Skoðanabræður - podcast cover

Skoðanabræður

Bergþór Másson podcasters.spotify.com
www.patreon.com/skodanabraedur Fremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi. 5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfati Ber er hver að baki nema sér bróður eigi.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#86 Skoðanir Unnsteins Manuels

Skoðanir Unnsteins Manuels, löngu tímabært. Hann kom til Skoðanabræðra fyrir margt löngu og ræddi nýjar ráðstafanir ýmsar, listina, lífið og leikinn. Nú eru nýir tímar, hann er í Berlín að skrifa þætti inni í stórum fundarherbergjum og hann dreymir um frekari afrek. Hvaða afrek? Sjá þátt. Efnistök, að öðru leyti: Hlaðvörp um suðuramerískar tónlistastefnur, tungumálið sem stjórntæki og miðstéttarvæðing á húsnæðismarkaði. En þetta er aðeins brotabrot. Útvarp 101! Farið á Patreon.

Oct 09, 20201 hr 32 min

#79 Hvort er betra að vera nafnlaus þunglyndur lúser eða nafnlaus nasisti?

Full lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Hrun siðmenningar í World of Warcraft, nafnleysi á netinu, menntaskólar í Covid19, Trump og stóra gríman hans Biden, Netflix fjarstýringar uppí rössum, raunveruleikinn vs. skáldskapur, Brian Cox, Ríkisútvarpið svívirt, vaxandi kynslóðir vestur-íslendinga ofl ofl ofl. Útvarp 101 ber ábyrgð á öllu sem er sagt hér.

Oct 06, 20201 hr 4 min

#78 Skoðanir Sigurjóns Sighvatssonar

www.patreon.com/skodanabraedur Sigurjón Sighvatsson, skilgreiningin á því að vera legend í leiknum, er genginn í bræðralagið. Hann hefur framleitt fleiri en 50 kvikmyndir og starfað í Hollywood í 35 ár. Meðal verka hans eru; Twin Peaks, Bevery Hills 90210, Killer Elite, Wild At Heart og Brothers. Hér setur hann m.a virðingu á nafn Robert DeNiro og svívirðingu á nafn Harvey Weinstein, segir sögur af Jason Statham, David Lynch og Madonnu, greinir frá hugleiðsluaðferðum sínum ásamt því að ræða bókm...

Oct 02, 20201 hr 56 min

#76 Skoðanir Gumma Emils

Celebrity trainer Gummi Emil er karlmaður vikunnar. Líkamsrækt, orkudrykkir, samfélagsmiðlar, sjálfsfróun, concerta, no fap og Jordan Peterson. Allt þetta rætt í bland við annað. www.patreon.com/skodanabraedur

Sep 25, 20201 hr 42 min

#75 Er réttlætanlegt að gera lag um samstöðu í COVID?

Stóru spurningar lífsins... og dauðans. Víri er kominn á kreik, þ.e. sú krýnda. Lætur til sín taka og veldur hörmungum eins og tónlist um samstöðu á viðsjárverðum tímum. En! Gas í þætti dagsins, allt frá framhaldi um Herra Hnetusmjör og rappleikinn til Sigríðar Andersen, flóttamannaveislunnar og yfirvegaðs uppgjörs við nasismann í Þýskalandi. Farið á Patreon strax! Útvarp 101. Nýr bræðralagsþáttur í hverri viku.

Sep 22, 20201 hr 1 min

#74 Skoðanir Bjarna Frímanns

Ópera.. púra ofbeldi í ýmsum skilningi, fyrst og fremst jákvæðum. Bjarni Frímann Bjarnason er tónlistarstjóri Íslensku óperunnar en látið ekki blekkjast. Hann er alþýðlegur, ungur og að sögn sérfróðra tónlistarsnillingur. Það eðli brýst fram þegar hann stendur og stjórnar, en það braust líka fram þegar Bjarni var í áttunda bekk, varð ástfanginn af stelpu í 10. bekk, bauð henni á deit, var hafnað og brást við með því að… a) fara að væla og skammast sín eða b) mæta fullur í skólann, vera rekinn tí...

Sep 18, 20202 hr 25 min

#73 Íslenskt rapp kannski aðeins að spá í að drepa sig

Andlát: Íslenskt rapp, segir Davíð Roach, gagnrýnandi Ríkisútvarpsins. Skoðanabræður fagna slíkri dáð, að lýsa yfir dauða einhvers sem auðvitað gefur sig út fyrir að vera sprelllifandi. Pistill sem vakti athygli ögn tekinn og skoðaður nánar, og komist að niðurstöðu um brotalamir í röksemdafærslu, sem eru þó auðvitað óhjákvæmilegar, enda röksemdafærslur á endanum ekki annað en bara tilfinningar. Annað rætt: Dýrafjörður sem ný skeggparadís, dauði sósíalismans, ágæti fóstureyðinga og margt annað sk...

Sep 15, 20201 hr 5 min

#72 Skoðanir Hallgríms Helgasonar

Höfundur Íslands… sem sagt Hallgrímur Helgason. Sem skrifaði einmitt bók sem heitir Höfundur Íslands, þar sem talað var illa um kommúnisma. Helstefna, segja hægrimenn, og voru ánægðir með bókina. Allt eðlilegt við það. Að vera skáld! Það er ágætur eiginleiki sem veitir innsýn. Eða þá að innsýnin valdi skáldskapnum. Hvernig sem það er hefur Hallgrímur frá ýmsu að segja og koma hans í þáttinn fellur vel að heimsmarkmiðum Skoðanabræðra, sem er að útvega hreinar skoðanir á færibandi. Hver er skoðun ...

Sep 11, 20201 hr 19 min

#70 Skoðanir Gunnhildar Fríðu Hallgrímsdóttur og Óskar Elfarsdóttur (nýju stjórnarskrárinnar)

Stærstu mál samtímans... Skoðanabræður gera þeim að sjálfsögðu skil. En það má heita umdeilt hver þau eru nákvæmlega... klámið, grasið og skeggið eða þá „róttækar“ stjórnmálalegar breytingar, sem mætti svo sem vera gæsalappalaus lýsing á þeirri ráðstöfun að setja þjóð nýja stjórnarskrá. Sú hugsjón er helsta ætlunarverk karlmanna vikunnar, Gunnhildar Örnu Hallgrímsdóttur og Óskar Elfarsdóttur, sem eru að vesenast í ríkjandi ástandi með því að dæla út vel heppnuðum áróðri á samfélagsmiðlum og svo ...

Sep 04, 20201 hr 14 min

#69 Þegar Instagram myndir tanka, kvaðir listamanna og heitar þýskar gellur

„We were in the jungle, there were too many of us, we had access to too much money, too much equipment, and little by little we went insane“ Innihald orkudrykkja, að hætta drekka vegna þunglyndis, Jónas Hallgrímsson, Jón Gnarr, heitar þýskur gellur, að mæta í skóla og sigra, uppistandarar og rapparar í Covid, lögfræðingar, ofbeldi og hnífastungur í miðbænum, undirheimar, mafíósar, Samherji, epískar heimildarmyndir, ofgnótt peninga, vont samfélag, kvaðir listamanna ofl ofl!

Sep 01, 20201 hr 8 min

#68 Skoðanir Frímanns Gunnarssonar

Hashtag. Fremsti fjölmiðlamaður landsins sest á rökstóla með Skoðanabræðrum, sannkallaður karlmaður vikunnar. Frímann Gunnarsson hefur yfirgripsmikla þekkingu á öllu sem viðkemur list, menningu og æðri menntun og Skoðanabræðrum var sannast sagt farið að líða eins og þá væri farið að skorta þá vídd í þáttinn, að undangengnum viðtölum við „anarchists“ eins og Sölva Tryggvason eða „rappara“ á borð við Flóna eða Joey Christ. Frímann Gunnarsson er með þætti í sjónvarpinu ásamt því sem hann er að gefa...

Aug 28, 20201 hr 34 min

#67 Skoðanir Sölva Tryggva

Þrír karlmenn, allir PhD: Podcast having dudes. Sölvi Tryggva steig inn í leikinn og sigraði, það verður að segjast. En hvert er markmiðið með þessu hjá honum? Svarið er inni í þættinum! Vísbending: Í grunninn það sem hvetur alla PhD til dáða yfirleitt. Gasið! Það er markmið í sjálfu sér. Svo eru líka markmið eins og að fá Björgólf Thor í þáttinn og þar keppast Skoðanabræður við Sölva um hinn feita bita. Sjáum hver ber sigurorð af hverjum.. Sölvi segir frá því þegar hann var rekinn af Stöð 2 í á...

Aug 21, 20202 hr 30 min

#66 HEITT og KALT á djamminu 1990: 19 atriði

Besti bræðralagsþáttur allra tíma, segir Bergþór. Stóru orðin... þau eru auðvitað síst til þess að spara þau. 90 mínútur af veislu, umgjörð hverrar er listi frá árinu 1990 yfir hluti sem eru annars vegar inn og hins vegar out á vettvangi skemmtanalífs. Segir sig sjálft að umdeild atriði eins og kynlíf, hugleiðsla og hip hop verða kveikjur að hágæðagasi fyrir hlustendur. Hvað þá jakkaföt, stjórnmálamenn og lögreglan? Hér á hlaðvarpsveitum fáið þið 40 mínútur, en á Patreon eru 90 mínútur. www.patr...

Aug 18, 20201 hr 28 min

#65 Skoðanir Joey Christ og Lóu Bjarkar

Eins og Lóa orðar það vel: Fara í Skoðanabræður og eyðileggja mannorð sitt. Í þeirri feigðarför hennar eru Skoðanabræður ekki meira en auðmjúkir verkefnastjórar, þeir taka á móti henni og skapa umgjörð fyrir hana til þess að veitast með skipulegum hætti að eigin orðspori. Hvernig fer maður að því? Með orðum! Orð.. lengi hef ég haft á þeim illan bifur, sagði skáldið, og fleiri mættu tileinka sér, þeirra á meðal, Skoðanabræður. Jóhann er meðreiðarsveinn og hefur fyrir sitt leyti einnig upp viðleit...

Aug 14, 20202 hr 19 min

#64 Skoðanir Egils Ástráðssonar

Egill Ástráðsson. Sterkt norrænt einnefni eins og bræðralagið vill hafa það. Hann er hinn sterki norræni maður (íslenskur með alskegg) og hefur lengi átt erindi inn í gasklefa Skoðanabræðra þó að hann hafi af ýmsum sökum ekki ratað þangað fyrr en nú. Hann er umboðsmaður, atvinnumaður í veseni og meðal stofnenda Útvarps 101, 101 Studios og 101 Sambandsins og hver veit hvers meira. Allt auðvitað bendlað við hálfbannsett póstnúmer, sem nú hefur þó fengið uppreist æru, eins og Egill segir: „Þetta la...

Aug 07, 20201 hr 33 min

#62 Skoðanir Steineyjar Skúladóttur

www.patreon.com/skodanabraedur Snorri drakk fimm bjóra í stúdíóinu. Fyrirgefið það innilega. Hvaða eiturlyf hefur Steiney Skúladóttir tekið? Hvenær tók hún þau? Hvers vegna? Stórum spurningum er svarað - ásamt ítarlegum umræðum um sálfræðinga, forréttindi, femínisma, RÚV, dagskrárgerð ofl ofl.

Jul 31, 20202 hr 34 min

#61 Skoðanir Högna Egilssonar

Það eru hálfgerð helgispjöll að fara um þennan þátt mörgum orðum enda orð ekki nema ómerkileg tilraun til þess að flækja veruleikann með merkingu. Veruleikinn er nefnilega til sjálfstætt og orðalaust, eins og í músík. Þar er veruleikinn þó saga og tónlistin er saga, sem er ofin úr efni goðsagna, stórsagna, mýta þeirra sem erfðaefni mannsins trúir á í blindni. Og ekki furða að maðurinn trúi, þessar sögur eru Sannleikurinn, ef hann er einhvers staðar til. Allt ofangreint kemur efnislega fram í þæt...

Jul 24, 20201 hr 53 min

#60 Eftirsóttustu skeggsveinarnir á Íslandi

Eftirsóttustu piparsveinar landsins teknir fyrir af sérstöku tilefni enda skeggjaður maður á meðal þeirra. Þetta er hans yfirlýsing. Bræðralag! Njótið þáttarins þið sem eigið það skilið. www.patreon.com/skodanabraedur . Þessir eru eftir: Ein­ar Ágúst Víðis­son , Björn Ingi Hrafns­son, Magnús Sig­ur­björns­son, Högni Eg­ils­son, Hall­dór Karls­son, Snorri Más­son, Pét­ur „Jesús“ Örn Guðmunds­son, Helgi Jean Claessen og Sölvi Tryggva­son.

Jul 21, 20201 hr 4 min

#59 Skoðanir Kristínar Tómasdóttur

Að vinna við að láta fólk hætta saman… hljómar skynsamlega. Gæti verið á vegum borgaryfirvalda, þú mætir á vettvang og birtir pörum opinberan úrskurð þess efnis að þeirra ástarsambandi sé þar með lokið. Fróður maður lagði eitt sinn til að embætti á borð við þetta yrði stofnað í Reykjavík en það var við dræmar undirtektir pólitíkurinnar. Þetta er enda ekki endilega rétta leiðin til þess að koma því til leiðar í samfélaginu að aðeins séu viðhafðar réttlætanlegar ástir eða að fólk sé aðeins í heilb...

Jul 17, 20201 hr 29 min

#58 Skoðanir Geoffrey Huntingdon-Williams

Kosningar á næsta leiti… til embættis næturborgarstjóra, bitch! Afsakið munnsöfnuðinn og dæmið hann ómarktækan, en þið takið ekki af manninum embættið. Það er að vísu ekki til enn sem komið er en hvað um það. Spurningin er þessi: Hvað er að reka konunglegasta stað landsins, er það í grunninn að þrífa ælu og túrblóð í brotnu glasi ofan í klósetti eða er það að starfa daglega að þeirri göfugu hugsjón að gera Reykjavík að betri borg og Ísland að betra samfélagi og lífið að meiri veislu. Svarið, og ...

Jul 10, 20201 hr 45 min

#56 Skoðanir Benedikts Andrasonar

www.patreon.com/skodanabraedur Talandi um leikinn, hér er máttarstólpi. Karlmaður vikunnar er Benedikt Andrason, Benni Andra semsagt. Jafnvígur á þónokkra veruleika og hliðarveruleika, graff, tattú, dópshit og á þeim nótum, laxveiðar. Nokkrar ár sem renna að sama ósi, eins og maðurinn sagði. Hér, veitt innsýn inn í þessa leiki og við sögu koma dauða- og lífsreynslur sem eiga sér jafnt stað á vettvangi íslenskra laxveiðisvæða sem í lestarskemmum að næturlagi í Berlín. Maðurinn á alltaf í hættu að...

Jul 03, 20201 hr 58 min

#55 Skoðanir Andreu Rafnar

Það er ekki óskiljanlegt að sá sem gerir tilraun til þess að byrja að æfa fótbolta of seint og lendir í trámatísku áfalli og allsherjarhöfnun verði varanlega fráhverfur íþróttahreyfingunni til lengri tíma í kjölfarið og leggi sig jafnvel í líma við að kasta rýrð á hana og beiti í því skyni fyrir sér sínu persónulega hlaðvarpi. Skoðanabræður opna sig um þetta, en það er ekki aðalmálið. Andrea Röfn Jónasdóttir, bloggari, módel og svei mér þá áhrifavaldur, er karlmaður vikunnar og fer yfir aðalmáli...

Jun 26, 20201 hr 29 min

#54 Stóra smáhýsamálið, kitla

Stökkvið um borð í bræðralagið til að gangast á hönd hinum eina og sanna djús. Hér er átt við www.patreon.com/skodanabraedur, þar sem aðgangur fæst að tvívikulegum alvöru Skoðanabræðraþáttum, víðsfjarri ráðamönnum þjóðarinnar og þeirra formlegheitahjali. Sannleikur, eins og þar heitir.

Jun 23, 20201 hr 12 min

#53 Skoðanir Guðna Th. forseta Íslands

„Ég hvet öll ungmenni til þess að fylgja eigin sannfæringu. Ekki láta einhverja áhrifavalda segja þér hvað þú átt að hugsa, hvað þú átt að kaupa, hvað þú átt að gera. Vertu þú sjálf, vertu þú sjálfur. Ekki láta plata þig,“ segir Guðni Th. Jóhannesson forseti. Það fékkst ekki meiri svívirðing á nöfn áhrifavalda, sama hvað var reynt. Sjálfur er Guðni á Fésbók eins og hann kallar hana. Hann segist ekki telja „læk“-in, en er meðvitaður um að þau gætu verið fleiri. „Ég kann ágætlega við Fésbók. Ég he...

Jun 19, 20201 hr 3 min

#52 Skoðanir Helga Seljan & Aðalsteins Kjartanssonar

www.patreon.com/skodanabraedur Skoðanabræðraskjölin.. bjóðið velkomna ástsælustu blaðamenn þjóðarinnar, eins og maðurinn sagði, Kveiksmenn. Aðalsteinn Kjartansson og Helgi Seljan ganga fúsir inn í gasherbergið á Hverfisgötu og leysa frá skjóðunni. Að því marki sem þeir mega hafa skoðanir, hvað finnst þeim um kvótakerfið? Ekkert sérstakt, eins og kemur fram, og hverjum er ekki sama um kvótakerfið! Fólk veit ekki muninn á botnfiski og uppsjávarfiski, þó að það reyndar læri það hér. Þátturinn er þó...

Jun 12, 20201 hr 39 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android