Hér ræða bræðurnir við bardagakappann, frumkvöðulinn og mataræðisfrömuðinn Ívar Orra Ómarsson. Ívar Orri, einnig kallaður Seiðkarlinn, kafaði ofan í allt mögulegt tengt mataræði eftir að hann greindist með sykursýki – og lærði margt, sem hann deilir nú með fylgjendum sínum á Instagram. Hann hefur einnig mjög ákveðnar hugmyndir um hinn eina sanna góða lífsstíl og hugarfar, sem allt er reifað í þessum þætti.
Dec 01, 2023•1 hr 34 min
Styddu frjálsa fjölmiðlun inni á www.patreon.com/skodanabraedur Fremsta hlaðvarp landsins heldur áfram að framleiða þetta hágæða. Snorri segir að löggan eigi að fá byssur en Bergþór segir Fuck The Police. Heimspekingurinn sem sameinaði austræn og vestræna speki Arthur Schopenhauer er ræddur og hans hugmyndir lauslega kynntar. Virðing sett á ICEGUYS og nýja forseta Argentínu hann Javier Milei. Allahu akhbar.
Nov 24, 2023•18 min
Hvað þarf leiðtogi fjöldahreyfingar eins og þeirra sem spruttu upp á 20. öld að hafa til að ná langt? Hvað þarf fjöldahreyfing til að virka? Hér er rætt um fjöldahreyfingar, Kanye, einkavæðingu sundlauganna í Reykjavík og ágæti einkaframtaksins, stórar hugmyndir eftir að Guð dó og í gegnum allt þetta: Farið með lifandi hætti yfir bókina True Believer eftir Eric Hoffer - sem fjallar um fjöldahreyfingar og þar með auðvitað sértrúarhópa hvers konar. Þátturinn í heild sinni á Patreon.
Nov 17, 2023•20 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Halldór Guðmundsson er ævisöguritari Halldórs Laxness, bókmenntafræðingur, forleggjari og menningarmaður mikill. Hérna er reynt að komast að því hvað gerði Laxness að svona miklum king, afhverju Íslendingar elska bókmenntir, hvort að Sovétríkin hafi borgað fyrir Mál og Menningarhúsið niðri í bæ ofl ofl ofl. Hrein veisla, njótið vel.
Nov 10, 2023•19 min
Guðni Gunnarsson lífsþjálfi og heimspekingur er með marga mikilvægar persónur í einkaþjálfun, andlegri og líkamlegri, og í þessum þætti gefur hann Skoðanabræðrum smá sýnishorn úr hugmyndafræði sinni. Meginpunkturinn: Það er val að hætta að vera fórnarlamb í eigin lífi. Hér er hægt að læra mikið. Þátturinn er opinn öllum – EN FARIÐ INN Á PATREON!
Nov 03, 2023•1 hr 43 min
Hlustaðu/horfðu í fullri lengd (90mín) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Erna Mist er listmálari og pistlahöfundur. Tjékkið á pistlunum hennar inni á Vísi. Umræðuefni eru meðal annars: innræting í LHÍ, pólitískur rétttrúnaður, forvitni, ótti, ferðamennska og listaheimurinn, þjóðernisvakning, bókmenntir og ritstörf.
Oct 27, 2023•20 min
Hlustaðu eða horfðu á í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Skoðanabræður hafa misst trúnna á ríkisvaldinu, allavega akkúrat núna, hvað gerum við þá? Hérna er talað um listamannalaun til YouTubera, Logan Paul, stöðnun samfélaga, vöxt, Prettyboitjokko, siðferði í popptónlist, Peter Thiel og skemmtigildi lista.
Oct 20, 2023•20 min
Hlustaði í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Mikið í gangi, mikið í gangi! Skoðanabræður fara yfir það sem skiptir máli. Drake plata, hið sanna siðferði alheimsins sem birtist í popptónlist, ísbirnir á landi, The Lindy Effect og mikið mikið meira. Njótið lífsins kæra bræðralag
Oct 13, 2023•17 min
LENGRI ÚTGÁFA Á PATREON. Upphaf kjötlífsins og endalok sannleikans, gæti þessi þáttur líka heitið. En aðallega: Ný speki bræðranna kynnt til leiks: Via negativa. Hér er farið yfir ritdeilur sem Snorri Másson ritstjóri hefur staðið í, hér er farið yfir nýjan kjötætulífstíl sem Bergþór hefur tileinkað sér og Snorri peppar, vandamálið við læknastéttina, hliðarverkanir alls sem við gerum og loks þá mikilvægu staðreynd að sannleikurinn býr aðeins innra með okkur.
Oct 06, 2023•15 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Fyrsti þáttur Skoðanabræðra í vídjó-formi. Ágætis byrjun. Hérna er talað um Kanye West, Reykjavíkurborg, skáldskap, tækni, nútímann og framtíðina.
Sep 29, 2023•14 min
Þessi þáttur er frír en komdu samt í áskrift á www.patreon.com/skodanabraedur Íslendingar þurfa að breyta um hugarfar á ýmsum sviðum að mati bræðranna, meðal annars að endurvekja gömlu góðu sjálfsmyndina, ef vel á að fara. Auk þess leggja bræðurnir til, að hætti Cató gamla, að Heiðari Guðjónssyni verði hleypt á hafsbotn að sækja olíu. Þetta segir Bergþór innblásinn af dvöl sinni í Oslóarfirði í hinum ríka Noregi, okkar fornu fósturjörð aftur í ættir. Umræður þessar spretta um leið af þeirri stað...
Sep 22, 2023•1 hr 15 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Snorri og Bergþór eru staddir í fjölmiðlahöfuðborginni Hamborg. „Sem sagt mikið logið hérna,“ eins og Bergþór lætur um mælt í því samhengi. Hann er ómálefnalegur andstæðingur hefðbundinnar fjölmiðlunar, en hver er það ekki á þessum síðustu og verstu tímum? Við ræðum Þýskaland það fagra land, menningu, list og heimspeki - síðan setjum við virðingu á stelpurnar í Skoðanabræðralaginu og tölum um hvað við elskum þær mikið. Einnig ræðum vi...
Sep 15, 2023•12 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Jóhann Kristófer Stefánsson snýr aftur í ráðuneyti Skoðanabræðra eftir langa fjarveru. Hvað hefur breyst? Hérna er talað um íslenska menningu, víkinga, barnauppeldi, samtímann og ég veit ekki hvað og hvað og hvað! Guð blessi ykkur kæra bræðralag. Segið vinum ykkur að koma á Patreon.
Sep 08, 2023•13 min
Farðu á https://www.patreon.com/skodanabraedur Gunnar Smári Egilsson sósíalistaforingi sest í ráðuneyti Skoðanabræðra og reynir að afstýra hægrisveiflunni, sem tekst því miður ágætlega, enda er viðtalsrýmið safe-space þar sem gesturinn fær að ráða för. Engin erfið viðtöl. En hér er margt rætt: Staða hins viðkvæma unga karlmanns, Sjálfstæðisflokkurinn sem mafíustarfsemi, flækjustig þess að sannfæra fólk um ágæti félagshyggju þegar hið gagnstæða er ráðandi hugmyndafræði og svo hin nýja blaðamennsk...
Sep 01, 2023•23 min
Hlustaðu í fullri lengd á þennan þátt og ótal annarra inni á www.patreon.com/skodanabraedur - lengd þáttar þar inni: 01:45 klst. Sérstakur þáttur Skoðanabræðra um heimspekinginn Friedrich Nietszche. Hræðir það þig? Þá þarftu að hlusta, þá verður þú að hlusta! Þetta er noob-friendly. Við förum lauslega yfir ævi Nietszche og kynnum helstu hugmyndir. Unnið er útfrá grein Vilhjálms Árnasonar: „Við rætur mannlegs siðferðis: Siðagagnrýni og heilræði Friedrich Nietszche“....
Aug 25, 2023•13 min
Hlustaðu í fullri lengd (90mín) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Auðunn Blöndal hefur náð þeim fágæta árangri að endurnýja umboð sitt sem helsti skemmtikraftur landsins hjá hverri kynslóð á eftir annarri. Hvaða ekki-tónlistarmaður selur upp tónleika í Laugardalshöll? Hér sest Auddi í ráðuneyti Skoðanabræðra, fer yfir ferilinn, pólitíkina, umræðuna, skítafréttirnar, hlaðvarpið, innblásturinn, föðurhlutverkið, spilavítin, giggin, Þjóðhátíð og ég nenni ekki að skrifa meira. Hlustið! Ný hlið á ...
Aug 18, 2023•15 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Kæra bræðralag það er allt að gerast hjá okkur.. Er 66°N orðið nett aftur? Getur Snorri verið eitthvað annað en feitur, ljótur og asnalegur? Mun Gísli Pálmi nokkurntímann fá heiðurinn sem hann á skilið? Er þriðja vaktin raunveruleg eða sundrar hún fjölskyldum? Er hægt að kenna einhverjum um eitthvað?
Aug 11, 2023•7 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Þjóðhátíð! Skoðanabræður lýsa yfir stuðningi. 150 ár af íslenzkum þrælum að dansa í hlekkjunum sínum? Kannski. Þetta er rætt ásamt öðru: Egilssaga, Travis Scott og Kardashian nornirnar, innflytjendur og fegurðarsamkeppnir.
Aug 04, 2023•18 min
Vísindamaðurinn Kári Stefánsson sest niður með Skoðanabræðrum og ræðir allt frá stríðsástandi og heimsvaldastefnu okkar uppáhalds stórþjóðar Bandaríkjanna (í þessu samhengi, hvað verður um íslenska tungu?) og til gervigreindar á sviði læknavísinda og mikilvægi þess að fara til starfa á hverjum morgni eins og barn í sandkassann. Hlaðvarp um sjálfbærni og jafnréttismál gerir undantekningu á efnistökum, sem sagt. Spurning sem reynt er að svara: Var siðferði fornmanna ólíkt því sem nú er? Farið á Pa...
Jul 28, 2023•15 min
Nýja reglan hjá Skoðanabræðrum snýst um að segja 90% sannleikann. Minnir að það hafi áður komið fram. Umræðuefni af ýmsum toga; allt frá fordómum vinstrimjúklinga fyrir hægrafólki í ræktinni til já, ýmislegs góðs.. Hið harða hægri lætur ekkert á sig fá. Búum við í lýðræðiskerfi? Naumlega. Gagnrýni á hendur Heiðars Guðjónssonar karlmanns vikunnar svarað. Þætti lýkur með einu fegursta ljóði íslenskrar tungu. P.s. Laus staða hjá Skoðanabræðrum í samfélagsdeild. P.s.s. mögulega lök hljómgæði hér veg...
Jul 21, 2023•1 hr 12 min
Skoðanabræður: Alltaf 90% sannleikurinn. Það er loforðið og það er ekki svikið í dag. Farið yfir ritskoðun á sviði tækninnar og framtíðarland internetsins. Zuckerberg er að breyta ímynd sinni. Snorri uppgötvar forvitnilega þræði í langfeðgatali sonar síns. Milan Kundera minnst. Landsframleiðsla dregst saman vegna veðurs. Og fyrirsögnin: Jonah Hill er óþægilegur við fyrrverandi kærustu sína. Hún ósanngjörn að opinbera allt dæmið.
Jul 14, 2023•3 min
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Fyrsti karlmaður vikunnar nýrrar seríu er fjárfestirinn Heiðar Guðjónsson, nýkominn heim frá Grænlandi, þar sem hann leitar af málmum. Umræðuefni eru m.a: bjartsýni, þjóðernisofsi, hagfræði, ævintýri, báknið, hægrimennska, fjárfestingar í listum, Peter Thiel og framtíðin. „Ertu team Björgólfur Thor eða ertu team Róbert Wessmann?“ - „Já ég er svo sannarlega ekki team Róbert Wessman“.
Jul 07, 2023•9 min
SKOÐANABRÆÐUR Í FULLRI LENGD Á PATREON: Hvað hefði Travis Scott gert ef hann hefði rekist á Snorra Másson á Íslandi? Margt rætt. Bræðurnir fara yfir þá endurskrifun sögunnar sem nú á sér stað. En það er allt í lagi, það er auðvitað ekki hægt að skrifa sögu, heldur aðeins endurskrifa. Lúsmý nefnt – hvernig leggst sú bölvun fyrst á okkur nú eftir þúsund ára Íslandsbyggð? Snorrabúð stekkur. Á þeim nótum: Kallað eftir endurreisn Alþingis á Þingvöllum. Þjóðernisofsi eina leiðin fram á við, segja menn...
Jun 30, 2023•7 min
Snorri og Bergþór snúa aftur.. 4 þættir á mánuði.. í allt sumar og allt haust og allan vetur! Hlustið á þennan þátt með áskrift inni á www.patreon.com/skodanabraedur
Jun 22, 2023•3 min
Sólin heim úr suðri snýr.. sumrið lofar hlýju.. Grand Finale. Upp og niður í Nippon: Tokyo, Nagano, Osaka, Nara, Kyoto, Hiroshima, Ozu, Tokyo. 24. apríl, 26. apríl, 30. apríl, 1. maí, 3. maí, 6. maí, 8. maí, 10. maí, 13. maí, 16. maí, 17. maí, 18. maí, 20. maí, 23. maí, 26. maí, 27. maí. Arigato josé-mas!
May 30, 2023•1 hr 54 min
Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Kominn aftur til Bali, liðsauki kallaður inn, rúllað yfir eyjuna í taxa; Uluwatu, eldfjall, Norðurhluti. Snúum síðan aftur í djöfulganginn í suðri, leigjum villu og endum síðan epíkina í hreinu paradísinni Gili Air. 1.-24. apríl
Apr 27, 2023•1 hr 23 min
Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Hrökklaðist frá Bali yfir á eyjurnar í kring, sný síðan aftur tilbúinn í stríð. 3. mars - 1. apríl Bali (Canggu), Nusa Lembongan, Nusa Penida, Gili Air.
Apr 04, 2023•1 hr 19 min
Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Sannleikurinn á þriðja degi. Ítarleg Vipassana frásögn 17-28. febrúar, 2. mars, 4. mars Vipassana & Kathmandu. Við höldum áfram - As we proceed.....
Mar 09, 2023•50 min
Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Mjúk lending í Nepal. 12. feb, 16. feb, 17. feb, 28. feb. Lumbini, Bardia frumskógur, Vipassana inngangur og útgangur. pt. 2 soon come!
Mar 06, 2023•33 min
Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Sjúkir en fagrir dagar að baki. Indlandsþríleiknum formlega lokið, I had a ball. Lokaniðurstaða: Stórkostlegt land og þjóð. Bodh Gaya, Bihar, Gorrikhpur. 3. - 10. feb. 5. feb, 8. feb, 10. feb, lokaorð.
Feb 20, 2023•42 min