393.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Ég og Þórhallur Dan spjöllum saman í dag. Við förum yfir KSÍ málið, tölum um markamet Ronaldo og fleira honum tengt, blikastúlkur eru komnar með annan fótinn í riðlakeppni Meistaradeildar, Fylkir fékk nýjan þjálfara og svo ræðum við um leikinn Ísland - Rúmenía sem er í kvöld í undankeppni HM. Þetta og margt fleira. ÁFRAM ÍSLAND.
Sep 02, 2021•51 min•Ep. 391
392.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Ég og Þórhallur Dan förum yfir víðan völl í þætti dagsins. KSÍ málið er fyrst á dagskrá hjá okkur og svo er landsliðið einnig til umræðu. Við förum yfir félagaskiptagluggann sem lokaði í gær og margt margt fleira. Njótið.
Sep 01, 2021•42 min•Ep. 390
391.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Afsakið hvað þáttur dagsins kemur seint inn en það er vegna tæknimála en nú er sem sagt allt komið í lag. Í þætti dagsins heyri ég í Þórhalli Dan og við förum yfir mál málanna, KSÍ. Þar gengur mikið á og Tóti Dan liggur ekki á skoðunum. Við tölum líka um PepisMax kvenna en Fylkir er í fallsæti í þeirri deild og svo um þjálfaraskipti hjá karlaliði Fylkis. Þá hringi ég í Andra Stein Birgisson sérfræðing minn í Lengjudeildinni og við förum yfir leiki dagsins. Nj...
Aug 31, 2021•49 min•Ep. 389
390.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan Jóhannsson yfir víðan völl. Við byrjum á að fara yfir stórtíðindi gærgadsins þar sem formaður KSÍ sagði af sér. Tóti Dan er með sína skoðun á öllu þessu máli og talar með tveimur hrútshornum eins og stundum er sagt. Við förum einnig yfir PepsiMax karla þar sem blikar tróna á toppnum en Fylkir er í fallsæti. Þá förum við í enska boltann, Ronaldo, þýska boltann og fleira til. Njótið.
Aug 30, 2021•1 hr 6 min•Ep. 388
389.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í dag er nóg um að vera. Þórhallur Dan er fyrsti viðmælandinn og við förum yfir PepsiMax deild karla, enska boltann, Meistaradeildina, Ronaldo og svo um viðtal Kastljóss við Guðna Bergsson í gær. Tippari vikunnar er Heimir Eyvindarson texta-og lagahöfundur, meðlimur í hljómsveitinni Á Móti Sól, Liverpool-aðdáandi með meiru. Hann er nýlentur í Liverpool-borg en hann ætlar að fara á leik Liverpool og Chelsea á morgun. Heimir tippar á 5 lei...
Aug 27, 2021•1 hr 25 min•Ep. 387
388.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í þætti dagsins heyri ég í Þórhalli Dan. Við ræðum um PepsiMax kvenna þar sem Valur varð Íslandsmeistari í gær og við óskum valsstúlkum innilega til hamingju með titilinn. Við ræðum einnig um PepsiMax karla þar sem Breiðablik er komið í efsta sæti þegar fjórar umferðir eru eftir. Þá höldum við áfram að ræða um landsliðið okkar í fótbolta en hópurinn sem mætir Rúmeníu, N-Makedóníu og Þýskalandi í undankeppni HM var valinn í gær. Tóti er með margar spurn...
Aug 26, 2021•49 min•Ep. 386
387.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag var landsliðshópurinn valinn sem mætir Rúmeníu, Norður Makedóníu og Þýskalandi í undankeppni HM í fótbolta. Ég og Þórhallur Dan ræðum um valið og stöðu landsliðsins. Við tölum einnig um PepsiMax karla en þrír leikir eru í dag og svo geta valsstúlkur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í dag með sigri á Tindastóli. Krummasögur eru einar þrjár í þætti dagsins og svo einnig fréttir og slúður þar sem Ronaldo, Mbappe, Kane og fleiri koma við sögu. Njótið....
Aug 25, 2021•41 min•Ep. 385
386.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Í dag hringi ég í Þórhall Dan og við ræðum um leikina í PepsiMax karla í gær. Tóta er tíðrætt um leik Stjörnunnar og Fylkis þar sem garðbæðingar höfðu 2-0 sigur. Við ræðum einnig um West Ham sem er nú á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir sigur á Leicester í gær og svo ræðum við einnig um Ronaldo. Seinna símtal dagsins er við Andra Stein Birgisson sérfræðing minn í Lengjudeildinni en 5 leikir eru í dag í deildinni. Andri Steinn spáir í spilin f...
Aug 24, 2021•54 min•Ep. 384
385.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í þætti dagsins fer ég yfir gang mála í sportinu með Þórhalli Dan. Það var nóg um að vera um helgina og fjörið heldur áfram. PepsiMax karla og kvenna, enski boltinn, ítalski boltinn, Mourinho, Ronaldo og svo íslenska landsliðið sem verður valið í vikunni fyrir leikina gegn Rúmeníu, Norður Makedóníu og Þýskalandi í undankeppni HM. Njótið dagsins.
Aug 23, 2021•57 min•Ep. 383
384.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Tippari vikunnar er að þessu sinni Siggi Hlö hinn eini sanni. Kappinn sá heldur með Víkingi og Man.Utd. svona ef það skyldi hafa farið framhjá einhverjum. Hann tippar á 5 leiki á Lengjunni og við ræðum um liðin og einnig um ferðaskrifstofubransann en Siggi á Visitor.is sem sérhæfir sig í fótboltaferðum meðal annars. Þá er Þórhallur Dan á línunni en við ræðum um Lengjudeildina, PepsiMax, enska boltann, þýska boltann, Mourinho, fréttir og ...
Aug 20, 2021•53 min•Ep. 382
383.þáttur. Mín skoðun. Komið þið sæl og blessuð. Í dag ræðum ég og Þórhallur Dan um PepsiMax kvenna, boltann í Evrópu, slúður og fréttir, þar á meðal um Kane, Mbappe, Donnarumma og Mourinho. Þá heyri ég í Andra Steini Birgissyni um Lengjudeild karla. Þrír leikir eru í kvöld og við förum yfir sviðið. Andri Steinn er afar fróður um Lengjudeildina. Njótið.
Aug 19, 2021•50 min•Ep. 381
382.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag hringi ég fyrst í Þórhall Dan og við förum um víðan völl í boltanum. PepsiMax kvenna, eyjamenn í sóttkví, yfirlýsing KSÍ vegna ofbeldimála og margt margt fleira. Því næst hringi ég til Svartfjallalands og heyri í Hannesi S.Jónssyni formanni KKÍ sem er rámur eftir sigur Íslands á dönum í gær og einnig heyri ég í Kristni Pálssyni leikmanni Íslands. Þeir tveir voru glaðir rétt áður en haldið var heim á leið. Benedikt Guðmundsson þjálfari Njarðvíkur og körf...
Aug 18, 2021•1 hr 5 min•Ep. 380
381.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Þórhallur Dan er á línunni í dag í uppahfi þáttar. Við ræðum um PepsiMax leikina sem fóru fram í gær og Tóti tjáir sig eins og honum einum er lagið. Við ræðum einnig um Barcelona sem virðist vera nánast gjaldþrota og svo Ronaldo en líkur aukast nú á að hann fari frá Juventus. Þá heyri ég í Benedikt Guðmundssyni körfuboltaþjálfara og gúru en Ísland mætir dönum í dag í undankeppni HM þar sem Ísland þarf sigur til að tryggja sig áfram. Njót...
Aug 17, 2021•49 min•Ep. 379
380.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í dag heyri ég í Þórhalli Dan Jóhannssyni. Við ræðum um enska boltann um helgina, Haaland hjá Dortmund og svo einnig um bréf Hönnu Bjargar Vilhjálmsdóttur kennara sem birt var í fjölmiðlum um helgina. Þá hringi ég í Andra Stein Birgisson og við ræðum um Lengjudeildina. Þar förum við inná dómgæslu og annað en alvarlegt atvik átti sér stað í leik Kórdrengja og ÍBV þar sem leikmaður Kórdrengja var fluttur á sjúkrahús. Andri Steinn er svo 100% viss um va...
Aug 16, 2021•1 hr 16 min•Ep. 378
379.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í dag er nóg um að vera. Tippari vikunnar er enginn annar en Hreimur, Lífið er yndislegt. Við ræðum um leiki helgarinnar og förum aðeins í stöðuna hjá honum í tónlistarbransanum. Benedikt Guðmundsson körfuboltasérfræðingur er á línunni en við ræðum um íslenska karlalandsliðið sem er nú við þátttöku í undankeppni HM. Ísland tapaði í gær fyrir Svartfjallalandi og í dag er andstæðingurinn lið Danmerkur. Þá heyri ég í Andra Steini Birgissyni...
Aug 13, 2021•1 hr 42 min•Ep. 377
378.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Í dag heyri ég í Andra Steini Birgissyni og við ræðum um boltann hér heima, Mjólkurbikarinn, Breiðablik, sektir þjálfara og fleira. Þá hringi ég út til Podgorica í Svartfjallalandi og heyri fyrst í Hannesi S. Jónssyni formanni KKÍ og síðan í Hjalta Vilhjálmssyni aðstoðarþjálfara karlalandsliðsins en Ísland mætir Svartfjallalandi í dag í undankeppni HM. Ég talaði við Hannes um kostnaðinn við svona ferðalag, styrk frá hinu opinbera, Laugardalshöll...
Aug 12, 2021•50 min•Ep. 376
377.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks öllsömul. Í dag er góður dagur. Ég hringi í þann ágæta kappa, Andra Stein Birgisson og við ræðum um allt sem skiptir máli eða þannig. Mjólkurbikarinn í karlaflokki er tekinn fyrir, bæði leikirnir í gær og sem eru á dagskrá í kvöld. Þá er Lengjudeildin á sínum stað, Messi kemur við sögu sem og þetta ótrúlega lið sem PSG er orðið og margt margt fleira. Njótið.
Aug 11, 2021•44 min•Ep. 375
376.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í dag heyri ég í Andra Steini Birgissyni og við höfum um margt að spjalla. PepsiMax karla, Lengjudeildina og Mjólkurbikarinn svo eitthvað sé nefnt. Þá förum við í fréttir og slúður og Andri Steinn er alveg á því að Messi verði áfram hjá Barcelona. Njótið.
Aug 10, 2021•33 min•Ep. 374
375.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag er góður dagur. Andri Steinn Birgisson er spjalli dagsins og við förum yfir leikina í PepsiMax deild karla sem voru í gær. Þar voru óvænt úrslit og gekk mikið á og þá sérstaklega uppá skaga. Við förum yfir leikina og einnig tölum við um leik kvöldsins á milli Stjörnunnar og Breiðabliks. Fréttir og slúður er á sínum stað að sjálfsögðu. Njótið.
Aug 09, 2021•36 min•Ep. 373
374.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Það er nóg um að vera í dag. Tippari vikunnar er maðurinn með englaröddina, Valdimar Guðmundsson. Við ræðum um boltann og hann tippar á 5 leiki á Lengjunni ásamt því að við tölum um hans líf sem tók breytingum fyrir um 3 vikum. Þá hringi ég í Andra Stein Birgisson og við tölum um Lengjudeildina, PepsiMax, og svo stóru fréttina, Messi á förum frá Barcelona. Það og margt margt fleira hjá okkur. Njótið helgarinnar.
Aug 06, 2021•1 hr 13 min•Ep. 372
373.þáttur. Mín skoðun. Komiði sæl og blessuð. Í dag hringi ég í Andra Stein Birgisson og við ræðum um PepsiMax deild karla sem var í gær. Andri Steinn telur að ÍA eigi ekki sjens lengur á að halda sér uppi eftir tap liðsins í gær. Það og margt fleira þar. Þá tölum við um leik Breiðabliks og Aberdeen í Sambandsdeildinni í kvöld og einnig um Lengjudeildina en 15.umferð hefst í kvöld með stórleik Fram og Fjölnis. Við fjöllum svo um fréttir af Lukaku og hvaða laun hann kemur til með að fá hjá Chels...
Aug 05, 2021•47 min•Ep. 371
372.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í þætti dagsins hringi ég í Andra Stein Birgisson og við ræðum um PepsiMax leikina sem voru í gær. Andri Steinn var mjög getspakur í gær en við vorum ekki alveg sammála um tvö atriði í leik Fylkis og Leiknis. Við ræðum einnig um leiki kvöldsins en það er stórleikur að Hlíðarenda þar sem stórveldin Valur og KR mætast. Slúður og fréttir eru svo á sínum stað þar sem Haaland, Lukaku, Kane og fleiri koma við sögu. Njótið.
Aug 04, 2021•41 min•Ep. 370
371.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í þætti dagsins hringi ég í Andra Stein Birgisson sem verið hefur sérfræðingur minn í Lengjudeildinni og við ræðum um sportið. Við fjöllum um stórleikinn í PepsiMax deild karla í gær, förum í leiki kvöldsins í deildinni og að sjálfsögðu er slúðrið á sínum stað. Þar veltum við t.d. upp stöðunni hjá Harry Kane, Jack Grealish og svo Ronaldo svo eitthvað sé nefnt. Njótið.
Aug 03, 2021•42 min•Ep. 369
370.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í dag er góður dagur. Þórhallur Dan og ég ræðum um eiginlega allt í sportinu, gengi íslensku liðanna í evrópukeppninni í fótbolta, félagaskiptagluggann, Lengjudeildina, Laugardalsvöllinn, Laugardalshöllina, Olympíuleikana og ég veit ekki hvað við ræddum ekki um. Njótið helgarinnar og farið varlega.
Jul 30, 2021•43 min•Ep. 368
369.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag hringi í í tvo aðila. Sá fyrri er Andri Steinn Birgisson sérfræðingur minn í Lengjudeildinni. Við förum ítarlega yfir leiki gærkvöldsins og spáum í leik kvöldsins. Í seinna símtalinu hringi ég í Þórhall Dan Jóhannsson. VIð byrjum á að ræða um Covid19 en Tóti er eins og svo margir orðinn þreyttur á þessu öllu. Við ræðum einnig um Sambandsdeild Evrópu, PepsiMax kvenna, um Fjarðabyggð sem var eiginlega platað er varðar leikmenn sem komu til þeirra f...
Jul 29, 2021•1 hr 8 min•Ep. 367
368.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag hringi ég í Andra Stein Birgisson og við ræðum um Lengjudeildina í fótbolta. Einn leikur var í gær og svo eru tveir í kvöld. Við ræðum um leikmannamál og margt fleira. Þá heyri ég að vanda í Þórhalli Dan og við förum um víðan völl, PepsiMax kvenna, slúður og fréttir og margt margt fleira. Njótið dagsins.
Jul 28, 2021•1 hr 10 min•Ep. 366
367.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri ég í Þórhalli Dan og við ræðum um leik KR og Fylkis í PepsiMax sem fór fram í gær. Við ræðum einnig um Lengjudeildina, þríþraut á Ol og slúður og fréttir. Þá hringi ég einnig í Andra Stein Birgisson og við ræðum um leik Þórs og Fram sem verður í Lengjudeildinni í kvöld og einnig fréttir af leikmannamálum Kórdrengja. Njótið.
Jul 27, 2021•52 min•Ep. 365
366.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í dag heyri ég í Guðjóni Þórðarsyni þjálfara Víkings frá Ólafsvík en hann og hans menn eru enn í sóttkví og smitum fjölgar. Sendum þeim okkar bestu kveðjur. Þá heyri ég í Þórhalli Dan en við ræðum um ástandið hér heima í smitmálum, fjöllum svo um PepsiMax deildina ásamt því að fara aðeins í slúður og aðrar fréttir. Njótið.
Jul 26, 2021•44 min•Ep. 364
365.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul og velkomin til leiks. Í þætti dagsins er nóg um að vera. Ég hringi í Þórhall Dan Jóhannsson og við ræðum um PepsiMax deildina, fréttir og slúður og margt margt fleira. Tippari vikunnar er Kristín Sif útvarpskona á K100 en Kristín Sif er fremsta hnefaleikakona Íslands og var í vikunni valinn í fyrsta opinbera landsliðshópinn í hnefaleikum. Við ræðum um hnefaleika, tippum á leiki á Lengjunni og grínumst svo aðeins. En það er ekkert mikið grín í gangi h...
Jul 23, 2021•1 hr 6 min•Ep. 363
364.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag hringi ég í Andra Stein Birgisson og við förum yfir 13.umferð Lengjudeildarinnar sem hefst í kvöld. Andri Steinn hefur hingað til verið ótrúlega sannspár á úrslit leikja í sumar. Þá heyri ég í Þórhalli Dan og við tölum um leiki Breiðabliks, FH og Vals í kvöld í Sambandsdeild Evrópu. Við förum einnig í fréttir og slúður og tölum svo aðeins um Covid 19. Njótið dagsins.
Jul 22, 2021•1 hr 1 min•Ep. 362