Jóhann Sigurðarson, stundum kallaður Jói stóri, er einn ástælasti leikari Íslands. Hann byrjaði í leiklist þegar tækifærin voru mun færri en nú og hefur því haldið mörgum boltum á lofti í gegnum tíðina. Rödd hans er líklega ein sú þekktasta á landinu, enda hefur hann lesið inn á ógrynni bóka og sjónvarpsefnis í gegnum tíðina. Í þættinum fara Sölvi og Jói yfir ferilinn, sönginn, sögur úr bransanum og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnessspo...
Aug 07, 2022•1 hr 11 min•Season 1Ep. 68
Ólafur Már Björnsson augnlæknir hefur látið mikið til sín taka í náttúruvernd og hefur vakið athygli fyrir stórbrotnar myndir og myndbönd af íslenskri náttúru. Ólafur var frumkvöðull í laseraðgerðum á augum hér á landi, sem nú þykja nokkuð sjálfsagður hlutur. Í þættinum ræða Ólafur og Sölvi um stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi, náttúruvernd, ferðalög og mikilvægi þess að finna ástríðu í áhugamálum og lífinu almennt. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnessspo...
Aug 07, 2022•1 hr 26 min•Season 1Ep. 61
Sálfræðingurinn Bergsveinn Ólafsson stefndi árum saman að því að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Eftir að hafa lagt allt í boltann áttaði hann sig á því að ástríðan var farin og lagði skóna á hilluna og setti alla sína krafta í að læra og miðla meiru í sálfræðinni. Eftir að hafa sökkt sér ofan í ástríðu sína fyrir innihaldsríkara lífi gaf hann nýlega út bókina ,,Tíu skref í átt að innihaldsríkara lífi". Í þættinum ræða Sölvi og Beggi um hvað einkennir innihaldsríkt líf, leiðir til að viðhalda ...
Aug 07, 2022•1 hr 36 min•Season 1Ep. 63
Sigmundur Ernir Rúnarsson er einn reyndasti sjónvarpsmaður Íslands og hefur verið nær sleitulaust á skjám landsmanna síðan á upphafsárum Stöðvar 2. Hann hefur með árunum lært að njóta þess betur að lifa í núinu og taka allar lífsins gjafir inn að hjartarótum. Í þættinum segir Sigmundur frá eftirminnilegustu viðmælendunum, ferðum í aðrar heimsálfur, lífshættulegum flugferðum með Ómari Ragnarssyni og mörgu mörgu fleiru. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnessspor...
Aug 07, 2022•1 hr 31 min•Season 1Ep. 51
Brynjar Níelsson hefur lengi verið þekktur á vettvangi stjórnmálanna fyrir að þora að viðra óvinsælar skoðanir. Hann hefur gengið lengst íslenskra Alþingismanna í að gagnrýna aðgerðir vegna Covid faraldursins. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um grundvallaratriði í stjórnmálum, eins og til dæmis hve mikil umsvif ríkisins eigi að vera, mikilvægi þess að kjósendur viti hvar þeir hafi þá sem þeir kjósa til valda og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - w...
Aug 07, 2022•1 hr 33 min•Season 1Ep. 60
Herbert Guðmundsson er löngu orðinn goðsögn í íslensku tónlistarlífi. Þegar talað er um 80´s tímabilið kemur nafn hans strax í huga fólks. Herbert, sem er þekktur fyrir mikinn dugnað og gott hugarfar sat um tíma í fangelsi og missti allt eftir hrunið 2008. Í þættinum fara Sölvi og Herbert yfir magnaðan feril Herberts, sögur úr jailinu, bóksölu fyrir tugi milljóna og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https:...
Aug 07, 2022•1 hr 32 min•Season 1Ep. 53
Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör skaust upp á stjörnuhimininn sem unglingur. Rapptónlist hans sló strax í gegn og síðan þá hefur hann verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins. Hann var að gefa út bók, sem óhætt er að segja að sér opinská. Hér ræða Sölvi og Herra Hnetusmjör um fíkniefnaneyslu, rapptónlist, bókaskrif og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid...
Aug 07, 2022•1 hr 18 min•Season 1Ep. 50
Jakob Frímann Magnússon er maður sem hefur marga fjöruna sopið. Ungur var hann kominn á samning sem tónlistarmaður erlendis á tímum þegar afar fáir Íslendingar reyndu fyrir sér erlendis. Ein af aðalsprautunum í Stuðmönnum, Miðborgarstjórinn, formaður Stefs og svo framvegis og svo framvegis. Í þættinum ræða Sölvi og Jakob um ótrúlegan feril og magnaðar sögur, lykilinn að því að halda sér ungum í anda og margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport....
Aug 06, 2022•1 hr 16 min•Season 1Ep. 59
Sigríður Klingenberg, betur þekkt sem Sigga kling, hefur skemmt Íslendingum um árabil með spádómum, bingókvöldum, karókí-kvöldum og mörgu fleiru. Sigga segist sjálf ekkert skilja í því hvers vegna hún vinni við að skemmta, enda sé ferill hennar ein stór afleiðing af því að kunna að segja alltaf já, sama hvernig manni líður. Hér ræða Sigga og Sölvi um mikilvægi þess að njóta hvers dags, hlæja nógu mikið, fara yfir stórmerkilegan feril Siggu og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - w...
Aug 06, 2022•1 hr 15 min•Season 1Ep. 48
Eldur Egilsson er 13 ára gamall frændi Sölva og þar með langyngsti vidmælandi podcastsins hingað til. Í þættinum ræða Eldur og Sölvi um lífið og tilveruna, skólakerfið, hvað fullordna fólkið gæti gert ödruvísi og margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Glacier Gin - https://www.glaciergin.is/ 105 koffínvatn - https://www.olgerdin.is/ Þáttastjór...
Aug 06, 2022•1 hr 12 min•Season 1Ep. 67
Elísabet Guðmundsdóttir lýtaskurðlæknir, sem á 20 ára feril í faginu í Svíþjóð kom nýverið til Íslands til að starfa á Landsspítalanum. Hún hefur undanfarið talað opinskátt gegn sóttvarnaraðgerðum vegna Covid, sem hún segir að gangi of langt. Elísabet stóð einnig að undirskriftasöfnun um þá kröfu að framhaldsskólar verði opnaðir aftur. Hún vill meina að heilmargt sé hægt að gera til að verjast því að veikjast, annað en bara vera með grímur, halda fjarlægð og þvo hendur, eins og til dæmis að styr...
Aug 06, 2022•1 hr 25 min•Season 1Ep. 55
Bríet Ísis Elfar er vinsælasti tónlistarmaður Íslands í dag. Síðan platan hennar kom út hafa lög hennar átt topplistana vikum saman. Bríet kom mjög ung fram á sjónarsviðið og vakti strax verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína. Í þættinum ræða Sölvi og Bríet um tónlistina, ástarsorg, hvað fylgir því að vera landsþekkt, reynslu af svitahofum og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/frae...
Aug 06, 2022•1 hr 3 min•Season 1Ep. 49
Arnór Guðjohnsen er nafn sem allir íslenskir knattspyrnuáhugamenn geyma, enda er hann einn albesti fótboltamaður Íslandssögunnar. Hér ræða Sölvi og Arnór um ótrúlegan feril Arnórs, hæðir og lægðir, þar sem inn komu sigurleikir gegn stórveldum Evrópu, erfið meiðsli, samningsleysi á tímum þar sem réttur leikmanna var nánast enginn og margt fleira. Í þættinum fara þeir einnig yfir mikilvægi andlega þáttarins í knattspyrnu og íþróttum, en Arnór vinnur nú hörðum höndum að verkefni sem því tengist. Þá...
Aug 05, 2022•1 hr 29 min•Season 1Ep. 47
Róbert Marshall hefur víða komið við á löngum og mögnuðum ferli. Hann vann um árabil sem fréttamaður og þáttastjórnandi, stofnaði svo Fréttastöðina NFS ásamt fleirum, áður en hann fór síðar í stjórnmál, þar sem hann sat á þingi. Á síðustu árum hefur hann unnið við ástríðuna, sem er útivist og fjallaferðir, en er nú í starfi sem ráðgjafi forsætisráðherra. Í viðtalinu fara Róbert og Sölvi yfir alla þessa hluti og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - ww...
Aug 04, 2022•1 hr 50 min•Season 1Ep. 46
Margrét Pála Ólafsdóttir er sannkölluð kjarnakona. Hún hefur um árabil rutt veginn fyrir nýjar leiðir í menntun barna. Þúsundir ánægðra foreldra hafa nú sent börn sín í skóla Hjallastefnunnar sem Margrét stofnaði. Margrét var ein fyrsta opinbera lesbían á Íslandi og lenti í hremmingum vegna þess. Hér ræða Sölvi og Margrét um það hvernig öll hennar tækifæri voru tekin af henni á einum degi vegna fordóma á tímum sem voru allt aðrir en í dag. Þau fara jafnframt yfir mikilvægi þess að hrista upp í m...
Aug 03, 2022•2 hr 5 min•Season 1Ep. 44
Guðmundur Ebenezer Birgisson er reyndur sálfræðingur með háskólagráður í 3 greinum, sem sagði upp vel launuðu starfi í Noregi til að elta drauminn og byrja með fyrirtæki sem þróar lausnir í geðheilsu í gegnum internetið. Guðmundur og Sölvi ræða hér mikilvægi þess að þora að elta draumana og setja sér háleit markmið. Þeir fara í þættinum yfir þróun sálfræði og geðheilsu og hvaða lausnir gætu nýst best á komandi árum til að bæta vellíðan og geðheilsu fólks. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjon...
Aug 03, 2022•1 hr 15 min•Season 1Ep. 45
Magnús Scheving er einn merkilegasti frumkvöðull Íslandssögunnar. Leikfimikennarinn sem endaði á sjónvarpsskjám milljóna manna um allan heim. Hér fara Magnús og Sölvi yfir ótrúlega atburðarrás Latabæjar, þar sem Magnús var með nánast stanslausa dagskrá frá morgni til kvölds á hverjum einasta degi í áraraðir. Þakklætið yfir því að sjá börn í Suður-Ameríku drekka í sig boðskap Íþróttaálfsins, hvað þarf að hafa til brunns að bera sem frumkvöðull, lykilatriðin í að vera hamingjusamur í lífinu og fle...
Aug 02, 2022•2 hr•Season 1Ep. 42
Ágústa Johnson er einn stærsti frumkvöðull í heilsurækt á Íslandi. Á unga aldri var hún á leið í nám í arkítektúr þegar hún ákvað að skipta um takt og elta ástríðuna. Eftir að hafa menntað sig í íþróttafræði og viðskiptum stofnaði hún sína fyrstu líkamsræktarstöð, Stúdíó Jónínu og Ágústu og eftir það var ekki aftur snúið. Hún hefur nú um árabil rekið Hreyfingu með góðum árangri. Hér ræða hún og Sölvi um feril Ágústu, lyklana í að vera frumkvöðull, mikilvægi heilsu og margt margt fleira. Þátturin...
Aug 02, 2022•1 hr 17 min•Season 1Ep. 43
Frosti Logason hefur um árabil verið eins konar akkeri í íslensku útvarpi ásamt félaga sínum Þorkatli Mána Péturssyni. Þeir félagar hafa um árabil haldið úti þættinum Harmageddon, sem er þekktur fyrir að hleypa í loftið fólki með óvinsælar skoðanir og ræða málin tæpitungulaust. Hér ræða Frosti og Sölvi um mikilvægi þess að stoppa ritskoðun í fjölmiðlum, tímabilið þar sem Frosti var lykilmaður í hljómsveitinni Mínus, mikilvægi þessi að taka ábyrgð í lífinu og margt margt fleira. Þátturinn er í bo...
Aug 01, 2022•1 hr 28 min•Season 1Ep. 41
Jónas Sigurðsson varð vinsæll sem söngvari í ,,Sólstrandargæjunum", sem slógu í gegn með lagið ,,Rangur Maður" og sló síðan aftur í gegn mörgum árum síðar með lagið ,,Hafið er Svart". Það sem færri vita líklega um Jónas er að hann er afburðamaður í tölvuforritun og vann um árabil fyrir tölvurisann Microsoft. Þar var hann valinn í hóp efnilegasta fólks fyrirtækisins, en áður en það tók á flug var Jónas orðinn efins um það hvaða stefnu fyrirtækið væri að taka og kom aftur heim til Íslands. Hér ræð...
Jul 31, 2022•2 hr 21 min•Season 1Ep. 37
Áskrift og aðgangur að öllum þáttum í hljóði og mynd www.solvitryggva.is Jónína Benediktsdóttir hefur oft verið verulega umdeild á Íslandi. Ung fékk hún alls kyns verðlaun í Svíþjóð og á Íslandi fyrir frumkvöðlastarfsemi sína í líkamsrækt og rekstri líkamsræktarstöðva. Sölvi skrifaði ævisögu Jónínu og það vantar því ekki umræðuefnin. Tímabilin með Jóni Páli, íslenskt viðskiptalíf, baráttan við bakkus, hjónaskilnaðir og margt margt fleira. Allir þættir eru aðgengilegir inni á www.solvitryggva.is ...
Jul 31, 2022•1 hr 33 min•Season 1Ep. 39
Ásgeir Andri Guðmundsson er stórmerkilegur maður sem hefur farið óhefðbundnar leiðir í lífinu. Fyrir tvítugt var hann orðinn rótari hjá stærstu sveitaballaböndum Íslands og hoppaði fulla ferð inn í lífsstílinn sem því fylgir. Síðar menntaði hann sig sem áhættuleikari á Florída, þar sem honum var kennt að kveikja í sér og hoppa fram af byggingum. Helgarferðin til Danmerkur sem varð að veitingastaðarekstri á Mallorca, leiksýningin þar sem kveikt var í honum fyrir framan Ólaf Darra og margt margt f...
Jul 31, 2022•1 hr 45 min•Season 1Ep. 40
Lára Clausen og Nadía Sif Líndal eru umtöluðustu manneskjur Íslands, eftir að hafa hitt ensku landsliðsmennina Mason Greenwood og Phil Foden. Málið rataði á forsíður allra helstu fjölmiðla Bretlands á mánudaginn og síðan þá hefur áreitið á þær verið gríðarlegt. Hér mæta þær í sitt fyrsta viðtal á Íslandi eftir atburðina og segja söguna alla. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@ki...
Jul 30, 2022•47 min•Season 1Ep. 30
Björn Stefánsson var ungur orðinn einn hæfileikaríkasti trommuleikari sem Ísland hefur átt. Hann varð svo lykilmaður í hljómsveitinni Mínus, sem náði talsverðum hæðum erlendis á sínum tíma. Um þrítugt skipti Bjössi svo alveg um takt og fór í leiklistarnám í Danmörku og hefur síðan getið sér mjög gott orð sem leikari. Hér fara Sölvi og Björn yfir Mínus-tímabilið, sem var æði skrautlegt á köflum, ástríðuna fyrir leiklistinni og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fit...
Jul 30, 2022•1 hr 33 min•Season 1Ep. 38
Einar Ágúst Víðisson varð þjóðþekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Skítamórals, sem var á sínum tíma vinsælasta band Íslands. Einar var á beinu brautinni sem tónlistarmaður, sjónvarps- og útvarpsmaður þegar það fór að halla verulega undir fæti. Hann missti öll tök á tilverunni, endaði í mjög slæmum félagsskap og fór á kaf í neyslu. Einar hefur gengið í gegnum hluti sem fæstir geta gert sér í hugarlund. Hér ræða hann og Sölvi um stærstu sigrana, myrkustu tímabilin, tengslin við glæpastarfsemi, ...
Jul 29, 2022•1 hr 44 min•Season 1Ep. 36
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir hefur verið þjóðþekkt síðan hún var aðeins 11 ára gömul, þegar fyrsta platan hennar kom út. Hún hefur síðan þá átt gífurlega farsælan feril og meðal annars náð besta árangri Íslands í lokakeppni Eurovision. Hér ræða hún og Sölvi um kostina og gallana við að vera barnastjarna, þátttökuna í Allir Geta Dansað, listina við að koma fram og gefa af sér og fjölmargt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið -...
Jul 28, 2022•1 hr 2 min•Season 1Ep. 34
Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í viðskiptafræði og fulltrúi í fjármálaráði Íslands hefur um árabil stundað rannsóknir á peningamálum og doktorsgráða hans fjallar um alþjóðlega fjármálastarfsemi. Hér ræða Sölvi og Ásgeir um stöðu hagkerfisins á Íslandi og í heiminum öllum, fara yfir það hvað peningar raunverulega eru og það hvort við séum á leiðinni inn í algjörlega nýja tíma þar sem veruleikinn verður allt annar en sá sem við höfum vanist. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness ...
Jul 27, 2022•1 hr 15 min•Season 1Ep. 35
Bubbi Morthens er einn þekktasti tónlistarmaður Íslandssögunnar og eftir hann liggja nærri 50 hljómplötur. Hér ræða hann og Sölvi um ótrúlegan feril Bubba, nýja lífið í sveitinni, mikilvægi þess að halda sér í líkamlegu og andlegu formi, sögur af djamminu í den og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistof...
Jul 27, 2022•1 hr 48 min•Season 1Ep. 33
Pálmi Gunnarsson er einn dáðasti tónlistarmaður Íslandssögunnar. Maðurinn sem söng fyrstu orð Íslands í Eurovision á erlendri grundu þegar Gleðibankinn kom fyrir augu heimsbyggðarinnar. Hann segist sjálfur hafa farið langleiðina með að drepa sig á áfengisdrykkju og er þakklátur fyrir að hafa fengið annað líf. Hér fara Sölvi og Pálmi yfir magnaðan feril Pálma og ótrúlegt lífshlaup, sem hefur oft á tíðum verið verulega skrautlegt. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www....
Jul 26, 2022•1 hr 33 min•Season 1Ep. 32
Steinþór Hróar Steinþórsson, eða Steindi Jr. er orðinn eins konar nýrrar kynslóðar Laddi eða Hemmi Gunn. Hann hefur lengi verið einn af þekktari grínistum Íslands, en á einnig mjög vinsæl lög, leikstjórnarverkefni, handritaskrif og leiklistarframmistöðu á ferilskránni. Steindi hefur allt frá fyrsta degi sýnt mikinn metnað í öllum sínum verkefnum, eins og augljóslega má sjá. Hér ræða Steindi og Sölvi um upphafið að þessu öllu, metnaðinn, hugrekkið til að prófa nýja hluti og margt margt fleira Þát...
Jul 25, 2022•1 hr 36 min•Season 1Ep. 31