Skoðanabræður - podcast cover

Skoðanabræður

Bergþór Másson podcasters.spotify.com
www.patreon.com/skodanabraedur Fremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi. 5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfati Ber er hver að baki nema sér bróður eigi.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#171 Skoðanir Lil Curly

Lil Curly.. samfélagsmiðlastjarna landsins. „TikTok“ – er það ekki sakleysisleg tómstundaiðja? Nei, virðist geta verið annað og meira og maður sem hefur þegað sigrað Ísland þarf auðvitað að fara út í heim. Stefnan er tekin þangað, eins og hér er rætt. Í millitíðinni er samt best að láta ekki cancella sér, segir Curly, sem er auðvitað bara maður með sínar tilfinningar, heitir meira að segja Arnar Gauti Arnarsson svona að skírnarnafni. Og ræðir hér ýmislegt við Skoðanabræður, allt frá háleitum mar...

Aug 20, 20211 hr 9 min

#170 Hjörvar Hafliða vs. Covid?

Skoðanabræður tóku við frábærum spurningum frá Skoðanabræðralaginu og gerðu gott úr þeim. Þeim er svarað í þessum þætti og eru eftirfarandi: hjörvar hafliða vs covid gísla valdórsson take á hvort það sé hægt að forðast frændhygli nepotism í samfélaginu allt dæmið með kanye núna - donda - markaðssetningin, thoughts á plötunni, er kanye að fokka í drake og bíða þangað til hann droppar CLB? hafiði fengið closure á kynhneigð ykkar þeas hvernig vitiði að þið eruð ekki hommar bitcoin komið aftur á skr...

Aug 17, 202153 min

#169 Skoðanir Tuma Gonzo Björnssonar

www.patreon.com/skodanabraedur Fyrsta einkaviðtalið við Tuma Gonzo Björnsson, manninn sem Trumpaði forsetakosningar MH árið 2015 og lofaði að gera skólann meira dirty. Þátturinn er tekinn upp í Egilsstofu og karlmennirnir þrír sem grípa í mæka eru allir í rúllukragapeysum. Hér talar Tumi um hvernig hann komst inn á Sviðshöfundabraut LHÍ (Joey Christ brautina), hvernig hann lauk því námi og hvað hann fékk út úr því. Einnig talar hann um grasferðir til Amster, vinnuna í ferðaþjónustunni, reefer pa...

Aug 13, 20212 hr 16 min

#168 Eini rapparinn sem hefur verið cancelled

Já.. það er nauðsynleg umræða. Annað sem er mjög til umræðu er ögrandi sundfatnaður kvenna, sem Skoðanabræður telja sig í stöðu til að hafa skoðun á. Enn annað sem er mjög til umræðu í þættinum: Stóra plastmálið, þar sem fyrirtæki telja sig þess umkomin að skerða lífsgæði neytenda í nafni sýndarmennsku. Hver tapar?

Aug 10, 202154 min

#167 Skoðanir Atla Fannars Bjarkasonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Karlmaður vikunnar er núverandi samfélagsmiðlastjóri Ríkisútvarpsins og fyrrverandi fjölmiðlamaður; Atli Fannar Bjarkason, kóngurinn sjálfur. Við tölum um bóluefni, samfélagsmiðla, fjölmiðla, Bandaríkin, íslenska pólitík - og allskonar annað sem skiptir máli.

Aug 06, 20211 hr 53 min

#166 Sannleikurinn sem opinberaðist með mollý

Já.. ekki aðeins MDMA á reifi í Reykjavík og allt um reynslu annars þáttastjórnanda af öðru eins, heldur líka ólöglegt partí á Flateyri. Ertu lögga? Njóttu vel. „Hvað er það sem lætur fólk elska að gera hluti sem það má ekki,“ spyr einn king. Svara leitað. Önnur umræðuefni: Nietzsche og siðferðið, svívirðingar á TikTok og Óli Stef handboltamaður. Patreon!!!

Aug 03, 20211 hr 1 min

#165 Skoðanir Siffa G & Tomma Steindórs

Frá þeim sem færðu þér Skoðanir Siffa G., Skoðanir Siffa G. II. og Skoðanir Tomma Steindórs, koma nú Skoðanir Siffa G. og Tomma Steindórs! Þetta er tímamótaveisla - rúta af Tuborg og staðreyndir. Strákar eru æðislegir! Ekkert um stöðu fjölmiðla, ekkert um skaðsemi samfélagsmiðla og ekkert um íslenskar bókmenntir. Bara veisla: Eru dýragarðar siðferðislega réttlætanlegir? Já. Strákaferðir? Veisla. En að vera strákur í sex manna hóp? Tækt á meðan þið eruð ekki fleiri. LungA? Gardínuhátíð, en kóngal...

Jul 30, 20211 hr 42 min

#164 Kanye West - fimmti þáttur, lokaþáttur

Jóhann Kristófer og Logi Pedro Stefánssynir mæta í Egilsstofu og koma galvaskir inn í seinni hluta Kanye West seríu SB Projects ehf. Epík eina sanna í loftinu eins og vanalega. Í þessum þætti er m.a talað um The Life of Pablo, Kim Kardashian og fjölskyldu, Jesus is King, Trump, ye, Pusha T og framtíð Kanye.

Jul 27, 202153 min

#163 Skoðanir Sölku Valsdóttur

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Salka Valsdóttir tónlistarkona fær sér sæti í Egilsstofu og fer yfir stóru málin með okkur. Fyrri hluti: MeToo, sjálfskoðun, trauma og sársauki Íslendinga. Seinni hluti: Berlín, saga og þýðing Reykjavíkurdætra, leikhúsmenning þýsk og íslensk, listgagnrýni og sköpun.

Jul 23, 20212 hr

#162 Kanye West - fjórði þáttur

Jóhann Kristófer og Logi Pedro Stefánssynir mæta í Egilsstofu og koma galvaskir inn í seinni hluta Kanye West seríu SB Projects ehf. Epík eina sanna í loftinu eins og vanalega. Í þessum þætti er m.a talað um Cruel Summer og Yeezus, raftónlist og geðveiki.

Jul 20, 202151 min

#161 Skoðanir ClubDub (II.)

ClubDub mæta aftur tveimur árum eftir fyrri þátt. Þeir hafa þroskast - nema nei! Óábyrgt tal í boði Skoðanabræðra þessa vikuna, en líka ýmislegt skynsamlegt. Þetta er bókstaflega epískur þáttur.

Jul 16, 20211 hr 54 min

#160 Kanye West - þriðji þáttur

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Jóhann Kristófer og Logi Pedro Stefánssynir mæta í Egilsstofu og koma galvaskir inn í seinni hluta Kanye West seríu SB Projects ehf. Epík eina sanna í loftinu eins og vanalega. Í þessum þætti er talað um Taylor Swift og VMAs, meistaraverkið mikla My Beautiful Dark Twisted Fantasy og svo Watch The Throne.

Jul 13, 202159 min

#159 Skoðanir Jakobs Birgissonar (II.)

Gæinn sem léti sér detta í hug að bjóða Skoðanabræðrum að vera með annan live þátt, eins og þeir gerðuð með Jakobi Birgissyni 2019, hlýtur að vera mesti startup-loser á Íslandi. Hann myndi tróna á toppnum – og næg er samkeppnin. En sem betur fer er ekki verið að gera það. Nú er Jakob fenginn að borðinu inn í hljóðverið á Útvarpi 101. Og hann hefur frá ýmsu að segja, sem sagt nokkurri reynslu af vettvangi skemmtanalífsins á Íslandi. Í alvöru. Hjörvar Hafliða segir meira að segja að hann sé fyndin...

Jul 09, 20212 hr 12 min

#158 Kanye West - annar þáttur

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Annar þáttur enn betri en sá fyrsti. Graduation & 808s Heartbreak meginfókus. Að sjálfsögðu talað um margt annað. Síðasti þátturinn með Arnari og Aroni. Góðir gestir í næstu þáttum.

Jul 06, 20211 hr 17 min

#157 Skoðanir Atla Bollasonar

Atli Bollason myndlistarmaður, bókmenntafræðingur og leikmaður í leiknum rýnir í „menningarástandið“ með okkur. Rave & techno, löggufasismi, áhrifavaldar, rapparar, auðvaldið, RÚV, tilgangsleysi, vinnur og samfélagsmiðlar, þetta klassíska. Þetta er epic þáttur, hlusta!

Jul 02, 20212 hr 17 min

#156 Kanye West - fyrsti þáttur (AFLÆSTUR)

Þá er loksins komið að því.. the long awaited KANYE WEST sería. Epík í eyrun. Arnar Ingi Ingason og Aron Kristinn Jónasson tónlistarmenn eru með okkur í fyrstu tveimur þáttunum. Gestir í rest kynntir inn seinna. Í fyrsta þættinum gerum við Kanye skil, hvað þýðir hann, hvað er hann og hver er hann? Æskan, pródúseraferilinn, College Dropout og svo Late Registration. Meira í næstu viku, lessgo. Næstu þættir eingöngu aðgengilegir inni á Patreon! www.patreon.com/skodanabraedur...

Jun 29, 20211 hr 21 min

#155 Skoðanir Lóu Bjarkar og Sölku Gullbrár

Meeting of the minds… Skoðanir Athyglisbrests á lokastigi, óvinapodcasts Skoðanabræðra. Hérna er virkilega tekið á málunum - allt frá samskiptum kynjanna til harðra eiturlyfja. Í rauninni bara fullkomlega basic umræðuefni, en virkilega ferskur þáttur með persónulegu árásarívafi. Farið á Patreon!

Jun 25, 20212 hr 12 min

#154 Hafnanir á djamminu

Klassískur epískur bræðralagsþáttur.. útskriftarveislu gerð skil, áfengi & vímuefni rædd, íslenskt tónlistarlíf án gatekeepera, Gísli Pálmi & Aron Can, hjúkrunarfræðingar og læknar, ófyrirsjáanleiki djammsins og allskonar annað! mælt með hlustun..

Jun 22, 202156 min

#153 Skoðanir Vignis Heiðarssonar

Frjáls fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Vignir Heiðarsson átti sér draum um að verða stærsti endursöluaðili notaðra bóka á Íslandi. Sá draumur rættist. Síðan vildi hann í rauninni verða Góði Hirðirinn; Góði Vignirinn. Það á eftir að gerast. Hérna fer hann yfir braskið í bókaheiminum og segir frá því þegar hann var niðurlægður og rekinn úr vinnu, kærði málið, græddi milljón og fór að ferðast. Önnur umræðuefni eru: Elon Musk sem stærsta fyrirmynd Vignis, Tesla, Neurolink og SpaceX, J...

Jun 18, 20211 hr 42 min

#152 Íslenski draumurinn: að traðka á andlitum

Farðu á Patreon, taparinn þinn. Umræðuefni eru: Atburðir síðastliðinna daga, hvað kjósa Birgitta Líf, Sunneva Einars og Kristín Péturs?, Brynjar Níelsson, DV, hnefanir í flugvélum Play, snilligáfa Áslaugar Örnu, Janssen þynnkan, anti-vaxx kóngar, íslenskt næturlíf og allskonar annað epískt.

Jun 15, 20211 hr

#151 Skoðanir Auðar Ómarsdóttur

Komið á Patreon! www.patreon.com/skodanabraedur Auður Ómarsdóttir er myndlistarkona nýkominn úr mastersnámi í Noregi. Einnig hefur hún spilað handbolta semi-pro, þannig að hún er fact fyrsti karlmaður vikunnar sem hefur haft atvinnu af íþróttum. Myndlist og handbolti! Tvenna guðs. Talað um það hér ásamt ýmsu öðru eins og; bælingar og peningar íslenskra útgerðarmanna, Britney Spears & Billie Eilish, Peyote seremóníur á Laugarvatni, útistöður við leigusala og Tinder í Noregi, Listaháskóli Ísla...

Jun 11, 20211 hr 55 min

#150 Sannleikurinn um Daða og Gagnamagnið

Farðu á Patreon - fáðu það í símann, það er mjög þægilegt. Af hverju er Eurovision-atriðið svona ömurlegt? Það er ekki sanngjörn lýsing. Skulum kafa dýpra. Þessi þáttur er samt alls ekki um það. Annað er rætt í þessum vikulega þætti: Pressan er orðin veruleg á Twitter og við verðum aðeins að ræða það, allt auðvitað án þess að cancella sjálfum okkur. Góð veisla.

Jun 08, 202155 min

#149 Skoðanir Ísabellu Lenu

Patreon! Skoðanabræður. Komið í áskrift. Já... hér segir titillinn allt sem segja þarf. Skoðanir Ísabellu Lenu. Er MeToo gengið of langt? Nei, grín. Hér er rætt um mál málanna, ofskynjunarlyf, sem mig grunar svo sem að verði kallað eitthvað allt annað að liðnum fáeinum árum eftir því sem þekkingu vindur fram á fyrirbærinu. Það á sem sagt að nota þetta í lækningum, og Ísabella ætlar að vinna við það. Við ræðum einnig hið pólitíska landslag, sem sagt um allt þetta ógeðslega fólk sem er alls staðar...

Jun 04, 20212 hr 5 min

#148 Skoðanir MS

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Menntaskólinn við Sund tekinn fyrir. Páll Bergþórsson lögfræðingur (f. 1990) og Stormur Kormákur Baltasarsson (f. 2002) fara yfir málin. U-ið, baggið, djammið, dópið?, kúkaklósettin, sterarnir, vinkonurnar og staða skólans í valdastrúktur íslenska menntaskólakerfisins. Lengi lifi Beljan, lengi lifi Svanurinn, þetta er Gnoðavogurinn!

Jun 01, 20211 hr 11 min

#147 Skoðanir Jakobs Bjarnars Grétarssonar

www.patreon.com/skodanabraedur „Guð minn almáttugur já“, „loksin loksins“, „shit hvað ég fkn hlakka til að hlusta“. Þetta eru viðbrögð nokkura meðlima bræðralagsins (skeggjuðustu smásálirnar? maður spyr sig) sem fengu, á undan öðrum, að frétta af því að The Dark Knight Jakob Bjarnar hafi fengið sér sæti í Egilsstofu með okkur eitt föstudagskvöldið og látið gamminn geysa. Væntingarnar voru miklar og Jakob stóðst þær. Hér er talað um; íslenska fjölmiðla, mikilvægi DV & Mannlíf, hvað ógeðslegir...

May 28, 20212 hr 11 min

#146 Skoðanir Verzló

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Verzlunarskóli Íslands, þar sem valdafýsnir ungir karlmenn komast í fyrsta skipti í snertingu við hinn sjúka heim spillingar, læra að svívirða konur og aðra hópa sem minna mega sín, bæla niður allra tilfinningar, drepast á bjórkvöldum, kýla í veggi, öskra í kodda, og ganga yfir mörk? Eða hvað? Sóley Margrét Valdimarsdóttir (f. 2002) stjórnar hlaðvarpsþætti Verzlunarskólans; Verzló Podcast. Hún greinir stöðu Marmarans í dag. Aron „Mola“ ...

May 25, 20211 hr 14 min

#145 Skoðanir Karls Ólafs Hallbjörnssonar

Karl Ólafur Hallbjörsson heimspekingur er karlmaður vikunnar. Umræðuefni eru meðal annars: Þegar ljóðabækur fara sem stormsveipur um samfélagið, Karl Marx, þjáningar íslenska nútímamannsins vs. þjáningar þræla á sveitabýlum fornalda, heimspeki & þunglyndi, að búa í útlöndum, húmorsleysi hægrimanna, Twitter ofl ofl

May 21, 20212 hr 7 min

#144 Skoðanir MH

Hlustaðu í fullri lengd inn á www.patreon.com/skodanabraedur - Hvaða viðbjóður er Norðurkjallari? Eru MH-ingar enn grashausar í gardínum eða er byltingarandinn á undanhaldi? Og tengist það nýjum sófum í Norðurkjallara? Anti-homeless architecture hefur aldrei átt meiri rétt á sér. Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur og Sunna Tryggvadóttir nýútskrifaður MH-ingur ræða skólann í fortíð og framtíð. „MH er nýi Kvennó“ heyrðist sagt í Reykjavík á dögunum. Er það rétt?

May 18, 20211 hr 12 min

#143 Skoðanir Önnu Marsibil Clausen

Fullkomlega frjáls fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Anna Marsibil Clausen útvarpskona í mikilli veislu hér. Umræðuefni eru meðal annars: Hlaðvörp sem gas eða visionary stream of consciousness, fjölmiðlaumhverfi Íslands, áhrifavaldar & árás þeirra á lýðræðið, Davíð Oddsson og hlutverk hans á Íslandi í dag, ekki nauðgarar heldur fólk sem nauðgar, valdeflandi twerk, RÚV, menningargagnrýni, MeToo, forræðishyggja, TikTok og svo mögulegt menningarnám Bassa Maraj og félaga?...

May 14, 20212 hr 34 min

#142 Skoðanir Kvennó

Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Kvennaskóli Reykjavíkur - einu sinni bara fyrir konur en nú einnig fyrir karlmenn. Kvennskælingar eru allskonar eins og kemur í ljós í þessu samtali. Einhverjir myndu lýsa þeim sem fullkomlega venjulegu fólki; heiðarlegum Íslendingum - en sumir myndu hinsvegar svívirða og segja þá meðalmennskuna uppmálaða. Skoðanabræður taka ekki afstöðu, endilega. Maríanna Katrín (fædd 2003) og Stefán Gunnar Sigurðsson (fæddur 1993) fara yfir málin með...

May 11, 20211 hr 18 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android