Spegillinn 20. febrúar 2023 Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra segir ekki hafa verið rætt í ríkisstjórn að setja lög á kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra segist hafa þungar áhyggjur af stöðu mála. Deilan sé orðin ein sú harðasta í áratugi, þetta sögðu þau aðspurð á Alþingi af stjórnarandst...
Feb 20, 2023•9 min•Ep. 28
Spegillinn 17. febrúar 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Fundi samninganefndar Eflingar og Samtaka atvinnulífsins lauk hjá ríkissáttasemjara á sjötta tímanum í dag. Honum verður fram haldið klukkan tíu í fyrramálið. Samninganefnd Eflingar frestaði í gærkvöld öllum verkföllum fram á miðnætti aðfaranætur mánudags. Stóru viðskiptabankarnir tilkynntu allir um vaxtahækkanir í dag. Óverðtryggðir vextir á lánum...
Feb 17, 2023•8 min•Ep. 27
Forsætisráðherra segir stjórnvöld ekki ætla að grípa inn í kjaraviðræður með lagasetningu að svo stöddu. Grannt sé þó fylgst með framvindu verkfalla. Komið er að úrslitastund um hvort formlegum kjaraviðræðum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins verður fram haldið. Stjórn og trúnaðarráð Eflingar situr nú á fundi Sænska lögreglan hefur synjað tveimur umsóknum um leyfi til að brenna Kóraninn í Stokkhólmi. Ástæðan er sögð hryðjuverkaógn sem slíkum mótmælum getur fylgt. Fyrrverandi varaforseti Bandarík...
Feb 16, 2023•30 min•Ep. 26
Spegillinn 15.02. 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Settur ríkissáttasemjari hefur fundað með samninganefndum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins síðan klukkan níu í morgun. Hann segir að setið verði fram á kvöld, svo lengi sem eitthvert gagn er af því. Formaður Samtaka atvinnulífsins segir það óhóflega bjartsýni að halda að samningar náist í kvöld en formaður Eflingar er bjartsýnni en áður. Fólk flykkti...
Feb 15, 2023•30 min•Ep. 25
Spegillinn 14. febrúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Verkfall Eflingarstarfsmanna, sem hefst að óbreyttu á morgun, gæti valdið því að bensínstöðvar verði tómar fyrir helgi, með tilheyrandi samgöngutruflunum. Ef verkfallið dregst á langinn hefði það meðal annars áhrif á akstur Strætó. Alma Ómarsdóttir tók saman og talaði við Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs N1 og Jóhannes Svavar Rúnarsson...
Feb 14, 2023•30 min•Ep. 24
Ríkissáttasemjari er tilbúinn að víkja í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu í dag að Efling þyrfti ekki að skila kjörskrá vegna miðlunartillögu hans. Áfellisdómur, að mati formanns Eflingar. Allir vegir til og frá Tálknafirði eru lokaðir vegna vatnavaxta og Snæfellsnesvegur er við það að rofna. Tveir voru fluttir á slysadeild eftir að sprenging varð í metanbíl á bensínstöð í Álfheimum í Reykjavík síðdegis. Hvellur frá sprengingunni heyrðist víða. Net...
Feb 13, 2023•30 min•Ep. 23
Spegillinn 10. febrúar 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn Útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Tuttugu og fimm eru ákærðir í tengslum við hnífaárásina á skemmtiustaðnum Bankastræti Club í Reykjavík í nóvember í fyrra. Einn þeirra er ákærður fyrir tilraun til manndráps og tíu fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Héraðssaksóknari gaf í dag út ákæru í málinu. Sólveig Klara Ragnarsdóttir sagði frá. Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur lokið rannsókn á skotárásarmáli...
Feb 10, 2023•30 min•Ep. 22
Viðræður um sameiningu Íslandsbanka og Kviku um sameiningu eru að hefjast. Samruninn myndi stækka efnahagsreikning Íslandsbanka um 20 prósent. Um tuttugu þúsund manns hafa fundist látin í Tyrklandi og Sýrlandi vegna jarðskjálftana á mánudag. Mikil eyðilegging blasir við íslenskum björgunarsveitarmönnum sem eru í Tyrklandi. Enn finnst fólk á lífi í rústunum Síðasta vaxtahækkun Seðlabankans er í boði ríkisstjórnarinnar og kyndir undir verðbólgubálinu, segir miðstjórn ASÍ. Hagfræðingur samtakanna s...
Feb 09, 2023•30 min•Ep. 21
Ásakanir hafa gengið á víxl milli stjórnenda Íslandshótela og verkfallsvarða Eflingar um verkfallsbrot og hótanir. Samkomulag náðist á milli ríkissáttasemjara og lögmanns Eflingar í dag varðandi kjörskrá félagsins. Róbert Jóhannsson tók saman, rætt við Aðalstein Leifsson ríkissáttasemjara. Annarri umræðu um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra lauk nokkuð óvænt á Alþingi í dag þegar þingmenn Pírata, sem hafa verið sakaðir um málþóf, tóku sig af mælendaskrá. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdótt...
Feb 08, 2023•10 min•Ep. 20
Spegillinn 7. febrúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknmaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Staðfest er að á sjöunda þúsund fórst í jarðskjálftum í Tyrklandi og Sýrlandi í gær, en óttast er að þau séu miklu fleiri. Íslenskt björgunarlið flýgur til Tyrklands í kvöld. Oddur Þórðarson sagði frá. Ríkissáttasemjari segir Eflingu bera lagalega skyldu til að afhenda félagatal sitt. Hann sendi aðfararbeiðni til sýslumanns í morgun til þess að f...
Feb 07, 2023•13 min•Ep. 19
Spegillinn 06.02. 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Hryðjuverkamálinu svonefnda var í dag vísað frá dómi þar sem dómari komst að þeirri niðurstöðu að ákæran væri svo óskýr að sakborningar gætu ekki gripið til viðhlítandi varna. Minnst fimmtán hundruð manns létu lífið í jarðskjálfta í Tyrklandi í nótt og morgun. Íslendingur búsettur á skjálftasvæðinu segir eyðilegginguna afar mikla. Verkföll Eflingar, sem...
Feb 06, 2023•10 min•Ep. 18
Spegillinn 2. febrúar 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn Útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Dómsmálaráðherra og forstjóri Landhelgisgæslunnar sátu fyrir svörum á fundum utanríkismála- og fjárlaganefnda Alþingis í dag vegna tillögu dómsmálaráðherra um að selja TF SIF flugvél Gæslunnar. Formenn nefndanna segja mörgum spurningum ósvarað. Georg Lárusson forstjóri Gæslunnar segir vélina vera eina þá allra öflugustu í heiminum til leitar, björgunar og almann...
Feb 03, 2023•30 min•Ep. 17
"Róttækar" og "afdrifaríkar" eru orðin sem forstjóri Landhelgisgæslunnar notaði í samskiptum við dómsmálaráðuneytið um nauðsynlegar niðurskurðarleiðir ef ekki fengjust frekari fjárheimildir. Meðal hugmynda voru sala flugvélar og varðskips. Samfylkingin fær mest fylgi allra flokka í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup í fyrsta sinn síðan 2009 og mælist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Velferðarráð Reykjavíkurborgar ákvað í gær að hækka gistináttagjald annarra sveitarfélaga í gistiskýlum borgarinnar. Um þrið...
Feb 02, 2023•30 min•Ep. 16
Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir það gríðarleg vonbrigði og mikla afturför að þurfa að selja eftirlitsflugvélina TF-SIF . Hún sé ein af grunnstoðum gæslunnar. Húsleit stendur yfir í strandhúsi Bandaríkjaforseta í Delaware. Húsleitin er sú þriðja á tveimur mánuðum, en áður hafa fundist leynileg skjöl á skrifstofu forsetans og á heimili hans. Komi til verkfalls Eflingar tæmast eldsneytistankar bensínstöðva á nokkrum dögum. Framkvæmdastjóri Olís segir aðgerðirnar ábyrgðarlausar í ljósi almannaha...
Feb 01, 2023•30 min•Ep. 15
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var á Alþingi í dag sökuð um að láta almenning bera allan kostnað vegna aukinnar verðbólgu. Stjórnarandstaðan krefst þess að ríkisstjórnin taki ábyrgð. Ísland verður eins og villta vestrið ef vindorka fellur utan rammaáætlunar, segir verkefnisstjóri Landverndar. Hann sakar hagsmunasamtök orkufyrirtækja um að afvegaleiða umræðu um þessi mál. Formaður lögmannafélagsins segir að dómstólar beiti einangrun í gæsluvarðhaldsúrskurðum úr hófi fram. Breyta þurfi verkl...
Jan 31, 2023•30 min•Ep. 14
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir Austan stormur með snjókomu er skollinn á landinu sunnan- og vestanverðu. Appelsínugul viðvörun er í gildi fá Vestfjörðum suður og austur með landinu allt að Djúpavogi að höfuðborgarsvæðinu undanskildu. Þar er gul viðvörun fram á nótt en víða er bæði blint og hált. Magnús Geir Eyjólfsson fréttamaður hefur verið á ferðinni á Suðurlandi Rafmagn fór af í Vík, Landeyjum og Vestmannaeyj...
Jan 30, 2023•30 min•Ep. 13
Spegillinn 27. janúar 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Fimm hafa verið ákærðir fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi vegna fjögurra barna sem slösuðust í hoppukastala á Akureyri fyrir átján mánuðum. Forseti bæjarstjórnar á Akureyri er meðal sakborninga, samkvæmt heimildum fréttastofu Ríkisútvarpsins. Ólöf Rún Erlendsdóttir sagði frá. Starfsgreinasambandið bættist síðdegis í hóp þeirra félaga sem gagnrýna ákvörðun ríkissáttasemjara að l...
Jan 27, 2023•30 min•Ep. 12
Miðstjórn ASÍ ræðir nú um ákvörðun ríkissáttasemjara að leggja fram miðlunartillögu í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Stjórn Eflingar lýsir vantrausti á ríkissáttasemjara. Hættustigi Almannavarna var lýst yfir á Patreksfirði í dag eftir að krapaflóð féll inn í bæinn. Enginn slasaðist í flóðinu, sem kom úr sama farvegi og mannskætt flóð sem varð fyrir fjörutíu árum. Níu Palestínubúar létust í aðgerðum Ísraelshers á Vesturbakkanum í dag. Heilbrigðisyfirvöld í Palestínu saka Ísraelsmenn u...
Jan 26, 2023•30 min•Ep. 11
Forsætisráðherra segir kröfur Tyrkja og vinnubrögð í tengslum við umsókn Finna og Svía um aðild að Nató alls ekki viðeigandi. Katrín og kanslari Þýskalands funduðu í Berlín í dag þar sem innrás Rússa í Úkraínu bar hæst. Bandaríkjamenn ætla að senda Abrams skriðdreka til Úkraínu. Sífellt fleiri ríki heita vopnasendingum til landsins. Lægðir eru væntanlegar á færibandi yfir landið á næstu dögum. Þeim fylgir ýmist snjókoma eða rigning. Parainflúensa er landlæg í kúm á Íslandi, en það kom í ljós eft...
Jan 25, 2023•30 min•Ep. 10
Spegillinn 24. janúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Davíð Torfi Ólafsson framkvæmdastjóri Íslandshótela telur að starfsmenn þar samþykki ekki verkfallsboðun Eflingar.Bjarni Pétur Jónsson talaði við hann. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra harma bæði að verkfall þurfi til að lausnar kjaradeilu. Þau vona að deila Eflingar og SA leysist fljótt en eru ekki...
Jan 24, 2023•11 min•Ep. 9
Spegillinn 23. janúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Atkvæðagreiðsla um verkfall 300 félagsmanna í Eflingu sem vinna á Íslandshótelum byrjar á morgun. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar býst við að verkfallsboðun fyrir 7. febrúar verði samþykkt. Kristófer Oliversson formaður Félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu segir ótrúlegt að beina eigi verkfalli að nánast einni kennitölu. Bjarni Pé...
Jan 23, 2023•30 min•Ep. 8
Spegillinn 20. janúar 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Samninganefndir Eflingar og Samtaka atvinnulífsins til fundar á þriðjudag. Töluvert ber í milli að sögn Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara og deilan er stál í stál. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við hann. Tuttugu manns sátu fastir í lyftu í Hlíðarfjalli í rúmar tvær klukkustundir í dag eftir að lyfta bilaði. Lyftan, sem nefnist Fjarkinn, stöðvaðist...
Jan 20, 2023•30 min•Ep. 7
Spegillinn 19. janúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Kona á fertugsaldri varð úti ofarlega í Mosfellsbæ í óveðrinu sem gekk yfir rétt fyrir jól. Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra segir að heimild til lögreglu um notkun rafbyssa sem gefin var undir áramót hafi verið lengi í undirbúningi og enginn feluleikur um reglubreytingar. Ákvörðunin sé ráðherrans en hann sé ávallt reiðubúinn að ræða málin. Aukna...
Jan 19, 2023•30 min•Ep. 6
Dómari í hryðjuverkamálinu íhugar að vísa hryðjuverkalið málsins frá. Báðir sakborningar neituðu sök við þingfestingu í dag. Læknir sem grunaður er um að valda sex sjúklingum ótímabærum dauða er aftur kominn til starfa á Landspítala. Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt að fara í tímabundið átaksverkefni í samráði við sjálfstætt starfandi barnalækna og barnageðlækna til þess að stytta biðlista eftir ADHD-greiningu. Skipulagsstofnun telur að umferð í gegnum miðbæ Egilsstaða verði áfram mikil þrátt ...
Jan 18, 2023•10 min•Ep. 5
Spegillinn, 17. janúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Ágreiningur um veiðigjald og hvernig megi hámarka hag samfélagsins af sjávarútvegi verður áfram þrætuepli, að mati Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra sem hefur tekið við sextíu bráðabirgðatillögum starfshópa og vonar að þær skerpi sýn. Lokatillögur þeirra koma í maí. Það kemur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra Reykjanesbæjar á óvart hversu víðtæk áh...
Jan 17, 2023•30 min•Ep. 4
Rafmagnslaust var á öllum Suðurnesjum í rúma tvo klukkutíma í dag. Rafmagn er komið á að nýju en enn er bið á að heitt og kalt vatns streymi í öll hús. . Hjúkrunarfræðingur sem ákærð er fyrir að verða sjúklingi á geðdeild að bana neitar sök. Hún er ákærð fyrir að þvinga næringardrykk ofan í sjúklinginn. Breska ríkisstjórnin hefur beitt neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að frumvarp um kynrænt sjálfræði verði að lögum. Þetta er í fyrsta skipti sem valdinu er beitt í sögu skoska þingsins. Áætlu...
Jan 16, 2023•10 min•Ep. 3
Spegillinn föstudaginn 13. janúar 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Í dag var gefin út skýrsla um bráðaþjónustu í heilbrigðiskerfinu á Íslandi. Í skýrslunni eru lagðar fram 39 tillögur að breytingum og umbótum sem hægt er að ráðast í á næstu árum á ýmsum sviðum eins og mönnun, sjúkraflutningum, þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir mikinn feng í þessari nýju skýrslu. Hægt sé að ...
Jan 13, 2023•30 min•Ep. 2
Spegillinn 12. janúar 2023. Náttúruverndarsinnar fagna því að framkvæmdaleyfi Hnútuvirkjunar hafi verið fellt úr gildi. Sveitarstjóri í Skaftárhreppi segist vera vonsvikinn. Íslenska karlalandsliðið í handbolta er í þann mund að reima á sig skóna og klína harpixi í lófann. Fyrsti leikur liðsins á heimsmeistaramótinu er í kvöld gegn Portúgal. Þrátt fyrir vitundarvakningu og áskoranir er ennþá einum þriðja af öllum mat sem er framleiddur í heiminum hent beint í ruslið. Gríðarlega stór rannsókn á m...
Jan 12, 2023•30 min•Ep. 1