Óformlegt framhald Íslandsögunnar. Í þetta skipti þræðum við 20. öldina. Að sjálfsögðu er frásögnin ekki línuleg, rétt eins og Íslandssaagan. Önnur umræðuefni eru kynjuð loftslagsmál í samhengi við afnýlenduvæðingu og svo veðmálafyrirtæki á Íslandi. Rannsóknarspurning er sett fram í byrjun þáttar: Hver er merkilegasti Íslendingur allra tíma? Svör í lokin.
Jun 28, 2024•19 min
EINLÆGLEGA: Óvænt epískur þáttur sem allir þurfa að hlusta á – fróðleikur og mikilvægar pælingar um stöðu mála. - Í þætti dagsins, sem verður mögulega hluti af þriggja hluta seríu, er farið yfir sögu Íslands frá upphafi daga, þjóðveldisöldin, goðakerfið útskýrt, myrku aldirnar og allt fram til nítjándu aldar. Mikið farið út af sporinu samt og farið í stærri spurningar. Allt er þetta gert til að reyna að svara spurningunni: Er prójektið Ísland enn þess virði – á það sér framtíð, eða er þetta búið...
Jun 21, 2024•1 hr 7 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Sérstakur þáttur um Steve Jobs. Áhrifamesta mann mannkynssögunnar? Kannski. Hérna er stiklað á stóru varðandi ævi og feril meistarans. Hvað gerði hann að svona miklum snilling? Hvernig fór hann að þessu? Hvaða öfl voru að verki? Hvað hafði áhrif á hann? Hvernig hugsaði hann? Hvað getum við lært af honum? Þessu öllu er svarað hérna í þessum sérstaka þætti Skoðanabræðra. Guð blessi ykkur kæra bræðalag.
Jun 14, 2024•20 min
Bergþór leiðir okkur í gegnum þrjú lögmál Bergþórs og við förum einnig yfir Lífsreglurnar fjórar eftir Don Miguel Ruiz. Halla T. mælti með þeirri bók í viðtali og menntunarfílístear á netinu reyndu að gera lítið úr sjálfshjálparviðleitninni. Annars fer hluti þáttarins í að fallast djúplega á kjör Höllu Tómasdóttur forseta. Aðrar pælingar; hver verður arftaki Trump? Sá sem kann á miðlana. En svona í alvöru: Þið verðið eiginlega að læra hvað „Bildungsphilister“ er – og þetta er fyrsta skrefið....
Jun 07, 2024•19 min
www.patreon.com/skodanabraedur Skoðanabræður halda áfram að verja lýðræði og mannréttindi. Í þetta skipti tala þeir aðeins um forsetakosningarnar, pistil Auðar Jónsdóttur um íslenska valdafólkið, gervigreindina miklu sem á eftir að breyta öllu - og margt, margt annað. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.
May 31, 2024•20 min
Að þessu sinni eru bræðurnir staddir í vöggu vestrænnar siðmenningar, hafa varið mánuðum í að undirbúa umfjöllun um staðinn og segja nú gjörið svo vel, eftir að hafa heimsótt helstu staði í persónu. En óttist ekki að hér sé vísað til staða sem þið ekki þekkið eða til manna sem þið ekki þekkið! Þetta er kjörinn vettvangur fyrir byrjendur til þess að skyggnast inn í helstu atriði í forngrískri menningu, hvort sem það er heimspeki, listir, göfugar íþróttir eða einfaldlega sjálf fegurðin....
May 24, 2024•20 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Sérstakur þáttur um 19. öldina íslensku og endurreisnina á íslenskri menningu sem átti sér þá stað. Ef þetta hræðir þig, stígðu inn í óttann! Komdu og vertu með. Þetta er gott fyrir þig. Aðalpersónur þessarar þáttar eru Jónas Hallgrímsson og Fjölnismenn (Konráð Gíslason, Tómas Sæmundsson og Brynjólfur Pétursson). Við tölum um hugmyndirnar þeirra, hvað þeir vildu og víbrurnar í kringum þá. Allt þetta er gert til þess að komast betur að...
May 17, 2024•20 min
Komdu og vertu með í samfélagi sem skiptir máli. Áskrift kostar ekki nema 10$ á mánuði. www.patreon.com/skodanabraedur Góðan daginn kæra bræðralag. Þetta er guðdómlegur þáttur sem tekur á móti ykkur þessa vikuna. Helst er talað um hvernig maður býr til vöru sem nær til venjulegs fólks. Þú gerir það með því að vera skýr. Í þessu samhengi ræðum við um sögur, skáldskap og hvernig hver og einn býr til sinn veruleika. Þarf maður óvin til þess að ná til massans? Hver er óvinurinn í dag? Þessu er svara...
May 10, 2024•1 hr 4 min
Bræðurnir svara ungum manni sem leitar til þeirra vegna stórra ákvarðana sem hann þarf að taka í lífinu, þeir fara yfir umræðu um Prettyboitjokko, þeir ræða málfund um anarkókapítalisma sem þeir sóttu í Sjálfstæðishúsinu og loks ræða þeir hughreystandi hugmynd um sigur hinna blaðrandi stétta á tímum gervigreindar, eins og Peter Thiel sér hann fyrir sér. Þátturinn í heild sinni á www.patreon.com/skodanabraedur
May 03, 2024•13 min
Þátturinn í heild sinni er á www.patreon.com/skodanabraedur – hann er klst og 40 mínútur! Patrik Snær Atlason er Prettyboitjokko og hann sest í ráðuneyti Skoðanabræðra þessa vikuna. Það er meira í manninn spunnið en bara glimmer og peningar, hann hefur ákveðnar hugsjónir og hugmyndir sem vert er að laða fram í dagsljósið. Persónuleg krísa hans fótboltamanns og fyllibyttu, eitrað umhverfi, að finna sjálfan sig á ný, fjárfestingar, peningamál til framtíðar, hugsjónin um að funda með Jóni Ásgeiri, ...
Apr 26, 2024•21 min
Í þætti vikunnar lögðu bræðurnir það á sig að hlusta á fyrsta þátt Skoðanabræðra frá apríl 2019 – fimm árum eftir útgáfuna á fimm ára afmæli þessa fremsta hlaðvarps landsins. Óhjákvæmilegt var við þær aðstæður að leggja niður fyrir sér þá hugmyndastrauma sem mótað hafa bræðurna og þeir mótað þá á móti á viðburðaríkum hlaðvarpsferli. Ekki var laust við að menn þjáðust töluvert við að skyggnast aftur í tímann og horfast í augu við sjálfa sig. Sumt eldist reyndar vel. En fátt.
Apr 19, 2024•1 hr 26 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Farið yfir stjórnmál, forsetakosningar og upprisa SDG. Einnig snert á því konsepti að aflæra hugmyndir og halda huganum opnum. Gervigreind og einkaherir. Komiði með, tjékkum á þessu. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.
Apr 12, 2024•13 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Vakningin virðist engan enda ætla að taka. Það er ekkert annað hægt en að gefa í. Hérna tölum við kvótakerfið og gamalt hugarfar Bergþórs gagnvart því, hvernig maður eigi að losa sig undan áliti skrílsins og skilgreiningu Earl Nightingale's á skapandi fólki. Hvað er að vera skapandi? Lúseralistamaður eða king?
Apr 05, 2024•21 min
Páskaþáttur, gjörið svo vel. Það var löngu tímabært að fá hinn andlega jöfur Guðmundur Emil að borðinu að nýju og fara yfir þá vakningu sem nú stendur yfir. Hér eru menn að sniffa ammóníak og taka ábyrgð á sjálfum sér. Víkingar vakna – það er verk að vinna. Þátturinn í heild sinni er á https://www.patreon.com/skodanabraedur
Mar 29, 2024•17 min
Hér er hvatt til endurvakningar vísnahefðarinnar - og nefndir til sögunnar ungir menn sem eru nokkuð líklegir á því sviði, Bergþór fer yfir upplifun sína af ferðalögum til Indlands og Bandaríkjanna, við höldum áfram að veita skýrar leiðbeiningar að andlegri vakningu; önnur spurning í þessu: Er hið norræna velferðarkerfi til þess fallið að hvetja til andlegra afreka eða er það bara fjöldaframleiðsla á meðalmennsku? Grimmileg spurning. Þátturinn í heild á Patreon!
Mar 22, 2024•18 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Hér er stiklað á stóru: Heimildin.is fjallaði um það að Valkyrjurnar séu vaknaðar, DVD (Decision, Vision, Discipline), mikilvægi þess að búa sér til sýn, Steini V, hugmyndir um karlmennsku, kynjafræði. Guð blessi ykkur kæra bræðralag - til hamingju með vakninguna. Við erum í þessu saman.
Mar 15, 2024•20 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Breyttu viðhorfinu þínu og breyttu lífinu þínu. Skoðanabræður halda áfram í sjálfs-þróun - takið eftir, ekki sjálfshjálp - sjálfsþróun. Hún hættir aldrei, við hættum aldrei. Hver veit hvernig þetta endar? Á snekkju með twerkandi gellum? Í Ölpunum? Á búgarði í Borgarfirði? Eitt er víst - þetta endar vel, þetta endar eins og við ákveðum, þetta endar eins og við viljum að þetta endi. Bob Proctor tekinn fyrir hér - við höldum áfram í næst...
Mar 08, 2024•16 min
Framhald á sjálfshjálparvegferðinni er ekki galin leið til að lýsa þessum þætti en hér er þó margt annað rætt: Kristni og wokeismi og sniðmengi þessara hugmyndastefna, að hætta að hata fólk, Trump á McDonald’s í Japan, Zuckerberg, þá firringu að halda því fram að kjöt sé óhollt og loks mikilvægi þess að lesa bækur endurtekið.
Mar 01, 2024•1 hr 4 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Stórfenglegur þáttur í dag. Allt að gerast í Sigurðarstofu Sævars. Hérna erum við að tala um; að brjótast út úr fangelsi hugmyndafræðarinnar, Kanye, Werner Herzog, sigrast á sjálfum sér, hætta að vera veikburða ofl ofl ofl
Feb 23, 2024•11 min
Hér er rætt um nauðsyn þess að innleiða gervigreind á sem flestum sviðum, nauðsyn þess að gera talsverðar breytingar í íslenskum stjórnmálum, hita á sviði rafmynta og svo er enn bætt í þá sjálfshjálparvegferð sem Skoðanabræður hafa verið á og útskýrt hvað menn þurfa að gera til að geta byggt upp líf sitt. Inntakið þar er meðal annars: Þú þarft að byrja strax í dag! Þátturinn í heild sinni inni á Patreon.
Feb 16, 2024•17 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Þrjúhundraðasti þátturinn, „I keep it 300, like the Romans“ sagði skáldið. Við byrjum á því að fara yfir Jafnréttisstofu (FUERA!) og nýju herferð hennar sem snýst um það að segja fólki hvernig það eigi að hugsa? Spurning. Síðan tölum við um Peter Thiel og nýju ólympíuleikana hans þar sem leyfilegt er að dópa. Mikilvægi testósteróns rætt. Að lokum, og þetta er mikilvægur kafli, er farið yfir þýðingu Bergþórs á lokakafla bókarinnar The ...
Feb 09, 2024•21 min
Farið yfir hættur áfengis, góðar leiðir til að græða peninga, „stöðu fjölmiðla“, góða skapið hjá ritstjóranum og þá hættu að vera virkur karlfemínisti þegar maður lendir á þrjátíu ára markinu – eftir það snúa fáir aftur.
Feb 02, 2024•11 min
Leggðu frjálsri fjölmiðlun lið inni á www.patreon.com/skodanabraedur Skoðanabræður halda áfram að blása lífi í bræðralagið og sjálfa sig í leiðinni. Hérna er tala um áfengislaust líf, hvernig eigi að sigra, Shakespeare, þjóðvakningu & endurreisn, the woke mind virus, Óskarskandal vegna tilnefninga Barbie og allskonar annað. Guð blessi ykkur öll.
Jan 26, 2024•59 min
Fyrirsögnin sneiðir fram hjá fjölda mikilvægra umræðuefna en þetta er þó mikilvæg spurning. Í þessum einstaka þætti Skoðanabræðra er Aron Kristinn Jónasson frumkvöðull og rappari fenginn að borðinu til að ræða málefni lands og þjóðar í víðum skilningi. Allt frá íslenskum her, algrími samfélagsmiðla og einsleitni í klæðaburði til vellíðunar við að koma inn á bandarískt salerni; að þannig eigi hlutirnir ef til vill að vera. Bandaríska tilraunin töluvert rædd; og farið yfir hvaða þætti Íslendingar ...
Jan 19, 2024•8 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Lögmál aðdráttaraflsins er ekki nógu gott þannig titillinn er á ensku, kannski í fyrsta skipti? Fræðimenn geta kannað málið. Í þessum þætti er einmitt talað um þetta lögmál, hvernig þú lætur hlutina gerast með jákvæðni og trausti. Þannig virkar þetta. Síðan tölum við líka um allskonar annað eins og íslenska tónlist, XXX Rottweiler, hvalveiðibann, Björk styttu, Ritstjórann og allskonar annað. Lesið The Secret kæra bræðralag og heimurin...
Jan 12, 2024•4 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Fyrsti þátturinn í nýju húsnæði Skoðanabræðra. Allt að gerast! Það sem er talað um meðal annars: Hvernig maður verður ríkur, að gera eitthvað sem skiptir máli, Guðni Th. forseti, samfélagsmiðla- og sjálfsfróunarfasta Nökkva Fjalars, munurinn á ungmönnum nútímans og árið 1970 og fullt fullt fleira.
Jan 05, 2024•10 min
2023 var risastórt ár fyrir öll. Heldur betur! Hér fara bræðurnir yfir árið sem leið, yfirvofandi vakningu, milljarðamæringshugsunarhátt, vonbrigði í aðfangadagsmessu, að vera feitur í hausnum á sér ásamt því að snerta á stemningunni í Portúgal þar sem Bergþór er staddur núna á milli jóla og nýárs. Hvað er málið með Portúgala? Gleðilegt nýtt ár kæra bræðralag!
Dec 29, 2023•1 hr 3 min
Bræðurnir eru komnir í jólaskap og fara yfir allt sem vita þarf í undirbúningi fyrir hátíðirnar. Bergþór ætlar að gera ýmislegt á nýju ári, en hann ætlar ekki sérstaklega að reyna að draga úr hugmyndafræðilegri einangrun sinni. Snorri á fyrstu jólin með börnum og hefur raunhæfar væntingar til góðrar skemmtunar. Umræðuefni: Upplýsingaóreiðan í jólaboðinu, Taylor Swift manneskja ársins hjá Time, væntanleg plata Kanye West og margt sem ég er núna að gleyma.
Dec 22, 2023•14 min
Hlustaði í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Víkingaflokkurinn, Víkingar, Bræður Íslands eða Þjóðveldisflokkurinn. Þetta eru allt nafnahugmyndir af nýjum stjórnmálaflokk sem lögð eru drög af hérna í þessum þætti. Jákvæðni, frelsi, hreysti og sannleikur. Þetta boðar flokkurinn. Guð blessi ykkur öll.
Dec 15, 2023•14 min
Atli Steinn Guðmundsson er blaða- og ævintýramaður. Glöggir hlustendur muna eftir honum úr #128 Skoðanir Noregs. Hreinn og beinn kóngur. Hér er talað um: Norðurlöndin, glæpi, rokk, lyftingar og ritstörf. Alhamdulillah!
Dec 08, 2023•19 min