Skoðanabræður - podcast cover

Skoðanabræður

Bergþór Másson podcasters.spotify.com
www.patreon.com/skodanabraedur Fremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi. 5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfati Ber er hver að baki nema sér bróður eigi.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#201 Skoðanir Fríðu Ísberg

www.patreon.com/skodanabraedur Fríða Ísberg skáld og rithöfundur fær sér sæti í Egilsstofu og ræðir pólaríseringu, samkennd, ritstörfin, gagnrýni, success, stjórnmálin almennt, spítaladvöl sína, nýju skáldsögu sína Merkingu og allskonar annað epískt.

Dec 03, 20211 hr 42 min

#200 Stóri þátturinn um fíkn

Í vikulegum þætti er rætt um grasfíkn, áfengisfíkn, lögleiðingu í Þýskalandi, þráhyggjur, gerðar upp sakir við Fortuna Invest og hinir óumflýjanlegu fjórir kostir hvers karlmanns; I. að verða að föður sínum; II. að ganga í herinn; III. að gera konseptlist; eða IV. að deyja í skóginum. Og auk þess leggjum við til að ÁTVR verði lögð í eyði. Farið á Patreon!

Nov 30, 20211 hr 5 min

#199 Skoðanir Kjartans Þórissonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur Kjartan Þórisson er king frumkvöðull og hefur sett nokkur fyrirtæki á stofn í gegnum tíðina. Við förum yfir startup heiminn í viðu samhengi - á skemmtilegan hátt. Geðsjúka peningamaskínan Google, Noona, heilsukvíði, Guð, Zuckerberg, Game A & Game B, framtíðin, ethics, hnignandi heimsveldi, peningar, sýn, stefnur, samfélög og stjórmál!

Nov 26, 20212 hr 24 min

#198 Auðvitað kennum við leiðinlegt shit en ekki gagnlegt drasl

Veður eru válynd… nóvember. Þetta gerist ekki verra, segir Bergþór, en það er jákvætt. Þetta er þess vegna bókstaflega ekki að fara að verða verra. Til umræðu í vikunni eru að sjálfsögðu einkum skilaboð kvennanna í Fortuna Invest til þjóðarinnar: Lánveitingar skipta meiru máli en helgur menningararfur. Það er svosem hægt að fallast á það í svona praktískum skilningi. En málið er flóknara, eins og hér er rætt. Við ræðum einnig stöðu fjölmiðla, eins og okkar er von og vísa. RÚV – eru þau að missa ...

Nov 23, 20211 hr 2 min

#197 Skoðanir Níels Thibaud Girerd

Sælir, Nilli, og nú er hann mættur í Skoðanabræður, öllum þessum árum síðar. Hann er útskrifaður leikari, hefur verið lykilmaður í Íslensku óperunni um árabil og kann bíómyndina uppúr Kristnihaldi undir jökli utan að. Persónulegt viðtal við Niels, sem er sérstaklega mikill kóngur, verður að segjast. Og auðvitað, óhjákvæmilega, eru gerð upp þau miklu eftirmál sem urðu af sakleysislegu freestyle-i Nilla fyrir sjónvarp mbl.is á Airwaves 2011. Að verða stjarna fyrir annað eins er auðvitað einstakt f...

Nov 19, 20212 hr 3 min

#196 Rotnandi Líkami Joe Bidens

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Stemningin var gífurleg í Egilsstofu þetta mánudagskvöldið. Epískur þáttur og epískar umræður um Joe Biden og hægðirnar hans, Verzló Vælið, hvort það sé í lagi að hringja sig inn veikan, Viðreisnarlibba, Dave Chapelle & Þórdís Kolbrún & transfólk, Spánn, heilbrigðiskerfið og íslenska vinstrið.

Nov 16, 20211 hr 2 min

#195 Skoðanir Glódísar Guðgeirsdóttur

Glódís Guðgeirsdóttir er fyrrverandi fimleikakona, jarðfræðingur og leikmaður í leiknum. Hérna er farið yfir allt það sem er gaman að hlusta á fólk tala um í podcasti: Lyftingar, Twitter, Fimleikasambandið, borgarskipulag, Vatnsenda, Flateyri, djammið og bíla.

Nov 12, 20211 hr 45 min

#194 Er ásættanlegt að klæðast Ralph Lauren?

Snorri á Spáni, Bergþór í borg kvíðans. These are dark times, there is no denying. But you can't fight this war on your own, Mr. Potter… segir á einum stað. Þetta á líka við núna, og um hlustendur Skoðanabræðra – þið þurfið á þessu að halda. Ýtið á play og hlustið á vitrænar samræður um allt frá nýju nýlendustefnunni til hins syfjaða einstaklings í Hvíta húsinu. Hvað gerir maður þegar Frakkarnir týna töskunni manns og hvert fer maður, ef það er engin leið út úr heiminum?

Nov 09, 20211 hr

#193 Skoðanir Joey Christ og Tatjönu Dísar

Jóhann Kristófer Stefánsson og Tatjana Dís eru að sitja upp leiksýninguna Sýningin Okkar í Þjóðleikhúsinu. Skoðanabræður höfðu svo gaman af sýningunni að þeir vildu ræða hana frekar og fengu kings í þáttinn. Joey ætti að vera bræðralaginu kunnur - þetta er tíunda framkoma hans í Skoðanabræðrum, en annars er hann sviðshöfundur og rappari. Tatjana er sviðshöfundur og raftónlistarkona. Hérna er talað um: kakóhægrið, Leynilögguna, áföll, fjölmiðla, samfélagsmiðla, seremóníur, hlutverk listar og allt...

Nov 05, 20211 hr 37 min

#192 Skeggjuð sambönd stórstjarnanna

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Í þessum kóngalega bræðralagsþætti er farið um heima og geima en hinum hreina þræði haldið þéttum í gegn eins og vanalega. Umræðuefni eru meðal annars; hrekkjavökur í Hlíðunum, poppstjörnur, tæknimenntað fólk, Kim Kardashian, Pete Davidson, Nóvember, Freud fjölskyldan og The Century of the Self, Simmi Vill og nýja félagið hans, aðdragandi morðsins á sænska rapparanum Einár ofl ofl ofl.

Nov 02, 20211 hr

#191 Skoðanir Hjörvars Hafliðasonar

Velkomin í hlaðvarp ungra jafnaðarmanna. Hjörvar Hafliðason er stór í leiknum, það liggur fyrir. Hér á nýjum vettvangi, nefnilega mættur í 101 og þurfti að kaupa nýjan bol á leiðinni í þáttinn til að falla örugglega í kramið. Skoðanabræður vildu óska þess að þeir kynnu að meta snilligáfu hans á sviði fótboltans. Því er ekki að heilsa og því er grafið eftir snilligáfu á öðrum sviðum, sem reynist ekkert ýkja djúpt á. Það er ekki margt um þetta að segja svona skriflega, hér setjast einfaldlega regi...

Oct 29, 20212 hr 10 min

#190 Einkaskoðanir Jóhannesar Hauks

Farðu á Patreon fyrir heildarupplifunina. Það kostar í alvöru mjög lítið. Það er talað um poetic justice í enskumælandi löndum... að fá Jóhannes Hauk til að gagnrýna ráðstafanir Skoðanabræðra í auglýsingamálum, en um leið nota viðtalið við hann til að fjölga áskrifendum að sama kerfi og gerir þeim kleift að stunda umræddar brellur. Brellur er ákveðin leið til þess að orða þetta og að mínu mati ómakleg. Þetta eru afkomubætandi áherslubreytingar. Sömuleiðis ræðum við mál Alec Baldwin við Jóhannes ...

Oct 26, 20211 hr 3 min

#189 Skoðanir Sögu Garðarsdóttur

Saga Garðarsdóttir.. hún vildi ræða „samskipti kynjanna“ – rangt podcast! Skoðanabræður eru sex-negative en einhvern veginn leiðist umræðan út á þessar slóðir. Það er þó sannarlega ekki verið að ræða einstök mál heldur almennt um eðli málaflokksins. Annað rætt; grínið, rétttrúnaðurinn, lífið og leigumarkaðurinn. Einkum er til umfjöllunar ákveðin íslensk kvikmynd. Sögu blöskraði þegar hún las annan Skoðanabræðra benda á hið rétta, að Stella í orlofi væri „versta mynd sem hann hefði séð.“ Saga: „É...

Oct 22, 20211 hr 50 min

#188 Sérstakur Succession-þáttur, seinni hluti

Í heild sinni inni á Patreon: Í seinni þætti Skoðanabræðra um Succession, bestu sjónvarpsþáttaseríu allra tíma, greinum við karakterana, þættina sjálfa, tónlistina, handritin, leikarana og aðra seríu í heild sinni! Sérfræðingar og góðvinir þáttarins kallaðir inn; Hákon Jóhannesson leikari og Jóhann Kristófer Stefánsson sviðshöfundur. Epic epic epic epic.

Oct 19, 20211 hr 13 min

#187 Skoðanir Emmsjé Gauta

Reykjavík… eins og beittur hnífur. Hann þekkir borgina, leikinn, strætin og svo núna, lífið. Gauti átti að vera kominn fyrir löngu en núna er hann fenginn til að gera upp ýmis mál. Fyrst dettur mér í hug ummæli hans um Reykjavíkurdætur á sínum tíma - hér er það loks gert upp! Allt á fremsta vettvangi íslenskra hlaðvarpa. Einnig er rætt um CBD, sem er mögulega að verða helst til fyrirferðarmikið í Skoðanabræðrum. Skulum reyna að finna lausn á því. En er á meðan er – njótið þáttarins og farið á Pa...

Oct 15, 20211 hr 59 min

#186 Sérstakur Succession-þáttur, fyrri hluti

Hlustaðu í fullri lengd inn á www.patreon.com/skodanabraedur Í þessum fyrsta þætti Skoðanabræðra um Succession, bestu sjónvarpsþáttaseríu allra tíma, greinum við karakterana, byrjun þáttanna, tónlistina, handritin, leikarana og fyrstu serínu í heild isnni! Sérfræðingar og góðvinir þáttarins kallaðir inn; Hákon Jóhannesson leikari og Jóhann Kristófer Stefánsson sviðshöfundur. Epic epic epic epic.

Oct 12, 20211 hr 4 min

#185 Skoðanir Ármanns Arnar Friðrikssonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur Ármann Örn Friðriksson úr Kef Lavík er tónlistarmaður, skáld, sjóari, verkfræðingur, a man of science, kvótakrakki, kapítalisti, free thinker, Hornfirðingur, libertarian og mikill king. Hér tyllir hann sér í Egilsstofu og fer yfir heima og geima með okkur.

Oct 08, 20212 hr 9 min

#184 Munurinn á körlum og konum

Ertu kona? Eða ertu búin að vera í lýðháskóla í sex ár? Eða áttarðu þig á því að loftslagsváin er sannkölluð ógn? Þá er þessi þáttur fyrir þig. Farðu á Patreon! (Önnur umræðuefni: Nýja serían af Ófærð, Auto nýr skemmtistaður, Beggi stjarna í Noregi, ævisaga Woody Allen og loks sannleikurinn um rómantískar gamanmyndir.)

Oct 05, 202159 min

#183 Skoðanir Sigurðar Sævars Magnúsarsonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Hér er tekið viðtal við myndlistarmanninn Sigurð Sævar og drukkið kampavín í beinni, í fyrsta skipti í Egilsstofu og örugglega í podcasti á Íslandi. Sigurður fer yfir ferilinn, ræðir pólitík, haters, myndlista, enskukunnáttu sína, Holland, kónginn í Hollandi, frelsið, fegurðina og fagmennskuna.

Oct 01, 20211 hr 51 min

#182 Hafa heimskir Bandaríkjamenn frjálsa hugsun?

Allt rætt nema niðurstöður kosninganna, að sjálfsögðu. Þetta er ekki pólitískt hlaðvarp. Að því sögðu.. umræðuefni þáttarins eru niðurstöður þýsku kosninganna, grundvallarhugmyndir bandarískrar nýlendustefnu og ákvörðun demókrata að koma Joe Biden að á sínum tíma. Djók!! Í alvöru, það sem við ræðum eru lúserasmásögur, kostir íslensks samfélags og persónutöfra Glenn Greenwald. Og svo er daðrað við anti-vax, að vanda.

Sep 28, 202158 min

#181 Skoðanir Dóra DNA og Unu Þorleifsdóttur

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Dóri DNA skáld og Una Þorleifsdóttir leikstjóri ræða fótbolta, kynlíf, Kanye West, samfélagsmiðla, leikritið sem þau eru að sýna í Borgarleikhúsinu, stjórnmál, borgarpólitík, uppeldi, cancel-kúltur og allskonar annað.

Sep 24, 20211 hr 41 min

#180 Kosningaþáttur með Jakobi Birgis og Aroni Kristni

Kannski ekki það sem heimurinn vill, en það sem hann þarf. Sérstakur kosningaþáttur með grínistanum Jakobi Birgis og poppsöngvaranum Aroni Kristni. Sérfræðingar kallaðir til. Málin rædd, og ekki rædd. Eru þessar kosningar svona sjúklega leiðinlegar, eða hvað?

Sep 21, 20211 hr 9 min

#179 Skoðanir Steinþórs Helga

Steinþór Helgi Arnsteinsson.. been in the game. Sérfræðingur í málefnum djammsins og hefur nálgast það úr ýmsum áttum, sem umboðsmaður, tónleikahaldari og nú rekstraraðili, Röntgen. Þar er sýslað með skegg, en demógrafían er óræð. Það rætt hér í þessum þætti. Og fleira, hápunktar djammsögunnar, en einnig, enda er það nauðsynlegt með mann eins og Steinþór, einfaldlega farið yfir ferilinn. Gettu Betur, þar sem Steinþór er sagður hafa látið sig falla til að vinna, og CCP, þar sem hann skipulagði nö...

Sep 17, 20211 hr 29 min

#178 Domino's er ekki vont, lúserinn þinn

Tvöfalt beikon og tvöfaldur ostur. Það er karlmannleg samsetning. Aðeins farið yfir pizzur Skoðanabræðra. Og: Eiturlyfjanotkun íslenskra stjórnmálamanna og nýja platan hjá J Balvin. Hvað fleira? Man það ekki, epískur þáttur samt. Farðu á Patreon!

Sep 14, 202151 min

#177 Skoðanir Kristrúnar Frostadóttur

Kristrún Frostadóttir hagfræðingur og frambjóðandi Samfylkingarinnar ræðir heimssýnina, stjórnmálin, the campaign trail, hina flokkana, eina prósentið, fjármálageirann,The Wire, kosningarnar í haust, Samfylkingu fyrr og nú, sameiningu vinstrisins og framtíðina. Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur

Sep 10, 20211 hr 50 min

#176 Að fá símtal frá Kveik

Hlustaðu í fullri lengd með áskrift á www.patreon.com/skodanabraedur Katrín Jakobsdóttir í partíum, betalúserarnir á Twitter, DONDA, Certified Lover Boy, Símtal frá Kveik, háskólanám, Flottur Skrákur 2, Samsung classismi, The Mike Show cancellation (Dominos & Thule), DaBaby & Marilyn Manson, Stundin & Kjarninn, lögfræðingar og spilltir dómarar og allskonar annað.

Sep 07, 20211 hr 4 min

#175 Skoðanir Sigurbjarts Sturlu Atlasonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Sigurbjartur Sturla Atlason Sturla Atlas fær sér sæti í Egilsstofu og kóngar sig í gang eins og aldrei fyrr. Shakespeare, leikhús, íslenskt menningarástand, NoFap, kaldar sturtur, Jordan Peterson, aumingjaskapur, loftslagsmálin og hvernig skal sigra.

Sep 03, 20211 hr 47 min

#174 Afgönsk paradísarheimt

Heilaveiki Joe Biden, hið ósigrandi epíska Afganistan, Trumparinn, Kanye West & Drake, DONDA & HRingar, KSÍ & Guðni Bergs, OnlyFans & vændi, valdaleysi og kokkálun fótboltamanna og allskonar annað til umræðu í þessum king þætti!

Aug 31, 202158 min

#173 Skoðanir Kristínar Eiríksdóttur

Kristín Eiríksdóttir skáld fer yfir málin með Skoðanabræðrum og ræðir skoðanir sem þó fá mann ekki upp á kassa til að steyta hnefann í mótmælaskyni, hún ræðir brjálæðislega tímann í kringum síðustu aldamót, hún ræðir ósanngirni þess að draga rithöfunda persónulega inn í verkin sín – og möguleg varnarviðbrögð þeirra við því – og loks er hún kurteislega spurð út í nýlegt mál, nefniega líkindi verks hennar Hystory við sjónvarpsþættina Systrabönd.

Aug 27, 20211 hr 24 min

#172 „Gellur eru alltaf graðastar í bústað”

Já.. við höldum áfram að taka við umræðuefnum úr sal, af einhverjum sökum. Þau eru eftirfarandi: kjarnorka, tilfinningar, djamm fm95blö að byrja með podcast á eh vísis patreon platformi í staðinn fyrir að nota bara patreon hvers vegna living legendið már jónsonn er ekki enn mættur í heilan þátt deep analysis á hráhakkáti SDG - hvað er í gangi með SDG stöðu fjölmiðla á íslandi og mikilvægi þeirra hálendisþjóðgarður staðreyndina að það eru geimverur búnar að vera að heimsækja okkur síðustu 70 árin...

Aug 24, 20211 hr 5 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android