Þjóðmál - podcast cover

Þjóðmál

Þjóðmálwww.thjodmal.is
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#64 – Vesturlönd þurfa að standa með Úkraínu í orði og á borði – Björn Bjarnason fer yfir stöðuna

Björn Bjarnason, fv. ráðherra, hefur fylgst með alþjóðastjórnmálum í áratugi. Hann ræðir hér um innrás Rússa inn í Úkraínu, brjálaðar hugmyndir Pútíns um afturhvarf til keisaratíma, stöðu og áhrif vestrænna ríkja sem munu þurfa að bregðast við innrásinni, áhrifin á samstarf ríkja í Evrópu, áhrifin sem þetta ástand kann að hafa hér á landi og hvaða hlutverki Ísland getur gegnt. Þá svarar hann einnig spurningum um það hvort að vestrænir stjórnmálaleiðtogar séu of veikgeðja til að takast á við hrot...

Feb 25, 20221 hr 5 minSeason 1Ep. 64

#63 – Verbúðin – Lokakafli og uppgjör – Hvernig varð kvótakerfið til?

Þjóðin hefur legið yfir sjónvarpsþáttunum Verbúð á síðustu vikum, enda verður ekki annað sagt en að þættirnir séu frábært afþreyingarefni. Í framhaldi af því má þó velta fyrir sér hvernig þessi saga varð til. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, og Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði, fara yfir það hvernig og hvenær fiskveiðistjórnunarkerfið – sem við í daglegu tali þekkjum sem kvótakerfið – varð til íslenskum sjávarútvegi, hvaða afleiðingar það hafði...

Feb 18, 20221 hrSeason 1Ep. 63

#62 – Hiti í hagkerfinu og kulnun í umferðinni – Helgarvaktin fer yfir málin

Konráð Guðjónsson, aðalhagfræðingur Stefnis sjóða, og Þórður Gunnarsson, hagfræðingur sem gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjör Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar, fara yfir stöðu mála í hagkerfinu, það hvort að vextir Seðlabankans hafi lækkað of hratt og séu að hækka of mikið, hvaða áhrif stuðningsaðgerðir ríkisins hafa haft í heimsfaraldri og hvaða áhrif það mun hafa þegar og ef af þeim verður látið. Þá er einnig fjallað um rekstur Reykjavíkurborgar og það hvaða efnahagslegu áh...

Feb 11, 20221 hr 7 minSeason 1Ep. 62

#61 – Brynjar Níelsson – Maður sátta og samlyndis, svona að mestu

Brynjar Níelsson, sem nú starfar sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, mætir sprækur eftir erfitt haust. Í þessum þætti fjallar hann um þær afleiðingar sem felast í því að færa réttvísina úr réttarsal yfir á samfélagsmiðla, um þá gagnrýni sem kom fram þegar Brynjar var valinn aðstoðarmaður, hvort að tíðarandi hafi áhrif á réttarfar, ólöglega framlengingaráætlun ríkisstjórnarinnar í sóttvarnarmálum og margt fleira.

Feb 08, 20221 hrSeason 1Ep. 61

#60 – Vágesturinn sem verðbólgan er og framlengingaráætlun sóttvarna

Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, ræða um áhrif verðbólgu á efnahagslífið, möguleg áhrif á kjarasamninga, það hvort að Seðlabankinn sé á réttri braut, hvort að sveitastjórnarkosningar kunni að hafa neikvæð áhrif á hagkerfið, ákvörðun stjórnvalda um að framlengja sóttvarnarráðstöfunum – og hvaða áhrif þetta allt hefur á stjórnmálin og samstarf ríkisstjórnarflokkanna.

Jan 31, 20221 hr 16 minSeason 1Ep. 60

#59 – Mannréttindi geta ekki verið gulrót fyrir góða hegðun í Covid

Stefán Einar Stefánsson stýrir þættinum og fær til sín þingmennina Sigmar Guðmundsson og Vilhjálm Árnason. Í þættinum er fjallað um það hvort að við séum komin langt fram úr meðalhófi með því að skikka um 25 þúsund manns í sóttkví og einangrun, með hvaða hætti stjórnmálin eiga að koma að málum þegar fjallað er um sóttvarnarráðstafanir, efnahagslegar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar, stöðu atvinnulífsins í faraldrinum, hversu lengi fólk ætlar að sætta sig við miklar þvinganir og margt fleira.

Jan 22, 202258 minSeason 1Ep. 59

#58 – Leikþáttur stjórnvalda heldur áfram en hvar er þingið?

Sigríður Á. Andersen og Þorsteinn Víglundsson fjalla um nýjustu aðgerðir stjórnvalda í sóttvarnarmálum, spurningarnar sem enginn er að spyrja, hlutverk stjórnmálamanna þegar tekist er á við faraldur, hvort og þá hvaða hlutverki Alþingi á að gegna í þessari vegferð, hversu mikið þetta er að kosta okkur, þróun lýðræðisríkja og margt fleira.

Jan 14, 202258 minSeason 1Ep. 58

#57 – Stjórnkerfi Reykjavíkurborgar of stórt og of dýrt

Eyþór Arnalds hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á ný á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Eyþór fjallar hér um ástæðu þess að hann ákveður að hætta í stjórnmálum í bili, um væntanlegt mótframboð sem hann fékk áður en hann tilkynnti ákvörðun sína og um meinta óeiningu í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins í borginni. Þá fjallar Eyþór um fjárhagslega stöðu borgarinnar, sem er vægast sagt slæm, um framtíðina í samgöngumálum og brýnustu verkefnin sem Reykjavíkurborg stendur frammi fyr...

Jan 07, 202245 minSeason 1Ep. 57

#56 – Úr auga stormsins yfir í hollenskt ævintýri – Birna Ósk kveður (í bili)

Birna Ósk Einarsdóttir hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs hjá Icelandair og mun nú í byrjun árs flytja til Hollands þar sem hún tekur við starfi framkvæmdastjóri markaðssviðs APM Terminals, dótturfélags skipafélagsins Maersk. Birna Ósk starfaði áður sem framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs hjá Landsvirkjun og sem framkvæmdastjóri hjá Símanum um árabil. Í þættinum ræðir hún um þann storm sem Icelandair hefur farið í gegnum sl. tvö ár vegna heimsfarald...

Jan 03, 202238 minSeason 1Ep. 56

#55 – Kampavín og kapítalismi – Árið 2021 gert upp

Með úrvals kampavín við hönd gera Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson upp árið 2021 í hlaðvarpi Þjóðmála. Við fjöllum um ómálefnalega umræðu vegna sóttvarnaraðgerða, áskoranir ríkisstjórnarinnar, það hvort að Sjálfstæðisflokkurinn hafi selt sig ódýrt í stjórnarsamstarfinu, stöðu mála í borginni og mögulega leiðtogakrísu þar, gott ár viðskiptalífsins, undarlega hegðun lífeyrissjóða gagnvart nýsköpunarfyrirtækjum og margt, margt fleira.

Dec 30, 20211 hr 28 minSeason 1Ep. 55

#54 – Vítíslogar sem vonandi loga aldrei aftur og hlutverk Íslands í Seinni heimsstyrjöldinni

Magnús Þór Hafsteinsson fjallar um bókina Vítislogar – Heimur í stríði 1939-1945 eftir breska blaðamanninn Max Hastings. Bókin kom nýlega út á íslensku. Fjallað er um einstaka þætti í sögu Seinni heimsstyrjaldarinnar, sjónarhorn og upplifun almennings sem gerð er góð skil í bókinni og margt fleira. Þá fjallar Magnús Þór, sem skrifað hefur nokkrar bækur um stríðið, um hlutverk Íslands á þeim tíma sem skipalestir fóru um og frá Íslandi.

Dec 26, 202151 minSeason 1Ep. 53

#53 – Desember er mánuður jómfrúarsona – Jakob á Jómfrúnni fjallar 25 ára afmæli Jómfrúarinnar

Jakob Einar Jakobsson, eigandi og framkvæmdastjóri Jómfrúarinnar, fjallar um sögu veitingastaðarins sem nú fagnar 25 ára afmæli, bókina sem hann gaf út í tilefni afmælisins sem og rekstur og horfur veitingageirans. Þá er fjallað um viðbrögðin við Covid-faraldrinum, viðhorf stjórnvalda til veitingageirans, kjaramál og margt fleira.

Dec 20, 202144 minSeason 1Ep. 52

#52 – Albert Jónsson og Bogi Ágústsson fjalla um ástæður og aðdragandann að hruni Sovétríkjanna fyrir 30 árum

Albert Jónsson, fv. sendiherra, og Bogi Ágústsson fjölmiðlamaður fara yfir ástæður og aðdraganda þess að Sovétríkin riðuðu til falls fyrir 30 árum síðan, haustið 1991. Þar með lauk um 70 ára sögu hins kommúníska alræðisríkis. Þeir fara einnig yfir flókin samskipti Rússa við vesturvöld, stöðu og hlutverk Íslands í þessari sögu og margt fleira.

Dec 16, 202153 minSeason 1Ep. 51

#51 - Viðskiptaverðlaun Innherja

Hörður Ægisson og Ólöf Skaftadóttir fjalla um viðskiptaverðlaun Innherja. Alls voru veitt verðlaun í sjö flokkum en auk þess að fjalla um þau fyrirtæki og einstaklinga sem hlutu verðlaun er jafnframt fjallað um þau sem voru tilnefnd. Í lok þáttarins er einnig fjallað um aukastörf ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins sem virðist vanta fleiri verkefni.

Dec 15, 20211 hr 8 min

#50 – Það verða allir að hafa einn skratta – Máni Pétursson fjallar um nýja bók sína um að vera ekki aumingi

Þorkell Máni Pétursson fjallar um bók sína, Þú þarft ekki að vera svona mikill aumingi. Í spjalli við Hlaðvarp Þjóðmála ræðir hann um tilefni þess að hann skrifaði bókina og aðdragandann að henni, hina svokölluðu fórnarlambavæðingu, hvort það sé rétt að tala um aumingjavæðingu, reiðina á samfélagsmiðlum, pólitískar skoðanir, brostna drauma, raunverulegan árangur og margt fleira.

Dec 10, 20211 hr 30 minSeason 1Ep. 50

#49 – Er Jón Gunnars að stela jólunum? – Ríkisstjórnin fann lægsta samnefnarann og komst í jólaskap

Andrés Magnússon blaðamaður ræðir um fyrstu daga stjórnarsamstarfsins, hvort að hægri menn eigi að vera ánægðir eða ósáttir við stjórnarsáttmálann, það hvort að stjórnmálin þurfi að finna lægsta samnefnarann til að geta starfað, hvort að Jóni Gunnarssyni sé statt að sitja sem ráðherra og hvort að hin „vökula“ umræða (e. woke) hafi fæst rætur hér á landi. Þá er rætt um hina þunnu línu sem skilur að vald stjórnmálamanna og embættismanna. (Mynd hér að ofan: Visir/Vilhelm)

Dec 06, 202154 minSeason 1Ep. 49

#48 – Ríkið stækkar og ráðherrastólarnir með – Allt sem þú þarft að vita um nýja ríkisstjórn

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson fara yfir allt það helsta sem snýr að nýrri ríkisstjórn, ráðherraskipan, stjórnarsáttmálanum, stöðu stjórnarandstöðunnar, samstarfinu á milli þessara ólíku flokka, það hvort að ný ríkisstjórn sé ríkisstjórn höfuðborgarinnar á kostnað landsbyggðarinnar, hvort að það sé eitthvað raunverulegt innihald í löngum stjórnarsáttmála eða hvort hann sé froðukenndur, það hvernig stjórnsýslan höndlar þær breytingar sem nú eru boðaðar og það hvort að stórt ríkisvald sé...

Nov 28, 20211 hr 11 minSeason 1Ep. 48

#47 – Peningar vaxa ekki á trjánum, eða hvað? – Björn Berg fjallar um Peninga

Björn Berg Gunnarsson , deildarstjóri Greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka ræðir um nýútkomna bók sína, Peningar . Fjallað er um skemmtilegar sögur í bókinni, sögulega – og jafnvel óvænta - atburði sem tengist peningum, hvort nóg sé til af peningum í heiminum, hvernig nýjar kynslóðir skapa nýjar tekjur og fleira áhugavert sem fram kemur í þessari skemmtilegu og áhugaverðu bók. Þá er einnig rætt um fjármálalæsi og fjármálaskilning almennings, hvernig fjárhagsleg framtíð núverandi kynslóða lítur...

Nov 19, 202150 minSeason 1Ep. 47

#46 – Það vantar leiðtoga á ríkisspítalann - Hver ætlar að leiða okkur út úr Covid?

Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, og Örn Arnarson, pistlahöfundur og fjölmiðlarýnir Viðskiptablaðsins, ræða um stöðuna og þær takmarkanir sem eru í gildi vegna kórónuveiru-faraldursins, vanmátt ríkisspítalans til að takast á við þau vandamál sem við blasa, lélega stjórn spítalans, ómarkvissar aðgerðir sóttvarnaryfirvalda og annað sem tengist þessum óboðna gest sem dregið hefur upp stjórnlyndi úr öllum vösum.

Nov 16, 202157 minSeason 1Ep. 46

#45 – Kertið logar í hlýjum ráðherrabústað en á skrifstofu Eflingar er allt brunnið til grunna – Björn Bjarnason fer yfir málin

Björn Bjarnason, fv. ráðherra, fjallar um myndun nýrrar ríkisstjórnar, stöðu Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórnarsamstarfinu, helstu ágreiningsefnin sem þarf að leysa og veika stöðu stjórnarandstöðuflokkanna. Þá er fjallað um málefni Eflingar þar sem sósíalistar hafa skilið eftir sig sviðna jörð. Loks er fjallað um það hvaða áhrif, ef einhver, loftlagsráðstefnan í Glasgow mun hafa.

Nov 09, 202150 minSeason 1Ep. 45

#43 – SKE í ruglinu – Dagur í bullinu – Hversu sterkur er Ásgeir Jónsson?

Viðskiptablaðamennirnir Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um þjösnaskap Samkeppniseftirlitsins, vel heppnaða sölu á Mílu til erlendra fjárfesta sem mun styrkja samkeppnisstöðu Íslands, baráttuna við verðbólguna og þær kjaraviðræður sem framundan eru. Þá er einnig rætt um húsnæðisvandann í Reykjavík og ósannindi borgarstjóra um ástæður hans. Loks er rætt um stöðu Ásgeirs Jónssonar í stóli seðlabankastjóra, en segja má að hveitibrauðsdagar hans séu brátt á enda....

Oct 30, 202154 minSeason 1Ep. 43

#42 – Hugverkaiðnaðurinn í hnotskurn – Mikilvægt að laða að erlenda fjárfestingu og þekkingu

Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins, ræðir um mikilvægi hugverkaiðnaðarins í íslensku hagkerfi og þau forgangsmál sem bíða nýrrar ríkisstjórnar til að efla hann enn frekar, um það hversu miklu hlutverki endurgreiðslur til rannsóknar og þróunar gegna, nauðsyn þess að laða að erlenda fjárfestingu og ekki síður erlenda þekkingu inn í íslensk fyrirtæki, orkusækinn iðnað og síðast en ekki síst umhverfis- og loftslagsmál í tengslum við iðnað hér á landi.

Oct 26, 202139 minSeason 1Ep. 42

#41 – Pólitískur ómöguleiki við myndun ríkisstjórnar – Of snemmt að mæta í jarðaför Miðflokksins nema SDG gangi í Sjálfstæðisflokkinn

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson fara yfir þau mál sem tefja myndun nýrrar ríkisstjórnar, undarlega afstöðu Vinstri grænna í loftslagsmálum, það hvort að Sigmundur Davíð ætti að ganga í Sjálfstæðisflokkinn og hvað áhrif hann hefði mögulega þar, talningaklúðrið í Norðvestur og hvaða áhrif það kann að hafa. Þá er rætt um einstaka atriði sem höfðu áhrif á ákvörðun kjósenda í nýafstöðnum kosningum, landlæga útlendingaandúð á Íslandi, framtíðarleiðtoga Sjálfstæðisflokksins og margt fleira.

Oct 22, 20212 hr 1 minSeason 1Ep. 41

#40 – Tafir við myndun nýrrar ríkisstjórnar – Ólík staða allra flokka eftir haustið – ASÍ og BSRB tóku upp veskið fyrir kosningar

Karen Kjartansdóttir ráðgjafi og Sigmar Guðmundsson, nýkjörinn þingmaður Viðreisnar, ræða um stöðuna í stjórnmálunum og myndun ríkisstjórnar, hvað tefur ríkisstjórnarmyndun, hvaða möguleikar aðrir kunn að vera í boði, stöðu núverandi stjórnarandstöðuflokka og annað sem er að gerast í stjórnmálunum þessa dagana. Þá er einnig fjallað um það hvort að eðlilegt sé að launþegahreyfingar á borð við ASÍ og BSRB verji tugum milljóna í áróður fyrir kosningar.

Oct 18, 20211 hr 2 minSeason 1Ep. 40

#39 – Seðlabankinn dregur fram vopnabúrið – Það er bjart framundan ef vinnumarkaðurinn og pólitíkin hagar sér vel

Ásdís Kristjánsdóttir , aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Hörður Ægisson viðskiptaritstjóri ræða stöðu efnahagsmála, nýjustu aðgerðir Seðlabankans og hvað kann að vera framundan í þeim málum, komandi kjaraviðræður og stöðu atvinnulífsins sem býr sig undir miklar launahækkanir á næstu misserum, helstu áskoranir nýrrar ríkisstjórnar og Ísland í alþjóðasamanburði.

Oct 11, 202149 minSeason 1Ep. 39

#38 – Sjálfstæðisflokkurinn á foreldravaktinni – Sýndarveruleiki stjórnmálanna

Brynjar Níelsson, fv. þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Stefán Einar Stefánsson, viðskiptaritstjóri Morgunblaðsins, fara yfir stöðuna í stjórnarmyndunarviðræðum, pólitíska landslagið, hvaða erindi Sjálfstæðisflokkurinn á í áframhaldandi samstarf við VG, hvort það sé sjálfsagt mál að halda núverandi ríkisstjórnarsamstarfi áfram og hver eigi að leiða ríkisstjórn.

Oct 05, 20211 hr 22 minSeason 1Ep. 38

#36 – Líf í bómull er tilgangslaust líf – Heiðar Guðjóns fjallar um hagsæld og mikilvægi þess að takast á við áskoranir

Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar og fjárfestir, kemur víða við í ítarlegu viðtali í hlaðvarpi Þjóðmála. Hér fjallar hann um gjaldmiðlamál, tækifæri á Norðurslóðum og miklar breytingar sem hafa átt sér stað á fjölmiðlaumhverfinu og þær breytingar sem eru framundan. Þá ræðir hann um mikilvægi þess að taka ábyrgð á eigin lífi og takast á við áskoranir og dyggðina sem fylgir dugnaði.

Sep 24, 202150 minSeason 1Ep. 36

#35 – Það skiptir máli (að kunna að reikna) – Kristrún slekkur á símanum - Delluhugmyndir Viðreisnar

Hörður Ægisson viðskiptablaðamaður og Örn Arnarson hagfræðingur ræða um það sem hefur – og hefur ekki – komið fram um efnahagsmál og viðskipti í þeirri kosningabaráttu sem nú er brátt á enda. Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki þora að tala um efnahagsmál, Viðreisn boðar delluhugmyndir um tengingu krónunnar við evru, Píratar kunna ekki að reikna og á meðan siglir Framsókn lygnan sjó með því að tala ekkert um efnahagsmál. Þá er farið yfir mál Kristrúnar Frostadóttur sem gerði heiðarlegum fjölmiðla...

Sep 23, 202147 minSeason 1Ep. 35
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android