Gunnar Smári fer mikinn og Lilja Alfreðs sést varla.
Sep 10, 2021•1 hr 5 min•Season 1Ep. 33
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðiflokksins, ræðir um áherslurnar í stjórnmálunum í aðdraganda kosninga og hættuna á vinstri stjórn að kosningum loknum. Í þættinum er rætt um stöðu ríkisfjármála, fyrirtækja og heimila, um það hvernig framtíðin horfir við Bjarna og áherslur Sjálfstæðisflokksins í umhverfismálum. Hann svarar jafnframt gagnrýnum spurningum um það hvort að það séu embættismenn eða stjórnmálamenn sem ráða ferðinni.
Sep 07, 2021•47 min•Season 1Ep. 32
Hvaða framfarir, ef einhverjar, hafa átt sér stað í skattamálum á undanförnum árum? Er réttlætanlegt að skattleggja hina ríku meira? Má nota skattkerfið til að refsa fólki eða fyrirtækjum eða til að breyta hegðun einstaklinga? Er of mikil skattheimta vanvirðing gagnvart vinnandi fólki? Þurfum við að endurhugsa skattkerfið í heild? Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður efnahags-og viðskiptanefndar, svarar þessum spurningum og fleiri til í ítarlegri umræðu um skatta.
Sep 04, 2021•1 hr 5 min•Season 1Ep. 31
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson, blaðamenn á Morgunblaðinu, fara yfir stöðuna í stjórnmálunum eftir fyrstu sjónvarpskappræður stjórnmálaleiðtoganna.
Sep 01, 2021•1 hr 4 min•Season 1Ep. 30
Börkur Gunnarsson, blaðamaður og fv. starfsmaður NATO, og Gunnar Hrafn Jónsson blaðamaður fara yfir stöðuna í Afganistan eftir að Talibanar náðu þar völdum á ný, hverjum er um að kenna, hvernig framhaldið lítur út í landinu og það hvernig alþjóðasamfélagið bregst við. Þá er einnig rætt um áhrifin af hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin 11. september 2001 sem vissulega tengist stöðunni í dag.
Aug 20, 2021•48 min•Season 1Ep. 29
Friðjón R. Friðjónsson, framkvæmdastjóri og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, fjallar um ákvörðunarfælni í stjórnkerfinu þegar kemur að atvinnusköpun og fjárfestingum, um mikilvægi þess að Sjálfstæðisflokkurinn geri kröfu um umhverfisráðuneytið og mikilvægar aðgerðir í loftslagsmálum, um ímyndaðan ríg á milli höfuðborgar og landsbyggðar og loks um gagnrýni sína á Sjálfstæðisflokkinn sem hann lagði fram í byrjun árs. Þá er fjallað um horfurnar fyrir kosningar, mögulega ríkisstjórn og...
Aug 17, 2021•55 min•Season 1Ep. 28
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, og Stefán Einar Stefánsson, viðskiptaritstjóri Morgunblaðsins, ræða um nýjustu ákvörðun ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveiru-faraldursins, gagnrýni Bjarna Benediktssonar á Svandísi Svavarsdóttur, stöðu og vandamál Landsspítalans, það hvernig sóttvarnaryfirvöld og almannavarnir vilja ritstýra fjölmiðlum, stöðu ríkisstjórnarinnar í núverandi stöðu sem og ráðaleysi stjórnarandstöðunnar.
Aug 10, 2021•1 hr 3 min•Season 1Ep. 27
Anna Hrefna Ingimundardóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, og Konráð Guðjónsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, fjalla um stöðu hagkerfisins, mikilvægustu efnahagsmálin í aðdraganda kosninga, baráttuna við atvinnuleysi og þau tækifæri sem við höfum til að auka lífsgæði til lengri tíma.
Aug 05, 2021•48 min•Season 1Ep. 26
Björn Bjarnason, fv. ráðherra, fjallar um alþjóðasamstarf og alþjóðaviðskipti, mýtusagnir þeirra sem telja að aðilda að Evrópusambandinu myndi bæta landbúnað hér á landi, viðskiptatakmarkanir stórvelda og loks stjórnmálin hér heima og stöðuna í stjórnmálum í aðdraganda kosninga. Þá fjallar Björn einnig um ásakanir þess efnis að faðir hans, Bjarni Benediktsson, hafi reynt að koma í veg fyrir útgáfu á verkum Halldórs Laxness í Bandaríkjunum, en nú hefur verið sýnt fram á að þær sögusagnir voru upp...
Jul 23, 2021•50 min•Season 1Ep. 25
Alejandra Franganillo hefur verið áberandi á samfélagsmiðlun vestanhafs að undanförnu og talað fyrir málstað þeirra sem vilja losna undan oki kommúnistastjórnarinnar á Kúbu. Hún býr í Flórída í Bandaríkjunum en afi hennar og amma flúðu frá Kúbu á 7. áratugnum og faðir hennar síðar. Hún segir okkur frá daglegu lífi á Kúbu, mýtunni um fyrirmyndar heilbrigðis- og menntakerfi og hvað það var sem ýtt af stað þeim mótmælum sem nú standa yfir í landinu.
Jul 21, 2021•18 min•Season 1Ep. 24
Arnar Sigurðsson, víninnflytjandi og stofnandi Sante, fjallar í hlaðvarpi Þjóðmála um tildrög þess að hann opnaði erlenda vefverslun með vín sem slegið hefur í gegn. Hann fjallar um furðulegar ásakanir ÁTVR og segir enga alvöru að baki þeim málum sem fram hafa komið um breytingar á áfengislöggjöfinni á liðnum árum. Þá er fjallað um undarlega andstöðu hagsmunasamtaka og fyrirtækja gegn breytingum á áfengislögum, vínmenningu hér á landi og margt fleira.
Jul 20, 2021•47 min•Season 1Ep. 23
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fv. forsætisráðherra og formaður Miðflokksins, ræðir um stöðuna í stjórnmálum, ríkisstjórnina sem kann kallar stjórn stöðnunar, nýaldarstjórnmál umbúða og ímynda eins og hann orðar það, hann segir flesta flokka vera að breytast í Samfylkinguna og fæstir þori að takast á við alvöru málefni. Þá ræðir hann um „ybbana“, um hatursorðræðu, meintan popúlisma og margt fleira.
Jul 16, 2021•1 hr 12 min•Season 1Ep. 22
Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir vandræðagang Samfylkingarinnar, sem einu sinni átti að verða hinn turninn í tveggja turna tali stærstu stjórnmálaflokkanna en er í dag kofi sem er við það að fjúka um koll, landlausa krata, helstu áherslumál flokkanna fyrir kosningar, hvernig ríkisstjórnarsamstarfið hefur gengið fyrir sig og hvort það sé líklegt til að halda áfram, hvaða kanínu Sigmundur Davíð muni draga upp úr hattinum fyrir kosningar, klókindi borgarstjóra til að tefja lagning...
Jul 08, 2021•1 hr 14 min•Season 1Ep. 21
Sigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir í hlaðvarpi Þjóðmála um sósíalismann og þann skaða sem hugmyndafræðin hefur valdið út um allan heim. Sigurður Már hefur um árabil skrifað um þróun mála í ríkjum á borð við Kína, Venesúela, Kúbu, Níkaragva og fleiri og þekkir vel hvernig sósíalisminn hefur leikið þau ríki. Þá fer hann yfir mýtuna um sósíaldemókratískar hugmyndir á Norðurlöndunum sem gjarnan eru notaðar sem fyrirmyndir hjá nútíma-sósíalistum.
Jul 01, 2021•53 min•Season 1Ep. 20
Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur fjallar um aðdraganda þess að unnin voru drög að nýrri stjórnarskrá, sem þó verður aldrei að raunveruleika. Í hlaðvarpi Þjóðmála fjallar Kristrún einnig um hættuna af því að hverfa frá stjórnarskrárbundnu lýðræði eftir áföll á borð við fjármálakrísu, hvernig vinna Stjórnlagaráðs var í raun óþörf, hvernig stjórnarskráin ver sig sjálf fyrir öfgafullum og illa ígrunduðum breytingum og margt fleira sem tengist umræðu um stjórnarskrá og stjórnmál....
Jun 28, 2021•1 hr 1 min•Season 1Ep. 19
Viðskiptablaðamennirnir Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir þau tímamót sem urðu í dag þegar öllum takmörkunum vegna Covid var aflétt, yfir vel heppnað útboð í Íslandsbanka og þá undarlegu gagnrýni sem hefur komið fram eftir útboðið, yfir helstu verk ríkisstjórnarinnar á kjörtímabilinu og horfurnar framundan og loks um varnarviðbrögð Sósíalistaflokksins þegar búið var að afhjúpa stóran galla í kosningaloforðum þeirra.
Jun 25, 2021•45 min•Season 1Ep. 18
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á að baki langan feril í stjórnmálum – fyrst sem bæjarstjóri í rúm 20 ár og síðar sem þingmaður og ráðherra. Í hlaðvarpi Þjóðmála ræðir hann um ferilinn, árin í stóli bæjarstjóra, stórar ákvarðanir sem hann tók á meðan hann var heilbrigðisráðherra, umræðuna um landbúnað og sjávarútveg og það að velja sér ráðuneyti sem eru ekki endilega fallin til vinsælda. Þá ræðir Kristján Þór um samskipti atvinnulífs og stjórnmála og þá óvægnu umræð...
Jun 15, 2021•1 hr 2 min•Season 1Ep. 17
Þeir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson, blaðamenn á Morgunblaðinu, fara yfir pólitíska umræðu sem ræðst frekar af tilfinningahita en málefnum, aðdragandann og úrslitin í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í nokkrum kjördæmum, uppstillingu Viðreisnar á lista og raunveruleg mál sem bíða þess að á þeim sé tekið en enginn þorir að ræða.
Jun 08, 2021•1 hr 13 min•Season 1Ep. 16
Arnar Þór Jónsson héraðsdómari gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. í hlaðvarpi Þjóðmála ræðir hann um hættuna á því að erlendir embættismenn setji Íslendingum lög, mikilvægi þess að standa vörð um fullveldið og lýðræðið, þátttöku dómara í þjóðfélagsumræðu og ástæðu þess að hann fór úr öruggu dómarasæti í stjórnmálin.
Jun 02, 2021•54 min•Season 1Ep. 15
Vilhjálmur Árnason alþingismaður sækist eftir því að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Í Hlaðvarpi Þjóðmála fer hann yfir áskoranirnar og tækifæri í kjördæminu, uppbygginu fjölbreytts atvinnulífs, það hvernig stefna heilbrigðisráðherra hefur skert þjónustu og loks hvernig hægt er að boða nýja hluti þrátt fyrir að hafa setið átta ár á þingi.
May 22, 2021•45 min•Season 1Ep. 14
Albert Jónsson , fv. sendiherra og einn helsti sérfræðingur landsins í utanríkismálum, fjallar um ráðherrafund Norðurskautsráðsins sem nú fer fram á Íslandi, heimsókn og fund utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Rússlands, samskipti þeirra ríkja og stirð samskipti stórra ríkja í alþjóðakerfinu. Við ræðum einnig um það hvort og þá hvaða hlutverki Ísland gegnir í samstarfi vestrænna þjóða, um áskoranir ríkja í loftslagsmálum, frjáls alþjóðaviðskipti og margt fleira.
May 19, 2021•43 min•Season 1Ep. 13
Þó svo að það sé erfitt ár að baki hjá ferðaþjónustunni þá er ákveðin bjartsýni í greininni. Ferðmenn eru byrjaðir að koma til landsins og fljúga yfir lifandi eldgos þegar þeir lenda í Keflavík. Þau Birna Ósk Einarsdóttir , framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Icelandair, og Jóhannes Þór Skúlason , framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, ræða í Hlaðvarpi Þjóðmála um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar, hvernig við aukum gæðin hennar, hættuna á spekilega úr greininni, hvað telst viðunandi f...
May 12, 2021•43 min•Season 1Ep. 12
Guðrún Hafsteinsdóttir , fyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins og markaðsstjóri Kjörís, býður sig fram í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Í samtali við hlaðvarp Þjóðmála fer hún yfir aðdraganda þess að hún ákvað að gefa kost á sér í stjórnmálum, pólitískar áherslur sínar, hvort rétt hafi verið að ljúka aðildarviðræðum að ESB eða ekki og margt fleira. Hún fjallar einnig um hagsmunagæslu atvinnulífsins og segir að atvinnulífið hafi fram til þessa ekki átt sér marga m...
May 07, 2021•48 min•Season 1Ep. 11
Brynjar Níelsson alþingismaður fjallar um aðförina að Samherja, misbeitingu valds af hálfu Seðlabankans í gjaldeyrismálum, mikilvægi þess að standa vörð um réttarríkið, stöðuna í stjórnumálum, það handónýta plagg sem hin svokallaða nýja stjórnarskrá er, vinnubrögð sín í þinginu og það hvort hann hyggist gefa kost á sér á ný. Þá svarar hann þeim pólitísku andstæðingum sem sakað hafa hann um leti í þinginu.
May 05, 2021•54 min•Season 1Ep. 10
Hörður Ægisson , ritstjóri Markaðarins, og Stefán Einar Stefánsson , fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, fjalla um ummæli Ásgeir Jónssonar seðlabankastjóra um hagsmunahópa og rangtúlkanir á þeim sem vörðu í tæpa viku, um hækkandi laun ríkisstarfsmanna, hvaða afleiðingar hærri verðbólga hefur, það hvort að stjórnmálamenn falli á stöðugleikaprófinu þegar nær dregur kosningum og margt fleira áhugavert.
Apr 30, 2021•49 min•Season 1Ep. 9
Andrés Magnússon , blaðamaður á Morgunblaðinu, og Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir , fréttamaður á RÚV, fara yfir pólitíska landslagið, nýafstaðin og komandi prófkjör og uppstillingar á lista, stjórnarsamstarfið og síðustu vikurnar á þinginu. Kratarósin liggur í jörðinni og enginn virðist ætla að taka hana upp, íhaldið er í vandræðum með endurnýjun en það er slagur framundan í Reykjavík, Viðreisn þarf að koma körlunum fyrir, Miðflokkurinn bíður átekta og Framsókn ætlar að slá lokatóninn. Það eru spen...
Apr 28, 2021•1 hr 9 min•Season 1Ep. 8
Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor fjallar um nýútkomna bók sína um frjálslynda íhaldsmenn, hugmyndir um hið frjálsa markaðshagkerfi og viðhorf frjálshyggjumanna til ríkisvaldsins, það hvernig fiskveiðistjórnunarkerfið varð til og hvernig það hefur bætt hag landsmanna, átökin um samkeppni hugmyndanna sem búið er að úthýsa úr háskólasamfélaginu, vondar hugmyndir um alþjóðlega skattastefnu og margt annað í ítarlegu viðtali í hlaðvarpi Þjóðmála.
Apr 26, 2021•1 hr 21 min•Season 1Ep. 7
Óli Björn Kárason , þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fjallar um það hvernig stefna heilbrigðisráðherra skerðir lífsgæði hér á landi, hættuna af tvöföldu heilbrigðiskerfi, mikilvægi þess að fólk fái þá þjónustu sem það á rétt á að fá og möguleika á auknu atvinnufrelsi og fjölbreytni í heilbrigðiskerfinu. Þá fjöllum við um síðustu mánuði kjörtímabilsins, það sem áunnist hefur og það sem miður hefur farið á kjörtímabilinu og það hvort að Óli Björn hyggist bjóða sig fram á ný eða ekki....
Apr 16, 2021•1 hr 5 min•Season 1Ep. 6
Björn Ingi Hrafnsson fjölmiðlamaður og Viggó Jónsson ráðgjafi ræða um aðgerðir í sóttvörnum, umræðuna í kringum sóttvarnir og aðgerðir yfirvalda, hverjir það eru sem stýra landinu í raun og veru og hversu lengi þetta ástand mun hafa áhrif á líf okkar.
Apr 13, 2021•1 hr 2 min•Season 1Ep. 5