Skoðanabræður - podcast cover

Skoðanabræður

Bergþór Másson podcasters.spotify.com
www.patreon.com/skodanabraedur Fremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi. 5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfati Ber er hver að baki nema sér bróður eigi.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#141 Skoðanir Bergs Ebba Benediktssonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Karlmaður vikunnar er Bergur Ebbi grínisti, rithöfundur, fyrirlesari og podcastari! Umræðuefni þáttarins eru meðal annars; staða íslenskra hlaðvarpa, Norðurslóðir, líkamsstaða, jakkar, að klæða sig eftir aldri, ógnarvald Facebook, customer service tæknifyrirtækja, áhrifavaldar & stjórnmálamenn, Áslaug Arna, Guðmundur umhverfisráðherra, árshátíðir, íslenskir fjölmiðlar og Morgunblaðið '95....

May 07, 20212 hr 5 min

#140 Skoðanir MR

MR? Nördar? Lúðar? Kvenhatarar og vændiskonumyrðandi karlmenn? Femínistar? Allt saman, er rétta svarið, virðist vera, enda útilokar ekki annað hitt, en þar með er ekki öll sagan sögð. Þetta er margslungin ofbeldisstofnun sem við gerum hér tæmandi skil í einum þætti (sem má nálgast í heild á Patreon, ef þú ert í hlaðvarpsveitunni þinni að vera lúser). Umræðupunktar: Böll, áfengi, stofulúðar, gangnaslagur, málbreytingar og svo framvegis og svo framvegis. Persónur og leikendur eru þessir: Þrír MR-i...

May 04, 20211 hr 21 min

#139 Skoðanir Ágústs Elí Ásgeirssonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Ágúst Elí kvikmyndagerðarmaður og teiknimyndaking gerði flestöll góðu tónlistarmyndbönd rapparanna í góðærinu góða 2016/17/18 - hér segir hann frá því hvernig var að vinna með röppurum höllum undir plöntuna grænu í miðjum xanax faraldri, hvernig teiknimyndir virka og eru gerðar - einnig tölum við um; myndasögur, íslenska gagnrýni á whack dóti, B.O.B.U JóaPé og Króla, 12:00 og Verzló (förum vel yfir það), sósíalisma og framtíð Íslands....

Apr 30, 20211 hr 45 min

#138 Við hörmum að Ofurdeildin hafi ekki orðið að veruleika

Það er synd og skömm að ekki hafi orðið af Ofurdeildinni, einhverju merkasta framtaki síðari tíma, að mati Skoðanabræðra. Þetta kemur fram í nýjum Bræðralagsþætti, þar sem markið var sett hátt: Að mynda sér skoðun á einhverju gefnu fyrirbæri án þess að hafa nokkra minnstu forsendu til þess. En okkur skilst að ef af þessu hefði orðið, hefði verið úti um fótboltann. Þarna var dauðafæri illa nýtt. Önnur umræðuefni: Rétt og röng stjörnuspá, sturlaðar hugmyndir um einkavæðingu, viðbjóðslegir brundstó...

Apr 27, 202159 min

#137 Skoðanir GDRN

Söng- og leikkonan GDRN ræðir með okkur OnlyFans, áhrifavalda, Instagram, leiklistina, tilgangsleysi skoðana, Pál Óskar, tónleikahald, tónlistarbransann, að meika það erlendis og allskonar annað Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur

Apr 23, 20211 hr 19 min

#136 Skoðanir Joey Christ á grasi (4/20 Special)

„Ég held að þeir sem eru að borga í bræðralagið séu í miklu meira mæli einhverjir nerds sem eru ekki í alvöru að smoke-a hann.“ Jóhann Kristófer Stefánsson um ykkur, lúserarnir ykkar. Eru menn að fagna deginum? Eða viljið þið bara weed eftir djammið þegar þið eruð að fara heim með stelpu sem þið eruð að sofa hjá í fyrsta skipti og hún reykir augljóslega ekki það oft en er samt bara eitthvað mm jájá þú mátt alveg reykja? Hvert sem svarið er, er þessi þáttur óður til plöntunnar ógurlegu, eiturnaut...

Apr 20, 20211 hr 9 min

#135 Skoðanir Herra Hnetusmjörs

Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur Herra Hnetusmjör talar um aðgerðir stjórnvalda, mótmæli á Reykjanesbrautinni, landamæralokanir, hlaðvörp, stöðu íslensks rapps og íslenskrar tungu, Framsóknarflokkinn, sinn eigin stjórnmálaflokk og forsetaframboð, eftirlaunin 2044, fasteignabrask, árshátíðaspjallið, Hamraborg sem kvenmannsnafn og síðan eru hinar og þessar stofnanir svívirtar svo sem: RÚV, Rás 1, Rás 2, ÍSTÓN og FÍH

Apr 16, 20211 hr 21 min

#134 Á að gera venjulegt klám jafn ólöglegt og barnaklám?

Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Það sem er m.a talað um: Prins Filipus rest in pussy, DMX rest in power, fólk trúir því sem það vill trúa, grasreykingar um páskana, á að gera klám ólöglegt?, algoriþminn sem þurrkar út Joe Biden og Trump, klámvörubúðirnar íslensku sem raka inn milljónum og framtíðar bræðralagsþættir.

Apr 13, 20211 hr 1 min

#133 Skoðanir Þórðar Inga Jónssonar (Lord Pusswhip)

Þórður Ingi Jónsson hinn eini sanni íslenski Underground King einnig þekktur sem Lord Pusswhip fer yfir allt þetta helsta með Skoðanabræðrum: NFT's, alþjóðlega myndlistarmarkaðinn, Berlín, TikTok radíkalísering, stuðningur olíufyrirtækja við avant-garde listamenn, Reykjavík, Vesturbærinn, LA, Píratar og Vinstri Grænir, Bangerboy, íslenskt rapp, léleg íslensk popptónlist, og allskonar fleira. Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur

Apr 09, 20211 hr 36 min

#132 Skoðanir Danmerkur

Hlustaðu í fullri lengd á www.patreon.com/skodanabraedur Danmörk - þriðji þáttur í Norðurlandaseríu Skoðanabræðra. Draumaríki unga fólksins, veisla, hvort sem þú vilt reykja sígarettur og drekka bjór eða vera í CBS og myrða vændiskonur. Nokkrir sérfræðingar varpa ljósi á land og þjóð. Sindri Jensson kaupmaður fór til Kaupmannahafnar fjórum sinnum á ári áður en faraldurinn skall á og stýrði þar fataverslun á árum áður. Kári Eldjárn Þorsteinsson er staddur í Danmörku núna og fílar lífið sem kennar...

Apr 06, 20212 hr 30 min

#131 Skoðanir Magnúsar Leifssonar

Magnús Leifsson leikstjóri er karlmaður vikunnar. Hér er talað um: Stofuhita með Bergi Ebba á Stöð 2, tónlistarmyndbönd, Úlf Úlf, árangursríka nísku Emmsjé Gauta, auglýsingabransann og fljótfærnina þar, hvernig maður býr til kvikmynd, hvernig maður býr til stuttmynd, söfnunaráráttu, innblástur héðan og þaðan, íslenska kvikmyndagerð, þróun rapptónlistar, graffiti menningu, Steindann Okkar seríur 2 og 3, Hreinan Skjöld, samtök ungs fólk gegn veggjakroti og allskonar annað. Styddu frjálsa fjölmiðlu...

Apr 02, 20211 hr 39 min

#130 Skoðanir Svíþjóðar

Þáttur tvö í Norðurlandaseríu Skoðanabræðra. Í heild sinni aðgengilegur á PATREON - gúglið Patreon Skoðanabræður og borgið svona 500kr á mánuði fyrir endalausan aðgang að endalausri veislu. Svíþjóð – fyrirmyndarríkið, ólíkt Noregi, sem allir hata. Í Svíþjóð er gott að búa og það getur eiginlega enginn útskýrt af hverju. Hér gera samt fjórir mismunandi sérfræðingar tilraun til þess. Feðgarnir Jakob Birgisson grínisti og Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur segja frá dvöl sinni í Svíþjóð og rekj...

Mar 30, 20211 hr 24 min

#129 Skoðanir Jökuls Sólberg

Karlmaður vikunnar er Jökull Sólberg, ráðgjafi og sérfræðingur í hinu og þessu. Hér tölum við um radíkalíseringu hans sem sósíalista, tímann á stafrænni auglýsingastofu í London, sprotafyrirtæki, QuizUp, rafflæði, samband hans við Hreiðar Má fyrrverandi bankastjóra, hvernig hagfræði í HÍ er fullkomlega úrelt og allskonar annað. Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur

Mar 26, 20211 hr 43 min

#128 Skoðanir Noregs

Fleiri Norðurlandaþættir koma á Patreon – sá fyrsti er frír í heild sinni. Googla: Patreon Skoðanabræður og fáðu aðgang að endalaust að efni fyrir 634 krónur. Noregur! Kæra bræðralag: Vorgjöf Skoðanabræðra er þessi sérstaki þáttur um Noreg, þar sem heyrast skoðanir fjögurra álitsgjafa á þessu sérstaka landi, sem er auðvitað upprunastaður okkar Íslendinga, a.m.k. að svo miklu leyti sem aðrir staðir eru það ekki. Menning, efnahagur, pólitík í Noregi - og hreinræktaður ömurleiki tilverunnar í mynd ...

Mar 23, 20211 hr 45 min

#127 Skoðanir Kolfinnu Nikulásdóttur

Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur Kolfinna Nikulásdóttir er sviðshöfundur FKA Kylfan. Hér tölum við um beefið við Emmsjé Gauta, Reykjavíkiurdætur, meðalmennsku í íslensku listalífi, kvenhatur og hnignun karlkynsins, hvað má og hvað má ekki, MeToo hreyfinguna, Woody Allen, gagnrýnendur og áhorfendur, lélega íslenska sjónvarpsþætti ofl ofl ofl

Mar 19, 20211 hr 42 min

#126 Skoðanir Bassa Maraj og Jóa Pé í partíi

Það er áfengi, það er djamm, það eru óheflaðar umræður. Við erum stödd í partíi í miðbæ Reykjavíkur með mjög góðar upptökugræjur – í titli þáttarins eru svívirt nöfn þeirra sem sannarlega hafa mikla aðkomu að umræðunum, en eru ekki endilega eins vel til þess fallin að hala inn smellum og nöfnin sem urðu fyrir valinu. Til dæmis sitja Hákon Jóhannesson og Ísak Hinriksson inni í hljóðveri lungann úr þættinum og systkinin Sigurbjartur Sturla og Rafnhildur Rósa Atlabörn leggja þannig sömuleiðis ófá o...

Mar 16, 202153 min

#125 Skoðanir Hákonar Jóhannessonar

Nýr þáttur. Ég var að klippa hann og gat ekki hætt að hlæja, þannig að ég skil hann bara eftir hér. Fyrsta símaat í Skoðanabræðrum og fyrsti söngur frá viðmælanda. Quote: „Ég er að keyra frá Kjalarnesi og ég hlýt að mega spyrja þig um eitt,“ segir Hákon á leiðinni í Vesturbæjarlaugina. Hákon Jóhannesson leikari, nánar tiltekið.

Mar 12, 20212 hr 30 min

#124 Litlu brundhúsin og híerarkía áhrifavaldanna

Góðan daginn góðan daginn veislan heldur áfram... hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur - hér er talað um: Instagram Vikunnar vs. Stjörnulífið, hvers vegna Snorri kýs að skrifa fréttir og beita sjálfan sig ofbeldi, hvað það er ömurlegt að spila, hvort það megi uppnefna Dómsmálaráðherra, deyfing, áfengi & gras & lögleiðing, Björgúlfur Thor vs. Robbi Wessman, míkróbrewery, Erpur & Stefán Pálsson, Bjarni Ben & Katrín Jak sem áhrifavaldar, hvort áfengi eigi að v...

Mar 09, 202159 min

#123 Skoðanir Sóleyjar Tómasdóttur

Karlmaður vikunnar hefur skoðanir á karlmönnum - skoðanir sem flestir ættu að heyra. Hér er ekki verið að tala um skoðanir í þeirri skilgreiningu að þær séu lægsta form þekkingar, heldur erum við að tala um að hér sé verið að facta hluti - íslensk föct eins og þau gerast best. Hér er talað um: þróun femínismans, aktívisma, stjórnmál, réttlætiskennd, Miðflokksógnina miklu og Sigmund Davíð, hvernig umræðan færist hægt og rólega til hægri, misskilninginn um að strákar séu sérstaklega illa staddir í...

Mar 05, 20211 hr 33 min

#121 Skoðanir Guðmundar Bjarnar Þorbjörnssonar

„Sigurvegarinn er aldrei spurður hvort hann hafi verið að segja satt,“ sagði Hitler og það voru orð í tíma töluð. Allir hafa nokkuð til síns máls, eins og Guðmundur Björn Þorbjörnsson bendir á í þættinum. Guðmundur! Menntaður prestur, en starfar ekki sem slíkur, heldur hljómar hann frekar eins og áhangandi nýrrar og sanngjarnari póstkristinnar hugmyndafræði, ekki ósvipaðrar póstfemínisma þeim sem Skoðanabræður hafa talað fyrir. En það kemur málinu ekki við, þó að það sé töluvert talað um þetta í...

Feb 26, 20211 hr 54 min

#120 Slagnum tapað en stríðið heldur áfram

Þriðji og síðasti Drake þáttur Skoðanabræðra og sá epískasti hingað til. Farið yfir hinn skeggjaða stóra kanadíska frá 2016 til nútímans. Vonbrigði í kjölfar Views, grasreykingar og áfengisdrykkja Snorra og Bergþórs á Drake tónleikum í London 2017, More Life slappleikinn, beefið við Kanye og Pusha T, góðu versin, góðu lögin, lélegu plöturnar, sigrarnir stóru 2018, Euphoria og Top Boy 2019, viðbjóðurinn af lagi sem Toosie Slide er, Dark Lane Demo Tapes, DJ Khaled, Lil Durk, Certified Lover Boy og...

Feb 23, 20211 hr 22 min

#119 Skoðanir Óla Kja

Að sækja sigra.. er það ekki það eina sem skiptir máli í þessu öllu? Ólafur Kjaran Árnason, ratfucker og ráðgjafi, gengur í ráðuneyti Skoðanabræðra. Ekkert nema efld tengsl við gasrótina. Þátturinn hefst á bjór í Árnagarði, þar sem sagnfræðiprófessor þáði heimsókn ungs hagfræðings, sem sá fyrir sér að prófessorinn væri á leið í veigamikið embætti. Patreon! Googlið Skoðanabræður Patreon og gangið í bræðralagið. Græðið heilan þátt í hverri viku.

Feb 19, 20211 hr 51 min

#118 Strákurinn eitrast og verður að manni

Þáttur 2/3 í Drake umfjöllun Skoðanabræðra.. Drake stækkar og stækkar og þá erum við að tala um líkama, frægð og toxicity. Árin 2011-2015 tekin fyrir hér. Take Care, Nothing Was The Same, If You're Reading This It's Too Late, What A Time To Be Alive!

Feb 15, 202148 min

#117 Skoðanir Gunnars Jörgens Viggóssonar

Rafmyntabylting, hugleiðsla, uppljómanir, psychedelics, heimspeki, hagfræði, verkfræði, völd og stjórnmál, sannleikar, orka og efni, bankar, óstöðugleiki, hagnaður og tap, fjölmiðlar (brjálæðingar að skrifa um aðra brjálæðinga), bláar skyrtur og málaliðar, að aflæra áróður og margt fleira! Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur 06:15 Hvers vegna Crypto? 45:10 Munurinn á rafmyntum og venjulegum peningum 57:00 Hverjar eru neikvæðu hliðar rafmyntarinnar? 1:04:00 Hvernig er hægt ...

Feb 12, 20212 hr 43 min

#115 Skoðanir Sylvíu Hall

www.patreon.com/skodanabraedur - styddu frjálsa fjölmiðlun! Afhverju verða allir lögfræðinemar hægrinazis? er rannsóknarspurning þáttarins. Í leit að svörum er farið yfir hin ýmsu málefni; lögfræðinámið sem innræting ákveðinna hugsjóna og hugmynda, Verzló, NFVÍ, marmarinn, 12:00, nemendafélög og menntaskólar, loftslagsmálin, sósíalisminn, kapítalisminn, íþróttakennsla, Breiðholtið og fleira!

Feb 05, 20212 hr 2 min

#113 Skoðanir Gunnars Smára Egilssonar

Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur Gunnar Smári Egilsson sósíalisti og fjölmiðlamaður fer yfir sögu sósíalismans og auðvaldsins, misræmi milli félagshyggju Íslendinga og svo kosninganiðurstaðna, traust almennings á sterkum stórum stjórnmálamönnum, að missa vonina, sérfræðingavæðing, borgarastéttin, verkalýðurinn, hagfræðingar & lögfræðingar, nýfrjálshyggjan & ómannúðarstefnan, frjálsi markaðurinn, dagblöð, áhrifavaldar á þingi, hetjur, Chomsky, falskir spámenn ofl...

Jan 29, 20212 hr

#112 Bóndadagsdómsdagur

Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur upp koma umræður um; Jón Ásgeir, Helgi Seljan, Einar Kárason, Gunnar Smári, Joe Biden, Donald Trump, Bernie Sanders, Stuðmenn og síðan er munurinn á íslensku bönkunum ræddur, The Biden years, Ísland sem hluti af bandaríska heimsveldinu ofl ofl ofl

Jan 26, 202159 min

#114 Grunnskólakrakkar eru svo heimskir!

Njótið vel kings... Grunnskólakrakkar pólaríseraðir, óupplýstir og fordómafullir, segir Snorri Másson, yfirvegaður, upplýstur og fordómalaus öðlingur. Farðu á Patreon og sjáðu hvað hann á við! Googlaðu "Skoðanabræður Patreon" og restin skýrir sig sjálf - eða ertu ekki digital native, er kóðinn ekki móðurmál þitt, barn.

Jan 26, 20211 hr 1 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android