Mín skoðun - podcast cover

Mín skoðun

Valtýr Björnvaltyrbjorn.podbean.com
Mín skoðun með Valtý Birni
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

423.þáttur.Mín skoðun. 14102021

423.þáttur.Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan förum yfir sportið í dag. Við ræðum um blikastelpur sem kepptu í gær í meistaradeild Evrópu gegn Real Madrid. Við tölum einnig um haukastelpur sem í kvöld brjóta blað í íslenskri körfuboltasögu þegar þær mæta franska liðinu Villeneuve d’Ascq í Euro Cup en leikið verður á Ásvöllum. Við tölum einnig um fangelsisdóm Lucas Hernandez leikmanns Frakklands og Bayern München og Tóti segir sína skoðun á kaupum sádí arabanna á Newcastle. Fleiri frétt...

Oct 14, 202138 minEp. 421

422.þáttur. Mín skoðun. 13102021

422.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan Jóhannsson förum í dag yfir víðan völl í spjalli okkar. Við byrjum á að fara í U-21 árs landsleik Íslands og Portúgals sem fór fram í gær. Því næst förum við í KSÍ mál og nýtt bréf sem stjórn sambandsins barst 27.september varðandi meint ofbeldi landsliðsmanna. Þar á eftir tölum við um leik Real Madrid og Breiðabliks í meistaradeild kvenna en leikurinn er í kvöld. Að lokum förum við í aðrar fréttir og slúður. Njótið.

Oct 13, 202143 minEp. 420

421.þáttur. Mín skoðun. 12102021

421.þáttur. Mín skoðun. Góðan daginn. Ég og Þórhallur Dan förum í dag yfir landsleikinn í gær. Tóti segir sitt mat á leik liðsins og dregur ekkert undan að vanda. Við ræðum einnig um 21.árs liðið sem mætir Portúgal í dag á Víkingsvellinum og við erum bara nokkuð bjartsýnir fyrir hönd okkar pilta. Við spjöllum einnig um handboltann í gær og svo förum við í fréttir og slúður og Tóti er ekki alveg sáttur við Ole Gunnar Solskjaer stjóra Man.Utd. Njótið.

Oct 12, 202144 minEp. 419

420.þáttur. Mín skoðun. 11102021

420.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum ég og Þórhallur Dan víða. Við ræðum um íslenska karlalandsliðið í fótbolta. Förum yfir leikinn gegn Armeníu, tökum fyrir leikinn í kvöld og einnig hvað er að gerast með liðið okkar. Við ræðum einnig um innviði KSÍ, Ómar Ingi handboltakappi kemur við sögu og svo margt margt fleira. Tóti talar út úr skegginu í dag. Njótið.

Oct 11, 202152 minEp. 418

419.þáttur. Mín skoðun. 08102021

419.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í dag ræði ég við Þórhall Dan Jóhannsson og við förum um víðan völl. Tölum um stjórn KSÍ, formann KSÍ, Breiðablik-PSG í meistaradeild kvenna og spyrjum afhverju var leikurinn ekki sýndur í sjónvarpi á Íslandi. Við förum aðeins í þjálfaramál og tökum fyrir eigendaskipti Newcastle og svo að sjálfsögðu landsleik Íslands og Armeníu. Tóti stillir upp sínu liði og kemur með spá. Njótið helgarinnar.

Oct 08, 202146 minEp. 417

418.þáttur. Mín skoðun. 07102021

418.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag byrja ég á að heyra í Hannesi S. Jónssyni formanni KKÍ. Við ræðum um nýjan styrktaraðila sambandsins, tölum um fjárhagsstöðuna og svo um stöðuna á heimaleikjum karla-og kvennalandsliðanna okkar. Verður t.d. leikurinn gegn Rússlandi í HM karla sem á að fara fram í nóvember hér heima, leikinn á erlendis? Því næst heyri ég í Benedikt Guðmundssyni þjálfara karlaliðs Njarðvíkur í körfuboltanum en Njarðvík er spáð efsta sæti í deildarkeppninni. Benni f...

Oct 07, 20211 hr 3 minEp. 416

417.þáttur. Mín skoðun. 06102021

417.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag hringi ég í Ásthildi Helgadóttur og við ræðum um leik Breiðabliks og PSG í meistaradeild kvenna í fótbolta en leikur liðanna fer fram á Kópavogsvelli. Ásthildur útskýrir í viðtalinu hvert ljósmagnið af flóðljósunum á vellinum þarf að vera til að UEFA samþykki en Breiðablik fékk undanþágu frá UEFA. Þá hringi ég í Þórhall Dan og við förum um víðan völl að vanda. Landslið karla er tekið fyrir, valið og svo einnig þjálfarinn og margt í kringum það allt sama...

Oct 06, 202157 minEp. 415

416.þáttur. Mín skoðun. 05102021

416.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Ég og Þórhallur Dan spjöllum saman í dag. Við förum í KSÍ mál, landsliðið, landsliðsval, Krummasögur, enska boltann og Sir Alex og tölum einnig um nýjan formann KSÍ og svo margt margt fleira. Njótið.

Oct 05, 202135 minEp. 414

415.þáttur. Mín skoðun. 04102021

415.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri ég í Hermanni Hreiðarssyni sem er nýr þjálfari ÍBV í meistaraflokki karla í knattspyrnu. Við ræðum um ráðningarferlið, eyjarnar, samninginn og hans persónulega líf ásamt fleiru. Því næst hringi ég í Þórhall Dan Jóhannsson. Við spjöllum um nánast allt. KSÍ þingið, landsliðið, handboltann, Mjólkiurbikarinn, dómgæslu, enska boltann og Tóti sem fyrri daginn liggur ekki á skoðunum sínum. Hann er með margar spurningar varðandi landsliðið og bráðabirgðar...

Oct 04, 20211 hr 14 minEp. 413

414.þáttur. Mín skoðun. 01102021

414.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Tippari vikunnar er gleðigjafinn Sóli Hólm. Hann er mikill púllari og fer ekki leynt með það sá yndislegi kappi. Sóli tippar á 5 leiki á Lengjunni og við spjöllum heilmikið. Jóhannes Lange fer svo yfir gang mála með mér yfir Final 4 í handboltanum hér heima og þar er af nógu að taka. Andri Steinn Birgisson er svo á línunni og við ræðum um leikina í enska boltanum um helgina sem og um úrsltaleik kvenna í Mjólkurbikarnum, Breiðablik-Þróttur, og undanúr...

Oct 01, 20211 hr 9 minEp. 412

413.þáttur. Mín skoðun. 30092021

413.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í þætti dagsins hringi ég fyrst í Jóhannes Lange og við ræðum um Final 4 í handboltanum en Valur-Fram, KA/Þór-FH mætast í kvennaflokki í dag. Við förum yfir stöðun og ræðum einnig töluvert um dapra stöðu þjóðarhallar sem var einhverntíma Laugardalshöll. Þar er allt í steik eða þannig. Því næst hringi ég í Andra Stein Birgisson sérfræðing minn í fótboltanum. Við tölum um meistaradeildina í gær og spjöllum einnig um þjálfarakapalinn sem og félagaskipti l...

Sep 30, 202151 minEp. 411

412.þáttur. Mín skoðun. 29092021

412.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í dag spjalla ég við Andra Stein Birgisson. Við förum um víðan völl. Meistaradeildin er tekin fyrir eftir leiki gærkvöldsins og þá spáir Andri Steinn í leiki kvöldsins. Við tölum um Val í evrópukeppninni í handbolta og að sjálfsögðu tölum við um þjálfarakapalinn en þar eru nokkur störf enn laus. Njótið.

Sep 29, 202140 minEp. 410

411.þáttur. Mín skoðun. 28092021

411.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri ég í Andra Steini Birgissyni. Við spjöllum um Meistaradeildina í fótbolta og leiki kvöldsins. Förum í slúður og fréttir og svo þjálfarakapalinn mikla svo eitthvað sé nefnt. Því næst hringi ég í Guðmund Guðmundsson landsliðsþjálfara í handbolta. Guðmundur hætti nýverið hjá þýska liðinu Melsungen en tekur við danska liðinu Fredericia næsta sumar. Við ræðum um viðskilnað hans við þýska liðið, landsliðið, samninginn við Fredericia og svo margt, margt ...

Sep 28, 20211 hr 9 minEp. 409

410.þáttur. Mín skoðun. 27092021

410.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag ræði ég við Andra Stein Birgisson. Við spjöllum um lokin á PepsiMax deildinni þar sem skagamenn björguðu sér frá falli og Víkingur varð meistari. Við ræðum um þjálfarakapalinn, leikmenn, Krummasögur, enska boltann og margt fleira. Njótið.

Sep 27, 202148 minEp. 408

409.þáttur. Mín skoðun. 24092021

409.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Tippari vikunnar í dag er enginn annar en Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins. Hann er mikill Arsenal aðdáandi en synir hans halda með Liverpool. Sigurður Ingi tippar á 5 leiki á Lengjunni og við spjöllum aðeins um pólitíkina og margt fleira. Þá heyri ég í Andra Steini Birgissyni sérfræðingi mínum í boltanum. Við förum yfir úrslitaumferðina í PepsiMax deild karla, tökum fyrir enska boltann og margt margt fleira. Að síðustu hringi ég í Úlfar ...

Sep 24, 20211 hr 5 minEp. 407

408.þáttur. Mín skoðun. 23092021

408.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri ég í Andra Steini Birgissyni. Við ræðum um enska boltann og þá um deildarbikarinn, íslenska boltann, Lengjudeildina og svo um næsta laugardag þegar lokaumferðin í PepsiMax deild karla fer fram. Njótið.

Sep 23, 202140 minEp. 406

407.þáttur. Mín skoðun. 22092021

407.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Það eru stórtíðindi í íþróttaheiminum hér heima í dag. Vanda Sigurgeirsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns KSÍ. Vanda er í spjalli við mig í þætti dagsins. Þá heyri ég í Andra Steini Birgissyni og við ræðum um framboð Vöndu, Krummasögur eru á sínum stað, vangaveltur um þjálfarakapalinn mikla, enska boltann, handboltann í gær hjá Val og Lemgo og svo margt margt fleira. Njótið.

Sep 22, 202147 minEp. 405

406.þáttur. Mín skoðun. 21092021

406.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í þætti dagsins heyri ég fyrst í Þórhalli Dan og við ræðum um PepsiMax karla og þá staðreynd að Fylkir féll í Lengjudeildina í gærkvöldi. Við tölum einnig um rauða spáldið sem Birnir Snær leikmaður HK fékk í leik gærkvöldsins og einnig um kvennalandsleiksinnn í kvöld. Því næst heyri ég í Snorra Steini Guðjónssyni þjálfara Íslandsmeistara Vals í handbolta en Valur mætir bikarmeisturum Þýskalands, Lemgo, í kvöld í undakeppni Evrópudeildarinnar. Að síðu...

Sep 21, 202156 minEp. 404

405.þáttur. Mín skoðun. 20092021

405.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir sviðið í sportinu. PepsiMax deildin, Lengjudeildin, 2.deildin, 3.deildin, körfubolti, handbolti, enski boltinn, ítalski boltinn svo eitthvað sé nefnt. Tóti ræðir nokkuð um Fylki og stöðu félagsins og svo einnig um afhverju KSÍ setur ekki fallbaráttuleikina á sama tíma nú um helgina. Njótið.

Sep 20, 202150 minEp. 403

404.þáttur. Mín skoðun. 17092021

404.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Tippari vikunnar í dag er Ásmundur Einar Daðason, Félags-og barnamálaráðherra. Við ræðum um fótboltann, körfuboltann og íþróttir almennt og svo um pólitíkina auk þess að tippa á 5 leiki á Lengjunni. Því næst hringi ég í Þórhall Dan og við förum yfir Litlu-tippkeppnina okkar, spjöllum um PepsiMax, enska boltann, handboltann, körfuboltann og slúður og svo margt, margt fleira. Tóti er snillingur. Þriðji viðmælandinn í dag er svo Andri Stein...

Sep 17, 20211 hr 15 minEp. 402

403.þáttur. Mín skoðun. 16092021

403.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Vestramenn eru kátir í dag eftir sigur á Val í Mjólkurbikarnum í gær. Að því tilefni hringi ég í Herra Vestra, Samúel Samúelsson, og við spjöllum um leikinn, þjálfaramál, leikmannamál og margt fleira. Því næst hringi ég í Þórhall Dan Jóhannsson. Við förum yfir gang mála í Mjólkurbikarnum í gær, Meistaradeildina, handboltann, Evrópudeildina og svo þjálfarakapalinn hér innanlands í fótboltanum. Njótið.

Sep 16, 202152 minEp. 401

402.þáttur. Mín skoðun. 15092021

402.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir ansi margt. Við byrjum á Meistaradeildinni, förum síðan í Mjólkurbikarinn og blöndum Heimi Guðjóns inní þá umræðu. Lárus Orri Sigurðsson er ekki alveg sáttur með Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfara og sendi honum kveðju á Twitter í gær. Við ræðum það aðeins. Undanúrslit í bikarnum í handbolta eru klár og við tölum um Laugardalshöll og allt það bull. Inní það tal okkar blandast svo einhvernveginn tal okka...

Sep 15, 20211 hr 1 minEp. 400

401.þáttur. Mín skoðun. 14092021

401.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan förum yfir sportið í dag. Litla tippkeppnin er rædd og svo einnig Meistaradeildartippið hjá okkur félögum. Þá ræðum við um formannskjör KSÍ og veltum upp nöfnum í Krummasögum dagsins og þá förum við aðeins í þjálfarakapalinn, bikarinn í handbolta og margt margt fleira. Njótið.

Sep 14, 202141 minEp. 399

400.þáttur. Mín skoðun. 13092021

400.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Ég og Þórhallur Dan Jóhannsson ræðum málin í dag. Við vörum yfir gang mála í PepsiMax deildinni en þar er staðan í Litlu-tippkeppninni, mjög ójöfn. Við förum einnig í landsliðsmál, enska boltann og svo margt og mikið meira. Njótið.

Sep 13, 202150 minEp. 398

399.þáttur. Mín skoðun. 10092021

399.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Tippari vikunnar er Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA. Við förum yfir leikina 5 sem ég valdi fyrir hann á Lengjunni ásamt því að ræða um málefni KA, KSÍ og hvort Sævar sé á leiðinni í framboð til formanns KSÍ. Þá heyri ég í Andra Steini Birgissyni sérfærðingi mínum í Lengjudeildinni. Við förum yfir leiki helgarinnar og ræðum einnig um þann mikla þjálfarakapal sem er framundan í Lengjudeildinni. Þá hringi ég í Þórhall Dan Jóhannsson og við Tóti ræðum ...

Sep 10, 20211 hr 24 minEp. 397

398.þáttur. Mín skoðun. 09092021

398.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Ég og Þórhallur Dan förum í dag yfir landsleikinn í gær. Tóti liggur ekki á skoðunum sínum gagnvart liðsvali og fleira og við ræðum um framtíðina. Hvernig verður þetta í næstu keppni? Ísland er í næstneðsta sæti síns riðils og ekki miklar líkur á að okkar strákar nái að fara ofar í riðlinum. Við ræðum einnig um aðra leiki sem voru í gær, blikastúlkur sem mæta Osijek í Meistaradeildinni í dag og margt margt fleira. Njótið.

Sep 09, 202148 minEp. 396

397.þáttur. Mín skoðun. 08092021

397.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum ég og Þórhallur Dan um landsleikinn í kvöld gegn Þýskalandi og einnig um U21 árs liðið sem gerði jafntefli við Grikkland í gær. Tóti velur sitt byrjunarlið og spáir síðan í leikinn ásamt því að við tölum um ýmislegt fleira. Þá hringi ég í Voga á Vatnsleysuströnd og heyri í Herra Þrótti Vogum, Marteini Ægissyni. Þróttur V leikur í Lengjudeildinni á næstu leiktíð og er það í fyrsta sinn í sögu félagsins sem það gerist. Njótið og ÁFRAM ÍSLAND....

Sep 08, 20211 hr 7 minEp. 395

396.þáttur. Mín skoðun. 07092021

396.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Í dag ræðum ég og Þórhallur Dan um helstu málefni sportsins, U21 árs landsliðið, Lengjudeildina, þjálfaramál, KSÍ, Facebookfærslu Sigurðar G.Guðjónssonar, formannsefni KSÍ og margt margt fleira. Njótið.

Sep 07, 202150 minEp. 394

395.þáttur. Mín skoðun. 06092021

395.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag heyri ég í Andra Steini Birgissyni sérfræðingi mínum um Lengjudeildina og við ræðum um leiki helgarinnar og margt fleira. Þar á eftir hringi ég í Þórhall Dan Jóhannsson gúrú, og við tölum um landsliðið í fótbolta, leikinn í gær og næsta leik og svo um KSÍ málið. Við ræðum einnig um Brasilíu Argentínu og margt margt fleira. Njótið.

Sep 06, 20211 hr 3 minEp. 393

394.þáttur. Mín skoðun. 03092021

394.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Andri Steinn Birgisson ræðum um Lengjudeildina í fótbolta en 5 leikir eru á dagskrá nú um helgina. Andri Steinn veit gjörsamlega allt um þessa deild. Þá heyri ég í Þórhalli Dan og við förum yfir landsleikinn í gær. Þá fer Tóti inná KSÍ málið í allri sinni mynd og talar með tveimur hrútshornum. Við ræðum einnig um U21 árs liðið, enska landsliðið og margt margt fleira. Njótið helgarinnar. Áfram ÍSLAND.

Sep 03, 20211 hr 20 minEp. 392
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android