Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Fastráðnir hjarta- og lungnaskurðlæknar á landinu eru aðeins tveir en þyrftu að vera fjórir til fimm. Erlendir læknar í verktöku hafa verið fengnir til að brúa bilið en það er dýrt og veldur álagi, segir Vigdís Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri hjarta-, æða og krabbameinsþjónustu Landspítala. Benedikt Sigurðsson talaði við hana. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir að horfa verði...
Apr 11, 2023•30 min•Ep. 61
Flugfélagið Niceair hefur gert hlé á starfsemi sinni og aflýst flugi frá og með morgundeginum. Framkvæmdastjóri félagsins segir framhaldið óvíst en það sé ekki gjaldþrota. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við Þorvald Lúðvík Sigurjónsson. Fimmtán hundruð manns frá fjörutíu og þremur löndum hafa sótt um alþjóðlega vernd hér á landi frá áramótum. Fleiri komu frá Venesúela en Úkraínu. Alma Ómarsdóttir tók saman Verjendur í hoppukastalamálinu svokallaða fóru í dag fram á að nánara mat yrði gert á sö...
Apr 05, 2023•30 min•Ep. 60
Spegillinn 4. apríl 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Markús Hjaltason. Stjórn útsendingar Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Stór og sögulegur dagur segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra um Atlantshafsbandalagsaðild Finna; ekki síst fyrir Norðurlandasamstarfið. Aðildin er Tobiasi Billström utanríkisráðherra Svía fagnaðarefni, hann segir ekkert standa í vegi þess að Tyrkir samþykki inngöngu Svíþjóðar líka. Riðusmitið sem greindist á Bergstöðum í Miðfirði í gær ...
Apr 04, 2023•30 min•Ep. 59
690 kindum verður lógað á bænum Bergsstöðum í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu eftir að riða greindist á bænum. Þetta er í fyrsta sinn sem riða greinist í Miðfjarðarhólfi. Valur Grettisson sagði frá. Konur koma meira en helmingi sjaldnar fyrir en karlar í auglýsingu fyrir Bestu deildir karla og kvenna í fótbolta. Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna gera athugasemd við auglýsinguna og vilja að konum sé gert hærra undir höfði. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir segir frá. Líklegt þykir að aukin áhersla ...
Apr 03, 2023•9 min•Ep. 58
Spegillinn 31. mars 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Um 300 manns fá ekki að fara heim til sín í nótt vegan rýminga á Austfjörðum. Á bilinu 70-80 snjóflóð hafa fallið þar síðustu daga. Mikil úrkoma hefur verið og spáð er rigningu fram yfir hádegi á morgun. Ásta Hlín Magnúsdóttir sgði frá og talaði við Minney Siguðardóttur ofanflóðasérfræðing hjá Veðurstofunni. Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir Brynjari Joensen...
Mar 31, 2023•30 min•Ep. 57
Spegillinn 30. mars 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Hús voru enn rýmd á Austfjörðum í dag vegna hættu á ofanflóðum. Hættustig er í gildi í Neskaupstað, á Seyðisfirði, Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og Eskifirði. Fjöldi flóða hefur fallið í dag en ekki í byggð. Magni Hreinn Jónsson fagstjóri ofanflóða er á vakt hjá Veðurstofunni. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann og Óðin Svan Óðinsson fréttamann sem...
Mar 30, 2023•13 min•Ep. 56
Appelsínugul veðurviðvörun gengur í gildi á Austfjörðum klukkan sjö vegna mikillar snjókomu. Reitur fjórtán var rýmdur að nýju á Seyðisfirði í dag. Viðbúið er að færð spillist og hætta á snjóflóðum aukist. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir tók saman. Hækka á tekjuskatt á fyrirtæki, hagræða í rekstri ríkisstofnana og draga úr opinberum framkvæmdum samkvæmt fjármálaáætlun sem kynnt var í dag. Þingmenn úr nær öllum flokkum stjórnarandstöðu lögðu í dag fram vantrauststillögu gegn Jóni Gunnarssyni dóms...
Mar 29, 2023•30 min•Ep. 55
Spegillinn 28. mars 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Guðrún Sólveig Sigurðardóttir, sem vaknaði upp við að fá snjóflóð inn um svefnherbergisgluggann sinn í Neskaupstað í gærmorgun segir tilfinninguna skrítna, en stuðningur samfélagsins skipti miklu. Rúnar Snær Reynisson kom sjóleiðina til Neskaupstaðar í dag. Hann ræddi við Guðrúnu Sólveigu og Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóra í Fjarðabyggð. Deilt er um það fyri...
Mar 28, 2023•30 min•Ep. 54
Hættustig almannavarna vegna snjóflóða er í gildi í þremur bæjum á Austfjörðum. Þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað snemma í morgun. Ólíkar tilfinningar vakna hjá Norðfirðingum í kjölfar flóðsins. Sum muna Norðfirðingar muna sumir eftir mannskæðum snjóflóðum þar í bænum fyrir tæpum 50 árum. Snjóflóðin í Neskaupstað féllu utan við varnargarða bæjarins. Viðbætur eru á teikniborðinu en stranda á fjármagni. Karlmaður frá Rúmeníu hefur stefnt íslenska ríkinu og krefst fimm milljóna í bætur. Hann kom ti...
Mar 27, 2023•30 min•Ep. 53
Spegillinn föstudaginn 24. Mars 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til skoðunar ásakanir á hendur yfirlögregluþjóni hjá embættinu um kynferðislega áreitni. Maðurinn hefur lengi starfað sem lögreglumaður, meðal annars í kynferðisbrotadeild. Litlar upplýsingar fengust um málið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en heimildir fréttastofu herma að kvartanir hafi borist eftir viðburð hjá sta...
Mar 24, 2023•30 min•Ep. 52
Spegillinn, 23. mars 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Sina brann á nærri 100 hekturum suður af Straumsvík í dag. Útihús og bíll urðu eldinum að bráð, slökkvilið er enn að störfum. Kristín Sigurðardóttir sagði frá og talaði við Finn Hilmarsson varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Björgunarsveitarmenn hafa lengi óttast að illa gæti farið við fossinn Glym í Hvalfirði þar sem banaslys varð í gær. Þeir vilja sjá...
Mar 23, 2023•30 min•Ep. 51
Stýrivaxtahækkun Seðlabankans var harðlega gagnrýnd á Alþingi í dag. Ríkisstjórnin þurfi að bregðast við. Umboðsmaður skuldara telur blikur á lofti og ástæða sé til að hafa áhyggjur af þeim sem skulda mikið. Boris Johnson segir að það hefði verið ómögulegt að virða samkomutakmarkanir í Downingstræti 10 vegna þrengsla. Hann kveðst hafa sagt þinginu satt og rétt frá - eftir því sem hann vissi á sínum tíma. Oddviti Vinstri grænna í Hafnarfirði segir fullt tilefni til að krefjast íbúakosningar vegna...
Mar 22, 2023•30 min•Ep. 50
21 sakborningur í Bankastrætismálinu mætti fyrir dómara í dag í umfangsmestu þingfestingu sem sést hefur í héraðsdómi. Allir neituðu sök. Forsætisráðherra segir að stjórnvöld hafi ekki brugðist við af nægilegri festu í loftslagsmálum. Yfirmaður skrifstofu loftlagsþjónustu og aðlögunar segir nauðsynlegar mótvægisaðgerðir við loftslagsbreytingum ekki á færi einstaklinga, þær séu undir stjórnvöldum komnar. Menn verða að flýta sér hægt í orkuskiptum og taka tillit til fuglalífs þegar staðsetning vin...
Mar 21, 2023•30 min•Ep. 49
Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Mikið af gögnum liggja fyrir varðandi handtökuskipun alþjóðasakamáladómstólsins gegn Vladimír Pútín. Mikil samstaða er meðal aðildarríkja dómstólsins að sögn Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Róbert Jóhannsson tók saman. Forstjóri Landsvirkjunar segir að svo virðist sem sjálfstæður vilji stofnana geti komið í veg fyrir nauðsynlegar virkjanaframkvæmdir og málsmeðferartími sé of langur. Benedikt Sigurðsson tók saman og talað...
Mar 20, 2023•30 min•Ep. 48
Spegillinn 17. Mars 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Alþjóðasakamáladómstóllinn í Haag gaf í dag út handtökuskipun gegn Vladimír Pútín Rússlandsforseta vegna stríðsglæpa í Úkraínu. Auk hans er þess krafist að Maria Alekseyevna Lvova-Belova verði handtekin, en hún er yfir skrifstofu réttinda barna sem er undir embætti forsetans. Bresk stjórnvöld fögnuðu handtökuskipuninni undir kvöld. Hið sama gerði utanríkismá...
Mar 17, 2023•10 min•Ep. 47
Dómsmálaráðherra segir álit umboðsmanns Alþingis um rafbyssuvæðingu lögreglunnar ekki hafa áhrif á stöðu sína sem ráðherra. Hann er ósammála álitinu um að bera hefði þurft málið undir ríkisstjórn. Embætti landlæknis hefur svipt sálfræðing starfsleyfi eftir að hann gerðist sekur um alvarleg brot í starfi. Hann er meðal annars sagður hafa gert ADHD-greiningar sem hvergi fengust viðurkenndar. Ragnar Þór Ingólfsson var í dag endurkjörinn formaður VR. Hann segist vilja mæta kröfum um breytingar innan...
Mar 15, 2023•30 min•Ep. 45
Friðarhugmyndir Úkraínumanna verða ræddar á leiðtogafundi í Reykjavík í maí. Það ræðst ekki fyrr en rétt fyrir fundinn hvort Volodomyr Zelensky verður viðstaddur í eigin persónu. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra áttu fund með Volodmyr Zelensky og ráðamönnum í Kiev í dag. Ríkið og sveitarfélögin stefna að því að uppfæra samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Sum verkefnin voru vanáætluð í upphafi en verðhækkanir hafa einnig sitt að segja. Andleg líðan ungmenna beið hnekki í kórónuveirufarald...
Mar 14, 2023•30 min•Ep. 44
Formaður loftslagsráðs segir ekki nauðsynlegt að fórna hagvexti til að draga úr olíunotkun. Orkuskiptin þurfi að ganga hraðar. Ísland nær ekki markmiðum sínum í loftslagsmálum meðan innflutningur á olíu er eins mikil og raun ber vitni. Tölur Orkustofnunnar sýna að olíunotkun hefur aukist talsvert að undanförnu, en slær þó ekki met, eins og Samtök iðnaðarins halda fram. Joe Biden Bandaríkjaforseti segir innistæður almennings í SVB tryggðar. Fjárfestar njóti ekki sömu verndar - þannig virki kapíta...
Mar 13, 2023•30 min•Ep. 43
Spegillinn 10. mars 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Öll félög innan Sjómannasambands Íslands að skipstjórnarmönnum undanskildum felldu nýgerðan kjarasamning. Kjörsókn var fjörutíu og átta prósent. Af þeim kusu tæp þrjátíu og tvö prósent með nýjum kjarasamningi en sextíu og sjö prósent á móti. Um eitt prósent tók ekki afstöðu. Vonbrigði, segir, Valmundur Valmundsson, formaður sambandsins, í viðtali við Gunnhildi K...
Mar 10, 2023•30 min•Ep. 42
Atvinnuleyfi starfsfólks frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins verða ekki lengur bundin atvinnurekanda heldur starfsfólkinu sjálfu, samkvæmt fyrirhuguðum breytingum á lögum um dvalar- og atvinnuréttindi útlendinga. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman og talaði við Katrínu Jakobsdóttur, Málflutningur í stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar fór fram í allan dag. Verjendur segja sakborningana aðeins lítil peð í stórri keðju en saksóknari krefst hámarksrefsingar. Gunnhildur Birgisdóttir talaði vi...
Mar 08, 2023•30 min•Ep. 40
Spegillinn 7. mars 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Seðlabankastjóri hvetur til þjóðarsáttar til að kveða niður verðbólgu en laun forstjóra fyrirtækja í Kauphöllinni hækkuðu ríflega í fyrra. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir það vont að laun forstjóra hækki umfram önnur, ekki síst í núverandi umhverfi verðbólgu og kjarasamninga. Stjórn Landsvirkjunar ætlar að leggja til að greiða út 20 milljarða arð...
Mar 07, 2023•30 min•Ep. 39
Kröfur um gæði og öryggi eiga að vera í öndvegi hjá Vegagerðinni og taka þarf stefnumörkun stofnunarinnar fastari tökum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um Vegagerðina. Kostnaður vegna sálfræðiþjónustu starfsfólks barna- og menntamálaráðuneytisins meira en tífaldaðist á síðustu fimm árum. Kostnaður annarra ráðuneyta var mun lægri. Verkbannsboðun Samtaka atvinnulífsins var löglega boðuð. Félagsdómur komst að þessarri niðurstöðu í dag. Niðurstaða úr atkvæðagre...
Mar 06, 2023•10 min•Ep. 38
Svæðisforingi Hjálpræðishersins segir að svo geti farið að hætt verði að bjóða upp á heitan mat í hádeginu. Þeim sem leita til hersins hefur fjölgað mikið undanfarna mánuði og sjóðirnir eru að tæmast. Arnar Björnsson talaði við Hjördísi Kristinsdóttur. Nauðsynlegt er að bjóða upp á sólarhringsþjónustu fyrir heimilislausar konur, til að minnka líkur á að þær verði fyrir ofbeldi. Ekkert úrræði er til fyrir heimilislausar konur sem eru í neyslu yfir daginn. Alma Ómarsdóttir talaði við Halldóru Dýrl...
Mar 03, 2023•30 min•Ep. 37
Spegillinn 02.03. 2023 Borgarráð samþykkti í dag að leggja niður Borgarskjalasafn og hefja viðræður við Þjóðskjalasafn um sameiginlega vörslu gagna. Borgarstjóri telur að breytingin eigi eftir að auka aðgengi að skjölum. Samfylkingin mælist með mest fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallup, annan mánuðinn í röð. Stuðningur við ríkisstjórnina dvínar og hefur ekki mælst minni. Nýsamþykkt endurskoðuð þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland er stefnulaust plagg. Þetta segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi...
Mar 02, 2023•9 min•Ep. 36
Landlæknir telur líklegt að dauðsföll vegna covid hafi verið um fjögur hundruð í fyrra, ekki rúmlega tvöhundruð eins og talið hefur verið til þessa. Kjaraviðræður BHM, BSRB og Kennarasambands Íslands við hið opinbera virðast í uppnámi. Ríkissáttasemjari lagði fram miðlunartillögu í deilu SA og Eflingar í morgun. 250 fjár og 12 geitur drápust þegar fjárhús brann til kaldra kola á bænum Unaósi í Hjaltastaðaþinghá. Vonlaust var að ná skepnunum út úr brennandi húsinu. Búrfellslundur, fyrirhugað vind...
Mar 01, 2023•30 min•Ep. 35
Spegillinn 27. febrúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Settur ríkissáttasemjari leitar samkomulags um nýja miðlunartillögu í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífisns. Fundur deilenda er boðaður klukkan átta. Magnús Norðdahl, lögmaður Alþýðusambands Íslands segir framganga ríkissáttasemjara í síðustu miðlunartillögu hafi verið óboðleg en horfur séu á að settur ríkissáttasemjari stefni að nánu samráði. Ríkisstjórninni h...
Feb 27, 2023•30 min•Ep. 33
Forseti Úkraínu segir að Úkraínumenn eigi sigurinn vísan gegn Rússum að því gefnu að Vesturlönd standi við loforð sín um aðstoð. Ár er síðan innrás Rússa hófst í Úkraínu. Formenn aðildarfélaga ASÍ segja að það stefni í óefni í gerð næstu kjarasamninga. Framganga ríkisstjórnarinnar er gagnrýnd harðlega í ályktun þeirra. Settur ríkissáttasemjari segist sæta lagi með að leggja fram miðlunartillögu í deilu Eflingar og SA. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir olíulekann frá bensínstöð Costco í Garðabæ g...
Feb 24, 2023•30 min•Ep. 32
Hundruð milljóna tjón varð í bruna fiskeldisfyrirtækis á Tálknafirði í morgun. Slökkvilið er enn að störfum. Tveir slösuðust í brunanum. Áhyggjur eru um að verkföll Eflingar muni hafa áhrif á um 2000 manns á hjúkrunarheimilum á höfuðborgarsvæðinu, fáist ekki undanþága til að fá afgreitt bensín fyrir starfsfólk. Dómsmálaráðherra vill skoða hvort hægt sé að nota hugvíkkandi efni til að hjálpa afbrotamönnum sem glíma við geðræn vandamál og lögreglumönnum sem hafa orðið fyrir áfalli í starfi. Breytt...
Feb 23, 2023•30 min•Ep. 31
Samtök atvinnulífsins samþykktu verkbann á alla félaga í Eflingu með miklum meirihluta atkvæða. Verkbann tekur gildi eftir rúma viku. Lögreglustjórinn á Austurlandi hvetur fólk á svæðinu til þess að auka meðvitund sína um mögulegt Öskjugos og kynna sér leiðbeiningar. Leiðtogar níu Atlantshafsbandalagsríkja í Austur-Evrópu heita hver öðrum stuðningi ef hernaðarógn steðjar að í ríkjum þeirra. Þeir hittust á fundi í Varsjá í dag. Næsta Me-too vakning þyrfti að varpa ljósi á ofbeldi í nánum samböndu...
Feb 22, 2023•30 min•Ep. 30
Spegillinn 21. febrúar 2023 Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Alþýðusamband Íslands hefur fengið frest til að afla gagna og vinna greinargerð í máli Ólafar Helgu Adolfsdóttur gegn ASÍ, Samtökum atvinnulífsins og íslenska ríkinu. Magnús Norðdahl, lögmaður ASÍ, segir niðurstöðu Landsréttar um að Eflingu beri ekki að afhenda félagatal sitt ekki athyglisverða í sjálfu sér. Niðurstaðan snúist fyrst og fremst um að ekki sé heim...
Feb 21, 2023•30 min•Ep. 29