453.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag höldum við Þórhallur Dan áfram að tala um KSÍ og þá staðreynd að formaðurinn og fleiri svara ekki í símann. Hvað er í gangi þar á bæ? Við ræðum einnig um meistaradeildina í gær, PSG, Man.City, Liverpool, AC Milan, og fleiri lið koma þar við sögu. Laugardalshöll og Laugardalsvöllur koma einnig við sögu og margt fleira. Njótið og lifið heil.
Nov 25, 2021•44 min•Ep. 451
452.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag er farið í mál málannna sem er brottrekstur Eiðs Smára sem aðstoðarþjálfara A-landsliðs karla í fótbolta. Enn og aftur er KSÍ að veita áfengi í landsliðsferðum. Við Þórhallur Dan tökum þetta fyrir og förum einnig í málefni Akureyrabæjar og Þórs en á Akureyri logar allt stafnanna á milli. Við tölum um meistaradeildina og margt fleira. Njótið og lifið heil.
Nov 24, 2021•46 min•Ep. 450
451.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum ég og Þórhallur Dan um víðan völl. Meistaradeildin, Man.Utd. og þjálfaramálin, Covid19, tölum um viðtalið sem ég tók við Sævar Pétursson framkvæmdastjóra KA í gær ein Krummasaga og margt margt fleira. Njótið og lifið heil.
Nov 23, 2021•39 min•Ep. 449
450.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag tölum við Þórhallur Dan um mál málanna um helgina, brottrekstur Ole Gunnar Solskjaer frá Man.Utd. Hver tekur við? Við förum einnig aðeins í önnur mál en OGS er stóra málið. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA er á línunni. Við ræðum um leyfiskerfi KSÍ en það er kurr í fótboltanum útaf nýja leyfiskerfinu. Sævar tjáir sig um það mál sem og um aðstöðuleysi KA og samstarf KA við danskt úrvalsdeildarfélag. Njótið og lifið heil.
Nov 22, 2021•1 hr 6 min•Ep. 448
449.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan förum um víðan völl í dag. Breiðabliksstelpur í meistaradeildinni í gær, krísufundur hjá Man.Utd, enski boltinn, Olísdeildin, Subwaydeildin, risa samningur NBC um enska boltann og svo tökum við leyfiskerfi KSÍ fyrir. Þetta og aðrar fréttir og slúður. Njótið og eigið góða helgi.
Nov 19, 2021•55 min•Ep. 447
448.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum ég og Þórhallur Dan um ýmislegt. Laun í enska boltanum og víða, körfubolti, handbolti, Covid19, Breiðablik-Kharkiv og Krummasögur. Agla María Albertsdóttir ein af stjörnum kvennaliðs Breiðabliks í fótbolta er í viðtali en Breiðablik mætir Kharkiv í meistaradeildinni í dag. Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli. Njótið og áfram Breiðablik.
Nov 18, 2021•43 min•Ep. 446
447.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum ég og Þórhallur Dan um víðan völl. Við tölum um U21 árs lið karla í fótbolta, A-landsliðið blandast inní þá umræðu, förum í tölur um verðþróun á enska boltanum í íslensku sjónvarpi en þær tölur eru birtar með leyfi Svanvhítar Valtýsdóttur sem vann ritgerð um verðþróun enska boltans á Íslandi. Við förum einnig í aðrar fréttir og slúður. Njótið og lifið heil.
Nov 17, 2021•53 min•Ep. 445
446.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir sportið. Við ræðum töluvert um viðtalið sem var við Orra Hlöðversson í gær. Einnig spjöllum við töluvert um stjórn KSÍ og stjórnarhætti þar á bæ. Við tölum um U21 árs landslið karla í fótbolta, leikina í undakeppni HM í gær, sóttvarnir og Covid19 og margt fleira. Njótið og lifið heil.
Nov 16, 2021•49 min•Ep. 444
445.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í dag heyri ég í Orra Hlöðverssyni formanni Breiðabliks og ÍTF(íslensks topp fótbolta). Við tölum um Breiðablik en Orri er að hætta þar sem formaður og arftakinn er klár. ÍTF er rætt og samningamál þar á bæ og stjórn KSÍ er rædd og afhverju hann var ekki boðaður á fund stjórnarinnar og meira til. Orri tjáir sig ítarlega um þessi mál öll. Þórhallur Dan er svo á línunni og við ræðum um íslenska kvennalandsliðið í körfubolta, karlalandsliði...
Nov 15, 2021•1 hr 32 min•Ep. 443
444.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Arnar Grétarsson þjálfari KA í fótbolta er í spjalli í dag. Við ræðum um viðtalið sem ég tók við forseta bæjarstjórnar Akureyrar í gær. Aðstöðuleysi íþróttaliðanna á Akureyri er í brennidepli þessa dagana. Arnar tjáir sig um það og einnig um landsleikinn gegn Rúmeníu í gær. Því næst spjöllum við Þórhallur Dan saman. Við förum í landsleikinn og leikinn gegn N-Makedóníu. Mál Vals og Hannesar Þórs Halldórssonar ber á góma, U-21 árs liðið og kvennalandsliðið í kö...
Nov 12, 2021•1 hr 19 min•Ep. 442
443.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Það gustar um bæjarstjórn Akureyrar þessa dagana og tveir þjálfarar KA hafa meðal annarra komið fram og sagt frá aðstöðuleysi og einnig hefur verið talað um metnaðarleysi bæjarstjórnar. Halla Björk Reynisdóttir er forseti bæjarstjórnar og ég heyrði í henni um málið. Því næst heyri að sjálfsögðu í Þórhalli Dan og við ræðum þetta mál ásamt að við förum í landsliðið okkar í fótbolta karla og körfuboltalandslið kvenna. Tottenham kemur við sögu, Pogba, Gerrard og ...
Nov 11, 2021•1 hr 14 min•Ep. 441
442.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Breiðabliksstelpur náðu í gær í sitt fyrsta stig í meistaradeildinni, við Þórhallur Dan tökum þetta fyrir. Tölum einnig um Ísland og Rúmeníu sem er á morgun í undankeppni HM, Orri Hlöðversson er að hætta sem formaður Breiðabliks og hver ætli sé að taka við? Það er allt vitlaust á Akureyri, hver þjálfarinn á fætur öðrum kemur fram og ræðir um aðstöðuleysi og viljaleysi bæjarstjórnar. Þetta og aðrar fréttir og svo slúður. Njótið og lifið heil.
Nov 10, 2021•50 min•Ep. 440
441.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Blikastúlkur mæta Karkhiv í Úkraínu í dag í meistaradeild kvenna í fótbolta. Ég og Þórhallur Dan ræðum um leikinn og möguleika blika. Það er stríð á milli Ultras(aðal stuðningsmenn) hjá AC Milan og Hakan Chalanoglu leikmanns Inter eftir jafntefli liðanna á sunnudagskvöld. Rimman er orðin ansi hörð á samfélagsmiðlum. Við förum í málið og einnig ræðum við um Eddie Howe hjá Newcastle, Pogba, Gerrard, fréttir og slúður og ein Krummasaga. Njótið og lifið he...
Nov 09, 2021•40 min•Ep. 439
Í dag förum ég og Þórhallur Dan yfir sportið um helgina. Man.Utd.-Man.City, West Ham-Liverpool og Milan-Inter. Það gekk mikið á í þessum leikjum. Er Solskjaer á förum frá United? Tveir stjórar voru reknir um helgina í ensku úrvalsdeildinni. Enn tapar Mourinho. Fréttir og slúður og margt fleira. Njótið og lifið heil.
Nov 08, 2021•51 min•Ep. 438
439.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Það er nóg um að vera í þætti dagsins. Valur var í gær að fá tvo flotta leikmenn til sín fyrir átökin næsta sumar. Aron Jóhannsson er komin heim úr atvinnumennsku og garðbæingurinn Heiðar Ægisson ákvað að skipta yfir í Val. Ég ræði ítarlega við þá kappa. Þar á eftir hringi ég í Þórhall Dan og við förum um víðan völl. Evrópudeildin, enski boltinn, ítalski boltinn, Covid 19 og stjórn KSÍ koma meðal annars við sögu hjá okkur og margt fleira...
Nov 05, 2021•1 hr 11 min•Ep. 437
438.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Landsliðshópur karla í fótbolta, sem mætir Rúmeníu og N-Makedóníu í undankeppni HM, var valinn í dag. Við Þórhallur Dan förum yfir valið og Tóti Dan segir sína skoðun á valinu ásamt fleiru. Við ræðum um meistaradeildina en Tóti var óvenju getspakur í gær og við tölum einnig um evrópudeildina en fjölmargir leikir eru þar. Valsmenn koma við sögu og svo fréttir og slúður. Njótið og lifið heil.
Nov 04, 2021•39 min•Ep. 436
437.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Þátturinn í dag er fjörugur að vanda. Þórhallur Dan er í stuði og er ekki sáttur með leik sinna manna í Man.Utd. Við förum yfir meistaradeildina í gær og það sem er framundan í dag. Krummasögur eru á sínum stað og þar tölum við aðeins um Val. Njótið og lifið heil.
Nov 03, 2021•43 min•Ep. 435
436.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir málin í sportinu. Emil Pálsson knattspyrnukappi fær okkar bestu kveðju, bikarinn í körfubolta, þjálfararnir Conte og Emery koma við sögu, við förum í leikina í meistaradeildinni og Krummasaga dagsins kemur úr handboltanum. Njótið og lifið heil.
Nov 02, 2021•47 min•Ep. 434
435.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Það er nóg um að vera í dag. Ég og Þórhallur Dan förum yfir sviðið um helgina. Enski boltinn, Tottenham, Man.Utd, Liverpool, West Ham, Man.City og fleira. Er Conte að taka við Tottenham? Ítalski boltinn, Milan vann og Zlatan er einstakur. Messi og Barcelona koma við sögu, Krummasögur eru svo á sínum stað og góðir bitar þar á ferð. Þetta og margt fleira. Njótið og lifið heil.
Nov 01, 2021•53 min•Ep. 433
434.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag hringi ég fyrst í Þórhall Dan og við ræðum um tvær skeytasendingar sem mér barst á messenger á Mín skoðun á Facebook. Krummasaga dagsins kemur úr röðum stjórnar KSÍ. Við förum yfir körfuboltann og handboltann. Ræðum um leiki helgarinnar og margt fleira. Tippari vikunnar er enginn annar en Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri Símans og leikari með meiru. Mikill snillingur þar á ferð og við tölum um leikina 5 á Lengjunni auk þess að ræða um daginn og vegin...
Oct 29, 2021•1 hr 5 min•Ep. 432
433.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í gær var ótrúlegur dagur í sportinu og þá einkum í fótboltanum. Koeman rekinn frá Barca, Juve tapaði enn og aftur, Man.City var slegið út úr deildarbikarnum eftir að hafa unnið þá keppni s.l. fjögur ár, stærsti ósigur Bayern frá 1978 leit dagsins ljós í gær og margt fleira þarna. Krummasögur eru í dag og þær snúa að stjórn KSÍ og formannskjöri ásamt sögu Tóta úr skipulagi fótboltamóta yngri flokka. Þetta og sitthvað fleira. Njótið og lifið heil.
Oct 28, 2021•51 min•Ep. 431
432.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan ræðum um margt í dag. Við byrjum á landsleiknum í gær þar sem stelpurnar okkar völtuðu yfir Kýpur. Síðan förum við í stjórn og nefndir KSÍ og öll þau mál. Tölum um ítalska boltann og einnig þann enska. Nýtt í máli Arons Einars og Eggerts Gunnþórs og förum svo í fréttir og slúður. Njótið og lifið heil.
Oct 27, 2021•52 min•Ep. 430
431.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag ræðum ég og Þórhallur Dan um landsleik Íslands og Kýpur í undankeppni HM kvenna í fótbolta og spáum í úrslitin. Þá tölum við nokkuð mikið um stöðuna hjá Manchester United. Er Conte að fara að taka við eða verður Solskjær áfram? Við tölum einnig um deildarbikarinn í kvöld, förum aðeins í ítalska boltann og svo fréttir og slúður. Er Salah að leika sitt síðasta tímabil fyrir Liverpool? Njótið.
Oct 26, 2021•47 min•Ep. 429
430.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Ég og Þórhallur Dan spjöllum saman í þætti dagsins. Við tölum um stórleikinn um helgina á milli Man.United og Liverpool. Hvað er til ráða hjá United? Við spjöllum einnig um um önnur lið í deildinni, svosem West Ham, Chelsea, Tottenham og fleiri. Þá förum við yfir gang mála á Spáni, Ítalíu, Frakklandi, Þýskalandi, Danmörku og víða. Kvennalandsliðið okkar er einnig aðeins tekið fyrir en nánar um það á morgun þar sem stelpurnar okkar mæta K...
Oct 25, 2021•51 min•Ep. 428
429.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í fyrra viðtali dagsins ræðum ég og Þórhallur Dan um sportið vítt og breytt. Körfuboltinn hér heima, stjórn KSÍ og kosning varaformanns, ÍTF (íslenskur toppfótbolti), kvennalandslið sem mætir tékkum í kvöld í undankeppni HM, Mourinho og hans menn voru teknir í kennslustund af Bodo/Glimt í gær, enski boltinn, þýski handboltinn, fréttir og slúður og margt margt fleira. Tippari vikunnar er Egill Einarsson(Gillzenegger). Við ræðum um myndina Leynilögga ása...
Oct 22, 2021•1 hr 7 min•Ep. 427
428.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan ræðum um ýmislegt í dag. Meistaradeildina í gær og Man.United. Tóti er ekki ánægður með sína menn skal ég segja ykkur. FIFA listi karla og kvenna er tekinn fyrir en íslenska karlalandsliðið er í frjálsu falli á listanum. Hver verður næsti stjóri Newcastle. Fréttir og slúður og margt fleira. Njótið.
Oct 21, 2021•43 min•Ep. 426
427.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum ég og Þórhallur Dan um víðan völl í boltanum. Meistaradeildin í gær og í dag er tekin fyrir og Tóti er ánægður með settið hjá Viaplay í keppninni þar sem Sigurður Hrannar Björnsson, Rúrik Gíslason og Freyr Alexandersson voru í gær. Brottrekstur Steve Bruce frá Newcastle og hverjir eru nefndir sem arftakar og þar eru nokkur athyglisverð nöfn. Við ræðum um stöðuna hjá Man.Utd. og hvort Zidane sé að fara að taka við af Solskjær. Íslenska kvennalandið...
Oct 20, 2021•47 min•Ep. 425
426.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag hringi ég í Þórhall Dan Jóhannsson. Við komum víða við. Tölum um AGF og Jón Dag Þorsteinsson, Heimi Hallgrímsson, Þrótt Vogum sem var að fá nýjan þjálfara og förum aðeins í Lengjudeildina. Meistaradeildin í dag er tekin fyrir, fótboltinn hér heima og Krummasögur. KSÍ og staða yfirmanns knattspyrnumála og margt og mikið meira er tekið fyrir í dag. Njótið.
Oct 19, 2021•44 min•Ep. 424
425.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Ég og Þórhallur Dan förum yfir sviðið í sportinu. Víkingur varð um helgina bikarmeistari, við tölum um Bundesliguna í fótbolta og handbolta, enska boltann, ítalska boltann, íslensku liðin í evrópukeppninni í handbolta og svo margt margt fleira. Því næst hringi ég svo til Þýskalands og heyri í handboltasnillingnum Ómari Inga Magnússyni leikmanni Magdeburg sem hafa unnið alla sína leiki í deildinni það sem af er. Við ræðum um leikstíl liðsins, heimsmeist...
Oct 18, 2021•56 min•Ep. 423
424.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan hefjum leik í þætti dagsins. Við tölum um haukastelpur í evrópukeppninni í körfubolta, handbolta, enska boltann, bikarúrslitaleikinn á morgun á milli ÍA og Víkings, ráðningu nýs þjálfara hjá Stjörnunni og fréttir og slúður og margt fleira. Tippari vikunnar er enginn annar en Logi Bergmann, sá bráðskemmtilegi maður. Hann er Man.United aðdáandi og einnig harður Víkingur. Logi tippar á 5 leiki á Lengjunni ásamt því að við spjöllum um heima og...
Oct 15, 2021•1 hr 3 min•Ep. 422