www.patreon.com/skodanabraedur Þessi þáttur er með skýran ásetning: Að fá þig, kæri hlustandi, til þess að gleypa appelsínugulu pilluna og uppgötva undursemdina sem Bitcoin er. Þetta er fyrir the tourist and the purist. Þú þarft ekki að vita neitt um peninga eða Bitcoin til þess að njóta. Gakktu inn með opinn huga og þú munt sannarlega fá að vita fullt um peninga og Bitcoin. Eiríkur Magnússon, einnig þekktur sem Ishmael á X, er einn helsti talsmaður austurrískrar hagfræði og Bitcoin á Íslandi. H...
Jan 10, 2025•1 hr 44 min
Í byrjun árs 2024 hafði Gunnar Jörgen samband við mig og spurði hvort ég hefði áhuga á því að umturna lífi mínu. Ég svaraði játandi - og þá hófst svakaleg svaðilför. Til að byrja með hlustuðum við á bókina Change Your Paradigm, Change Your Life eftir Bob Proctor 30 mín á dag 60 daga í röð og töluðum saman í símann á hverju kvöldi um bókina. Síðan tókum við 110 daga hugleiðsluprógrammið Awakening The Heart Vol. 1. Ein hugleiðsla á dag og alltaf símtal á kvöldin. Eftir það lásum við 30mín í bókinn...
Jan 03, 2025•1 hr 43 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Bók desembermánaðar er hin eina sanna Ilíonskviða. Hómer skrifaði þessa epík fyrir 2800 árum. Gjörsamlega undursamlegt! Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir okkur í dag? Vendum kvæði okkar í kross í janúar, bók mánaðarins er: Play It As It Lays eftir Joan Didion
Jan 01, 2025•12 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Þingmaðurinn Snorri mætir aftur inn ferskur á kanti. Þema þáttarins er vitsmunalegt og andlegt frelsi - hvernig öðlast maður slíkt? Þar að auki er hið stóra ár 2024 gert upp. Menn ársins tilkynntir. Guð blessi ykkur kæra bræðralag. Eina sem við vitum er að við vitum ekki neitt. Gleðilegt nýtt ár. Megi 2025 færa ykkur miklar blessanir.
Dec 27, 2024•13 min
The Artist's Way er bók og 12 vikna prógram sem kennir þér að skapa það sem þig langar innst inni að skapa. Við Aron Kristinn Jónasson tókum þetta prógram núna í sumar/haust og það breytti lífum okkar beggja. Í þessum þætti förum við yfir þetta allt saman.
Dec 20, 2024•21 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Vilhjálmur Árnason prófessor emeritus í heimspeki er djúpur í fræðunum eins og titill hans gefur til kynna. Á fjörutíu ára ferli sínum hefur hann mikið fjallað um siðfræði: Hvað er rétt og rangt, gott og illt? Hvaðan fáum við þessar hugmyndir? Hvernig hafa þær þróast í gegnum tímann? Í þessum þætti ræðum við þetta allt saman sérstaklega í samhengi við Forn-Grikkland, Nietzsche, Íslendingasögurnar og annað sem Skoðanabræðralagið kann a...
Dec 13, 2024•21 min
Hlustaðu í fullri lengd (90mín) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Óli Stef handboltahetja segir frá vitsmuna- og andlegu ferðalagi sínu í gegnum lífið. Hvernig á maður að lifa og hvað á maður að gera við sig? Það er farið í þetta. Önnur stikkorð: skólakerfið, Þorvaldur Þorsteinsson, Nietzsche, Jung, Jordan Peterson, ayahuasca, stríðsmaðurinn.
Dec 06, 2024•17 min
Hlustaðu í fullri lengd (50mín) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Bret Easton Ellis er bandarískur rithöfundur og podcastari fæddur árið 1964. Hann er þekktastur fyrir að hafa skrifað American Psycho. White (2019) eftir hann er bók mánaðarins núna í Nóvember. Bókin er menningargagnrýni skrifuð í esseyju/memoir formi og má túlka sem nokkurskonar ákall um að fegurðin eigi að þrífast og sjálfsritskoðun þurfi að stöðva. Bók mánaðarins í Desember er Ilíonskviða eftir Hómer. Spennið beltin!...
Dec 01, 2024•12 min
Hlustaðu í fullri lengd (1 klst og 40 mín) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Hallgrímur Helgason var að klára 1600 blaðsíðna þríleik sem í stuttu máli fjallar um það hvernig nútíminn kom til Íslands. Hérna vorum við í 1000 ár án drauma og hugmynda - síðan breyttist allt. Í þessum þætti ræðum við listina, bókmenntirnar, söguna og náttúruna. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.
Nov 29, 2024•18 min
www.patreon.com/skodanabraedur Sara María er helsti sérfræðingur Íslands í hugvíkkandi efnum og lauk nýlega námi í Transpersonal Psychotherapy við Ubiquity University. Hún rekur Eden Yoga og skipuleggur ráðstefnuna Psychedelics as Medicine sem verður haldin í Hörpu 27. febrúar 2025. Við förum um víðan völl. Sara segir frá náminu sínu, hvernig maður leiðbeinir fólki í áttina að sínum sannleika, hvað hugvíkkandi efni geta gert fyrir mann - og margt fleira. Fylgisti með Söru á Instagram: @forynja R...
Nov 22, 2024•1 hr 31 min
Hlustaðu í fullri lengd (90mín+) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Sérstakur þáttur um það hvernig maður hugsar frjálst, lærir af meisturum sínum og heldur áfram í sínu persónulega þróunarferli. Í þessu samhengi eru tveir menn teknir fyrir: heimspekingurinn Friedrich Nietzsche og tónskáldið Richard Wagner. Það er sagt frá þessum mönnum (bæði fyrir the tourist & the purist) og samband þeirra greint í þaula út frá þessum pælingum um að drepa meistarann sinn og frelsa sig. Þættinum er skipt...
Nov 15, 2024•18 min
Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Friðrik Rafnsson er þýðandi tveggja minna uppáhalds rithöfunda Milan Kundera og Michel Houellebecq. Í þessum þætti förum við yfir ítarlega yfir þessa tvo menn og Friðrik segir okkur frá hugmyndum þeirra, bókum og persónuleikum. Hann hitti Kundera oft og hefur þýtt hverja einustu bók hans. Houellebecq hitti hann líka þegar hann kom til Íslands árið 2012. Fyrri hluti þáttarins fjallar um Kundera og síðan skiptum við yfir í Hou...
Nov 08, 2024•12 min
www.patreon.com/skodanabraedur Fáðu bókina beint frá bónda inn á https://halldorarmand.is/ - 15% afsláttur með kóðanum BRÆÐRALAG Halldór Armand rithöfundur hefur aldrei verið ferskari. Hann var að gefa út nýja bók, Merkilegt Rusl. Lífsgleðin skín af honum eftir að hafa gengið í gegnum djúpa erfiðleika. Dásamleg saga. Það er farið yfir þetta allt saman og fleira: klassíska heiminn, andleg málefni, ritstörf, sjálfstæði og frelsi nútímamannsins og hlutverk rithöfundarins í samfélagi....
Nov 01, 2024•2 hr 24 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Snorri tyllir sér á bak MIðflokksfáknum og ríður út í sólsetrið. Guð er góður og við lifum á dásamlegum tímum. Þannig er það. Í þessum þætti tölum við um framboðið, stjórnmálaástandið og hvernig við viljum hafa Ísland alþjóðlega miðstöð frelsis, fegurðar og friðar. Það eru bjartir tímar framundan hjá Skoðanabræðralaginu. Mikið verður gott fyrir okkur að hafa mann inni á þingi. Þátturinn mun þróast samhliða því, þær nýju vendingar eru ...
Oct 25, 2024•11 min
Skoðanabræður snúa aftur eftir veikindi og víla ekki fyrir sér að koma sér beint að efninu um framtíð þjóðarinnar. Hvert stefnum við, nú þegar stjórnmálasviðið er galopið og örlagastund knýr dyra? Hér er þessu ekki beint svarað en þetta er rætt, tekið upp á miðvikudagsmorgni. Stóra sýnin fyrir Ísland, stóra allsnægtabyltingin – happy, healthy og wealthy þjóð. Komið inn á Naval Ravikant, rafmyntir, þjóðargjaldmiðla og stóru málin á næsta kjörtímabili. Að auki: Pælið í því að Píratar hafi eitt sin...
Oct 18, 2024•17 min
www.patreon.com/skodanabraedur Þetta er þáttur fyrir alla þá sem vilja sigra. Deepak Chopra er höfundur bókarinnar The 7 Spiritual Laws of Success. Guð gaf Snorra gubbupest til þess að þessi þáttur myndi verða til. Aron Kristinn Jónasson stígur inn í hans stað. Máttugur er mættur maður. Við förum yfir þessi sjö lögmál bókarinnar. Guð blessi ykkur kæra bræðalag.
Oct 11, 2024•1 hr 45 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Hvernig menntum við okkur? Hvað er í gangi í háskólunum? Hugmyndir fræðikonunnar Camille Paglia ræddar hér í þessum þætti. Hún er róttæk og skemmtileg. Er munur á körlum og konum? Það fer eftir því hvern þú spyrð. Um lok þáttar er snert á hugvíkkandi efnum, hverjir eiga að nota þau og hverjir alls ekki. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.
Oct 04, 2024•16 min
Balaji Srinivasan fjárfestir og frumkvöðull hefur spáð ýmsu brjáluðu og ekki allt hefur ræst. Ein af lykilkenningum hans er að hægt og rólega taki netríki við af þjóðríkjum, þar sem hópar munu koma sér saman um samfélög á netinu, sem ekki verða skilgreind af veraldlegum landamærum. Hér ræðum við framtíð Íslands á þessum nótum og veltum öllum steinum. Annað sem kemur við sögu: Hefur regluverk staðið í vegi fyrir framþróun á síðustu áratugum? Fjármagnið skiptist í þrennt: Woke Capital, Tech Capita...
Sep 27, 2024•1 hr 7 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Tilvistarspurning þunglyndis, landbúnaður, Lenín, bókmenntir Rússlands 19. aldarinnar, Pharrell Williams, Bernard Arnault og pólitík þeirra sem eiga heiminn. Þetta er til umræðu í þessu fremsta hlaðvarpi landsins.
Sep 20, 2024•20 min
Ert þú alltaf að hlusta á gamla tónlist? Eru kvikmyndirnar sem þú ert að horfa á bara sömu kvikmyndir aftur og aftur? Hér er sagan rakin frá afdrifaríkum hryðjuverkaárásum árið 2001 og fjallað um hvernig menning okkar mótaðist í kringum 2005 og hefur síðan lítið breyst. Algrímin valda því, að mati sérfræðinga, að allt sem við sjáum og heyrum er endurtekning eða endurvinnsla þess sem áður hefur virkað. Annað: Trump vs. Harris kappræður Munurinn á kapítalisma og kommúnisma 9/11 og áhrifin á alheim...
Sep 13, 2024•1 hr 3 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Sérstakur þáttur í tilefni 10 ára afmælis Zero to One eftir Peter Thiel. Bókin sem segir þér hvernig þú átt að hugsa þegar þig langar að stofna fyrirtæki. Fyrst: talað um nýjar saunuþróanir sem bitna á konum. Síðan eru hugmyndir bókarinnar kynntar: Að öðlast einokun, að hugsa stórt, að forðast samkeppni. Í lokin er virðing sett á free market menningarmiðstöðina Húrra Reykjavík fyrir þeirra starf síðastliðin tíu ár.
Sep 06, 2024•21 min
Meistaraverkið The True Believer eftir Eric Hoffer tekið fyrir og sett í nútímasamhengi. Hún fjallar um fjöldahreyfingar. Hvernig verða þær til? Hvernig fólk gengur í þær? Hvernig fólk stjórnar þeim? Út á hvað ganga þær? Kommúnismi og nasismi eru skýr dæmi - en hvað er í gangi í dag? www.patreon.com/skodanabraedur
Aug 30, 2024•1 hr 5 min
Nassim Nicholas Taleb er sérfræðingur í líkindum, fjárfestingum og almennum kóngalífstíl. Tvímælalaust einn af mikilvægari höfundum samtímans, eins og stöðugar vinsældir bóka hans sýna. Á meðal þeirra: Fooled by Randomness, Black Swan, Antifragile og Skin in the Game. Í þessum þætti förum við efnislega yfir einstaka, nýstárlega og nærandi hugmyndafræði Taleb, sem getur líklega gert þig að betri manni. Viltu til dæmis hætta að vera viðkvæmur og verða beinlínis andviðkvæmur? Engrar þekkingar á nei...
Aug 23, 2024•20 min
Nassim Nicholas Taleb er sérfræðingur í líkindum, fjárfestingum og almennum kóngalífstíl. Tvímælalaust einn af mikilvægari höfundum samtímans, eins og stöðugar vinsældir bóka hans sýna. Á meðal þeirra: Fooled by Randomness, Black Swan, Antifragile og Skin in the Game. Í þessum þætti förum við efnislega yfir einstaka, nýstárlega og nærandi hugmyndafræði Taleb, sem getur líklega gert þig að betri manni. Viltu til dæmis hætta að vera viðkvæmur og verða beinlínis andviðkvæmur? Engrar þekkingar á nei...
Aug 16, 2024•20 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Bláa pillan eða sú rauða? Hið svokallaða matrix er tekið til umræðu. Hvernig aflærum við hluti og sleppum tökum á óuppbyggilegum konseptum? Það er spurning - hlustaðu og kannski verðurðu einhverju nær.
Aug 09, 2024•15 min
Biðin var löng og ströng en nú er hann mættur í hljóðver til okkar, enginn annar en Beggi Ólafs. Hann býr í Los Angeles en er í heimsókn í framtíðarlandinu. Hann ætlar sér stóra hluti úti, er með hugann við persónulega þjálfun, við gervigreind, við sálfræði, við bætingar og hefur frá mörgu að segja. Ferilllinn! Hvernig varð Beggi Óla að þeim sem hann er, hvernig var í fótbolta, ekki eitrað, segir Beggi, það var samt mjög sturlað og jú smá eitrað, en þar er ekki átt við „klefamenninguna“. Við ræð...
Aug 02, 2024•21 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Sérstakur þáttur um elítur; hvernig þær fúnkera, af hverju þær eru til - og hvernig stjórna þær hugmyndum og kerfum? Til þess að skilja þetta betur skoðum við bókina The Machiavellians: Defenders of Freedom eftir James Burnham. Epískar pælingar þar. Í samhengi við þetta er lauslega snert á vibe-shifti sumarsins: Donald Trump, Peter Thiel og Elon Musk. Hvað er í gangi?
Jul 26, 2024•20 min
Í þessum þætti fara bræðurnir yfir Marc Andreessen frumkvöðul frá A til Ö, þannig að þú þarft ekki að vita hver hann er til að byrja að hlusta. Hann skrifaði skjal að nafni Techno-Optimist Manifesto á dögunum, þar sem verulega verðmæta innsýn er að finna. Stjórnmál, fjárfestingar, andlegt ástand almennings, allsnægtahugarfarið, orkumál, allt mögulegt á milli himins og jarðar. Ef þú ert týndur og þér finnst hugmyndafræði þín ekki passa við daglegar athafnir þínar – hlustaðu á þennan þátt og sjáðu...
Jul 19, 2024•21 min
Styddu frjálsa fjölmiðlun inni á www.patreon.com/skodanabraedur Stjörnuspeki er ekki fyrirbæri sem við höfum gert mikil skil á þessum vettvangi fram að þessu enda lifum við tíma vísindahyggjunnar og ef trúarbrögð koma við sögu eru þau ekki að nafninu til byggð á stjörnuspeki, þótt sá stjörnuspekingur, Gunnlaugur Guðmundsson, haldi því að vísu fram að allt hið kristna hugsanakerfi byggist að miklu leyti á stjarnspekilegum grunni. Alla vega: Stjörnuspeki felst í grunninn í því að álykta um persónu...
Jul 12, 2024•1 hr 57 min
Í dag er fjallað um nýja leið til að skilja stjórnmál nútímans: Það er rautt lið, blátt lið og það er grátt lið. Gráa liðið fílar margt sem rauða liðið gerir en það er samt alls ekki rauða liðið. Það er að segja: Við í gráa liðinu trúum meira á framtíðina en fortíðina. Einnig fjallað um mikilvægi þess að lifa í allsnægtum og farið aðeins yfir feril Howard Hughes. Þátturinn í heild sinni er á www.patreon.com/skodanabraedur
Jul 05, 2024•12 min