Svala Björgvinsdóttir var orðin stjórstjarna í poppbransanum á unga aldri. Síðan þá hefur hún tekið alls kyns beygjur á ferlinum, en alltaf haldið í ástríðuna fyrir að búa til tónlist. Hún þekkir ekkert annað en að eiga einn frægasta einstakling Íslands sem pabba og fékk músíkina nánast í vöggugjöf. Hér ræða Svala og Sölvi um magnaðan feril Svölu, ótrúleg augnablik á ferðalaginu og nýja kaflann í lífi hennar eftir að hún flutti heim til Íslands á nýjan leik í eftir margra ára útlegð í Bandaríkju...
Jul 24, 2022•1 hr 15 min•Season 1Ep. 29
Kjartan Guðbrandsson einkaþjálfari er líklega eini Íslendingurinn sem hefur sigrað keppnir í kraftlyftingum, vaxtarækt aflraunum og fitness. Hann byrjaði að æfa með Jóni Páli Sigmarssyni, margföldum sterkasta manni heims, sem unglingur og var með honum á æfingunni þegar Jón Páll lét lífið. Kjartan fékk á því tímabili sinn skammt af dauðanum, þar sem hann missti fleiri nána vini og son sinn á aðeins nokkrum mánuðum. Kjartan hefur upplifað hluti sem eru lyginni líkastir, eins og tímabilið þegar ha...
Jul 22, 2022•2 hr 36 min•Season 1Ep. 28
María Birta Bjarnadóttir leikkona hefur gert ótrúlega margt þó að hún sé rétt rúmlega þrítug. 16 ára gömul var hún byrjuð með netverslun og 19 ára velti hún 10 milljónum á mánuði í versluninni Maniu á Laugavegi. Skömmu síðar var hún búin að vinna Edduverðlaunin sem leikkona og þá var ekki aftur snúð og hún flutti til Bandaríkjanna, þar sem hún vinnur nú að fjölmörgum verkefnum. Hér ræða María og Sölvi um lygilegan feril Maríu, sálufélaga, sorgina eftir dauðsföll í fallhlífarstökk og margt margt ...
Jul 21, 2022•2 hr 17 min•Season 1Ep. 26
Sigursteinn Másson varð þjóðþekktur sem ungur fréttamaður á Stöð 2. Þá var hann óviss um kynhneigð sína og gekk í gegnum erfiða tíma tengda því. Síðar seig á ógæfuhliðina þegar Sigursteinn endaði á geðsjúkrahúsi í Danmörku eftir að hafa gengið nærri sér í umfjöllun um Balkanstríðið. Hér ræða Sigursteinn og Sölvi um ferilinn í fjölmiðlum, Sönn íslensk sakamál, Covid, stöðuna í heiminum og margt margt fleira! Þátturinn er í boði Sjónlags - www.sjonlag.is Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvit...
Jul 20, 2022•1 hr 54 min•Season 1Ep. 27
Sólveig Eiríksdóttir eða Solla er löngu orðin þjóðargersemi. Ferill þessarrar mögnuðu konu spannar áratugi og ótrúlega fjölbreytt svið. Hér ræða hún og Sölvi um feril Sollu sem bisness-kona, bókaútgáfuna hjá stærstu forlögum heims, ástríðuna fyrir matnum, matreiðsluna fyrir heimsfrægt fólk og dansinn sem hjálpaði henni út úr ,,burnouti".
Jul 20, 2022•1 hr 52 min•Season 1Ep. 25
Ingólfur Þórarinsson kom inn á sjónarsvið íslensku tónlistarsenunnar eftir að hann keppti í Idolinu. En áður en hann keppti þar hafði hann stofnað hljómsveitina Veðurguðirnir og hringt í nánast alla veitingastaði landsbyggðarinnar og beðið um að fá að mæta til að spila með bandinu sínu. Eftir Idolið fór allt af stað og síðan þá er varla nokkur íslenskur tónlistarmaður sem hefur ,,giggað" jafn oft. Í dag er Ingó á krossgötum og segist vilja skoða aðeins betur listamanninn í sér. Hér ræða hann og ...
Jul 19, 2022•1 hr 44 min•Season 1Ep. 23
Ellý Ármannsdóttir varð þjóðþekkt þegar hún vann um árabil sem þula á Ríkissjónvarpinu. Þar kom strax í ljós að hún sker sig úr sama hvar hún kemur og sumt sem hún gerði sem þula þótti umdeilt. Síðan þá hefur Ellý unnið við ótal hluti, allt frá því að spá fyrir fólki yfir í að vera hóptímakennari í íþróttum. Hér ræða Sölvi og Ellý um tímabilin í fréttunum, spádómana, leiðir til þess að stíga út úr ótta og margt margt fleira.
Jul 19, 2022•1 hr 35 min•Season 1Ep. 24
Mikael Torfason er einn reyndasti fjölmiðlamaður Íslands, sem hefur í gegnum tíðina ritstýrt 3 af stærstu dagblöðum landsins. Hann breytti landslagi rithöfunda sem ungur maður þegar hann skrifaði bókina ,,Falskan Fugl", þar sem fjallað var um hluti sem aldrei höfðu áður birst í bókum á Íslandi. Mikael hefur alla tíð elskað ritmálið og nú býr hann í Vínarborg, þar sem hann vinnur þessa dagana mest við að skrifa handrit fyrir leikhús, bíómyndir og sjónvarpsþætti. Hér ræða hann og Sölvi um þennan s...
Jul 18, 2022•2 hr 23 min•Season 1Ep. 22
Óttar Guðmundsson geðlæknir hefur í áraraðir starfað við að aðstoða fólk með geðsjúkdóma, fíknivanda og fleira. Eftir hann liggur fjöldi bóka, allt frá Ævisögu Megasar yfir í ,,Hetjur og Hugarvíl", þar sem Óttar skoðar geðsdjúkdóma og persónuleikaraskanir helstu hetjanna úr Íslendingasögunum. Óttar hefur auk þess verið yfir kynleiðréttingarteymi landsspítalans frá því það var stofnað. Hér ræða hann og Sölvi um geðsjúkdóma, bækurnar, Covid tímann, það hvort við séum farin að ofgreina allt og alla...
Jul 18, 2022•1 hr 40 min•Season 1Ep. 21
Gunnar Nelson er eini Íslendingurinn sem hefur algjörlega lifað af keppni í bardagaíþróttum um árabil. Hann komst ungur í fremstu röð og fékk samning á UFC, þar sem aðeins allra öflugustu bardagamenn heims keppa. Faðir hans Haraldur Dean Nelson hefur stutt við bakið á vegferð sonarins frá fyrsta degi og er jafnframt umboðsmaður hans. Hér ræða þeir feðgar við Sölva um hæðirnar og lægðirnar í UFC, sambandið við Conor McGregor, stressið áður en farið er inn í búrið og margt margt fleira.
Jul 17, 2022•1 hr 27 min•Season 1Ep. 20
Vinirnir Helgi Jean Claessen og Hjálmar Örn Jóhannsson hafa í áraraðir verið að gera grínefni saman, en á löngum köflum gekk það brösulega. Hjálmar fór að vinna á leikskóla og Helgi fór í jakkaföt og vildi verða bissnessmaður. En dropinn holar steininn og í dag eru þeir í fullri vinnu við að gera grínefni, bæði í Hlaðvarpinu Hæhæ og Hjálmar fer í gervi Hvítvínskonunnar nær daglega. Hér ræða þeir Sölvi um mikilvægi þess að elta draumana, gefast ekki upp, hætta að láta álit annarra stýra sér og ma...
Jul 16, 2022•58 min•Season 1Ep. 19
Björgvin Páll Gústafsson er einn litríkasti íþróttamaður síðari ára á Íslandi. Á stórmótum hefur hann vakið athygli fyrir Víkingalegt útlit og brjálæðislega framgöngu á vellinum. Sölvi skrifaði bók um Björgvin fyrir ári síðan og hér ræða þeir saman um ferilinn, barnæskuna, leiðir Björgvins til bata úr andlegu og líkamlegu hruni og margt margt fleira.
Jul 15, 2022•1 hr 27 min•Season 1Ep. 18
Guðlaugur Victor Pálsson fékk samning hjá Liverpool aðeins 17 ára gamall og var einn efnilegasti leikmaður sem sést hafði lengi á Íslandi. En æska hans var erfiðari en hjá flestum. Í dag er hann orðinn fastamaður í landsliðinu og hefur verið fyrirliði síðustu tveggja liða sem hann hefur spilað með. Hér ræða hann og Sölvi um hæðirnar, lægðirnar, rasisma, drauminn um að fara á stórmót með Íslandi og margt margt fleira.
Jul 13, 2022•1 hr 28 min•Season 1Ep. 16
Ólafur Stefánsson er löngu orðinn þjóðargersemi. Einn besti handboltamaður allra tíma, sem kom heim með silfurverðlaun frá Olympíuleikunum í Peking. Hèr ræða hann og Sölvi um ad viðhalda barninu í sér, mikilvægi þess að elta draumana og þora að vera ,,skrýtni kallinn".
Jul 13, 2022•1 hr 25 min•Season 1Ep. 15
Kristín Sif Björgvinsdóttir útvarpskona er magnaður einstaklingur. Sem ung kona vann hún á Falklandseyjum, þar sem hún ferðaðist med herflugvélum. Eftir að hafa misst manninn sinn á hræðilegan hátt hefur hún komist á verðlaunapall á Norðurlandamóti í boxi og verið valinn iðkandi ársins í Crossfit Reykjavík. Hér fara hún og Sölvi yfir allt þetta og margt margt fleira.
Jul 12, 2022•1 hr 40 min•Season 1Ep. 14
Það er óhætt að kalla Erp Eyvindarson guðföður íslensku rappsenunnar. Maðurinn sem hefur alltaf farið eigin leiðir og gert það sem honum sýnist mætir hér í viðtal til Sölva þar sem þeir ræða allt frá anarkisma og ferðalögum, yfir í partý, tónlist og tilgang lífsins.
Jul 12, 2022•2 hr 18 min•Season 1Ep. 13
Rúrik Gíslason hefur í gegnum árin verið lykilmaður gullkynslóðarinnar í fótbolta. Á HM 2018 varð hann heimsfrægur á einni nóttu. Hér ræða hann og Sölvi um HM, Instagram ævintýrið, móðurmissi Rúriks, álit annarra og margt fleira.
Jul 11, 2022•1 hr 35 min•Season 1Ep. 12
Guðmundur Benediktsson er almennt talinn einn efnilegasti knattspyrnumaður Íslandssögunnar, en lenti ungur margoft í slæmum meiðslum. Hann er nú orðinn heimsþekktur fyrir lýsingar sínar á knattspyrnuleikjum. Hér ræða hann og Sölvi um fjölmiðla, feril Gumma Ben og einstaklingana sem gera íþróttir að hreinni listgrein.
Jul 11, 2022•1 hr 35 min•Season 1Ep. 11
Linda Pétursdóttir er löngu orðin landsþekkt sem frumkvöðull og alheims fegurðardrottning. Hér ræða hún og Sölvi um stórmerkilegt lífshlaup þessarar ótrúlegu konu.
Jul 10, 2022•58 min•Season 1Ep. 10
Emmsjé Gauti er einn þekktasti rappari Íslandssögunnar. Hér ræða hann og Sölvi um ferilinn, áfengi, skoðanafrelsi, kvíða og löngunina til ad verða betri í dag en í gær.
Jul 09, 2022•1 hr 57 min•Season 1Ep. 9
Björn Steinbekk var umdeildasti maður Íslands eftir EM 2016. Hèr ræða hann og Sölvi um tónleikahaldið, stóra miðamálið, drykkjuna og margt margt fleira.
Jul 08, 2022•2 hr 6 min•Season 1Ep. 8
Jóhannes Kr. Kristjánsson er maðurinn sem felldi forsætisráðherra með Panama skjölunum og kom upp um Guðmund í Byrginu. Hér ræða hann og Sölvi um blaðamennsku, dótturmissinn og snerta á hótunum og fleiru.
Jul 07, 2022•1 hr 33 min•Season 1Ep. 7
Aron Már Ólafsson er einn allra efnilegasti leikari þjóðarinnar. Hér ræða hann og Sölvi um systurmissinn, fíknir, leiklistina og fleira.
Jul 06, 2022•1 hr 52 min•Season 1Ep. 6
Anníe Mist Þórisdóttir var fyrsta konan til þess að vinna heimsleikana í Crossfit tvö ár í röð. Hér ræða hún og Sölvi um fórnirnar, keppnisskapið, hæðirnar og lægðirnar.
Jul 06, 2022•1 hr 39 min•Season 1Ep. 5
Logi Bergmann er líklega þekktasti sjónvarpsmaður Íslands eftir áratugi á skjám landsmanna. Hér fáum við að heyra í honum hinum megin við borðið.
Jul 05, 2022•1 hr 5 min•Season 1Ep. 3
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands fer yfir starfið, samstarfið við Bjarna Ben, einkalífið og ástina á Liverpool.
Jul 04, 2022•38 min•Season 1Ep. 2
Ólafur Darri Ólafsson er líklega þekktasti leikari Íslands. Hér ræða hann og Sölvi um listina, geðlyfjanotkun, dýpstu dalina og hæstu hæðirnar.
Jul 03, 2022•1 hr 23 min•Season 1Ep. 4
Áskrift og aðgangur að öllum þáttum: www.solvitryggva.is Kári Stefánsson er löngu orðinn þjóðargersemi. Hér spjalla hann og Sölvi um hráan persónuleika Kára, óbeit hans á aumingjaskap og margt margt fleira. Aðgangur að öllum þáttum á www.solvitryggva.is
Apr 17, 2022•1 hr 36 min•Season 1Ep. 1
May 12, 2021•45 sec•Season 1Ep. 1