Sigurbjörn Örn Hreiðarsson kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hann er þekktari fyrir afrek sín í fótboltanum en á golfvellinum. Bjössi hefur orðið Íslandsmeistari sem fyrirliði Vals og var einnig í þjálfarateymi liðsins sem varð Íslandsmeistari árin 2017 & 2018. Bjössi segir okkur frá því hvernig hann byrjaði aftur í golfi fyrir nokkrum árum og hellti sér svo af fullum krafti í íþróttina eftir að hann óvænt missti starf sitt sem aðstoðarþjálfari hjá FH sumarið 2022. Síðan þá hefur golfið...
Jul 02, 2025•1 hr 10 min
Gestur vikunnar í Seinni níu er enginn annar en Sólmundur Hólm sem hóf nýlega að leika golf. Hann er algjörlega fallinn fyrir íþróttinni og hugsar eiginlega ekki um neitt annað en hvenær hann kemst út á golfvöll. Sóli er reyndar að glíma við meiðsli sem má rekja til óhóflegrar golfiðkunar á vormánuðum en er að vonast til að komast aftur á völlinn sem allra fyrst. Sóli er meðlimur í Golfklúbbi Þorlákshafnar og unir hag sínum hvergi betur en í Ölfusi þar sem hann ólst upp. Í þættinum velur Sóli ei...
Jun 25, 2025•1 hr 13 min
Atvinnukylfingurinn Ragnhildur Kristinsdóttir kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hún varð Íslandsmeistari í höggleik árið 2023 og leikur sem atvinnumaður á LET Access mótaröðinni sem segja má að sé B-mótaröð bestu kvenkylfinga í Evrópu. Í þættinum förum við vel yfir golfið með Röggu en þar kemur meðal annars í ljós að hún er meðal högglengstu kvenkylfinga Evrópu. Hún er að slá um 250 metra að meðaltali í teighöggum og gerir aðrir betur! Hún ætlar sér stóra hluti á næstu árum. Hún hefur verið...
Jun 18, 2025•1 hr 1 min
Það var svo sannarlega gaman hjá okkur í Seinni níu þessa vikuna en til okkar kom Helga Sverrisdóttir, hjúkrunarfræðingur og félagi í Nesklúbbnum. Helga fer yfir það af mikilli hreinskilni hvernig það er að byrja í golf og þær áskoranir sem því fylgir. Hún segir okkur meðal annars frá þeirri þolraun sem það var að taka þátt í meistaramóti eftir að hafa nýlega hafið golfiðkun. Helga segir okkur einnig frá því þegar hún gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi í golfferð á vegum Nesklúbbsins. Þar...
Jun 11, 2025•54 min
Einn litríkasti golfkennari Íslands – og líklega Spánar – Ívar Hauksson, kom í spjall til okkar í Seinni níu . Ívar hefur búið á Spáni síðustu 30 árin við golfkennslu og er stundum kallaður Kóngurinn á Mar Menor . Í júní tekur Ívar að sér golfkennslu hér á Íslandi, og komast færri að en vilja. Í ár eru um 75 manns á biðlista eftir að komast undir handleiðslu Ívars, sem kennir golf frá morgni til kvölds. Ívar segir okkur frá golfferli sínum, sem hófst þegar hann var aðeins þriggja ára. Við rifjum...
Jun 04, 2025•1 hr 2 min
Handboltaþjálfarinn, fyrirlesarinn og rithöfundurinn Bjarni Fritzson er gestur vikunnar í Seinni níu. Bjarni var mjög öflugur handboltamaður og hefur síðustu ár þjálfað karlalið ÍR. Hann er einnig rithöfundur en barnabækur hans um Orra óstöðvandi hafa notið gríðarlegra vinsælda. Bjarni er með um 15 í forgjöf og er kominn með mikla golfdellu. Hann er bæði meðlimur í Golfklúbbi Reykjavíkur og hjá Golfklúbbi Grindavíkur. Geri aðrir betur. Hann segir okkur frá draumahögginu sem hann sló í Kiðjabergi...
May 28, 2025•1 hr 14 min
Gestur vikunnar í Seinni níu er Þórdís Geirsdóttir sem hefur verið félagi í Golfklúbbnum Keili í hálfa öld. Hún varð Íslandsmeistari í höggleik árið 1987 og hefur svo verið meðal fremstu kylfinga landsins um árabil. Hún hefur verið óstöðvandi á mótaröð eldri kylfinga og varð Íslandsmeistari 50+ í níu ár í röð. Hún hefur farið fimm sinnum holu í höggi og við fengum hana til að Powerranka ásanna sína. Jafnframt segir Þórdís okkur frá því frá mikilli dramatík sem varð í Sveitakeppni GSÍ fyrir nokkr...
May 21, 2025•51 min
Gestur vikunnar er atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús sem leikur á Áskorendamótaröðinni. Í þættinum fer Haraldur yfir stöðuna á ferli sínum en hann ætlar sér að halda áfram næstu ár í atvinnumannagolfinu og telur sig geta náð inn á Evrópumótaröðina. Í þættinum förum við aðeins yfir mikinn áhuga Hadda á golfkylfum og græjum. Hann á tíu golfsett og er með verkstæði þar sem hann skiptir sjálfur um grip, sköft og hausa. Haraldur fer aðeins yfir lífið sem atvinnukylfingur, svarar nokkrum sp...
May 14, 2025•51 min
Kristinn Óskarsson er gestur vikunnar í Seinni níu . Þessi landsþekkti körfuboltadómari er einnig mjög liðtækur kylfingur og er í dag með um 3–4 í forgjöf. Í þættinum förum við meðal annars yfir ótrúlega frammistöðu hans á Íslandsmótinu 2012 á Hellu, þegar Kristinn endaði í 5. sæti eftir að hafa verið í toppbaráttunni nær allt mótið. Kristinn segir frá því hvernig sú reynsla, að leika í lokaráshópi á þriðja keppnisdegi Íslandsmótsins, hefur hjálpað honum í dómgæslu síðar meir. Við fengum Kristin...
May 08, 2025•1 hr 2 min
Agnar Már Jónsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar (GKG), kom í heimsókn til okkar í Seinni níu . Hann sagði frá óvenjusnemmri opnun Leirdalsvallar, sem hefur sjaldan opnað jafn snemma og í ár. Við ræddum einnig nýja nálgun GKG við rástímaskráningu, sem miðar að því að koma í veg fyrir að sömu einstaklingar hamstri eftirsótta rástíma. Agnar fór jafnframt yfir stórbrotna uppbyggingu golfherma hjá klúbbnum — þeir eru nú orðnir yfir 20 talsins. Hann kynnti einnig PowerRank yfir f...
Apr 30, 2025•52 min
Gestur Seinni Níu þessa vikuna er enginn annar en Stefán Einar Stefánsson, sem hefur verið mjög áberandi í þjóðmálaumræðunni síðustu mánuði – bæði í hlaðvörpum og í Spursmálum á mbl.is. Stefán er að snúa aftur á golfvöllinn eftir nokkurra ára hlé og er nú skráður með 54 í forgjöf. Hann hefur þó áður náð niður í 12 í forgjöf, svo þetta eru áhugaverðir tímar fram undan. Í þættinum segir Stefán okkur frá því þegar hann byrjaði að leika golf á Patreksfirði, og síðar í Borgarnesi – þar sem golfferill...
Apr 23, 2025•55 min•Season 2Ep. 16
Við erum ansi léttir í Seinni níu eftir Masters mótið. Til okkar kemur sparkspekingurinn Kristján Óli Sigurðsson sem er kylfingur með golfdellu á verulega háu stigi. Hann var meðal þeirra sem mættu á golfvöllinn um helgina þegar golfvellir voru opnaðir. Við kryfjum aðeins Masters mótið með Kristjáni sem fylgist vel með. Hann er með um 10 í forgjöf og ætlar sér að lækka niður í 7 í sumar. Hann er sterkastur í stutta spilinu og er þekktur fyrir sitt lága boltaflug. Kristján hefur tvívegis farið ho...
Apr 14, 2025•1 hr 1 min•Season 2Ep. 17
Gestur vikunnar í Seinni níu er Haukur Örn Birgisson, fv. forseti Golfsambands Íslands. Hann stendur í ströngu um þessar mundir, en hann á sæti í framkvæmdastjórn Opna mótsins og var nýkominn til landsins frá Norður-Írlandi, þar sem hann var að taka út keppnisstað mótsins í ár. Opna breska fer fram á Royal Portrush um miðjan júlí. Haukur segir okkur frá því í þættinum hvernig hann hefur risið til metorða hjá alþjóðasamtökum í evrópsku golfi og er nú meðlimur í R&A, sem t.d. hefur það hlutver...
Apr 08, 2025•1 hr 13 min•Season 2Ep. 13
Í þætti vikunnar af Seinni Níu fáum við til okkar Jóhann Alfreð Kristinsson, sem er þekktur sem uppistandari í Mið-Ísland , dagskrárgerðarmaður og margt fleira. Jóhann byrjaði að leika golf fyrir nokkrum árum og hefur fengið mikla golfbakteríu. Hann er með 34 í forgjöf en stefnir á að komast niður fyrir 27, svo hann geti tekið þátt í 4. flokki í Meistaramóti GR, þar sem hann er félagi. Í þættinum er farið víða. Jóhann velur fimm þægilegustu golfholur landsins, sérstaklega með hærri forgjöf kylfi...
Apr 03, 2025•1 hr 1 min•Season 2Ep. 15
Ólafur Björn Loftsson heimsótti okkur þessa vikuna í Seinni níu. Ólafur er í dag landsliðsþjálfari Íslands í golfi en var um tíma atvinnukylfingur og Íslandsmeistari í höggleik. Ólafur rifjar upp sigur sinn í Íslandsmótinu í höggleik árið 2009 þegar hann fékk fjóra fugla í röð á síðustu holunum til að komast í umspil um titilinn. Óli kom með powerrank um þá fimm bestu sem hann hefur spilað með. Ótrúlegur listi þar sem Brooks Kopka og Tommy Fleetwood koma við sögu. Logi kynnti okkur fyrir svari v...
Mar 28, 2025•1 hr 10 min
Gestur vikunnar í Seinni níu er Haraldur Haraldsson sem nýr framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbnum Oddi. Hann var að ljúka störfum sem framkvæmdastjóri hjá Víkingi Reykjavík eftir 14 ára starf en félagið hefur farið í gegnum mikið gæfuskeið á síðustu árum. Í þættinum er aðeins farið yfir fótbolta en aðallega rætt um golf. Haraldur er fínasti kylfingur með um 8 í forgjöf og hefur spilað golf í um 30 ár. Hann er hluti af stórum golfhópi sem spila alla mánudaga yfir sumartímann. Powerrank vikunnar kemur...
Mar 21, 2025•52 min•Season 2Ep. 12
Gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna er enginn annar en Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra. Hann steig nýverið úr stóli formanns Sjálfstæðisflokksins eftir að hafa leitt flokkinn frá árinu 2009. Bjarni byrjaði í golfi þegar hann var í háskólanámi í Miami og ætlar sér nú að taka golfið föstum tökum eftir að hafa spilað lítið síðustu ár – stjórnmálin voru einfaldlega að flækjast fyrir. Bjarni er með um það bil 23 í forgjöf, en markmið hans fyrir árið er að lækka hana niður fyrir 2...
Mar 14, 2025•1 hr•Season 2Ep. 10
Gestur okkar þessa vikuna er lögmaðurinn og varaþingmaðurinn Árni Helgason. Má segja að Árni hafi verið ein fyrsta hlaðvarpsstjarna Íslands, en hann stýrði hlaðvarpinu Hismið um árabil við miklar vinsældir. Árni hóf að stunda golf fyrir nokkrum árum og er með um 22 í forgjöf. Í þættinum er fjallað ítarlega um glæstan sigur hans í 4. flokki á Meistaramóti Nesklúbbsins í sumar. Hann segir frá heimsókn sinni á Pinehurst-golfsvæðið og þeirri einstöku upplifun að leika með kylfusveini. Að venju er ræ...
Mar 06, 2025•1 hr 2 min•Season 2Ep. 9
Við fengum glaðasta golfkennara landsins, Rögnvald Magnússon hjá Golfklúbbnum Oddi, til að ljúka með okkur febrúarmánuði. Röggi mætti til okkar nýkominn frá Bandaríkjunum þar sem hann var að leika á Pinehurst golfsvæðinu. Röggi er frá Bolungarvík og við fengum kappann til að velja fimm bestu golfholurnar á Vestfjarðakjálkanum. Hann sagði okkur einnig frá því þegar hann felldi tár eftir að hafa endurheimt járnasettið sitt sem hann seldi fyrir mörgum árum. Einnig rifjum við upp kvikmyndina Albatro...
Feb 28, 2025•54 min•Season 2Ep. 8
Gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu er hagfræðingurinn Þórður Gunnarsson. Hann er reglulegur gestur í hlaðvarpinu Þjóðmál en hefur einnig mjög mikinn áhuga á golfi. Í þættinum förum við aðeins yfir TGL-golf sem hefur vakið mikla athygli á síðustu vikum. Þórður velur fimm skemmtilegustu golfholur landsins og einnig draumahollið. Þórður segir okkur einnig frá því þegar hann fór holu í höggi á Nesvellinum í sumar og hvers vegna kylfingar eiga alltaf að leika seinni níu holurnar. Seinni Níu er í ...
Feb 20, 2025•50 min•Season 2Ep. 7
Það var mikið hlegið þegar Guðmundur Benediktsson mætti íheimsókn til okkar í Seinni níu. Í þættinum var reynt að tala um golf en umræðan leiddist líka út í umræðu um fótbolta og einnig hvernig stendur á því að Gummi Ben sé ber að ofan í nýrri auglýsingaherferð. Gummi Ben er ekki skráður í golfklúbb en er á biðlista inn í Nesklúbbinn. Hann spilar mikið í golfhermi og þar gengur honum vonum framar. Af meðspilurum er hann kallaður Konungur tjaldsins en sjálfur er hann með 3-4 í Trackman-forgjöf. Þ...
Feb 15, 2025•1 hr 6 min•Season 2Ep. 6
Gestur okkar þessa vikuna er atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Hún hefur þrisvar orðið Íslandsmeistari í golfi ætlar sér að ná þeim fjórða til að jafna við föður sinn Björgvin Sigurbergsson varð fjórum sinnum Íslandsmeistari í höggleik. Guðrún sagði okkur frá því hvernig það væri að vera atvinnumaður í golfi og þá leið sem hún ætlar að fara í ár til að tryggja sér betri stöðu á Evrópumótaröð kvenna. Hún segir að það sér draumastarfið vera atvinnumaður í golfi en um leið sé þetta mi...
Feb 07, 2025•1 hr 3 min•Season 2Ep. 5
Stórskyttan Sigurður Valur Sveinsson er gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna. Siggi Sveins á að baki frábæran handboltaferil þar sem hann lék sem atvinnumaður í Þýskalandi og á Spáni. Við förum aðeins yfir handboltaferilinn en ræðum líka mikinn golfáhuga Sigga. Hann er með um 17 í forgjöf í dag en var lægst með um 12 í forgjöf. Í ljós kom að þessi örvhenta stórskytta spilar rétthent! Við ræðum þegar golfbílnum hans var stolið síðasta vetur og ræðum styrkleika hans á golfvellinum. Siggi var að ...
Jan 31, 2025•56 min•Season 2Ep. 4
Gestur vikunnar í Seinni níu er Sigríður Andesen sem er nýkjörin aftur á þing fyrir Miðflokkinn. Hún fór að spila golf 2021 eftir að hafa hætt á þingi og fékk í kjölfarið mikla golfdellu. Komið er víða við í þættinum. Sigríður segir frá nýju Íslandsmeti sem hún setti í bekkpressu á dögunum. Einnig fáum við að heyra frá ótrúlegri golfferð sem Sigga fór ein í til Orlando eftir að hafa kynnst Golf Now appinu. Förum aðeins yfir kylfurnar sem Sigga er með í pokanum, afskipti ríkisins af uppbyggingu g...
Jan 24, 2025•1 hr 3 min•Season 2Ep. 3
Gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna er Pétur Þór Halldórsson sem hefur um árabil verið ECCO umboðið hér á landi. Í þættinum er farið yfir það hvernig Pétur byrjaði í golfi eftir að hafa byrjað að flytja inn golfskó frá Ecco. Í dag selja fyrirtæki hans árlega um 50 þúsund pör af ECCO-skóm til Íslendinga. Í spjalli okkar við Pétur er komið víða við en í ljós kom að Pétur hefur þrisvar farið og fylgst með Masters mótinu á Augusta National sem áhorfandi. Pétur segir okkur frá draumahollinu sínu o...
Jan 16, 2025•52 min•Season 2Ep. 2
Fyrsti gestur ársins hjá okkur í Seinni níu er Brynjar Níelsson, fyrrverandi alþingismaður og lögmaður. Brynjar hefur spilað marga af bestu golfvöllum Bretlandseyja þó hann eigi í erfiðleikum með að muna nöfnin á þeim öllum. Brynjar var mjög góður íþróttamaður á sínum yngri árum og var mjög liðtækur í öllum boltaíþróttum. Það hefur hins vegar ekki skilað sér inn í golfið en líklega á æfingaleysi einhverja sök á máli. Í stórskemmtilegum þætti er rætt um golf og pólitík en Brynjar er varaþingmaður...
Jan 09, 2025•50 min•Season 2Ep. 1
Lokaþáttur ársins í Seinni níu er sannkallaður áramótaþáttur. Í þættinum spilum við brot úr þáttum frá 32 af þeim viðmælendum sem komu í heimsókn til okkar á árinu. Spiluð eru brot úr mörgum af vinsælustu þáttum ársins. Meðal þeirra brota sem eru spiluð í þættinum: - Halli Melló segir frá því hvað hann óttast mest - Þorgerður Katrín fer yfir það sem fer í taugarnar á henni á golfvellinum - Jakob Bjarnar ræðir um glæpsamlegt golfmót - Teitur Örlygs henti golfsettinu sínu inn í bílskúr með látum -...
Dec 30, 2024•1 hr 50 min•Season 1Ep. 40
Síðasti gestur okkar í Seinni níu á þessu ári er Vernharð Þorleifsson sem flestir þekkja fyrir afrek sín í júdó á sínum tíma. Hann keppti á Ólympíuleikunum í Atlanta árið 1996 í júdó en á þeim tíma þótti það mikið afrek að vinna sér inn þátttökurétt á leikunum. Eftir júdóferilinn skapaðist tómarúm í lífi Venna sem fór meðal annars að gera leikna sjónvarpsþætti sem um einkaþjálfarann Venna Páer. Þeir þættir lifa góðu lífi á Youtube. Sömuleiðis hóf hann að leika golf og hefur árangur hans á golfve...
Dec 20, 2024•59 min•Season 1Ep. 39
Við fáum góða gesti í þátt vikunnar í Seinni níu. Blikarnir Damir Muminovic og Höskuldur Gunnlaugsson urðu Íslandsmeistarar með liði Breiðabliks í haust. Þeir eru hins vegar báðir forfallnir golfáhugamenn og vilja spila golf eins mikið og kostur er. Damir byrjaði í golfi fyrir rúmu ári síðan og búinn að ná ótrúlegum tökum á golfíþróttinni. Hann er í dag með um 10 í forgjöf og spilaði ekki nema um 80 hringi í ár. Höskuldur er með um 15 í forgjöf og býr svo vel að vera með golfhermi á skrifstofunn...
Dec 12, 2024•51 min•Season 1Ep. 38
Gestur okkar þessa vikuna er heimsmeistarinn Elsa Nielsen sem er líklega þekktari fyrir afrek sín í badminton en golfi Hún varð heimsmeistari fyrir nokkrum árum í tvíliðaleik og hefur í tvígang keppt á Ólympíuleikunum. Elsa byrjaði í golfi fyrir nokkrum árum og hefur náð virkilega góðum tökum íþróttinni. Hún er núna með um 7 í forgjöf, er mikil keppnismanneskja og er varaformaður Nesklúbbsins. Elsa segir okkur aðeins frá golfinu sínu, þeirri uppbyggingu sem er framundan hjá Nesklúbbnum og biðlis...
Dec 05, 2024•49 min•Season 1Ep. 37