333.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Í þætti dagsins komum við Þórhallur Dan víða við. Við tölum um hið frábæra lið KA/Þórs í handbolta sem varð Íslandsmeistari um helgina. Höldum áfram að tala um uppþotið eftir leik Aftureldingar og Fjölnis í Lengjudeildinni. Tölum um landsliðið í fótbolta, leik Vals og Víkings í kvöld, körfuboltann og margt margt fleira. Njótið.
Jun 07, 2021•56 min•Ep. 331
332.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í þætti dagsins er nóg um að vera. Ég og Þórhallur Dan förum yfir margt og mikið í sportinu. Uppþotið í Mosfellsbæ í gær þar sem Tóti er með nýjan vinkil á því máli, landsleikurinn gegn Færeyjum í dag, handboltinn og körfuboltinn og margt margt fleira. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum er tippari vikunnar og þar á bæ er nóg að gera enda sjómannadagshelgi framundan. Þá er Andri Steinn Birgisson sérfræðingur minn í Lengjudeil...
Jun 04, 2021•1 hr 18 min•Ep. 330
331.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Í þætti dagsins hringi ég í Andra Stein Birgisson sérfræðing minn í Lengjudeildinni og við spáum í leiki kvöldsins. Þá heyri ég Þórhalli Dan og við ræðum um körfubolta kvenna og karla. Til hamingju Valsstelpur með Íslandsmeistaratitilinn. Við ræðum einnig um handboltann í karla-og kvennaflokki. Fréttir og slúður eru á sínum stað sem og Krummasögur en Krummi er með eina góða í dag af landsliðsþjálfaramálum. Njótið dagsins.
Jun 03, 2021•50 min•Ep. 329
330.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í þætti dagsins hringi ég í Benedikt Guðmundsson nýráðinn þjálfara Njarðvíkur í körfubolta karla. Við ræðum um samninginn og samningaferlið sem og leikmannamál og margt annað. Þá heyri ég í Þórhalli Dan. Við förum í fréttir dagsins, slúður, handboltann og tökum aðeins fyrir UEFA gagnvart liðunum þremur sem enn eru í Super League og margt margt fleira. Njótið.
Jun 02, 2021•56 min•Ep. 328
329.þáttur. Mín skoðun. AUKAÞÁTTUR. Heil og sæl öllsömul. Loksins tókst að ná viðtali við Böðvar Guðjónsson formann körfuknattleiksdeildar KR eftir sigurleikurinn gegn Val í úrslitakeppninni. Hann var til í dag og búinn að núllstilla sig eins og hann komst að orði. Ég tala við hann um allt er viðkemur KR í körfunni, fjármál, Kristófer-málið, hallarbyrltinguna í aðalstjórn og margt fleira. Njótið.
Jun 01, 2021•29 min•Ep. 327
328.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum við Þórhallur Dan yfir sviðið í sportinu. Við ræðum um landslið karla í fótbolta og einnig um þjálfaramál á Íslandi. Úrslitakeppnin í körfubolta er tekin fyrir sem og úrslitakeppnin í handbolta karla. Við ræðum um Super league sem ekkert varð af og stöðu Barca, Real Madrid og Juve í því máli gagnvart UEFA. Þetta og margt margt fleira í þætti dagsins. Njótið.
Jun 01, 2021•53 min•Ep. 326
327.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í þætti dagsins fer ég yfir gang mála í Lengjudeild karla með Andra Steini Birgissyni en nú er fjórum umferðum lokið þar og mikið gekk á um helgina. Ég hringi svo í Þórhall Dan og við förum yfir Meistaradeildina þar sem Chelsea varð meistari. Landsliðið okkar í fótbolta er tekið fyrir sem og PepsiMax karla og Tóti tjáir sig vel um það mál og körfubolti og handbolti koma líka við sögu. Þá ræðum við sérstaklega um leiki í Lengjudeildinni s...
May 31, 2021•1 hr 21 min•Ep. 325
326.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í þætti dagsins er nóg um að vera. Tippari vikunnar er Hjörtur Hjartarson sem afrekaði það í vikunni að setja nýtt markamet í íslenska boltanum, 222 mörk. Við spjöllum um allt milli himins og jarðar ásamt því að tippa á 5 leiki á Lengjunni. Andri Steinn Birgisson er sérfræðingur minn í Lengjudeild karla og hann er á línunni. Þá heyri ég í Þórhalli Dan og við tölum um landsliðsval á U21, fréttamola, Dominsodeild karla og kvenna, PepsiMax ...
May 28, 2021•1 hr 43 min•Ep. 324
325.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir það helsta í sportinu. Tap Man.Utd. í úrslitum Evrópudeildarinnar í gær. Slúður og fréttir eru á sínum stað en það gengur mikið á í þjálfaramálum í Evrópu. Dominosdeild karla og Olísdeildir karla og kvenna eru teknar fyrir. Við förum í hópinn hjá U21 árs landsliðinu vegna bréfs sem þættinum barst og svo í þjálfaramál í PepsiMax karla. Þetta og margt margt fleira. Þá minni ég á Facebook síðu þáttarin...
May 27, 2021•59 min•Ep. 323
324.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan ræðum um margt og mikið í þætti dagsins. Fyrst komum við inná höfuðmeiðsli sem sonur Þórhalls, Dagur Dan, leikmaður Fylkis varð fyrir í gær og var fluttur á sjúkrahús. Við ræðum um leikina í PepsiMax og svo um landsliðið og enn eru leikmenn að afboða. Man.Utd. og Villarreal mætast í kvöld í úrslitum Evrópudeildarinnar og tveir leikir eru í úrslitakeppni Dominosdeildar karla í kvöld. Við förum í fréttir og slúður og margt fleira. Njótið dag...
May 26, 2021•59 min•Ep. 322
323.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir sviðið í sportinu. Enski boltinn og Aquero, franski boltinn og Lille, ítalski boltinn og Donnarumma, þýski boltinn og Lewandowski, íslenski boltinn, KR stjórnarumræða og margt margt fleira. Njótið dagsins.
May 25, 2021•57 min•Ep. 321
322.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Það er langur þáttur í dag og mikið að gerast. Tippari vikunnar er hinn eini sanni Einar Bárðarson, fjölmiðlamaður, tónlistarmaður með miklu meiru. Hann spáir í 5 leiki á Lengjunni ásamt því að tippa á gengi Daða og Gagnamagnsins í Eurovision á morgun. Andri Steinn Birgisson er sérfræðingur minn í Lengjudeild karla í fótbolta og hann fer yfir gang mála þar spáir í leiki helgarinnar. Þórhallur Dan er svo að sjálfsögðu á línunni. Við förum yfir PepsiMax karla, ...
May 21, 2021•1 hr 40 min•Ep. 320
321.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir sviðið í sportinu. Enski boltinn, ítalski boltinn, PepsiMax kvenna, úrslitakeppnin í körfubolta, landsliðið okkar og þjálfaramál, slúður og fréttir og umræða um það og margt margt fleira er það sem við tölum um. Njótið dagsins.
May 20, 2021•44 min•Ep. 319
320.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Logi Gunnarsson körfuboltagoðsögn er á línunni í þætti dagsins. Við ræðum um hann og Njarðvík. Förum í úrslitakeppnina sem nú stendur yfir og tölum um yfirlýsingu ÍSÍ varðandi mismunun í bólusetningum. Þar er ég að tala um þátttakendur Íslands í Eurovision-söngvakeppninni annarsvegar og afreksíþróttafólk hinsvegar. Þá hringi ég í Þórhall Dan Jóhannsson og við ræðum um enska boltann, mismunun í áðurnefndum bólusetningum, KSÍ og landsliðþjálfaramál, Pe...
May 19, 2021•1 hr 4 min•Ep. 318
319.þáttur. Mín skoðun. Komið þið sæl og blessuð. Í þætti dagsins byrja ég á að ræða við Þórhall Dan um boltann í gær. Við förum yfir leikina í Pepsi karla og einnig ræðum við um enska boltann og baráttuna um meistaradeildarsæti þar í landi. Þá hringi ég norður til Akureyrar og spjalla við Arnar Grétarsson þjálfara KA en norðanmenn eru á toppi PepsiMaxdeildarinnar ásamt FH, Víkingi Val. KA menn eru í vandræðum með sinn heimavöll og við Arnar tölum um það og gengi liðsins ásamt að fara í meiðslal...
May 18, 2021•1 hr 1 min•Ep. 317
318.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins ræði ég við Andra Stein Birgisson um Lengjudeildina í fótbolta og Andri Steinn tjáir sig um leikina og liðin og ef einhver fylgist vel með gangi mála í þessari deild þá er það hann. Þórhallur Dan er svo á línunni og við förum um víðan völl. Pepsideildin, enski boltinn, Alisson markið og Liverpool, ítalski boltinn og Ronaldo. Er Ronaldo á förum frá Juve? Olís deild kvenna og Dominosdeild karla eru svo tekin fyrir ásamt fleiru. Njótið.
May 17, 2021•1 hr 30 min•Ep. 316
317.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í þætti dagsins er nóg um að vera. Andri Steinn Birgisson sérfræðingur minn í Lengjudeild karla er á línunni og við förum yfir gang mála í þeirri deild. Tippari vikunnar er Ásthildur Helgadóttir fyrrum landsliðskona í fótbolta. Hún segir frá hvert uppáhaldslið hennar er í enska boltanum og afhverju og meira til. Þá ræði ég við Þórhall Dan um eiginlega allt sem er í gangi. Domoniosdeildina, Olísdeildina, enska boltann, ítalska, Twitter og margt margt ...
May 14, 2021•1 hr 16 min•Ep. 315
316.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Í þætti dagsins ræði ég við Þórhall Dan um enska boltann í gær og á morgun. United-Liverpool og margt fleira þar. Við tölum um ítalska boltann, Buffon, Ronaldo og Juve. PepsiMax kvenna og spáum svo í leikina í dag og á morgun í Pepsí Max karla ásamt því að tala aðeins um að KA leikur í dag heimaleik sinn á Dalvíkurvelli. Tóti er með mikla skoðun á því máli. Njótið.
May 12, 2021•41 min•Ep. 314
315.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins ræði ég við Inga Þór Steinþórsson einn af þjálfurum Stjörnunnar í körfubolta en síðasta umferð Dominosdeildar karla fór fram í gær. Ingi Þór er afar reyndur þjálfari og veit sínu viti. Við ræðum um leikina í úrslitakeppninni, og margt margt fleira í körfuboltanum. Þá heyri ég í Þórhalli Dan Jóhannssyni og við ræðum um enska boltann, PepsiMax kvenna, Ólaf Kristjánsson og Þórhallur Dan kemur með hugmynd að nýjum þjóðarleikvangi. Njótið.
May 11, 2021•55 min•Ep. 313
314.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Ég og Þórhallur Dan ræðum málin í þætti dagsins. Það er af nógu að taka og við förum yfir gang mála í PepsiMax deildinni. Tölum um Stjörnumálið, förum í enska boltann, slúður, Lengjudeildina og margt margt fleira. Njótið
May 10, 2021•49 min•Ep. 312
313.þáttur. Mín skoðun. Komið þið sæl og blessuð. Í þætti dagsins verður komið víða við. Andri Steinn Birgisson sérfræðingur í Lengjudeildinni í fótbolta fer yfir leiki gærkvöldsins og helgarinnar. Tippari vikunnar er Páll Magnússon alþingismaður og eyjamaður með meiru. Páll ræðir við mig um leikina fimm á Lengjunni, fjölmiðlafrumvarpið og svarar spurningunni afhverju hann er að hætta á þingi. Þá er Þórhallur Dan á línunni en við förum yfir leikina í PepsiMax karla ásamt slúðri og fleiru. Njótið...
May 07, 2021•1 hr 34 min•Ep. 311
312.þáttur. Mín skoðun. Sæl öllsömul. Í dag ræði ég við Andra Stein Birgisson fyrrum þjálfara Kórdrengja um Lengjudeild karla en keppni þar hefst í kvöld. Andri Steinn verður minn sérfræðingur í Lengjudeildinni í sumar og við eigum gott spjall í dag. Hverju spáir hann fyrir sumarið? Þórhallur Dan er svo í góðu spjalli. Kappinn var að koma úr bólusetningu og ofur hress. Við ræðum Meistaradeildina, Evrópudeildina, Lengjudeildina, leikjaálag í ensku úrvalsdeildinni og margt margt fleira. Njótið og ...
May 06, 2021•1 hr 18 min•Ep. 310
311.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan um víðan völl. PepsiMax kvenna, Meistaradeildina, Mourinho, slúður og Covid 19. Tóti er ekki aðdáandi Mourinho og biður Guð að blessa Roma. Ég hringi svo á Sauðárkrók og ræði þar við Óskar Smára Haraldsson annan þjálfara Tindastóls í PepsiMax kvenna en Tindastóll leikur í dag sinn fyrsta leik í efstu deild í fótbolta. Njótið og eigið frábæran dag.
May 05, 2021•1 hr•Ep. 309
310.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan ræðum förum um víðan völl. Tóti byrjar á að svara spurningum sem komu upp á Facebook síðu þáttarins, Mín skoðun, og við fjöllum einnig um enska boltann, Meistaradeildina og PepsiMax kvenna sem hefst í kvöld. Þá tek ég viðtal við Danny Guthrie sem er genginn til liðs við Fram en hann á yfir 200 leiki í ensku úrvalsdeildinni og Championship deildinni. Afhverju Fram á Íslandi? Danny Guthrie svarar því. Njótið og eigið frábæran dag.
May 04, 2021•51 min•Ep. 308
309.þáttur. Mín skoðun. Sæl og blessuð öllsömul. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir það helsta um helgina. Tölum um óeirðirnar á Old Trafford, PepsiMaxdeildina en þar er Tóti ekki sammála Erlendi Eiríkssyni dómara í leik Fylkis og FH um tvö atriði sem breyttu leiknum. Við förum yfir slúðrið og margt margt fleira. Njótið.
May 03, 2021•44 min•Ep. 307
308.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í þætti dagsins er komið víða við. Tippari vikunnar er enginn annar en Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi. Hann er mikill Chelsea aðdáandi og er kátur þessa dagana með sína menn. Siggi Sveins,(Sigurður Valur Sveinsson), handboltagoðsögn er á línunni og við ræðum um ófarir íslenska karlalandsliðsins í handbolta í leiknum gegn Litháen í gær. Þá er Þórhallur Dan á línunni og við ræðum um Evrópudeildina og að sjálfsögðu förum við ítarlega í PepsiMax d...
Apr 30, 2021•1 hr 25 min•Ep. 306
307.þáttur. Mín skoðun. Komið þið sæl og blessuð. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir boltann í gær í Meistaradeildinni og tökum einnig fyrir Gary Martin málið. Þá tölum við um Evrópudeildina í kvöld, förum aðeins í slúðrið og margt margt fleira. Eigið þið frábæran dag.
Apr 29, 2021•47 min•Ep. 305
306.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins fjalla ég um íslenska karlalandsliðið í handbolta og hringi í Óskar Bjarna Óskarsson handboltaþjálfara. Þar kemur maður ekki að tómum kofanum skal ég segja ykkur. Þá er Andri Steinn Birgisson fótboltasérfræðingur í spjalli um Meistaradeildina og einnig um Evrópudeildina ásamt þvi að við förum í nýjustu frétt dagsins um að Gary Martin var rekinn frá ÍBV. Njótið dagsins.
Apr 28, 2021•57 min•Ep. 304
305.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Þórhallur Dan er á línunni í dag og við ræðum um ýmislegt, þar á meðal KSÍ, enska boltann, ítalska boltann og fleira. Þá heyri ég í Einari Andra Einarssyni handboltaþjálfara en Ísland mætir Ísrael í dag í undankeppni EM í handbolta karla en leikið er ytra. Einar Andri er afar fróður og gaman að spjalla við hann sem fyrri daginn. ÁFRAM ÍSLAND.
Apr 27, 2021•43 min•Ep. 303
304.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og gleðilegan mánudag. Í þætti dagsins ræði ég við Andra Stein Birgisson um enska boltann um helgina. Við förum í VAR og einnig um Mjólkurbikarinn hér heima. Þá heyri ég í Ingó Veðurguð en hann var tippari vikunnar s.l. föstudag. Þá hringi ég í Kristin Jakobsson fyrrum dómara og við ræðum ítarlega um VAR á Englandi og víðar. Njótið.
Apr 26, 2021•1 hr 13 min•Ep. 302