Gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu er Andri Ólafsson sem starfar sem samskiptastjóri hjá Landspítala Íslands Andri var á árum áður öflugur fjölmiðlamaður og tengist enn fjölmiðlum með því að halda úti þáttum á Stöð 2 Sport um NFL. Hann stendur einnig að nýrri sjónvarpsþáttaröð um Kanann. Andri byrjaði í golfi fyrir nokkrum árum. Hann leggur mikið upp út því að líta vel út á golfvellinum og að vera snyrtilegur til fara. Það vegur vel upp á móti því að vera með um 20 í forgjöf. Andri tók sér r...
Nov 27, 2024•1 hr 16 min•Season 1Ep. 36
Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands, kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hulda hefur verið í forystu hjá GSÍ undanfarin ár og var komið víða við í skemmtilegu spjalli. Hulda greindi frá því að nýlega hefði verið samþykkt deiliskipulag um nýjan 27 holu golfvöll í landi Hafnarfjarðar sem verður staðsettur nærri Hvaleyrarvatni. Við fórum einnig yfir mikla fjölgun kylfinga á Íslandi. Golfhermar og aukin þátttaka yngri kylfinga eiga þar stóran þátt. Í ljós kom að Hulda hefur ekki fari...
Nov 22, 2024•58 min•Season 1Ep. 35
Knattspyrnuþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson er gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu. Arnar er fínn kylfingur með um 10 í forgjöf en að eigin sögn kemst hann ekki neðar sökum æfingaleysis í stutta spilinu. Arnar hefur verið mjög sigursæll þjálfari á síðstu árum og í þættinum flökkum við á milli þess að spjalla um golf og fótbolta. Arnar hefur spilað golf víða um heim og á mörgum heimsþekktum golfvöllum. Í ljós kom að Arnar hefur ekki farið holu í höggi og var velt upp þeim möguleika hvort bölvun r...
Nov 15, 2024•1 hr•Season 1Ep. 34
Golfvallarhönnuðurinn Edwin Roald Rögnvaldsson kemur í heimsókn til okkar í Seinni níu. Golfvallahönnun fær sviðið í þessum þætti ásamt skemmtilegri umræðu um golf á mannlegum nótum. Edwin segir okkur frá því hvernig hann varð að golfvallarhönnuði. Sömuleiðis segir hann okkur ótrúlega sögu af því þegar hann afþakkaði pent golfbolta sem Seve Ballesteros ætlaði að gefa honum. Jafnframt kom í ljós að Edwin er að hanna golfvöll í Færeyjum. Jafnframt kemur Powerrank með fimm bestu golfsvæðunum sem er...
Nov 07, 2024•1 hr 24 min•Season 1Ep. 32
Næsti gestur okkar í Seinni níu er fjölmiðlamaðurinn Tómas Þór Þórðarson sem hefur undanfarin ár verið umsjónamaður enska boltans hjá Símanum. Hann sagði okkur frá því hvernig það væri að vera frambjóðandi til Alþingis og hvernig hann hefur þróað með sér mikla golfdellu. Þrátt fyrir stuttan golfferil er Tómas nú kominn með ca 13 í forgjöf og og hefur náð ótrúlegum tökum á íþróttinni á skömmum tíma. Hann segir okkur einnig frá fjölmiðaferlinum, þyngarmissi, póltíkinni, og aðdáun sinni á Scottie S...
Oct 31, 2024•1 hr 1 min•Season 1Ep. 32
Við fengum frábæran gest núna á dögunum þegar sjálfur Fiskikóngurinn, Kristján Berg Ásgeirsson, kom í heimsókn til okkar í hlaðvarpið Seinni níu. Kristján segir okkur í þættinum frá sínum frábæru og einstöku auglýsingum sem hafa farið sigurför um íslenskan auglýsingamarkað. Einnig segir Kristján frá þátttöku sinni í hinu vinsæla Costa Blanca golfmóti sem yfir hundrað Íslendingar tóku þátt í núna í haust. Kristján segir okkur einnig frá því þegar hann varð fyrir því óláni að fá golfbolta í hausin...
Oct 25, 2024•51 min•Season 1Ep. 31
Margeir Vilhjálmsson er gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu. Hann er frábær kylfingur að eigin sögn með um 1 í forgjöf. Hann segir okkur frá því hvernig hann byrjaði í golfi en í kjölfarið hefur Margeir orðið mjög áberandi karakter í íslensku golfi. Margeir var um tíma framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og tók virkan þátt í uppbyggingu á Korpúlfsstaðavelli og Básum. Við fórum yfir atvikið á Akureyri árið 2022 sem varð þess valdandi að Margeir var dæmdur í keppnisbann. Einnig kom í lj...
Oct 18, 2024•57 min•Season 1Ep. 31
Gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu er Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fyrrverandi atvinnukylfingur. Ólafía lagði keppniskylfurnar á hilluna fyrir tveimur árum en hún er eini íslenski kylfingurinn til að leika á öllum fimm risamótunum í keppnisgolfi kvenna. Ólafía var valin íþróttamaður ársins árið 2017. Í þættinum fer Ólafía yfir ferilinn og segir okkur frá því nýju fyrirtæki sem hún er að stofna. Ólafía kemur með Powerrank yfir fimm bestu kylfinganna sem hún hefur leikið með. Nelly Korda, Char...
Oct 10, 2024•58 min•Season 1Ep. 29
Þó golfsumarið sé að líða undir lok þá höldum við ótrauðir áfram í hlaðvarpinu Seinni níu. Að þessu sinni kemur til okkar fréttamaðurinn Freyr Gígja Gunnarsson en margir ættu að kannast við röddina í fréttatímum RÚV. Freyr Gígja leikur aðallega golf á Hvaleyrarvelli og er fínn kylfingur með 9,9 í forgjöf. Freyr er mjög stöðugur kylfingur en þarf að eigin sögn að bæta púttin. Þáttastjórnendur hvöttu Frey til að brjóta bensínstöðvarpútterinn og kaupa nýjan pútter. Freyr segir frá því þegar hann mi...
Oct 03, 2024•51 min•Season 1Ep. 28
Leikarinn Gunnar Hansson mætti til okkar í Seinni níu. Gunnar er mjög öflugur kylfingur og var lægst með um 3,5 í forgjöf. Hann spilaði mikið golf á sínum yngri árum og hefur tvívegis farið holu í höggi. Jafnframt fórum við aðeins yfir golfáhuga eins þekktasta karakters Gunnars, sem er hann Frímann Gunnarsson. Sá þykir margt bogið við hefðbundnar golfreglur og hefur því tekið upp sínar eigin reglur. PLAY - XPENG - UNBROKEN - ECCO- LINDIN- EAGLE GOLFFERÐIR
Sep 27, 2024•1 hr 1 min•Season 1Ep. 27
Seinni Níu Masterclass er þáttur fyrir kylfinga sem vilja kafa aðeins dýpra. Í þessum þætti fáum við í heimsókn hann Bjarna Má Ólafsson frá Golfstöðinni sem sérhæfir sig í styrktarþjálfun fyrir kylfinga. Bjarni Már fræðir okkur um kosti þess að stunda styrktarþjálfun samhliða því að spila golf. Styrktarþjálfun getur verið góð leið til að ná í auka lengd af teig og fyrirbyggja meiðsli. Við fáum að heyra skemmtilegar dæmisögur af kylfingum sem hafa óvænt lengt sig hressilega af teig eftir að hafa ...
Sep 23, 2024•35 min•Season 1Ep. 27
Nýjasti gestur okkar í Seinni níu er Hermann Guðmundsson sem rekur fyrirtækið Kemi. Hermann er duglegur kylfingur sem hefur lægst verið með um 10 í forgjöf. Hann spilar mikið golf í Bandaríkjunum og uppáhaldskylfan hans er 60° fleygjárnið. Logi velur fimm fallegstu par-3 holur landsins. Seinni Níu er í boði: ✈️ - PLAY 💊 - Unbroken 👟 - ECCO ⛳ - Eagle Golfferðir 🚗 - XPENG ✨ - Lindin bílaþvottastöð
Sep 20, 2024•56 min•Season 1Ep. 26
Einar Örn Ólafsson, forstjóri flugfélagsins Play, er nýjasti gestur okkar í Seinni níu. Hann er kylfingur með um 15 í forgjöf en náði lítið að spila golf í sumar eftir að hafa tekið við sem forstjóri hjá Play í vor. Einar Örn hefur mikið spilað erlendis og hefur tvívegis farið holu í höggi á erlendri grundu. Við erum með Powerrank á fimm bestu golfvöllunum á Alicante svæðinu og hvaða velli á að forðast á þeim slóðum. Hvar er algengast að kylfingar fari holu í höggi? Við komumst að því í þættinum...
Sep 12, 2024•56 min•Season 1Ep. 25
Tónlistamaðurinn ástsæli Eyjólfur Kristjánsson er næsti gestur okkar í Seinni níu. Eyfi byrjaði í golfi um aldamótin og fékk mikla golfbakteríu. Hann hefur hins vegar sjaldan spilað eins lítið golf og hann hefur gert í ár og eru nokkrar ástæður fyrir því. Eyfi segir okkur frá því þegar hann fór holu í höggi á Korpúlfstaðavelli, við fáum magnað Powerrank yfir fimm bestu lögin hjá Eyfa, og svo kemur í ljós að uppáhaldskylfingar eru nokkuð óvæntir kappar á PGA-mótaröðinni. Frábær þáttur í alla stað...
Sep 05, 2024•50 min•Season 1Ep. 23
Hlynur Geir Hjartarson, framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbnum á Selfossi, kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hann fór yfir frábæran keppnisferil í íslensku golfi, sagði okkur frá uppbyggingu golfsins á Selfossi og sagði okkur einnig magnaða sögu af sjálfum sér á djamminu með Íranum Shane Lowry í Tórínó. Magnaður þáttur! Þátturinn er í boði: ECCO - XPENG - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir
Aug 31, 2024•1 hr•Season 1Ep. 23
Kári Sölmundarson, formaður hjá Golfklúbbnum Oddi, ræðir við okkur í Seinni Níu um stækkun Urriðavallar í 27 holur. Kári fer yfir stöðu mála hjá Golfklúbbnum Oddi og þar á bæ eru menn stórhuga. Búið er að ráða Robert Trent Jones Jr. í að hanna Urriðavöll sem 27 holu golfsvæði en sá hefur hannað marga af þekktustu golfvöllum í heimi. Kári segir okkur frá því hvernig hann byrjaði í golfi og hvernig hann varð óvænt formaður í einum af stærstu golfklúbbum landsins. Logi velur fimm erfiðustu par5 hol...
Aug 20, 2024•54 min•Season 1Ep. 22
Í nýjasta þætti af Seinni níu kemur til okkar stjörnuveðurfræðingurinn Theodór Freyr Hervarsson. Hann er fínn kylfingur með um 13 í forgjöf. Teddi svarar áleitnum spurningum golfáhugamanna um íslenska veðrið en sjálfur segist hann geta spila golf í nánast í hvaða veðri sem er. Teddi er fyrrum Íslandsmeistari í fótbolta með liði ÍA en veðurfræðin á hug hans allan í dag og starfar hann hjá Veðurstofu Íslands ásamt því að fara með veðurfréttir á RÚV. Logi er í beinni frá Washington DC og segir okku...
Aug 15, 2024•48 min•Season 1Ep. 21
Gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna er listamaðurinn Rúnar Freyr Gíslason. Hann er þokkalegur kylfingur sem fór holu höggi á mjög áhorfendavænni golfholu. Rúnar er þeim hæfileika gæddur að hann fer alltaf að hlægja þegar hann meiðir sig. Hann er með 19 í forgjöf, meðlimur í Nesklúbbnum, og spilar helst með Loga Bergmann. Frábært spjall sem er óhætt að mæla með! Þátturinn er í boði: ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir
Aug 09, 2024•53 min•Season 1Ep. 20
Hlaðvarpskóngur Íslands, Hjörvar Hafliðason, mætti til okkar í Seinni níu og ræddi um golf. Þrátt fyrir frekar stuttan golfferil þá hefur Hjörvar leikið golf víða um heim og vill helst spila golf í og við Sóvetríkin sálugu. Hann hefur t.d. farið í golfferð til Litháen og er á leiðinni til Eistlands. Við fórum yfir golfferilinn hjá Hjörvari, hvaða kylfur hann notar og hvern hann styður í atvinnumannagolfinu. Líflegt og skemmtilegt spjall eins og við er að búast þegar Hjörvar er annars vegar. ECCO...
Jul 31, 2024•1 hr 5 min•Season 1Ep. 19
Helgi Dan Steinsson er næsti gestur okkar í Seinni níu. Hann er öflugur kylfingur með um +2 í forgjöf. Helgi er framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbi Grindavíkur og ræðir aðeins við okkur um stöðuna á Húsatóftavelli. Farið er yfir Opna breska og Íslandsmótið í golfi. Farið yfir ótrúlegt atvik þegar Helgi "sló" Steina Hallgríms úr keppni. Helgi segir okkur einnig frá því þegar hann fór holu í höggi á par4 braut. Þátturinn er í boði: ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir - Collab...
Jul 22, 2024•57 min•Season 1Ep. 18
Framundan er ein stærsta helgi ársins í golfinu. Af þeim sökum hlóðum við í upphitunarþátt fyrir Íslandsmótið í golfi og Opna breska meistaramótið sem hefst á morgun, fimmtudag. Páll Ketilsson, ristjóri Kylfings.is, kom til okkar í spjall og ræddi einnig við okkur um sinn heimavöll, Hólmsvöll í Leiru, þar sem Íslandsmótið fer fram. Við spáðum í spilin fyrir mótin og fórum líka yfir hvernig best væri að veðja á mótin. ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir
Jul 17, 2024•1 hr 7 min•Season 1Ep. 17
Gestur vikunnar hjá okkur í Seinni níu er Dr. Hafrún Kristjánsdóttir sem er prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Hafrún hefur starfað sem íþróttasálfræðingur um árabil og er á leið á sína fjórðu ólympíuleika þar sem hún aðstoðar okkar fremsta íþróttafólk. Hafrún er kylfingur með um 20 í forgjöf en var áður landsliðskona í handbolta. Hún viðurkennir að kasta stundum kylfum í bræðiskasti. Í þættinum ræðir hún við okkur um golfið og golfsálfræði. Einnig segir hún okkur frá íslensk...
Jul 15, 2024•53 min•Season 1Ep. 16
Gestur okkar þessa vikuna í Seinni Níu er hún Ragnhildur Sigurðardóttir sem er fjórfaldur Íslandsmeistari í golfi. Hún hefur gert golfið að sínu aðalstarfi og starfar sem bæði golfkennari og fararstjóri. Í skemmtilegu spjalli fer hún aðeins yfir golfferilinn, gefur góð ráð fyrir meistaramótin og segir okkur frá því þegar hún fór holu í höggi á par4 braut. Logi er með powerrank og velur fimm furðulegustu holur landsins. ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir - Ölgerðin...
Jul 09, 2024•52 min•Season 1Ep. 15
Finnur Freyr Stefánsson er næsti gestur okkar í Seinni níu. Hann vann í vor Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik í sjöunda sinn sem þjálfari sem er magnað afrek. Finnur stundar golf af miklu kappi og er með um 18 í forgjöf. Hann er félagi í Golfklúbbnum í Mosfellsbæ en 5. holan á Hlíðavelli er Finni ekki að skapi. Powerrank, spáð í holu höggi fyrir Loga og sérstaklega krassandi spurning vikunnar. ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir - Collab...
Jul 02, 2024•49 min•Season 1Ep. 14
Gestur vikunnar í Seinni níu er fjölmiðlakonan Inga Lind Karlsdóttir sem er kylfingur með um 21 í forgjöf. Hún stýrir þættinum Golfarinn sem sýndur er á Stöð2 og hefur algjörlega fallið fyrir golfíþróttinni á síðustu árum. Hún ræðir um golfið og deilir með okkur nokkrum frábærum heilræðum sem allir kylfingar ættu að tengja við. Í þætti vikunnar veljum við einnig fimm bestu 9 holu velli á landsbyggðinni og ótrúlegur fróðleikur í spurningu vikunnar. Seinni níu er í boði: Ecco - Unbroken - Lindin -...
Jun 27, 2024•53 min•Season 1Ep. 13
Úlfar Jónsson er gestur vikunnar í Seinni níu. Hann hefur sex sinnum staðið uppi sem Íslandsmeistari í golfi og náði þeim áfanga að vinna Íslandsmeistaratitilinn 6 sinnum á sjö árum. Í dag vinnur Úlfar sem PGA golfkennari ásamt því að vinna hjá GKG. Úlfar ræðir einnig við okkur um Opna bandaríska meistaramótið sem lauk um síðustu helgi sem hann telur eitt það risamót á síðustu árum. Powerrank og ýmislegt skemmtilegt til viðbótar. ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir...
Jun 20, 2024•55 min•Season 1Ep. 12
Gestur vikunnar í Seinni níu er Birgir Leifur Hafþórsson sem er sigursælasti kylfingur Íslands. Biggi hefur alls sjö sinnum orðið Íslandsmeistari í golfi. Hann er nú að mestu búin að leggja keppniskylfurnar á hilluna og spilar meira sér til ánægju í dag ásamt því að ráðleggja ungum og efnilegum kylfingum. Í þættinum fer Birgir Leifur yfir glæsilegan feril, veikleika og styrkleika í golfinu, lífið sem atvinnumaður og rifjar upp skemmtilegar sögur af ferlinum. Jafnframt hitum við upp fyrir Opna ba...
Jun 12, 2024•1 hr•Season 1Ep. 11
Gestur þáttarins er körfuboltagoðsögnin Teitur Örlygsson. Hann hefði viljað byrja fyrr í golfi og er í dag með um 16 í forgjöf. Teitur elskar að horfa á golf og missir varla af móti á PGA. Hann hefur brotið dræverinn sinn eftir mislukkað högg í Leirunni og fékk dræv frá Keflvíking í lærið af stuttu færi. Teitur ræddi við okkur um golfið, körfuboltann og margt fleira. Spurning vikunnar og Powerrank. Þátturinn er í boði: ECCO - Lindin - Unbroken - Ölgerðin - Eagle Golfferðir...
Jun 05, 2024•53 min•Season 1Ep. 10
Kormákur Geirharðsson, vertinn á Ölstofunni, tónlistamaður og fatabúðareigandi, er gestur Seinni níu þessa vikuna. Kormákur er fínasti kylfingur með um 15 í forgjöf en forgjöfin var talsvert lægri á árum áður. Kormákur fékk ungur mikla golfdellu og vann nokkur sumar sem golfvallastarfsmaður á Grafarholtsvelli. Í spjalli sínu við Jón & Loga segir Kormákur meðal annars frá því þegar hann fór holu í höggi í Kúala Lúmpur en var svo heppinn að geta fullnýtt golftryggingu á barnum að leik loknum. ...
May 28, 2024•51 min•Season 1Ep. 9
Gestur vikunnar í Seinni níu er enginn annar en Eyjapeyjinn Þorsteinn Hallgrímsson. Steini varð Norðurlandameistari árið 1992 og svo Íslandsmeistari árið 1993. Vinnuslys gerði svo út um atvinnumannaferil og tilraunir með hestasterasprautur dugðu ekki til. Þorsteinn er íslenskum golfáhugamönnum að góðu kunnur enda hefur hann helgað lífi sínu golfi undanfarna áratugi sem keppniskylfingur, eigandi á golfverslun, golflýsandi og fararstjóri. Nú glímir Steini við nýtt verkefni en hann er að jafna sig ...
May 22, 2024•1 hr 2 min•Season 1Ep. 8